Óvenju margir fara nú offari í fjölmiðlum og annars staðar í netheimum. Yfirfullir af réttlátri reiði fordæma þeir verk Sóleyjar Tómasdóttur.
Og hvað hefur hún svo unnið sér til saka? Ekkert var athugavert við forvalið sjálft, hún er óumdeildur sigurvegari. Engar reglur voru brotnar í forvalinu sem bæði kjörstjórn og stjórn VG í Reykjavík hafa undirstrikað. Þvert á móti má segja henni til hróss að hún hefur sýnt töluverða þrautsegju og þolinmæði í þessum hremmingum. Ekki hefur Sóley farið á taugum þó að hún hafi ranglega verið sökuð um kosningasvindl ítrekað. Mér þætti gaman að sjá hversu margir stæðust það próf.
Núna hafa einhverjir óprúttnir aðilar tekið sig til og ákveðið að skrifa næsta kaflann í farsanum. Málsatvik eru þau að eftir að Hermann Valsson leysir Þorleif Gunnlaugsson af á síðustu stundu, vefst honum tunga um tönn þegar greiða á atkvæði. Sóley kallar þá til hans upplýsingum um hvernig þau Þorleifur hafi ákveðið að bregðast við málinu, sem sagt að sitja hjá. Fyrir þetta er Sóley sökuð um valdníðslu og atlögu að lýðræðinu.
Staðreyndin er auðvitað sú að í þinginu og inni í borgarstjórn hafa flokkarnir samráð um hvernig þeir bregðast við málunum. Það þýðir ekki að öllum sé ætlað að tala einu máli, enda þekkist það vel að innan flokka séu menn ósammála. Það þýðir bara að fólk vinnur saman, hefur með sér verkaskiptingu og kastar á milli sín hugmyndum.
Þetta er daglegt brauð alls staðar í stjórnmálum. Þetta þekkja allir þeir sem komið hafa þeim nærri. Þetta er ekki nokkur einasta frétt. En allt í einu og upp úr þurru ákveða menn að Sóley Tómasdóttir sé óalandi og óferjandi.
Staðreyndin er auðvitað sú að Sóley er frábær stjórnmálamaður. Hún er gríðarlega vinnusöm, strangheiðarleg og klár. Hún er fljót að hugsa og kemur oft með óvæntan vinkil á málin sem snúa vopnum í höndunum á andstæðingum. Út af þessu var hún kosin í fyrsta sæti, menn vita einfaldlega að þeir geta treyst henni til að vinna vinnuna sína.
17. febrúar 2010
Pólitík á lægsta plani
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:44
0
athugasemdir
9. febrúar 2010
Aðeins um spilavíti
Samkvæmt Fréttablaðinu í dag eru tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir með áform um að reisa spilavíti hér á landi. Megintilgangurinn er að bjóða ferðamönnum upp á aukna afþreyingu, stækka spektrúmið ef svo má segja, svo að ferðamennirnir þurfi ekki að láta sér leiðast þegar þeir koma í heimsókn. Þó er sá hængur á að fyrst þarf að breyta hegningarlögum og til að gera það þarf að liggja fyrir almennilegur rökstuðningur.
Um starfsemi spilavíta (sem Jóni Kaldal finnst vera ómögulegt orð og gagnast málstað tvíburana illa) er eftirfarandi vitað: Spilavítið græðir alltaf. Viðskiptavinurinn tapar í flestum tilvikum og starfsemin er með þeirri ábatasömustu sem hægt er að ráðast í. Það er því ekki erfitt að skilja áhuga tvíburana.
Hagnaðarsjónarmiðin eru þó ekki fyrirferðarmikil í röksemdafærslunni sem fram kemur í Fréttablaðinu í dag. Hún samanstendur af þremur atriðum. Í fyrsta lagi þeirri að viðskiptavinir spilavítisins yrðu aðallega útlendingar. Í öðru lagi segja þeir að hér sé skortur á afþreyingarframboði og síðast en örugglega ekki síst að ríkið myndi hafa af þessu verulegar skatttekjur.
