Nennir einhver að taka svona menn í gegn. Auðvitað er Sjálfstæðisflokkurinn að hunsa samstöðu um málefni Palestínu. Það þarf að fara í stórann hring í rökfærslunni áður en maður kemst að einhverri annari niðurstöðu. Ef að allir flokkar efna til fundar og senda frá sér ályktun eru það miklu sterkari skilaboð en af allir nema stærsti flokkurinn gera það. Fundurinn var vissulega glæsilegur og mér, persónulega, var svo sem hjartanlega sama þó að eiginhagsmunaflokkurinn væri ekki þarna með á listanum. En skilaboðin hefðu verið miklu sterkari.
Nú er bara spurning, finnst mönnum þessi afsökun Sigríðar Önnu boðleg? Og fyrst að flokksbundnum sjálfstæðismönnum fannst fundurinn svona fínn, af hverju er ekki gerð krafa um að flokkurinn hefði átt að vera þarna í staðinn fyrir að standa á bak við ákvörðun sem er í meira lagi vafasöm.
Afsökunin sem hljómaði þannig að þingflokkurinn væri búinn að tjá sig um málið þar sem hann væri aðili að þingsályktun er hallærisleg. Hún segir okkur það að þfl. vilji ekki beita sér of mikið, bara rétt nóg til að róa landslýðinn. Auðvitað grundvallast barátta gegn óréttlæti, mannréttindabrotum og kúgun á því að menn gefist aldrei upp. Það er aldrei nóg gert. Sjálfstæðisflokkurinn tók þá ákvörðun að taka ekki þátt í fundinum, sýna ekki samstöðu með þeim aðilum sem vildu senda skýr ótvíræð skilaboð. Að segja að þingflokkurinn hefði verið búinn að lýsa skoðun sinni á málinu og þar við sæti er óásættanleg og þeir sjálfstæðismenn sem styðja aðgerðir gegn Ísrael en verja framgöngu Sjálfstæðisflokksins þurfa að athuga sinn gang.
30. apríl 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:58
0
athugasemdir
Oz skilar hagnaði á fyrsta ársfjórðungi. Þess er rækilega getið í fréttum stöðvar tvö, enda um stórfrétta að ræða.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:39
0
athugasemdir
Ekki virðist hun virka enn..., tekur reyndar tíma.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:59
0
athugasemdir
Nú hef ég sett leitarvél inn á síðuna og bíð spenntur eftir að sjá hvernig hún virkar. Nú geta menn fundið óhróðurinn um sig á fljótvirkann hátt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:51
0
athugasemdir
Því er nú auðvelt að svara. Steinunn Inga er Steinunn Inga Óttarsdóttir frænka mín og vinkona. Steinunn Inga er oft ofarlega í huga mér enda snjall fræðimaður og úrvals manneskja. En auðvitað var ég ekkert linka á hana, heldur Steinunni Þóru og gott að vita af mönnum eins og Óla Njáli sem hafa vakandi auga yfir því sem miður fer í verkum okkar mannanna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:46
0
athugasemdir
Þessar kannanir á fylgi R og D lista í Reykjavík eru nú eitthvað furðulegar. Nema náttúrulega R listinn sé strax farinn að vinna upp megnið af fylgistapi síðustu vikna, sem er furðulegt miðað við það að það hefur engin pólitík verið í umræðunni og enginn merkjanlegur munur er á áróðrinum nú og fyrir nokkrum vikum. Bara aðeins meira af honum. Það er eitthvað dularfullt í gangi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:04
0
athugasemdir
Að sjálfsögðu set ég Strumpinn líka í tenglasafnið, enda okkar maður. Hann gegnir nú mikilli ábyrgðarstöðu fyrir UVG.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:39
0
athugasemdir
Þó svo að ég nenni ekki að liggja langtímum saman yfir einhverjum bloggurum sem ég þekkir ekki, er óhætt að mæla með Lubba Tíkarsyni. Ég skelli link á mannin, enda er hann ritfær og skáldmæltur með afburðum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:34
0
athugasemdir
Það er náttúrulega óþolandi þegar greinaraðir sem gerðar eru ákveðnar væntingar til, kolfalla í einhverja sjálfumgleði. Þannig er nýjasta fánagreinin ekki um fána heldur einhver logjörð til sjálfs greinarflokksins! Svona líðst ekki og segi ég mig hér með úr lögum við fánagreinar Stefáns Pálssonar. Í staðin helga ég mig hinum merka félagsskap ASAT og geri í leiðinni þá kröfu að ný grein fari að líta dagsins ljós.
Einhverntíman sendi ég inn bón um að hið merka landsvæði Hindu Kush yrði tekið fyrir, og þá að sjálfsögðu með tilliti til samskipta Tyrkja og Hindúa. Svæðið liggur á mótum evrasíu flekans og indóástralíu flekans og eru jarðskjálftar því tíðir á svæðinu. Þarna hafa hlaðist upp miklir fjallgarðar og hafa harðgerir ættbálkar hafst þar við í gegnum aldirnar. Meðal þeirra má nefna ættbálk kenndan við Nuristan, væntanlega Nuristani, sem unnu sér það meðal annars til frægðar að leiða andstöðuna við innrásarheri Sovétríkjann. Eflaust hafa einhverjir fánar blaktað þarna í gegnum tíðina, en hverjum er ekki sama um það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:11
0
athugasemdir
29. apríl 2002
![]()
What tin-pot dictator are you? Take the "What Dictator am I?" test at PoisonedMinds.com
|
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:06
0
athugasemdir
Ég vissi ekki að Óli Njáll væri af gamla skólanum...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:28
0
athugasemdir
28. apríl 2002
Valdimar Halldórsson, eða Valdi, er úrvalsmaður. Hann er byrjaður að blogga og segir okkur fréttir frá Húsavík og úr hagfræðinni. Valdi vinnur á Þjóðhagsstofnun sem sem enn er ekki búið að leggja niður. Vonandi verður einhver bið þar á.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:03
0
athugasemdir
Ég hef tekið þá ákvörðun að hætta að borða kartöfluflögur. Margítrekaðar rannsóknir hérlendis og erlendis hafa leitt í ljós að þetta er bölvað eitur. Maður finnur það nú bara þegar maður hefur tæmt úr einum poka hvernig maginn fer á hvolf með meðfylgjandi vanlíðan. Þessi ákvörðun er sannarlega ánægjuleg, enda eru kartöfluflögur svívirðilega dýrar.
Eins áttaði ég mig á því um daginn að ég hef ekki keypt kók í margar vikur. Reyndar hefur pepsí twist komið í staðin og kannski ekkert betra að versla við einn arðræningjann en annan, en það er samt kúl að kaupa ekki kók.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:19
0
athugasemdir
24 tíma veðurspá fyrir Borgarfjörð í gær var eftirfarandi: Vaxandi NA átt, víða 18-23 m/s í nótt og á morgun. Snjókoma eða él og frost 1-7 stig.
Ég fór nú samt enda var ég að keyra út úr Borgarnesi þegar ég heyrði veðurfréttirnar og of seint að snúa við. Þegar við komum í bústaðinn var ekki enn farið að hvessa að viti og sólin skein þannig að krakkarnir gátu hlaupið sér til heilsubótar á stærsta sumarbústaðarpalli sem ég hef séð. Um kvöldið bætti aðeins í og kuldinn jókst samhliða því. Mér gafst síðan gott tækifæri til að mæla kælinguna þegar ég stríplaðist út í heita pottinn í þriggja stiga frosti og sex vindstigum. Veðurfar skiptir hinsvegar engu máli þegar maður er kominn ofan í pottinn, bara passa að dýfa puttunum ofan í reglulega á millli þess sem maður drepur í og leggur bjórflöskuna frá sér. Já, alveg rétt, það er góð regla að melta grillaðar nautalundi og bernes í svona þrjú korter áður en maður marinerar sig í heitum pottum.
