Bjön Ingi Hrafnsson, nýkrýndur framsóknarmaður, hefur skrifað mikinn greiningarpistil á Hriflu um sveitarstjórnarkosningarnar. Þar kemur eftirfarandi fram:
Með ákveðnum rökum má halda því fram að helber frjálshyggja og markaðslausnir hafi beðið nokkurn ósigur í kosningunum. Að sama skapi má fullyrða að eindregin róttækni til vinstri hafi ekki heldur átt upp á pallborðið hjá kjósendum. Stóru skilaboðin úr kosningunum virðast þannig vera þau, að félagshyggju mannúðar og jöfnuðar hafi vaxið ásmegin og að rökhyggja skynseminnar á miðju stjórnmálanna standi sterkum fótum. Og raunar sem aldrei fyrr.
Og má ég nú spyrja, hvaða félagshyggju mannúðar og jöfnuðar hefur Framsóknarflokkurinn, flokkur sem lifir á eigin heimatilbúnum forsendum, boðað. Við búum á landi þar sem fólk berst í bökkunum eða hefur hendur fullar fjár. Þar er enginn millivegur, einungis þeir sem sem eiga mikið eigiðfé og þeir sem eiga ekkert nema skuldir. Framsóknarflokkurinn hefur mótþróalaust samþykkt allar aðgerðir Sjálfstæðisflokksins sem stuðla að misskiptingu í landinu. Aukna greiðslubyrgði heimilanna og afléttingu álaga á fyrirtæki. Tollalækkun á lúxsusvörur og endalausa hækkun neysluvara. Með einni undantekningu, fæðingarorlofslögunum, hefur Framsóknarflokkurinn heilshugar tekið þátt í mestu frjálshyggjubyltingu í sögu þessarar þjóðar, sem hefur í för með sér áður óþekktann skort aldraðra og öryrkja.
Landsbyggðin er látin grotna niður eins og vanræktur ættingi sem enginn nennir að tala við lengur.
Utanríkisráðherra, sem er formaður Framsóknarflokksins, ef einhver hefur gleymt því, ber ábyrgð á einhverjum hrottalegustu og viðbjóðslegustu fjöldamorðum sem heimsbyggðin horfir upp á. Viðskiptabannið á Írak veldur dauða fleirri barna en nokkur hernaðarátök hafa gert í sögunni. (After a decade of suffering by innocent people, and the deaths of children on a scale far exceeding that caused by any military weapon in history, the sanctions continue to bring misery and degradation to all sectors of Iraqi society except their target, the Iraqi Government.(The Australian 17. jan 2001))
Framsóknarflokkurinn er ekki flokkur mannúðar. Framsóknarflokkurinn er ekki flokkur jöfnuðar. Framsóknarflokkurinn er ekki flokkur skynsemi.
Framsóknarflokkurinn þrífst á eigin forsendum, forsendum valda. Enda skiptir hann engu máli hver er með honum í ríkisstjórn, eða fyrir hverju hann berst, svo lengi sem Framsóknarflokkurinn er í ríkisstjórn, því það eitt skiptir jú máli.
30. maí 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:24
0
athugasemdir
29. maí 2002
Kommon eru þetta ekki fordómar...
"Hann er svona ógó sem hefur greinlega aldrei komið nálægt kvenmanni og starir því á eftir hverju slíku eintaki sem hreifist, slefandi með tunguna lafandi útúr kjaftinum. "
Sigrún Helga Lund, sem talar greinilega í nafni Röskvu, er greinilega of fordómafull og fáfróð um fordóma og hvernig maður umgengst fólk til að tala í nafni Röskvu! Takið þessa manneskju út, í guðanna bænum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:42
0
athugasemdir
Tyrkland verður mitt lið í HM, að sjálfsögðu hef ég alltaf taugar til Danska liðsins og mun fylgjast með þeim af áhuga. Einhverra hluta vegna hefur mér alltaf tekist að láta gengi Enskra fara í taugarnar á mér og mun líklega halda áfram að gera það. Frakkarnir eru þarna einhverstaðar líka þannig að það verður nóg að gera við að fletta upp úrslitunum í Mogganum daginn eftir leiki.
Þetta vita sjálfsagt flestir, en fyrsti landsleikur hins hundtrygga markvarðar tyrkneska liðsins, Rustu Recber, var við Ísland 12. október 1994.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:18
0
athugasemdir
Jæja, þá eru kosningar búnar og nýr veruleiki tekur við. UVG hefur lagt línurnar fyrir sumarið og það verður mikil virkni í þeim hóp næstu mánuði, enda veitir ekki af því að undirbúa haustið vel.