Hvað fyrsta efnisþáttinn varðar þá er erfitt að sjá hvaða máli skiptir hverjir verða viðskiptavinir spilavítisins. Ef tvíburarnir eru að gefa í skyn að spilavítið hafi neikvæð samfélagsleg áhrif, en það sé í lagi af því að útlendingar muni bara sækja staðinn þá sé ég ekki hvernig það gagnast þeim í áróðursferlinu. Staðreyndin er auðvitað sú að fjárhættuspil eyðileggja nú þegar líf fjölmargra einstaklinga og fjölskyldna og fólk með siðferðið í sæmilegu lagi lætur sig einu varða þótt að ríkið stuðli að vansæld íslendinga eða annarra.
Ekki má gleyma í þessu samhengi að rannsóknir sýna bein tengsl á milli aðgengis og neyslu hvað þetta varðar rétt eins og með aðra fíknivaldandi neyslu.
Röksemd númer tvö er ekki beysin. Það er ekkert sem staðfestir fullyrðingu um að hér sé skortur á afþreyingu. Allir sem komið hafa nálægt ferðamálum geta staðfest að hér er nóg við að vera fyrir ferðamenn sem hingað koma. Linnulaus aukning ferðamanna ár eftir ár ein og sér blæs röksemdina út af borðinu.
Þá stendur eftir hellingur af peningum sem ríkissjóði stendur til boða. Þá er rétt að kalla eftir kostnaðartölum til að geta fengið nettóupphæðina. Vonandi gera menn þá ráð fyrir öllum breytum eins og til dæmis þeirri að spilavítum fylgir hugsanlega hærri glæpatíðni og þeirri að þó skatttekjur bandarískra ríkja sem leyfa fjárhættuspil og spilavíti aukist til að byrja með, er staðreyndin sú að skatttekjur þessara sömu ríkja minnka til lengri tíma (sjá hér).
Annars eru peningar ekki allt, þó að fjárlagagerðin sé óvenju erfið um þessar mundir og landið vonandi búið að breytast, þó ekki nema í þá átt að ekki sé lengur allt falt fyrir peninga.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:11
0
athugasemdir
7. febrúar 2010
Að loknu forvali
Nú þegar tölur liggja fyrir er ég fyrst og fremst ánægður með það góða fólk sem skipar eftu sæti framboðslista VG. Þátttakan er sú besta í sögu flokksins skilst mér, rúmlega 1000 manns sem er vitaskuld frábært. Framkvæmdin var til fyrirmyndar og allt gekk þetta snuðrulaust fyrir sig.
Það er töluverður léttir að þessu sé lokið. Útkoman er ekki í samræmi við ætlanir en langt frá því að vera alslæm þrátt fyrir það. Það er einfaldlega ekki auðvelt að koma sjálfum sér á framfæri, og á stundum alger raun.
11 sæti hljómar ekki kræsilega fyrir mann sem bauð sig fram í 4.-6. sæti en á bak við það eru samt rúmlega fjórðungur atkvæða, ég get ekki verið annað en þakklátur fyrir það. Og rétt kannski í leiðinni að þakka öllum þeim sem lögðu mér lið, takk kærlega fyrir.
Við tekur slagur um sætin í borgarstjórn. Hann verður vafalaust spennandi og skemmtilegur. Ég er í það minnsta tilbúinn til að berjast eins og ljón.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:13
0
athugasemdir
5. febrúar 2010
Hinir óheppnu
Sú mótsögn verður æ algengari í umræðunni að lýðræðisstofnanir þjóðarinnar séu úthrópaðar á meðan lýðræðinu er hampað sem leið okkar út úr krísunni sem hvolfdist yfir okkur í kjölfar hrunsins. Alþingi, stjórnarráðið og stjórnskipanin öll eru sögð ófær um að sinna hlutverkum sínum. Stjórnmálamenn og -flokkar eru vanhæfir í eðli sínu, svo ekki sé nú talað um ráðhúsið og stúdentapólitíkin er svo hlægileg að ekki tekur tali.
Vantraust fólks er að sjálfsögðu tilkomið vegna þess að stjórnmálamenn hafa ítrekað brugðist því trausti sem kjósendur þurfa að geta sýnt þeim og hafa sýnt þeim með því að kjósa þá til starfa. Það er ekkert launungarmál að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa verið öðrum iðnari við að rjúfa þetta traust - það er gömul saga og ný. Samt sem áður hefur flokkurinn alltaf talið flest atvæði upp úr kjörkössunum, nú sem áður, fyrir utan nokkur frávik sem hafa jafnan vakið undrun.