Ég hef tekið eftir því að menn eru að bregða pólitískri mælistiku á sig og að sjálfsögðu tek ég þátt í því. Útkoman er aldeilis ljómandi góð og hljóðar svona:
Your political compass
Economic Left/Right: -7.25
Authoritarian/Libertarian: -7.59
Gott mál, fyrsta einkun.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:07
0
athugasemdir
27. apríl 2002
Ég ákvað að fara í sumarbústað með strákana um helgina með systrum mínum. Þá gefst Helgu tækifæei til að lesa fram á miðjan sunnudag án þess að þurfa að hugsa um sambýlismenn og syni. Mér var sem sagt lofað nautalundum og heitum potti og það er svo sem ágætt þó svo að langbesti parturinn við sumarbústaðaferðir sé að koma blessuðum drengjunum úr malbiksdrulluni.
Jæja, best að koma sér af stað. Grænar heiðar og ilmandi birki bíður mín, er það ekki alltaf svoleiðis í sveitinni? Borgarfjörður, here I come.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:00
0
athugasemdir
26. apríl 2002
Við fórum á vorskemmtun Leikgarðs á miðvikudaginn. Við erum með tvo vistmenn á okkar vegum þannig að við mættum fyrir hádegi til að horfa á Þorstein hrista heimatilbúið hljóðfæri af svo miklum ákafa að hann gleymdi að syngja lagið sem var flutt, og eftir hádegi til að horfa á Ragnar Stein syngja um litla froska og stóra froska. Eiginlega var lagið bara um litla froska en einn sögvarinn harðneitaði að vera lítill froskur og sagði bara stórir froskar í staðinn. Börn skilja hugtakið "listrænt frelsi" miklu betur en fullorðnir.
Synirnir sluppu nokkuð vel frá sínum atriðum. Þetta var svona "ef þú getur ekki sungið, reyndu þá að klappa" stemning og það er náttúrulega hið besta mál.
Brúðuleikhús sem var á efnisskrá efstu deildarinnar og var samið af krökkunum, var nokkuð áhugavert. Það sem vakti hjá mér spurningar í brúðuleikritinu er stutt atriði þar sem kóngurinn og drottningin taka ekki eftir að dreki hafi rænt prinsessunum. Skýringin sem leikritið gefur, sem er samið af börnunum, er að hjónin hafi verið að drekka bjór. Við skulum vona að þetta endurspegli ekki veruleika barnanna sem eru öll búsett á stúdentagörðum háskólans.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:02
0
athugasemdir
25. apríl 2002
Helvítis naggurinn áttar sig ekki á aðalbloggurunum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:27
0
athugasemdir
24. apríl 2002
Boycott
Ég veit ekki hvað ég er búinn að heyra oft þessa spurningu, "hvaða vörur kaupum við frá Ísrael?". Þetta er náttúrulega eðlileg spurning en samt sem áður hefur allstaðar komið fram að þessum tilmælum, að öllum viðskiptum við Ísrael verði hætt, er aðallega beint til fyrirtækja. Við kaupum inn ísraelskar vörur fyrir 300-400 milljónir króna á ári. Þetta er aðallega iðnvarningur, hráefni til frekari vinnslu og jafnvel vélar sem framleiða varninginn. Eins er mikið flutt inn af rafeindatækjum og hráefni í slíkann varning, eins og útvörp og þessháttar. Það sem snýr beint að neytendum eru ávextir og grænmeti, aðallega framandi ávextir og grænmeti. En þetta eru döðlur og appelsínur og svoleiðis drasl. Einnig er örugglega hægt að sérpanta ísraelsk vín í ríkinu. Og þó að ferðamannastraumurinn liggi ekki beint til Ísrael, er eðlilegt að hvetja fólk til að fara ekki þangað í sólarlandaferðir.
Aðalmálið er að búa til vakningu, vekja fólk til umhugsunar um ástandið og búa til samstöðu um að hætta öllum viðskiptum við ríki sem hefur stríðsglæpi og fjöldamorð á samviskunni. Innflutningurinn einn og sér er 300-400 milljónir og þá eru ótalin öll önnur viðskipti á milli landana.
Þetta er dropi í hafið, en við værum ekki almennilegir friðarsinnar ef við leggðum ekki okkar létta lóð á vogarskálarnar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:17
0
athugasemdir
23. apríl 2002
Taktu þátt!
Engin ástæða til annars en að taka undir áskorun Sigfúsar og hvetja menn til að taka þátt í kosningabarátunni eins og kostur er. VG í Kópavogi og Hafnarfirði veitir t.d. ekki af allri þeirri hjálp sem býðst. Sendið póst á vg@vg.is og bjóðið ykkur fram. Kosningabarátta er eitthvað það skemmtilegasta sem hægt er að taka þátt í.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:00
0
athugasemdir
Huginn í Hafnarfjörð
Þær sannkölluðu gleðifregnir hafa borist að Huginn Freyr Þorsteinsson er nýráðinn starfsmaður VG í Hafnarfirði. Allir sannir vinstrimenn hljóta að fagna því. Mér veitist sá heiður að verða fyrstur til að óska Hafnfirðingum til hamingju með það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:10
0
athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn
Eins og menn vita lagði Sjálfstæðisflokkurinn ekki nafn sitt við palestínufundinn í gær. Mér skilst að Sigríður Anna Þórðardóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hafi gefið þá skýringu á fjarveru flokksins að flokkurinn gerði ekki svona. Þ.e. tæki ekki þátt í mótmælum. Eins og menn muna stóð nú samt ekki á Sjálfstæðismönnum þegar Li Peng kom til landsins fyrir nokkru. Þá nötruðu menn þar á bæ af réttlætistilfinningu og mótmæltu af miklu kappi.
Ef að reglan er samt sem áður sú að Sjálfstæðisflokkurinn geri ekki svona fer nú að koma mynd á skepnuna. Eins og menn muna kemur sjálfstæðisflokkurinn aldrei fram með stefnumál í kosningum, einungis óljóst tal um einhver langtímamarkmið sem einkennist af frjálslegri notkun á hugtökum eins og frelsi, ríki og forsjárhyggja. Eins virðist Sjálfstæðisflokkurinn ófær um að taka beinharða afstöðu í málum eins og ástandinu í Palestínu, sem slíkur. Hann bara er þarna. Hangir í einhverjum valdaþráðum sem meðal annars eru ofnir úr LÍÚ, Verslunarráði, Mogganum, Samtökum atvinnulífsins, VR, Eimskip, Flugleiðum og þessháttar stofnunum, við vitum hverjar þær eru.
Einhver kynni að vera orðinn allhneykslaður á þessum fullyrðingum, jafnvel með kosningasamning Sjálfstæðisflokksins í borginni fyrir framan sig. Á hann er ekki orðum eyðandi, hver sá sem les það plagg þekkir tóninn: Lægri skattar, betri fjárhagsstaða borgarinnar. Hver kosningabær maður hefur vit á að skrifa ekki undir slíkann samning, nema vera nokkurnveginn viss um að minnkandi tekjugrundvöllur borgarinnar og minni þjónusta stofnana borgarinnar komi örugglega ekki niður á þeim. Það skulum við vona að minnsta kosti.
Sjálfstæðisflokkurinn er stofnun. Stofnun í huga fólks, ein af kjölfestum tilverunnar. Engu skiptir hvað flokkurinn segir eða hvort hann segir eitthvað á annað borð, hann er ævinlega til staðar. Hann er ekki háður verkum sínum, spillingu sinni og valdníðslu sinni. Hann er undanþegin afleiðingum, hann er bara þarna.