Leðurpungurinn verður sóttur fljótlega. Annars er gaman að lesa um skuldir Palla eftir kosninganóttina margumtöluðu. Bara svo það sé á hreinu þá skuldar Hildur mér ekki neitt, enda er hún gestrisin með afbrigðum og þau bæði náttúrulega.
Einhverra hluta vegna hafa örlögin hagað því þannig að ég verð í uppskipun í hafnarfirði í sumar, alla vega eitthvað. Fyrsta vaktin mín var í nótt, nánar tiltekið frá 22:00 til 08:00. Kaffi kl. 01:00 og matur klukkan 04:00. Starfið er ekki flókið og felst í því að taka 21 kílóa fiskikassa af bretti og raða því á annað bretti eftir númerum. Upp úr skipinu koma u.þ.b. 25 bretti á klukkutíma, þannig að 225 bretti koma upp úr skipinu á vaktinni (miðað við klukkutíma í mat og kaffi). Á hverju bretti eru 52 kassar sem gera 11,700 kassar á vaktinni. Fimm menn eru á bakkanum þannig að hver umstaflar 2,340 kössum. Hver þeirra vegur sem áður segir 21 kíló. Og þannig má ætla að ég hafi lyft 49,140 kílóum í nótt. Jamm.
Við gætum örugglega rúnað þetta eitthvað niður þar sem ég var örugglega ekki afkastamesti hafnarverkamaðurinn á vaktinni og blessunarlega kom einstaka bretti upp úr lestinni sem ekki þurfti að umstafla.
Segjum 40 tonn.
Ég er þreyttur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:13
0
athugasemdir
25. maí 2002
Las dagbókina hans Páls Hilmarssonar í heild sinni áðan, það tók ekki langan tíma...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
03:15
0
athugasemdir
Þar er vitanlega ekki átt við snillingin Óla Njál, enda er hann djúpvitur maður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
03:11
0
athugasemdir
Öll mannana verk eru svik, aumingjaskapur og markleysa.
Helvíti er orðið helvíti.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
03:05
0
athugasemdir
24. maí 2002
Rétt í þessu heyrði ég Donald Rumsfeld mæla þessi spöku orð. "There is no militeri, as such"
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:43
0
athugasemdir
Ég keyrði næstum því á Helga Hjörvar áðan. Blessaður maðurinn var að labba inn á Suðurgötuna af Vonarstrætinu og áttaði sig of seint á að hann var kominn fram af kantsteininum og út á götu. Sem betur fer náði ég að bremsa í tæka tíð. Ef ég hefði verið að stilla útvarpið, tala í símann eða dáðst að fagurrauða húsinu hans Einars Braga, þá væri ég í vondum málum en Marsibil í góðum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:35
0
athugasemdir
Bush og Pútín hafa skrifað undir samning sem skuldbindur Bandaríkin og Rússland til að fækka kjarorkuvopnum um 2/3 á næstu 10 árum. Þetta er frábært skref í átt til friðar og afvopnunar enda fækkar kjarnaoddum úr 12.000 niður í 3.400 -4.400og þá erum við náttúrulega öll miklu betur sett!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:25
0
athugasemdir
Því verður seint neitað að Strumpurinn á stórbrotnar færslur þarna inn á milli.
Senn verður söguþingið yfirstaðið og þá gleðjast allir sannir vinstrimenn. Sverrir gleðst vegna þess að hann þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af framkvæmdinni, skriftum og yfirlestrum. Við hin vegna þess að við þurfum ekki lengur að lesa um það á síðunni hans.
Þau óvæntu tíðindi áttu sér stað í dag að Palli uppfærði síðuna sína, en svo kom í ljós að sú uppfærsla innihélt engar bloggfærslur. Er Pálli Hilmarsson latur bloggari? Ég veit það ekki. Ég veit bara að mér er ekki boðið í neinar grillveislur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:12
0
athugasemdir
Um hjarta mitt hríslast nú gleðibylgjur. Asat samtökin hafa nú tekið stökkbreytingu fram á við með vef einum svo myndarlegum að það hálfa væri nóg. Formaður og vefari eiga sannarlega heiður skilinn fyrir framkvæmdirnar. Það vekur hins vegar furðu mína að hinn virti meðlimur Kubilay Ataturk skuli ekki nú þegar vera orðinn ritstjórnarfulltrúi þar sem hann getur örugglega frætt lesendur ótt og títt um daglegt líf í Tyrklandi nútímans á vefsíðunni ásamt því að halda merka fyrirlestra um sama efni öðru hverju.