Núna blasir við að bróðurpartur þingflokks Sjálfstæðisflokksins gengur um með stórskaddað mannorð og á sama tíma mælist flokkurinn sem fyrr stærstur á landinu í skoðanakönnunum.
Málsvörn spilllingaraflana felst í því að hampa þeirri orðræðu að allir flokkar séu spilltir og því sé ekki til neins að kjósa um traust. Undir þessa ósönnu fullyrðingu tekur fólk hvar sem er í hinu pólitíska litrófi.
Staðreyndin er þó vitanlega sú að flokkarnir hafa misjafnt orðspor. Öll starfsemi Vinstri grænna miðar af því að vinnubrögð séu eins opin og gegnsæ og hægt er. Allar upplýsingar um fjármál flokksins eru aðgengilegar almenningi og hvað varðar pólitík stóð flokkurinn ævinlega á móti og varaði við þeirri óheillaþróun sem leiddi okkur fram af brúninni. Um það ætti ekki að þurfa að hafa mörg orð.
Staðreyndin er líka sú að lýðræðiskerfið sem við búum við, fjölflokka hlutfallskosningar, er talið það besta til að endurspegla vilja þjóðar. Flest sjónarmið endurspeglast í fjölda flokka og hlutfallskosningin sér til þess að valdahlutföllin endurspegli vilja þjóðarinnar. Það er því ekkert að kerfinu sem slíku.
Til að fulltrúarnir hafi aðhald þarf þátttaka í kosningum að byggjast á upplýstri og virkri skoðanamyndun og eðli málsins samkvæmt ætti enginn upplýstur maður að vilja kjósa yfir sig fjárglæframann með siðferðið á vafasömu plani. Þannig á kerfið að virka, með umbun og refsingu. Stjórnmálamenn eru nefnilega ekki vondir í sjálfu sér - sumir eru bara svo óheppnir að vera kosnir aftur og aftur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:26
0
athugasemdir
28. janúar 2010
Í nýlegum pistli á hinni gamalgrónu vefsíðu Deiglunni skrifar Þórlindur Kjartansson, fyrrverandi formaður SUS og starfsmaður Landsbankans, lágstemmda hugvekju sem ber titilinn "Hinir syndlausu" um þann hvimleiða sið sumra stjórnmálamanna að kasta ábyrgðinni á aðra og verja eigin gerðir út í hið óendanlega. Deiglan er ágætur miðill og oft má lesa þar ýmislegt sér til fróðleiks og skemmtunar. Síðunni var lengi vel haldið úti af hinum svokallaða Geirs-armi flokksins - þess sem var forsætisráðherra árin 2006-2009, síðustu þrjú árin fyrir hrun.
Af nægu er að taka í íslenskri pólitík þegar kemur að áðurnefndum löstum, en Þórlindur ákveður að brýnast sé að beina sjónum sínum að Steingrími J. Sigfússyni. Hann segir Steingrím hafa gert arfavonda samninga við Breta og Hollendinga og eigi að viðurkenna mistök sín.
Nú er það morgunljóst að Icesave skuldin er hið mesta böl. En þó við stillum okkur um að skoða Icesave í kjölinn, tilkomu hans og samningsstöðu landsins í því hroðalega máli, ættum við samt að geta, í krafti hinnar miklu siðbótar sem Þórlindur boðar, kallað fleiri valinkunna stjórnmálamenn fram í kastljósið og athuga hvort þeir hafi ekki "vit á því að viðurkenna eigin mistök". Því annað sé "ábyrgðarlaust og heimskulegt".
Þórlindi þætti svo vonandi auðsótt mál að athuga hvort Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir væri tilbúin til að biðjast afsökunar á 893 milljóna króna kúluláni sem hún tók í félagi við eiginmann sinn en flutti svo í eignarhaldsfélagið 7 hægri og mun líklega lenda á skattborgurum að greiða. Í leiðinni gæti hún beðið Richard Thomas, sérfræðing hjá greiningardeild fjárfestingarbankans Merill Lynch, afsökunar á að hafa haldið því fram að hann þyrfi að fara í endurmenntun eftir að hann benti á að íslensk stjórnvöld væru að keyra bankana í þrot.