Fjarvera Sjálfstæðisflokksins í gær er skammarleg og sýnir að flokkurinn hefur ekki þroska til þess að hefja sig yfir dægurþrasið, Yfir deilumálin sem snúast um fjárhag og mannréttindi sem oftast blikna við hliðina á þeim réttindum sem eru brotin á Palestínumönnum. Þeirra pólitík snýst um líf og dauða. Svo einfalt er það og Sjálfstæðisflokkurinn er ekki tilbúinn að setjast undir sama þak og allir hinir stjórnmálaflokkarnir, þorri verkalýðshreyfingarinnar og önnur samtök og senda ótvíræð skilaboð. Það gerir Sjálfstæðisflokkurinn ekki. Það gerðu Samtök atvinnulífsins ekki heldur þótt leitað væri eftir þeirra liðsinni. Og hversvegna í ósköpunum geta Samtök atvinnulífsins ekki tekið undir málstað allra friðelskandi manna, að Palestínumenn og Ísraelar lifi í friði og spekt. Því er erfitt að svara, en einhvernvegin rennir það stoðum undir kenninguna um þráðinn og flokkinn.
Kannski er Sjálfstæðisflokkurinn bara vel heppnað dæmi um stofnun sem tekist hefur svo rækilega að festa völd sín í sessi að pólitísk þróun er algerlega á skjön við nánast gervalla Evrópu. Í krafti fjármagnsins hefur flokkurinn náð að skapa sér stöðu á mótunartíma lýðræðis og sjálfstæðis þjóðarinnar sem hefur tryggt þeim einstaka stöðu í íslenskum stjórnmálum allt til dagsins í dag.
Fer ekki að koma að skuldadögum?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:24
0
athugasemdir
22. apríl 2002
Háskólabíó
900 manns í háskólabíó sýndu málstað Palestínu stuðning nú fyrir stundu. Til hamingju með þetta Íslendingar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:50
0
athugasemdir
21. apríl 2002
Talandi um grill
Hugmyndin sem gekk út á að kaupa eitthvað á grillið á leiðinni heim breyttist sem sagt í sjö manna grillveislu þar sem í boði voru indverskkryddaðir kjúklingaleggir, BBQ svínarif og hvítlauksmarineraðar lambalærisseiðar ásamt meðlæti. Úr því að fólk er nú farið að birta uppskriftir á netinu, þá er tilvalið að koma með uppskrift að kaldri sósu sem er tilvalin með grillkjötinu. Hún samanstendur af:
Tvær dósir sýrðum rjóma (hvítlauks)
Safi út hálfri sítrónu
Ein matskeið balsamico (að sjálfsögðu frá Modena)
Tvær matskeiðar basilíka
salt og pipar (nýmalaður hvítur og/eða svartur)
Jamm, þetta hristir maður úr erminni án mikillar fyrirhafnar. Ég hvet fólk samt til að experimenta með sósuna þar sem litlar rannsóknir hafa farið fram á t.d. öðrum möguleikum á kryddjurtum.
Til að koma í veg fyrir misskilning er rétt að geta þess að vannærðir stúdentar á fátæktarmörkunum geta ekki staðið að svona veislum einir og sér (ef að Gunnar Birgisson slysaðist inn á síðuna). Því er það hið besta ráð að fólk slái saman í góða veislu og geri sér glaðann dag, ekki síst þegar smávægileg fyrirheit um sumar eru nú farin að gera vart við sig.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:52
0
athugasemdir
20. apríl 2002
...
Ekki veit ég hversu duglegur maður verður að blogga núna á næstunni. Kosningavinna er þrælavinna, mér sýnist allt stefna í að formaðurinn hafi ekki verið að grínast þegar hann sagði mér að vinnutíminn væri allir dagar vikunnar og næturnar líka. Heitasta helvíti, æ, jæja þetta er nú stuð. Ráðstefnu VG um sveitarsjórnarmál var að ljúka og allir voru ánægðir og sammála um að hún hafði tekist mjög vel, og þetta var ekki svona kurteisis..."já já þetta var óskaplega gaman" maður þekkir alltaf svoleiðis.
Svo er náttla algjört lykilatriði að enda svona á léttu nótunum svo að fólk fari ánægt út. Sigursteinn Másson kom og boðaði nýtt fagnaðarerindi varðandi ímyndarmál og samskipti við fjölmiðla sem fundurinn kokgelypti. Skilaboðin, vertu þú sjálf(ur), þekktu stefnumálin, vertu einlæg(ur) og heiðarleg(ur). Hverjir taka ekki undir þetta. (Örugglega GSP, JHM, JFM og EB) Sigursteinn sagði náttla nokkra brandara eins og honum er einum lagið. Sigursteinn er örugglega með ágætari húmoristum sem ég þekki. Hann er svona Woddy Allen skotinn (húmorinn) og menn sem eru að hlusta á hann flytja svona erindi gera sér enga grein fyrir því að hann er að rífa af sér brandarana all the time. Fáir eru betri kandídatar í að koma fólki í gott skap en Guðni Kolbeinsson. Og átti hann stórleik þar sem hann fór nokkrum orðum um stofnanamál og venjulegt mál. Formaðurinn sleit svo ráðstefnunni með stuttri ræðu þar sem hann notaði öll réttu trikkin. Hann kann pepptokið.
Gott í bili, best að fara í búðina og kaupa eitthvað á grillið, konan er komin í sumarskap.
Abbabbabbabbabb
United tók Chelsea í *** 3-0. Fréttaþulur Sky sagði að seinni hálfleikurinn hafi verið labbitúr í sólskininu fyrir MUFC. Ekki minnkar nú hamingja mín við það. Lengi lifi Van Niestelroy.
logoff
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:24
0
athugasemdir
19. apríl 2002
Nýliðar
Enginn annar en Guðmundur Ingi Þorvaldsson stórsöngvari, skapgerðaleikari, poppari , leikritahöfundur og lagasmiður er kominn í bloggheima, takið endilega vel á móti honum og kíkið á síðuna.
Þá er Steinunn Þóra Pálsson líka kominn fram á bloggvöllinn, ein af þeim sem er ekki fórnalamb Óla Njáls... fágæti.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:24
0
athugasemdir
...
Það er allt of mikið að gera. Þegar dagur er að kveldi kominn er mér það nánast ofraun að logga mig inn á bloggið, hvað þá meira.
En maður náttla getur ekki verið þekktur fyrir annað en að setja inn minnsta kosti eina færslu á dag.
Ég verð æ sannfærðari um það að GSM símar eru bráðdrepandi.
August Wilhelm von Schlegel og Karl Wilhelm Friedrich von Schlegel verða héðan í frá verndarar þessarar síðu, hvor á sinn hátt, ef maður skyldi enda í Vín, étandi sacher....
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:13
0
athugasemdir
18. apríl 2002
Nokkur fundarboð
Ráðstefna VG um sveitarstjórnarmál er um helgina. Allir áhugamenn um sveitarstjórnarmál, svo ekki sé talað um áhugamenn um VG, eru hvattir til að skrá sig hjá framkvæmdastjóra flokksins.
...
Haldinn verður fundur um Palestínu í Háskólabíó á mánudaginn kl. 17:00. Meðal frummælenda verða Sveinn Rúnar Hauksson og Viðar Þorsteinsson. Eins og öllum er kunnugt hafa þeir verið á ferðalagi í Palestínu undanfarið, kynnt sér ástandið og sinnt hjálparstörfum. Frásögn þeirra verður mjög áhugaverð, auk þess sem þeir koma til með að sýna einhverjar myndir sem þeir tóku í ferðinni. Síðast þegar fréttist til þeirra var þeim sleppt út úr fangelsi eftir að hafa verið umkringdir að skriðdrekum Ísraelshers rétt utan við Jenin.
...
Áhugamenn um smiðjufundi geta nú bókað hjá sér næsta fund. Hann verður haldinn á annari hæð Húss málarans laugardaginn 4. maí kl. 14:15 og verður yfirskrift fundarins "Um efnahagslega fjötra kvenna". Líklega er of snemmt að auglýsa frummælendur auk þess sem fólk er hvatt til að bíða eftir fleiri auglýsingum um fundinn, svona ef eitthvað skyldi koma upp á.
...
Jamm, það er nóg að gera í pólitíkinni...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:39
0
athugasemdir
Auðvitað eru hugtökin óljós en ekki fyrirbærin, hverskonar barnaskapur er þetta?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:22
0
athugasemdir
17. apríl 2002
...