Auk þess verð ég að fá að hneykslast á því að það sé ekki linkað á menn sem getið er um á hinum annars mjög svo myndarlega vef!!!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:37
0
athugasemdir
23. maí 2002
Nú geta allir góðir menn séð hvort ég er aflínis eða álínis(?), svona er blessuð tæknin nauðsynleg!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:55
0
athugasemdir
Jæja þá er kosningabaráttan í hámarki og bara síðustu metrarnir eftir. Vér óþreytandi starfsmenn VG hentumst á kosningaskrifstofur VG í Árborg og Akranesi og heilsuðum upp á frambjóðendurna. Lesendum til fróðleiks eru kosningaskrifstofur okkar manna á þessum tveimur stöðum í glæsilegum húsakynnum. Á Akranesi eru tvær hæðir. Þar er stór lokaður fundarsalur, stórt eldhús, bar með stólum og borðum og ein setustofa að auki og þetta er bara efri hæðin! Kosningaskrifstofan á Selfossi er ekki síður glæsileg þó svo að hún sé bara á einni hæð. Þar er glæsileg málverkasýning og minnsta kosti fimm leðursófasett í risastóru rými sem er vel nýtt. Báðar þessar kosningaskrifstofur eru að sjálfsögðu við fjölförnustu torg bæjarfélagana og vel sýnilegar. Eitthvað segir mér að framboðin í Kópavogi og Hafnarfirði myndu kikna í hnjáliðunum við tilhugsunina um svona kosningaskrifstofur.
Á báðum þessum stöðum eru menn sæmilega bjartsýnir og gott ef annar maður er ekki raunhæft baráttusæti í báðurm tilvikum. Sama er ekki hægt að segja um Akureyri og Hafnarfjörð í augnarblikinu og veldur það mér krampaköstum og hjartabilunum. Það er huggun harmi gegn að á báðum stöðum er gott fólk að vinna af öllu kappi og það hlýtur að skila sér. Við verðum bara að berjast til síðasta blóðdropa. Þetta er spurning um líf eða dauða, eða næstum því.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:22
0
athugasemdir
21. maí 2002
Jamm og jæja, nú er U-beygjan komin út eftir stress, svita, taugaáföll og hjartastopp. Ég hef þó lúmskan grun um að þetta sé allt að heppnast, enda er blaðið á leiðinn á þau pláss sem U-listinn býður fram einn og óstuddur og dreifingin komin vel á veg í borginni.
Þó ég segi sjálfur frá hefur blaðið aldrei verið glæsilegra og ekki ólíklegt að við vinnum 2-3 sæti í bæjar- og sveitarstjórnum landsins út á það.
Klukkan er orðinn 17:13 og ég hef ekki getað annað neinu nema þessu blaði í dag. Þ.a.l. er ég sveittur, þreyttur og svangur og ætla heim.
Adios
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:14
0
athugasemdir
20. maí 2002
Sjálfur formaður UVG, Sigfús Ólafsson á afmæli í dag. Við óskum honum til hamingju. Hann er staddur í Þistilfirði, horfinn aftur til upprunans.
Í tilefni dagsins lögðu nýliðar Þórs Íslandsmeistarana á Akranesi. Ekki finnst mér það leiðinlegt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:47
0
athugasemdir
19. maí 2002
Verður maður ekki að setjainn eina færslu áður en dagur rennur. Gott djamm í gærkveldi. 5ta herdeildin er feitrokkandi. Góður dagur í dag með fjölskyldunni, maður er soddan fjölskyldumaður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:44
0
athugasemdir
18. maí 2002
Ég hélt eitt augnablik að Valdi væri að tala um mig en svo var ekki. Munaði samt litlu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:55
0
athugasemdir
Það er ýmislegt í gangi á netinu. Þessir menn eru til dæmis ekki í lagi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:46
0
athugasemdir
17. maí 2002
Henti RealOnePlayer og fékk mér Winamp. Það er svona fade out dæmi í því, svalt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:35
0
athugasemdir
Ég ætla á Ingólfsstrætis djamm á morgun? Hver kemur með?
(Ekki Palli, hann verður að brjóta U-beygjuna...)
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:25
0
athugasemdir
Jamm, segið svo að ég sé ekki efnisríkastur og meiningarfyllstur.
Skál.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:22
0
athugasemdir
Bætti Helgu Kaaber inn. Ég þekki hana ekki neitt, en hún frábær bloggari. Verst að Amma hennar ætlar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:03
0
athugasemdir
Best að halda áfram með aðdáun.
Jack Black er snillingur. Ég nenni ekkert að útskýra af hverju. Þeir sem ekki fatta það eru hjartalausir hálfbjánar.