Nú, Guðlaugur Þór Þórðarson stóð að óvenju rausnarlegum peningagreiðslum FL-Group og Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins og ætti vitanlega að biðjast afsökunar á því - og þessum fjórum milljónum sem hann fékk í eigin vasa í leiðinni.
Árni Mathiesen fv. fjármálaráðherra hlýtur að biðjast afsökunar og viðurkenna mistök sín. Ráðherrann sem undirritaði samning um að borga 700.000 milljónir á 10 árum og 6,7% vöxtum - sem verður að teljast umtalsvert verri samningur en sá sem nú liggur fyrir og snýst um að borga 183.000 milljónir á 17 árum og 5,5% vöxtum.
Og ef Þórlindur yrði svo elskulegur að hóa í þetta handahófskennda úrtak samflokksmanna sinna, þá væri honum ekki skotaskuld úr því að hnippa í foringja sinn Geir H. Haarde í leiðinni og fá hann til að koma með aðeins ítarlegri útfærslu á "maybe i should have" ræðunni sinni og segja okkur sögur af sjóði 9, neyðarlögunum, áróðursleiðangri sínum til varnar íslensku bönkunum, stöðu innistæðutryggingasjóðs og gjaldþroti Seðlabankans svo eitthvað sé nefnt. Og ekki verður yfirbótin minnst þegar Geir biðst afsökunar á láni Seðlabankans til Kaupþings, meira og minna án veða, rétt áður en Seðlabankinn fór á hausinn. Upphæð þess láns er nefnilega nokkuð hærri en sú sem við þurfum að greiða Bretum og Hollendingum vegna Icesave.
Sú staðreynd að Icesave skuldin er langt í frá það sem íþyngir okkur mest er einmitt samninganefnd Steingríms J. Sigfússonar að þakka. Legg ég því til að Steingrímur biðjist ekki afsökunar á neinu sem varðar Icesave samningana, heldur herði Þórlindur sig og sína menn í að fara í löngu tímabært uppgjör og yfirbót og biðji þjóðina afsökunar á þætti sínum í hruninu.
Eins og Þórlindur bendir réttilega á í niðurlagi greinar sinnar þurfa menn nefnilega að hafa "vit á því að spila úr þeirri stöðu sem er uppi en ekki þeirri sem þeir óskuðu sér. Og til þess þarf að hafa vit á því að viðurkenna eigin mistök. Annað er ábyrgðarlaust og heimskulegt. Og á hvorugu höfum við efni núna."
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:07
0
athugasemdir
Tilkynning um framboð
Þór Steinarsson býður sig fram á lista Vinstri grænna í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann sækist eftir 4. til 6. sæti í forvali hreyfingarinnar 6. febrúar næstkomandi.
Ný forgangsröðun við stjórn borgarinnar.
Þór leggur höfuðáherslu á að forgangsröðun í þágu jöfnuðar og réttlætis verði tryggð við stjórn borgarinnar. Leiðrétta þarf þau neikvæðu áhrif sem forgangsröðun núverandi meirihluta hefur haft á velferðarkerfi og grunnþjónustu borgarinnar. Tryggja þarf stuðning samfélagsins við þá sem höllum fæti standa, m.a. með því að:
- nýta að fullu útsvarsheimildir borgarinnar
- fjölga atvinnuúrræðum ungs fólks á vegum borgarinnar
- draga úr niðurskurði á leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum
- gæta að því að starfskjör og vinnuálag borgarstarfsmanna sé í samræmi við aðra starfshópa
Aukið lýðræði við stjórn borgarinnar.
Svo hámarka megi lífsgæði borgarbúa er mikilvægt að þeir geti haft áhrif bæði á sitt nánasta umhverfi stærri ákvarðanir. Þessi hugmynd hefur ekki verið höfð í heiðri við stjórn borgarinnar. Nauðsynlegt er að ráðast í lýðræðisumbætur og auka valddreifingu í stjórnkerfi borgarinnar á komandi kjörtímabili. Það verður gert með því að:
- fjölga tækifærum borgarbúa til þáttöku við stefnumótun
- færa fleiri ákvarðanir inn í hverfin og nær fólkinu
- fjárlagagerð fari fram á kynjuðum forsendum
- auka samráð og samvinnu með minnihlutahópum
- efla þjónustumiðstöðvar
Um Þór
Þór Steinarsson er 35 ára, fæddur og uppalinn á Akureyri en hefur verið búsettur í Reykjavík síðastliðin 12 ár. Hann er bókmenntafræðingur að mennt og hefur starfað við ýmis markaðs- og kynningarstörf, meðal annars sem markaðs- og sölustjóri Urriðaholts ehf. Þór leggur nú stund á meistaranám í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands og mun ljúka því í júní.