Rökbrot og rökleysa er vefrit sem á allann heiður skilið. Kíkið á þetta.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:05
0
athugasemdir
Hættum viðskiptum við Ísrael
Ung vinstri græn beina því til einstaklinga og fyrirtækja að hætta þegar í stað öllum viðskiptum við Ísrael þar til hernaðarofbeldi gegn palestínumönnum linnir. Við hvetjum fyrirtæki til að hætta innflutningi á ísraelskum varningi og almenning til að sniðaganga ísraelskar vörur í búðarhillum. Mikilvægt er að við leitum allra leiða til að koma hörðum og afdráttarlausum mótmælum á framfæri. Sú skylda hvílir á okkur öllum að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir þá stríðsglæpi sem heimurinn verður nú vitni að.
Kæru félagar, dreifið þessu sem víðast.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:43
0
athugasemdir
Í leit að kaupanda
Það þýðir lítð að kvarta yfir slökum bissness þegar menn eru ekki einu sinni með besta verðið. Ég er löngu búinn að panta "Í leit að konungi" hjá Keikodude.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:51
0
athugasemdir
Sigfús blogmaster
Þess ber að geta, for ðe rekkord, að Sigfús á eina færslu á síðunni sinni. Við skulum ekki gera manninum rangt til.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:45
0
athugasemdir
Davíð
Nú spólar forsætisráðherrann yfir Össur Skarp sem aldrei fyrr og eiginlega alla Samfó í leiðinni. Þessi glæsilega setning kom m.a. fyrir í ræðunni: "mesta ógæfa Íslendinga er að allt vitlausasta fólk landsins í efnahagsmálum er samankomið í einum flokk" (haft eftir prófessor í H.Í.)
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:42
0
athugasemdir
Múrinn
Óli Njáll skrifaði nöldurgrein um Múrinn í gær. Þar fer hann nokkrum orðum um menningardálkinn "Menning og þó", sem hann telur vera farinn að þynnast út. Nú hefur Óli Njáll ýmislegt til síns máls, en þó verð ég að mótmæla öllum aðdróttunum í garð fánapistla sp. Þó að þeir séu ekki margir enn sem komið er, er hugmyndin frábær. Undir þessum formerkjum er hægt að fara ýmsar leiðir í skrifum sínum eins og pistillinn um þjóðfána Sviss sýndi okkur. Eins eru örnefnapistlar sj einstaklega fróðlegir og "aha" augnablikin ófá þegar lestur þeirra stendur yfir. Þá verður að geta vesturfarapistla sh, þar koma fram upplýsingar sem lítið hefur verið sinnt hingað til og mikill fengur af. Hver hefði t.d. trúað því að Kalli kanína væri íslenskt handverk.
Múrar mannkynssögunnar, Ártíðir merkismanna og Sögubrot af Tyrkjum eru án nokkurs vafa ómissandi ritraðir á vefritinu Múrnum , Sjúklega hornið var þó aldrei í sérstöku uppáhaldi. En þó svo að fleiri bætist við þarf það ekki sjálfkrafa að skyggja á eldri og virðulegri ritraðir. Óli Njáll verður að muna að tíminn vinnur með mönnum í þessu máli, svo lengi sem múrararar gleyma ekki að sinna því sem nú þegar er farið af stað.
Svo er náttúrulega líka spurning hvort viðhalda eigi gömlum ritröðum út í rauðann dauðann. Sumar eru náttúrulega endalausar eins og Ártíðir merkismanna, en aðrar hljóta að hafa einhvern líftíma.
Ekki er ég þó ósammála Óla Njáli í öllu sem hann segir. Veitingahúsarýnin virðist t.d. vera svolítið utanveltu innan um alla sagn- og bókmenntafræðina.
Í lokin, og það er kannski við hæfi eftir alla þessa upptalningu, langar mig til að koma hugmynd á framfæri. Hvernig væri að flokka niður allar ritraðir Múrsins sem birst hafa í menningardálkinum og setja í tenglaform? Einhvernveginn held ég að menn átti sig stundum ekki á því hversu gríðrlegur hellingur af efni er inn á þessum vef og hvað sé í boði.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:48
0
athugasemdir
16. apríl 2002
...
Hönnunarkeppni verkfræðinema er einstaklega vel heppnað sjónvarpsefni. Ekki spurning.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:35
0
athugasemdir
...
Jamm, neðri deildirnar eru í tísku. Hvað með Kidderminster?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:33
0
athugasemdir
Alþjóðavæðing
Huginn er að koma sér upp aðdáendahóp í Tælandi. Á meðan einbeiti ég mér að norðurlöndunum. Finnar hafa undanfarið bæst í hóp dyggra lesenda. Þó eru Norðmenn minn stærsti lesendahópur utan landsteinanna. Danir eru að sækja í sig veðrið en geta þó seint talist stór lesendahópur. Ríkisstjórn Bandaríkjana er óþarflega algengur gestur (einu sinni), en óbreyttir kanar eru hins vegar algengir gestir og toppa meira að segja Norðmenn. Kanadamenn villast einstaka sinnum inn, en einhvernvegin grunar mig að þeir séu ekki innfæddir.
Thorworks, alþjóðleg bloggsíða.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:20
0
athugasemdir
Colin Powel er aumingi
Það er sem sagt að koma í ljós að nákvæmlega ekkert kom út úr þessari ferð Powels til Ísraels og Palestínu. Þessi maður er handónýtur og hlýðir bara því sem afstyrmið Sharon segir honum. Magnað hvernig Ísrael getur látið risann sitja og standa eins og því hentar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:07
0
athugasemdir
Forza Italia
Magnað allsherjarverkfall á Ítalíu í dag. Gott að eiga verkalýðshreyfingu sem virkar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:02
0
athugasemdir
...
Kemur það einhverjum á óvart að fyrsti afríski geimfarinn er hvítur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:49
0
athugasemdir
&Ilacute;
Til að setja íslenska stafi inn á síðuna sína, (t.d.) tengla, er þessi síða ómissandi. Mig grunar að t.d. íslenskufræðingar hefðu gaman af slíku.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:16
0
athugasemdir
mbl.is
Það hefur komið í ljós að glæný kosningasíða mbl.is er handónýt. Alla vega hafa þeir ekki haft fyrir því að kynna sér framboðin víðsvegar á landinu. Þannig er okkar hvergi nærri getið á öllum þeim stöðum sem við bjóðum fram á. Einhverjum helv. vinsældarlista í skagafirði er eignaður listabókstafurinn U og sameiginlegt framboð s og u í Mosó er orðið að framboði Samfylkingarinnar. Þetta er náttúrulega fyrir neðan allar hellur og geri ég mig nú líklegann til að hringja í umsjónarmann þessarar kosningasíðu og spyrja nokkurra áleitinna spurninga.
...