Beta rokk rokkar. Ég dánlódaði 8 lögum með Tenacious D. Þau eru jafn frábær og Jack Black. Enda er hann frábær. Set the artist free!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:50
0
athugasemdir
Góðar fréttir. Hér má sjá nýjasta myndbandið við Perfect day.
Best að kynna sér fyrirbærið fyrst maður er að úttala sig um það. Hoku er sem sagt táningstelpa sem spilar á gítar og er því ofurtöffari. Svona rokkBritney. Er það ekki svalt.
Ég er með Hokufetish.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:40
0
athugasemdir
Ég ætti eiginlega að blogga eitthvað um Palla Hilmars. En ég sleppi því þar sem ég er að hlusta á Hoku, (sem er ofurflott nafn á hljómsveit). Og ég gæti orðið væminn, bjakk. En Palli á það svo sem alveg skilið enda mesti hönnunarsnillingur norðann Pamír og umbrotsmaður góður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:32
0
athugasemdir
Ég ætti kannski að útskýra galdurinn á bak við Hoku, þ.e. lagið þeirra Perfect day. Málið er að einhverra hluta vegna gæti ég verið í einangrun í Alkatraz fangelsinu í einhverri dimmri holu í 30 daga en samt endurupplifað minn besta dag í hvert skipti sem ég hlusta á þetta lag. Þetta er ekki svona lag sem ég heyrði þegar ég var í stuði einhverntíman á sólríkum sumardegi með engar áhyggjur og með besta djamm lífs míns framundan. Neipp, ég heyrði það þegar ég horfði á hina daunillu mynd Legally Blond í tölvunni minni í ömurlegum myndgæðum einhverntímann. Í framhaldi af því náði ég í lagið og hef ekki náð mér almennilega síðan. Þetta er klikkað, lagið er nákvæmlega ekkert merkilegt, ég bara nota það eins og prósakk. Algerlega lífrænt, náttúrulegt og umhverfisvænt prósakk.
Best að skella því í gang aftur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:28
0
athugasemdir
Er ekki tími fyrir Hoku? Jú, svo sannarlega. Perfect day inniheldur örugglega hljóðrænt nikótín.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:20
0
athugasemdir
Ég er nú ekki mikið fyrir að tala um aðdáendabréfin mín. Ég er að hugsa um að gera undantekningu...
"frábær bloggari, bestur íslenskra, efnisríkastur og meiningarfyllstur."
Þetta er ágætt, og eitthvað sem allir geta verið sammála.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:59
0
athugasemdir
Það er alltaf gaman að fá tölvupóst þar sem eftirfarandi postskript kemur fram
Vinsamlegast athugið að upplýsingar í tölvupósti þessum og viðhengjum við
hann eru eingöngu ætlaðar þeim sem póstinum er beint til og gætu innihaldið
upplýsingar sem eru trúnaðarmál.
Maður er svo mikilvægur, jamm.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:14
0
athugasemdir
Háralitur Schröders ósvikinn
Þetta er tvímælalaust áhugaverðasta fyrirsögn Morgunblaðsins í dag.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:08
0
athugasemdir
16. maí 2002
Ekkert bloggað í gær. Þetta er í annað skipti á bloggferlinum sem það gerist.
Helga kláraði síðasta prófið sitt í háskólanum í gær. Ég á ekki von á að hún fari í doktorsnám, en það er þó aldrei að vita.
Netleti mín er vonandi búin í bili. síðustu dagar hafa verið ansi hektískir. Nú er verið að leggja lokahönd á U-beygjuna sem er blað UVG. Þetta verður massíft blað með miklu lesefni. Ekki minnkar annríkið við það. Laugardeginum verður m.a. varið upp í prentsmiðju Morgunblaðsins.
Þetta góða veður heldur áfram á morgun og laugardag. Það eru góðar fréttir.
Ætli ég segi þetta ekki gott af bloggbrotum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:41
0
athugasemdir
14. maí 2002
Hreinlæti og þrifnaður er að verða vinsælt umræðuefni á vefnum. Hér er án efa áhugaverðasta vangaveltan um þau mál. Því miður er ekki hægt að tengja beint inn á færsluna, en þetta er þarna einhvers staðar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:35
0
athugasemdir
Jamm, alltaf hressandi að taka nokkur próf á netinu. Ég gerðist svo (ó)merkilegur að hitta The Right Honourable Lord Robertson of Port Ellen .