Þór er stofnmeðlimur í Vinstri grænum og hefur tekið virkan þátt í starfi hreyfingarinnar og var m.a. kosningastjóri í Norðausturkjördæmi í síðustu alþingiskosningum.
Þór á synina Ragnar Stein og Þorstein Elvar og er í sambúð með Guðrúnu Baldvinu Sævarsdóttur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:05
0
athugasemdir
Að spila sig fávísan
Sú samfélagsmynd sem blasti við mörgum að afloknu hruni, þá byltingu og að lokum nýjum kosningum var lamandi og þungbær. Menn höfðu misjafna sýn á framtíðina. Örfáir pökkuðu niður og fluttu úr landi, en flestir héldu ró sinni, ákveðnir í að mæta því sem höndum bar. Öllum var þó ljóst að atvinnuleysi myndi aukast, kaupmáttur minnka og að ríkissjóður þyrfti að draga verulega úr útgjöldum. Efnahagsvandinn hefur líklega aldrei verið erfiðari hjá þessari þjóð í seinni tíð.
Meirihluti landsmanna kaus sér flokka til forystu sem ætluðu að fara blandaða leið til að draga úr halla ríkissjóðs. Að auki var stefnt að því að endurskoða efnahagsáætlun ríkissjóðs og koma landinu út úr gjaldeyriskreppunni með aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og liðsinni annarra þjóða. Í framhaldi væri hægt að slaka á gjaldeyrishömlum, efla gengi krónunnar og lækka stýrivexti.
Nú er ár liðið frá því að eldar loguðu við Alþingi og mörgum finnst mál til komið að hitamælir efnahagskerfisins fari að hífa sig upp yfir frostmark. Einn af þeim er Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Í fréttum á miðvikudaginn tjáði hann sig ábúðafullur um stöðu mála og skildi ekkert í því af hverju stjórnvöld væru ekkert að gera til að bregðast við efnahagsvandanum, og áfram hélt hann:
„Varðandi útgjaldahliðina þá er ákaflega lítið í gangi. Varðandi einkaframkvæmd þá er fyrir utan háskólasjúkrahús sem ekki kemur til framkvæmda fyrr en 2012 og 2013 þá er ekkert að gerast. Og lítið að gerast annars, aðeins í sveitarfélögunum. Varðandi stóriðjuna þá er það meira og minna í frosti“.
Nú er Gylfa fyllilega ljóst að forsendur fyrir opinberum framkvæmdum og öðrum útgjöldum eru að greitt verði úr efnahags- og gjaldeyrisvandanum með samþykkt Icesave samninganna svo fá megi það lánsfé sem stendur til boða frá Skandinavíu og öðrum löndum. En af fréttaflutningnum mátti ekki ráða að Gylfi hefði nokkurn tímann fengið veður af þessari áætlun. Þvert á móti undrast forseti ASÍ að ekkert bóli á stóriðjuframkvæmdum, þegar reyndin er að engin stofnun eða fyrirtæki á landinu hefur nokkurn möguleika á að koma að slíkum framkvæmdum á meðan ekki næst að útvega lánsfé.
Og staðan er auðvitað sú að ekki hefur verið hægt að ganga frá samningum við Breta og Hollendinga vegna moldviðris sem stjórnarandstaðan, sem saman stendur af hrunaflokkunum, hefur sópað upp í kringum þetta mál í þeim tilgangi einum að koma í veg fyrir að aðrir en hún komi landinu á réttan kjöl og geri upp við fortíðina.