The Practice sveik ekki í gær þó svo að lausnin hafi verið frekar einföld (auðvitað var þetta hefndarmorð). Lögfræðingarnir okkar er búnir að vera í Los Angeles síðustu tvo þætti að bjarga einhverjum kalli frá dauðadómi. Okkar fólk á í höggi við vægast sagt fjandsamlega íbúa L.A. sem eru að farast úr smáborgaraskap, pirringi og hatri á aðkomumönnum. Þar eru fremstir í flokki dómarinn sem er leikinn af Anthony Heald, siðameistaranum í Boston Public, sem á skrambi góðann sprett í þættinum, rannsóknarlögreglumaðurinn og sækjandinn. En þegar harðnar í ári fara töffararnir af stað. Bobby Donnell og félagar taka hvern þverhausinn í gegn í vitnastúkunni á fætur öðrum þar sem Jimmy kemur á óvart og á svaka móment, þó vita allir að hann er bestur undir álagi. Þátturinn endaði svo á því að Lindsay sýndi mikla Sherlock takta þegar hún upplýsir að morðingjarnir eru annars vegar kona hins ákærða og hins vegar eiginmaður konunnar sem var drepin. Svona geta mánudagskvöld verið ljómandi skemmtileg.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:06
0
athugasemdir
15. apríl 2002
The Practice í kvöld. Má ekki missa af því. C.S.I. er reyndar líka skemmtilegur þáttur en ég kippi mér ekki upp við að missa af honum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:46
0
athugasemdir
Djönkfúdd
Þó að það sé ekki meiningin að vera með veitingahúsagagnrýni hér þá má ég til með að segja frá heimsókn minni á matsölustaðin this í lækjargötu. Ég tók mér mat seint og um síðir og ákvað að hlaupa á einhvern af þessum skyndistöðum þar sem ég nennti ekki að taka langann tíma í þetta. Þar sem ég vinn innan um þéttriðið net matsölustaða ákvað ég að breyta til að skella mér á þennan stað sem á að vera einhverskonar afsprengi Hlöllabáta. Í stuttu máli sagt bragðaðist djönkfúddið (eins og Dr. Gunni myndi orða það) afskaplega vel. Borgarinn var fínn og ég og innihaldið vorum í hrókasamræðum. Oft hef ég velt því fyrir mér hver sé leyndardómurinn við að klúðra eldun á frönskum kartöflum. Það heyrir nefnilega til undantekninga að maður fái góðar franskar. Bautinn er síðasti staðurinn sem ég man eftir að hafa fengið góðar franskar. En, sem sagt, steiking og kryddun voru alveg 100% og hlýtur staðurinn fullt hús matar fyrir vikið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:25
0
athugasemdir
Tryggvi Már
Tryggvi er búinn að breyta TDH síðunni þannig að nú þarf hann ekki að bera hitan og þungan af uppfærslum á síðunni. Hann er nefniolega búinn að setja bloggsíðuna sína og Sigfúsar á síðuna. Sniðugt, nema hvað hann er eiginlega enn þá í sömu stöðu. Sigfús hefur nefnilega óbeit á bloggi og harðneitar að halda því áfram. Ég held að það sé vegna þess að hann hefur ekki enn þá lært hvernig skuli uppfæra síðuna, samt er ég búinn að liggja yfir þessu með honum eins og ég væri að hjálpa honum að læra fyrir eðlisfræðipróf (sem reyndar gerðist aldrei). Að hann skuli ekki læra þetta fer svo mikið í taugarnar á honum að hann nennir þessu ekki.
Þar með situr Tryggvi ennþá upp með þá kvöð að sjá einn um uppfærslur á www.tdh.is.
Þetta er einnig skoplegt í því ljósi að ástæðan fyrir því að Tryggvi byrjaði að blogga er einmitt sú að Sigfús var farinn að blogga. En það var auðvitað bara misskilningur þar sem Sigfús átti lítið í þeim færslum sem færðar voru inn á þá síðu.
Bloggið hans Tryggva er því byggt á misskilningi. Tryggvi er samt sem áður úrvals maður og bloggið hans hið besta mál þar af leiðandi. Ekki veitir heldur af bakkuppi þegar maður þarf að kljást við rúðustrikað lið sem lítur heiminn sömu augum og 3.200 ára afdankaðir grikkir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:27
0
athugasemdir
Palestína
Þessi greinargerð hefur vakið athygli. Enda ekki von á öðru úr þessari átt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:21
0
athugasemdir

which children's storybook character are you?
this quiz was made by colleen
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:42
0
athugasemdir
...
Eftirköst rúgbrauðsins eru enn að láta á sér kræla. Ég hef aldrei borðað jafn kröftugan þrumara. Ég átti sem sagt í mestu vandræðum með sjálfan mig þarna í gærkvöldi, en tókst að forðast neyðarlegar uppákomur. Ég mengaði ekki mikið meira en allra nútímalegustu álver, danskan rann furðu auðveldlega upp úr mér og virkjanir komu ekki til tals. Auk þess borðaði ég allan matinn minn.
...
Slúður dagsins er svo vinstri græni þingmaðurinn sem er að koma sér upp heimasíðu. Nú þegar hefur ein þeirra tekið netið í sína þjónustu, en enginn hefur leikið það eftir úr þingflokknum. Fyrst um sinn verður haldið leyndu hver er á ferð, en ég geri ráð fyrir að skúbba því þegar það er óhætt. Meira seinna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:35
0
athugasemdir
14. apríl 2002
Grundvallarmistök
Stundum er maður ekki með réttu ráði. Ég er búinn að lofa mér í heljarmikla kvöldveislu með einhverjum þingmönnum vinstri grænu flokkana á norðurlöndunum ásamt fleira fólki í flokknum og get varla beilað út á síðustu stundu þótt ég hefði ekkert á móti því. Klúðrið felst í því að við fórum með strákana í "kaffi" til grannana góðu Hugins og Dagnýjar. "Kaffið var kl. 17:00 og þar átum við á okkur gat af síld, rúgbrauði, ostum, ólívum og pilsner. Þegar ég torgaði síðasta sílarbitanum, rann upp fyrir mér ljós. Ég er að fara að borða sjávarréttasúpu og lambakjöt eftir tæpa tvo tíma. Þannig að á meðan ég verð að remba upp úr mér því litla sem ég kann í dönsku þarf ég að torga öllum helvítis matnum svo fólk haldi ekki að ég sé veikur eða eitthvað þaðan af verra.
Hvernig segir maður virkjun á dönsku??? Úff
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:48
0
athugasemdir
Sunnudagur
Loksins eru menn farnir að taka við sér á Praxíteles síðunni og er það vel.
...
Gærdagurinn var hinn rólegasti og endaði á þeim nótum. Ég sofnaði yfir furðulegri mynd sem er einna helst merkileg fyrir þær sakir að Jhonny Knoxville úr lágmenningarþáttunum Jackass, leikur þar sitt fyrsta kvikmyndahlutverk. Áður en ég missti meðvitund komst ég að því að hann er ömurlegur leikari. Myndin heitir Life Without Dick ég held ég nenni ekki að klára hana.
...
Kosningamiðstöð R-listans er ágæt, þar voru frambjóðendur að kyssa börn. Ég fékk nælu sem ég sé ekki betur en sé tilbrigði við merki VG.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:18
0
athugasemdir
13. apríl 2002
...
Ég get svo sem látið ýmislegt yfir mig ganga. Eins og t.d. að vera kallaður Þórir, en það eru fleiri en hinn ágæti Stefán Jónsson sem skipuleggja smiðjur VG. Úr því verið er að skjalfesta raunveruleikann á annað borð.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:55
0
athugasemdir
Alþjóðavæðingarandstöðutuð 2
Ég skil ekki alveg hvernig er hægt að finna það út að ég hafi verið afkastamesti drykkjusvelgurinn í gærkvöldi. Það hlýtur að dæmast á þá sem mættu ekki fundinn góða sem haldinn var á þeim prýðisstað Húsi Málarans, væntanlega vegna eftirkasta gærkvöldisins. Annars var þessi fundur hinn ágætasti, vel sóttur og framsögurnar voru alveg hreint ágætar. Þeir sem efast um það er bent á að hafa samband við Stefán Jónson. Hann skjalfesti fundinn í heild sinni.
Eins og fram kemur annars staðar í bloggheimum átti Dagný stórleik í eldhúsinu í gær. Ég varð var við bragðlauka sem ég vissi ekki af. Kveldið var síðan með mestu ágætum, þó sniðgekk ég Sigfús sem spilaði á Dubliners ásamt fyrrverandi félögum sínum í fyrrverandi hljómsveitinni TDH, sem er eins og allir vita löngu hætt og dáin. Það er ekki gott.
...
Og bæ ðe vei, Palli Hilmars er farinn að blogga... Það er sem sagt málið, samkvæmt áræðanlegum upplýsingum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:34
0
athugasemdir
12. apríl 2002
Páll Hilmarsson
Hvað er málið með Pál Hilmarsson? Er þetta ekki rólyndismaður?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:52
0
athugasemdir
Næsti bar er víða
Varðandi bloggpartí grænkomma og fleiri góðra karla og kvenna þá er það upplýst hér með að Næsta bars stemningin verður flutt til okkar og munum við tjútta við undurfagra tóna þagnarinnar. Enda ekkert að gera með óþarfa hávaða þegar menn þurfa að ræða mikilvæg mál.
...
Jóhann Þórsson er í herför gegn þeim sem verja viðskiptabannið á Írak. Fyllsta ástæða til að benda á það. Hann fékk víst einhvern tölvupóst frá fólki sem þolir ekki að stuðningsmenn viðskiptabannsins séu kallaðir aumingjar, en er einhver ástæða til annars? Ég bara spyr.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:43
0
athugasemdir
Mér finnst nú hallærislegt að gera mig ábyrgan fyrir bloggauglýsingum á öðrum síðum!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:18
0
athugasemdir
Vígin falla
Nú eru held ég síðustu vígin að falla og grænkommar að verða öflugasta bloggsamfélag á landinu. Ég veit að sumir lýstu því hátíðlega yfir að þeir tækju aldrei (jaðraði stundum við dramatík) þátt í því að blogga, en ekki veit ég til þess að allir hafi gert það. Ég held að síðasta vígið sé Steinþór Heiðarson og miðað við það sem á undan er gengið spái ég því að innan 10 daga verði sh orðinn einn öflugasti bloggari grænkomma.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:15
0
athugasemdir
Önnur sjónarmið
Menn greinir greinilega á um hvað sé raunveruleg merking. Það er ágætt og bloggið svo sem ágætis vettvangur til þess. En hér mætast tveir pólar [1,2]. Það má spyrja sig að því hvor sé róttækari, sérstaklega þar sem annar þeirra kennir síðuna sína við byltingu...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:07
0
athugasemdir
Alþjóðarvæðingarandstöðutuð
Ef einhver vill vita meira um andstöðuna við alþjóðavæðingunni, þá er um að gera að kynna sér þetta hér.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:37
0
athugasemdir
Útlendingar
Ég er orðinn viðfangsefni forvitinna útlendinga... Takið þátt í getrauninni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:19
0
athugasemdir
Hugleiðing dagsins
Hvað er raunveruleg merking? Heimspekingarnir og málfræðingarnir ættu nú ekki að vera í vandræðum með þessa spurningu. Ég tala nú ekki um alla sagnfræðingana.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:13
0
athugasemdir
11. apríl 2002
Enginn annar en Tryggvi Már Gunnarsson, gítarleikari og x-poppstjarna bætist í ört vaxandi hóp vinstri bloggara.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:47
0
athugasemdir
Hann var fremstur bloggara
Mjög svo ofbeldisfull aðferð til að fá menn til að blogga virðist ætla að virka betur en harðsvíruðustu ofbeldismenn létu sig dreyma um. Ég verð að viðurkenna að mér fannst ónefndur ofbeldismaður vera kominn heldur of langt í landvinningum sínum þegar hann bjó til bloggsíðu Sverris Jakobsonar að honum forspurðum. Enda hafði sá hinn sami þvertekið fyrir það að koma nokkurn tíman nálægt slíkri iðju. Gott ef hann stóð ekki upp og strengdi þess heit. En nú er hann sem sagt kominn á bragðið og viti menn, af eljusemi uppfærir hann að jafnaði fimmtán sinnum oftar en félagi hans Stefán Pálsson. Með viðlíka áframhaldi verður hann fremstur bloggara.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:31
0
athugasemdir
Vinnan göfgar manninn
Það er óhætt að segja að nú sé hafin kosningaundirbúningur af fullum krafti um allt land. VG á aðild að á þriðja tug framboða í sveitarstjórnum víðsvegar um landið og alls staðar eru okkar menn iðnir við kolann, tilbúnir að bretta upp ermar og takast hraustlega á við andstæðinga sína í komandi kosningum. Þar sem ég hef m.a. starfa af því að aðstoða framboðin með formlegum og óformlegum hætti þá er ég farinn að finna vel fyrir þessu. Í morgun fékk ég til dæmis hringingu frá ágætum félaga upp úr 8:00 þar sem hann vildi fræðast um hlutverk umboðsmanna. Þetta er náttúrulega dásamlegt og lýsir ákafa og áhuga þeirra sem vinna að framboðsmálum okkar.
Fréttir sem berast af gengi okkar í sveitarfélögum í Suðvesturkjördæmi eru ekki góðar en ber þó að taka með miklum fyrirvara. Auk þess hef ég fulla trú á að við eigum þarna helling inni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:06
0
athugasemdir
10. apríl 2002
Ótrúlegt en satt
Grímur Hákonarson er kominn með GSM síma. Gleðifréttir fyrir alla sanna vinstrimenn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:51
0
athugasemdir
Sigfús
Það er ekki einleikið hversu mikil fjölgun hefur verið undanfarið í blogggengi grænkomma. Enginn annar en sjálfur formaður UVG, Sigfús Ólafsson hefur ruðst fram á bloggvöllinn með bölmóði og bægslagangi. Þetta er náttúrulega skyldulesning.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:00
0
athugasemdir
Blogtrack.com
Ég má til með að benda fólki á þessa síðu. Þvílíkan tímasparnar hef ég ekki séð á netinu fyrr. Þess utan losna ég við að láta Huginn fá óþarfa hitt þegar hann er ekki búinn að uppfæra...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:06
0
athugasemdir
Tilveran
Ég vil benda fólki á þennan pistil, enda alveg fullkomlega þess virði að hann sé lesin. Pistill dagsins er sem sagt kominn frá starfsmönnum Tilverunnar, góða skemmtun.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:14
0
athugasemdir
9. apríl 2002
Þjóðhagsstofnun
Jæja þá er það mál komið í bið. Þjóðhagsstofnun var tekin út af dagskrá og verður því lögð niður seinna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:36
0
athugasemdir
Jóhann Þórsson
Enn bætist í blogggengi grænkomma, ekki veitir af. Hér er maðurinn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:51
0
athugasemdir
Alþjóðavæðingin
Það er fyllsta ástæða til að minna fólk á það að á laugardaginn nk. kl 14:00 í Húsi málarans fara fram miklar og fróðlegar umræður um alþjóðavæðinguna og andstöðuna gegn henni. Ég hvet alla til að kynna sér málið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:50
0
athugasemdir
8. apríl 2002
Ég
vísa öllum valdboðsásökunum á bug þetta er bara lygi og áróður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:48
0
athugasemdir
27
Stefán Pálsson múrverji og fánasérfræðingur á afmæli í dag og að sjálfsögðu er honum óskað til hamingju með það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:58
0
athugasemdir
Huginn
Þær stórgóðu fréttir hafa borist að Huginn Freyr Þorsteinsson heimspekingur og háskólakennari hefur bæst í blogggengi grænkomma í netheimum. Við fögnum því hátt og innilega.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:05
0
athugasemdir
7. apríl 2002
Hnit
Úr því að menn er farnir að gera hnit að umræðuefni þá er vert að minnast á það að Broddi Kristjánsson er nýkrýndur íslandsmeistari í hniti, fjörtíu og eins árs að aldri. Geri aðrir betur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:16
0
athugasemdir
Stokkseyri
Ég fór með strákana til Stokkseyrar ásamt systrum mínum í dag. Tilgangur ferðarinnar var þríþættur. Í fyrsta lagi, sýna strákunum eitthvað annað en mölina og eiga með þeim góða stund. Í öðru lagi, fara á hinn margrómaða veitingastað Við fjöruborðið og borða humar. Og í þriðja lagi, fara í fjöruna með strákana og komast í smá snertingu við náttúruna. Ferðin heppnaðist að öllu leyti vel. Við áttum góðan tíma og þó svo að hann hafi verið svolítið hvass í fjörunni þá gerði það ekkert til.