Væri Gylfa umhugað um að framkvæmdir kæmust í gang á ný væri honum nær að taka undir með ríkisstjórninni um mikilvægi þess að framfylgja endurreisnaráætluninni frekar en að spila sig fávísan um stöðu mála. Nóg er af slíkum í hrunaflokkunum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:03
0
athugasemdir
11. ágúst 2009
Ekki gekk vel að losna undan ægivaldi Facebook, held að það hafi ekki liðið sólahringur áður en ég áttaði mig á því að síðan er eina tengingin sem ég hef við ákveðinn hóp fólks, aðallega útlendinga. Ég er því fastur um sinn en bíð þess spenntur að losna endanlega undan þessu fáránlega félagsumhverfi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:42
0
athugasemdir
6. ágúst 2009
Facebook var skemmtileg í smá stund. Núna er hún eins og hvert annað hundakex. Sálarmorð og tilræði við mennskuna. Tilhugsunin um blogg þægileg, eins veruleikafirrt og það er.
Gefum þessi séns. Er til blogg handan úrkynjunar? Losnar maður við óþolið? "Men just lay there, and they die there" Fjandinn hafi það. Hlíðin hlýtur að fela í sér einhvern snefil af fegurð! Eða er ég að rugla saman þessu stafræna og þessu lífræna? Auðvitað! Nema hvað. Afhjúpunin getur aldrei verið annað en skáldskapur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:23
0
athugasemdir
10. nóvember 2008
Maður hefði haldið að þegar áður óþekkt og hrollvekjandi krísa steðjar að þjóðinni, þyrfti að bregðast hratt og örugglega við. Auðvitað eru stjórnvöldum þröngur stakkur sniðinn, en á þeim 37 dögum sem liðnir eru síðan neyðarlög voru samþykkt hefur ekkert gerst.
Ekki eitt einasta þingmál hefur verið samþykkt. Ekkert sem kemur til móts við atvinnulaust og bráðum gjaldþrota fólk og fyrirtæki.
Stjórnarþingmenn eru farnir að láta heyra í sér, en eftirtekt vekur að báðir koma þeir úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Stjórnarliðar Samfylkingarinnar láta sér aðgerðarleysi í léttu rúmi liggja og taka þátt í þögninni.
Það er ekki geðslegt til þess að hugsa að flokksaginn í Samfylkingunni beri af þeim sem ávallt hefur verið í fremstu röð, flokksaganum í Sjálfstæðisflokknum þar sem foringjahollusta og valdaundirgefni hefur þó líklega átt meiri þátt í því ástandi sem við horfum upp á núna en margt annað.
Í dag að loknum óundirbúnum fyrirspurnum var umræða utan dagskrár. Þar steig samfylkingarþingmaðurinn Karl V. Matthíasson upp í pontu og talaði um... þorskeldi.
Þótt bónusfáninn hafi verið dreginn snarlega niður af alþingishúsinu á laugardaginn, þá blaktir hann nú þarna enn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:58
0
athugasemdir
30. september 2008
Surrounded by the city
Menn segja óteljandi sögur af kynnum sínum af New York, af sigrum og sorgum. Líklega á það síðarnefnda oftar við. Hún er vissulega stórbrotin - en hún hefur líka harðneskjulegt viðmót. það sem skiptir máli, hvað sem menn segja, eru dollararnir sem maður hefur undir höndum. Þeir eru upphaf og endir alls. ´Hvað get ég grætt á þessum´ eru hugsanir sem skína úr augum viðmælenda. Dollarar skilgreina rýmið og tímann og allt þar á milli.
En á einhvern undarlegan hátt er hún þægileg, allt að því persónuleg. New York er raunar persóna og leikandi. Hún er ferðafélagi, segir af sér sögur og sýnir af sér mismunandi skapgerðir. Í Central Park er hún falleg og afslöppuð, í Chelse er hún miðaldra, borgaraleg og ívið frjálsleg, við South street seaport er hún tilgerðarleg og í Harlem er hún öldruð og virðuleg og vitanlega svört.
En hvað sem því líður vilja allir vera inn undir hjá New York. Aðalumræðuefnið manna á milli er New York og um hana er talað eins og hverja aðra manneskju.