Þó svo að ætlunin sé ekki að vera með veitingahúsagagnrýni hér þá ætla ég að fara nokkrum orðum um Veitingahúsið Við fjöruborðið. Ég er nefnilega búinn að heyra staðinn hafinn upp til skýjana og var farinn að halda að hann væri svona "eitt af best geymdu leyndarmálum landsins" staður. Það er nú ekki alveg málið. Borð, stólar og borðbúnaður var svona gamall og slitinn og ekkert við það að athuga, svona "antík" stemningu ef borðin hefðu ekki verið völt og dúkarnir eins og teygjulök á glerborði. Að því leyti er staðurinn ekki barnvænn því dúkarnir voru gjarnir á að fara af stað með allt sem á borðinu var þegar börnin þurftu að erindast eitthvað.
Þjónustan var ekki til fyrirmyndar. Þjónarnir voru svo sem í góðum fíling en kunnu þetta greinilega ekki alveg. En það getur líka verið stemning, svona amatör þjónar.
Þá er það maturinn. Matseðillinn samanstendur af einum forrétt,humarsúpu og tvemur aðalréttum, humarsúpu og humar. Og það er náttúrulega mesta töffið. Þar sem ég var konulaus með börnin nennti ég ekki að fá mér svaka máltíð og prófaði bara að fá mér humarsúpu í aðalrétt. Systir mín sem var með mér sagði að súpan (hennar var reyndar forréttur) væri betri en humarsúpan á Fiðlaranum. Það kom fljótlega í ljós að sú fullyrðing er náttúrulega bara rugl. Humarsúpan á Fiðlaranum á Akureyri var, þegar best lét, fullkomin. Það var þessi humarsúpa ekki. Hún var góð, ég borðaði mig pakksaddann. En ég kann að gera betri humarsúpu þannig að þar með fór goðsögnin fyrir lítið.
Kosturinn við staðinn er hins vegar ótvíræður. Ég hef aldrei fengið betur útilátinn skammt á veitingastað fyrr fyrir jafn lítinn pening. Mestu heljarmenni eiga örugglega erfitt með að klára skammtinn og það sér varla á budduni þegar gengið er út. Humarinn er líka glæsilegur, fyrsta flokks hráefni. Bara þetta gerir ferðina þess virði að hún sé farin. Tilbreytingin er ágæt, skellið ykkur á Stokkseyri við tækifæri og skóflið í ykkur humar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:41
0
athugasemdir
Hvítur kross á blóðugum grunni
Ég vil hvetja alla til að skoða grein Stefáns Pálssonar um þjóðfána Sviss. Betri gerast skrifin ekki á hinum pólitísku vefritum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:58
0
athugasemdir
6. apríl 2002
Þjóðin og Landssíminn
Sagt var frá því í fréttum á föstudaginn að meirihluti þjóðarinnar er andvígur einkavæðingu Landssímans. Í könnun sem þingflokkur VG lét Gallup gera fyrir sig kemur í ljós að 61% af þeim sem taka afstöðu vilja að síminn sé í eigu þjóðarinnar áfram. En það er fleira fréttnæmt við könnunina. Það kemur í ljós að 63% stuðningsmanna Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar (flokks hinnar almennu skynsemi) eru andvíg því að Landssíminn sé seldur til einkaaðila. En eins og allir muna berst Framsóknarflokkurinn hatrammlega fyrir því að fyrirtækið sé selt úr höndum landsmanna. Heill 44% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins, sem hefur rutt einkavæðingarbrautina af miklu offorsi, eru algerlega ósammála flokksforustunni varðandi eignarhaldið á Landssímanum. 56% sjálfstæðismanna er þó yfirdrifinn stuðningur við stefnu ráðherrana að mati Sturlu og traustur meirihluti. Samgönguráðherran virðist samt ekki átta sig á þessari furðulegu afstöðu landsmanna og finnur þá skýringu líklegasta að landsmenn séu bara almennt svona vitlausir að það þurfi að uppfræða þjóðina betur, eins og hann lét hafa eftir sér í sex fréttum rúv. En í raun er þetta ekki neitt til að velta sér upp úr af því að þessar upplýsingar um vilja þjóðarinnar skipta nákvæmlega engu máli í augum Sturlu Böðvarssonar. Ef ríkisstjórnin hefur aldrei haft almannaheill að leiðarljósi, því ætti það þá að skipta einhverju máli hvað fólkið vill. Eða hvernig á maður að skilja svona málflutning?
Í raun er ekkert undarlegt við það að landsmenn vilji hafa fyrirtækið áfram í eigu ríkisins þar sem það hefur í gegnum tíðina greitt tugmilljarða í ríkissjóð. Auk þess búa Íslendingar við einhverja lægstu símtaxta í Evrópu og því ættum við að vilja glutra því niður bara af því einhverjir einkaaðilar eru með 15-25% ávöxtunarkröfu í stað 5-7% eins og er í dag. Allir sem komið hafa að sölu símans segja að líklega þurfi að þrefalda gjaldskrár fyrirtækisins til að fyrirtækið verði seljanlegra og samkeppnisfært í framtíðinni. Menn geta bara tekið síðasta símreikninginn sinn og margfaldað hann með þremur til að sjá hvað það þýðir.
Þessar upplýsingar ættu að vera popúlistaflokkunum Framsókn og Samfylkingu (flokki hinnar almennu skynsemi) holl lexía. Framsókn hefur í þessu máli, sem öðrum, verið hækja Sjálfstæðisflokksins og hlýtt eins og hundur í stað þess að hafa vilja kjósenda sinna í fyrirrúmi. Varðandi hinn krataflokkinn, þá er málið ekki eins einfalt. Þar hafa mál oft skipast undarlega og nokkur ráðgáta hvernig ákvarðanir eru teknar þar á bæ. Skemmt er að minnast framgöngu þeirra í Kárahnjúkamálinu, en þar er engu líkara en þingmenn flokksins hafi fengið höfuðhögg og vaknað sannfærðir að þeir væru komnir í Framsóknarflokkinn. Slíkur var ákafinn að koma málinu í gegn. Engar aðrar ástæður jaðra við að vera líklegar, enda hefur stjórnarandstöðuflokkur aldrei lagt jafn mikið á sig til að gera ríkisstjórn landsins lífið létt.
Stuðningsmenn VG eru hins vegar nánast á einu máli. Þar er afgerandi stuðningur við áframhaldandi ríkisrekstur Landssímans. Enda starfar flokksforustan nákvæmlega í samræmi við þann vilja.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:31
0
athugasemdir
Hver man ekki eftir Bronski Beat eða Alpaville... Þetta voru hræðilegir tímar!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:43
0
athugasemdir
VH1
Fékk fjölvarpið aftur eftir að hafa tekið mér pásu síðasta mánuð. Núna sit ég og horfi á Rod Stewart syngja Do You Think I´m Sexy frá 1978 á VH1. Fjölvarpið ætti að vera í skylduáskrift.
...
Ætlaði að skrifa níðþunga grein um pistilinn hans Ágústar Ágústssonar, en nennti því svo ekki. Ég fann samt nafn á greinina sem menn mega nota ef þeir ætla að svara þessu bulli í honum. "Íslendingar, sjáið Ágúst Ágústsson!".
...
Núna er Jimmy Hendrix á VH1, ahhhhhh
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:37
0
athugasemdir
5. apríl 2002
Fyrir stjórnunarfræðinema
Þessar fréttir sem byrtust á mbl.is ættu að gleðja konuna...
Konur betri stjórnendur en karlar
Kvenkyns stjórnendur eru betri en karlkyns kollegar þeirra og bæta stjórnunarhæfileikana eftir því sem þær eldast, að því er niðurstöður nýlegrar könnunar Exponential hafa leitt í ljós. Í frétt Silicon.com segir að konur slái körlum við í öllum sex flokkum stjórnunar sem kannaðir voru. Munurinn á kynjunum mælist 3-5%.