Og svo er allt fólkið: Woody Allen, Jerry Seinfeld, Jonathan Lethem, Tony Kushner, Tina Fey, Lou Reed og Paul Auster svo einhverjir séu nefndir. Hérna voru Walt Whitman, Truman Capote, Upton Sinclair og Herman Melville. Hetjur (og skúrkar) borgarinnar. New York er vettvangur afreksfólks, snillinga - hér gerast hlutirnir. En þó að manni verði hugsað til þessa fólks þá er hitt meira áberandi; sífellt fyrir augunum, tapararnir sem svo eru skilgreindir hér í landi meintrar mannúðar. Heimilislausir betlarar, alkar, fíklar og geðsjúklingar. Sumir eru með sitt á hreinu, eru heiðarlegir og reyna að komast af með því að safna peningum fyrir samtök heimilislausra eða annað slíkt. Aðrir eru aumkunarverðir. Margir hafa horfið ofan í myrkviði neðanjarðarganga sem í endalausri flækju hola jörðina undir Manhattan. Þúsundir heimilislausra hafi fundið sér athvarf í yfirgefnum göngum og lifa þar við frumstæð (en stundum furðu góð) kjör. Heil s
amfélög þrífast í göngunum með sjálfskipuðum “bæjarstjórum”, talsmönnum og sendiboðum. Þetta fólk hefur orðið undir í lífinu og almennur skilningur er að ábyrgðin liggi hjá því sjálfu.
Í göngunum sem enn eru í notkun gengur hið fræga subway. Einkavætt og niðurnítt samgöngukerfi New York borgar er það stærsta í heimi. Ekkert annað kerfi á jörðinni flytur meira magn af fólki, nema kannski jörðin sjálf. Á hverju augnabliki eru 300.000 manns í vögnum lestanna. Í þessum 6.100 vögnum mætti koma fyrir hinni íslensku þjóð eins og hún leggur sig. Kerfið er ágætlega notendavænt, með því kemst viðvaningur nánast hvert sem er á ásættanlegum tíma (reyndar með nokkrum undantekningum). Hins vegar eru margar brotalamir þegar nánar er að gáð. Einhverra hluta vegna er sífellt verið að gera breytingar á áætlunum og ef vel á að vera þarf maður að lesa fjöldan allan af tilkynningum á breytingum ef maður vill ekki lenda í því að standa eins og álfur eftir lest sem kemur aldrei. Eins er álagið fáránlegt á háannartímum. Vagnar fyllast og fólk stendur eftir af því að fleiri sardínum verður ekki troðið í dósina. Hinar standa inn í vagninum og geta sig hvergi hrært. Stöðvarnar eru sjabbí og vagnarnir líka, endurbætur eru engar og viðhald í lágmarki. Megnið af kerfinu stendur eins og það var 1910 þegar klárað var að byggja það. En auðvitað hefur það sinn sjarma.
Ferðamaður á Manhattan verður fljótlega var við átakanlegan skort á almenningssalernum. Einfaldast er að fara inn á kaffihús eða veitingastað en þá þarf ferðamaðurinn oftast að kaupa sér eitthvað að drekka (því ekkert er ókeypis í NY), fyllir þar með blöðruna upp á nýtt og hringrásin hefst.
Þrengsl borgarinnar, gernýting á öllu nothæfu plássi, framkvæmdagleði og verktakaást Bloomberg borgarstjóra. Götulífið einkennist af gríðarlegum hávaða, hvert sem augum er litið er verið að byggja, lagfæra, stækka, bæta og breyta. Þetta á eingögnu við um fasteignir.
Gatnaframkvæmdir virðast til dæmis ekki vera jafn tíðar. Loftpressur og steypusagir garga í eyrun á manni við hvert götuhorn. Ofan á það bætist linnulaus umferðarniðurinn og mas fólks sem er þjappað saman á gangstéttunum. Þvílíka fólksmergð hef ég aldrei upplifað. Líklega er það aðal menningaráfallið, að þurfa að velta fyrir mér útliti, bakgrunni og örlögum slíks hafsjós af manneskjum að kerfið fer í baklás. Það má eiginlega segja að ég hafi verið með störuna síðan ég kom, fastur í andlitum þúsunda og tugum þúsunda, þannig að ég hef varla komist að því að skoða borgina að öðru leyti. En kannski er það ekki svo slæmt. New York; margslungin og viðkunnanleg er auðvitað ekki síst fólkið sem byggir hana. Svo dásamlega fjölbreytt opinberar hún fyrir manni í senn sigur mennskunnar og auðmýkingu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
06:16
0
athugasemdir
19. júní 2008
Hérmeð tilkynnist opnun síðunnar Feðgablogg! Einstök viðbót í bloggflóru landsmanna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:56
0
athugasemdir