Flokkarnir sex sem kannaðir voru, eru mannaforráð, persónuleg skilvirkni, leiðtogahlutverk, hópvinna, samskipti og skipulagning.
Könnunin tók til ríflega 400 yfirmanna í Bretlandi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:13
0
athugasemdir
4. apríl 2002
Praxíteles
Aðdáendaklúbbur hljómsveitarinnar Tvö dónaleg haust hefur sett upp heimasíðu. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um inngöngu sem fyrst.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:12
0
athugasemdir
3. apríl 2002
Hinn ábyrgi þingmaður Einar Már Sigurðarson
Ég komst ekki hjá því að reka eyrun í ræðu Einars Más Sigurðarsonar í dag. Í stuttu máli sagt var hann að kvarta yfir því hvað þingmenn VG hafi mörg orð um hið mikla og umdeilda þingmál um virkjun Jökulsár á Brú og Jökulsár í Fljótsdal, m.ö.o. Kárahnjúkavirkjun. Eitt af gullkornunum sem hraut af vörum Einars var það að ekki mætti tala of lengi í einu við aðra og þriðju umræðu þingmála, þó svo að ræðutíminn sé, samkvæmt þingsköpum, frjáls. Þingmenn verði að taka tillit til annara þingmanna og stilla máli sínu í hóf svo menn þurfi ekki að sitja undir of löngum ræðum. Annað sem kom fram í máli þingmannsins var að munurinn á ábyrgri og óábyrgri stjórnarandstöðu væri sá að sumir væru á móti öllu sem kæmi frá stjórninni, en aðrir tækju afstöðu til mismunandi mála á forsendum hvers máls fyrir sig. Jæja, þessi orð dæma sig í rauninni sjálf, enda hefur þingflokkur VG tekið undir einstaka stjórnarfrumvörp. Til dæmis man ég ekki betur en að fæðingarorlofið hafi einungis mætt andstöðu nokkurra þingmanna úr Sjálfstæðisflokknum, þótt flestir hafi samt greitt atkvæði með frumvarpinu.
En hvernig væri þá að velta fyrir sér störfum hins ábyrga þingmanns Samfylkingarinnar Einars Más Sigurðarsonar. Hvernig hefur hann farið með tíma hins háa Alþingis í þau þrjú ár sem hann hefur setið. Jú, það kemur í ljós að Einar Már hefur á yfirstandandi þingi (því 126.) átt eina fyrirspurn varðandi tilraunir á grunnskólastigi, jamm. Enn hvað með 125. þing? Þar á Einar Már ekki eitt einasta mál og sama á við um 124. þing. Hinn ábyrgi þingmaður er kannski ekki svo ábyrgur eftir allt, þar sem hann er fyrsti flutningsmaður að einu einasta þingmáli síðustu þrjú þing, en það verður seint hægt að saka þingmanninn um tillitsleysi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:36
0
athugasemdir
Af ályktun og öfund
Ég vil benda öllum á gríðarlega vel samda ályktun UVG sem birtist á vefsíðu hreyfingarinnar í gær.
...
Óli Njáll er náttúrulega bara öfundsjúkur að hafa ekki komist á tónleikana í gær sem voru hreint út sagt bestu tónleikar sem ég hef farið á. Sprækasta rokk síðan Prestley var upp á sitt besta. Greinargerðin kemur seinna í dag eða á morgun þar sem ég er önnum hlaðinn í augnablikinu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:54
0
athugasemdir
Ljúgðu Geir, ljúgðu
Það fór þó aldrei svo að Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Reyðaráls, kæmist upp með að ljúga að landsmönnum og gefa síðan aumkunarverða skýringu á athæfinu og halda þar með að hann væri laus allra mála. Í tilefni þess að ég hafði rangt fyrir mér birti ég hérna á síðunni afsökunina góðu. Og getur hver dæmt fyrir sig hversu öruggur Geir er í málflutningi sínum.
Geir A. Gunnlaugsson: stjórnarformaður Reyðaráls: Mér finnst það fullkomlega réttlætanlegt til þess, vegna málsins, að menn ja, þess vegna séu ekki alveg að segja sannleikann af því að menn verða að nota þennan tíma til þess að reyna að fá fram þá niðurstöðu sem við viljum.
Fréttamaður: En eitt er kannski að puðra ekki út öllum upplýsingum og svo annað að svara ekki sannleikanum samkvæmt þegar spurt er beint.
Geir A. Gunnlaugsson: Já, já en þarna er náttúrulega verið að ræða, þarna er um viðskiptaleyndarmál að ræða og það er og þetta er alls staðar í öllum viðskiptum, þá er það svo að menn hérna, í ákveðinn tíma geta sagt annað heldur en kannski eru nákvæmar staðreyndir.
Jamm, það er nú svo.
ps. Af gefnu tilefni skal þess getið að þar sem viðskipti koma ekki til tals á þessari síðu er á hverjum tíma einungis greint frá nákvæmum staðreyndum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:02
0
athugasemdir
2. apríl 2002
Sá á völina...
Það er frekar íþyngjandi að þurfa að velja á milli tveggja stórviðburða sama kvöldið. Ég var náttúrulega búinn að steingleyma forsýningunni hjá Grími Hákonar í kvöld þegar Huginn hringdi í mig og rifjaði upp fyrir mér forsýninguna. Tónleikarnir með The Strokes hljóta þó að verða ofan á þar sem styttra er í næstu sýningar á Varði Goes To Europe, en í næstu tónleika með The Strokes. Eins væri skítt að kaupa miða á 2.900 og nota hann ekki. Þannig að valið er aftir allt ekki efitt. En djöfull hefði ég viljað sjá þessa sýningu.
Nú á ég eftir að sitja og þegja þunnu hljóði á meðan kommarnir í kringum mig dásama hið mikla meistarastykki Gríms.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:18
0
athugasemdir
Fékk miða á The Strokes í kvöld, hélt það væri löngu uppselt. Lesendur geta búið sig undir ítarlega skýrslu á morgun.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:06
0
athugasemdir
Vaka efnir kosningaloforð
Þann 21. mars síðastliðinn rann út umsóknarfrestur umsækjenda um stöðu framkvæmdastjóra Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Núna, 10 dögum síðar hafa Vökuliðar farið yfir allar umsóknirnar, tekið þau viðtöl sem þurfti og tekið svo ákvörðun um ráðninguna. Þetta verður að teljast vel af sér vikið á svo skömmum tíma. Hinn heppni er enginn annar en Brynjólfur Ægir Sævarsson . Að öllum líkindum er hann mjög hæfur til starfans enda setið í Stúdentaráði HÍ ásamt því að vera annar fulltrúa nemenda í Háskólaráði. Það vill svo skemmtilega til að Brynjólfur hefur einmitt gegnt ábyrgðarstörfum fyrir félagsskapinn sem réði hann. Af þeim sökum mun hann eiga auðvelt með að setja sig inn í starfið og þarf því ekki að kynnast öllu fólkinu á vinnustaðnum sem oft tekur tíma og hefur einhverja fyrirhöfn í för með sér. Þetta hlýtur að teljast kostur fyrir vinnuveitanda sem og hinn nýráðna starfskraft.
Eins getur ekki spillt fyrir að Brynjólfur hefur verið í pólitísku slagtogi við formann Vöku, Borgar Þór Einarsson, og skrifað ásamt honum pistla inn á vefritið Deiglan.com.
Með því að auglýsa starf framkvæmdastjóra er Vaka að efna kosningaloforð. Enda kolómögulegt að "velja bara einhvern úr Stúdentaráði", eins og Brynjólfur Stefánsson, formaður Stúdentaráðs lét hafa eftir sér. Maður hefði þá líka haldið að einhver sem ekki var í Stúdentaráði hefði verið valinn, en líklega hefur ekki verið úr miklu að velja. Vaka var ekki nema tíu daga að ganga frá þessu.
En skítt með það kosningaloforðið var efnt og Vaka hefur staðið við sitt. Frábært...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:01
0
athugasemdir