Var að keyra á miklubrautinni þegar ég mætti fjórum móturhjólalöggum og þremur löggubílum, alla með sírenur. Einhverstaðar í kösinni sat svo Róbertson sjálfur í skot og sprengjuheldum bíl. Ég veifaði til að sýna svona íslenskst velkomm, en ég held að hann hafi ekki tekið eftir mér.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:27
0
athugasemdir
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:13
0
athugasemdir
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:08
0
athugasemdir
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:04
0
athugasemdir
13. maí 2002
Þegar maður tekur ákvörðun um að horfa á danska mynd þessa dagana, er það nánast trygging fyrir góðri skemmtun. Þannig var Italiensk for begyndere sérlega ánægjuleg mynd. Lars Kaalund á sem fyrr stórleik. Annars hjálpast allt við að skapa verk sem skilur mann eftir einstaklega sáttann við tilveruna.
Ein setning vakti sérstaka kátínu hjá okkur:
"Ég er að fylla á minibarinn hjá Íslendingnum, hann er aftur tómur."
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:18
0
athugasemdir
12. maí 2002
Það verður að segjast að friðarráðstefnan á Loftleiðum um helgina er líklega einn vanmetnasti fréttaviðburður sem af er þessu ári. Þarna talaði fólk sem hefur reynslu af átökunum í Súdan, fyrrverandi Júgóslavíu, Írak, Vesturbakkanum og Gaza. Maður hefði ætlað að fólk sem hefur eins víðtæka þekkingu á og reynslu af þeim atburðum í heiminum sem teljast merkilegastir og fréttnæmastir, væri eftirsótt af fjölmiðlum. Þessu hafa íslenskir fréttamenn ekki áhuga á. Á þessu eru smávægilegar undantekningar, Egill Helgason mætti í smá stund og mér skilst að Sara Flounders sé gestur hans í Silfrinu í dag.
Ef þeir hefðu samt sem áður látið sjá sig og hlustað á fyrirlestrana, í það minnsta lesið þá. Hefðu þeir sett hlutina í nýtt samhengi. Af hverju er til dæmis aldrei spurt hvað rekur W. Bush og ríkisstjórn Bandaríkjana og Bretlands til þess að stofna til stríðsreksturs sem er áður óþekktur í veraldarsögunni. Aukning til hernaðarútgjalda er 43 milljarðar dollarar til þess að heyja stríð gegn hryðjuverkum. Hversu margir látast af völdum hryðjuverka á ári. Þeir eru einhverjar hundruðir, einhver nefndi 400. Árið 2001 er undanskilið en eins og kunnugt er dóu um 4000 manns í World Trade Center. 24.000 manns deyja úr hungri á dag og ef að mannslíf skipta máli á annað borð væri eðlilegt að W. og ríkisstjórnir Bandaríkjana og Bretlands settu peninga í að vinna gegn fátækt í heiminum. Hryðjuverk eru mjög aftarlega á listanum yfir ástæður fyrir því að fólk deyr. Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið það út að það kosti 24 milljarða dollara að enda fátækt í heiminum (world poverty). Það vill svo einkennilega til að það er rétt tæplega sú upphæð sem Bandaríkin ákváðu að bæta við útgjöldin til hernaðarmála í ár.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:41
0
athugasemdir
11. maí 2002
Sá ekki fram á að komast á friðarráðstefnuna í dag en svo rofaði til. Þetta verður góður dagur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:32
0
athugasemdir
9. maí 2002
Þetta sýnir hvað sumir vita lítið um póstmódernisma. En eins og allir vita er hálfbjánalegt að tala um póstmódernista. Þannig er verið að kenna spekingana við það sem þeir gagnrýna. Og það væri væntanlega eins og að kalla lýðræðissinna fasista. Huginn, heimurinn er ekki rúðustrikaður, sannleikurinn er afstæður og framtíðin er ekki til!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:40
0
athugasemdir
Ætli ég þurfi ekki að hlusta á Perfect day með Hoku svona sex sinnum áður en ég fer út úr húsi í dag.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:48
0
athugasemdir
Hvað er að Óla Njáli, ég hef áhyggur.
Ég held að Huginn sé kominn með altzheimer.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:38
0
athugasemdir
8. maí 2002
ERROR
The requested URL could not be retrieved
--------------------------------------------------------------------------------
While trying to retrieve the URL: http://olinjall.tripod.com/
The following error was encountered:
Connection Failed
Arg, hvað geri ég nú???
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:46
0
athugasemdir
Njál|l, -s karlmannsnafn úr írsku, Níall, ,vígamaður, hetja´.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:25
0
athugasemdir
7. maí 2002
Þessi athugasemd í garð Ármanns eru strax farnar að vekja athygli og að sjálfsögðu er ég orðinn aðalskotmark prófarkarlesara í bloggheimum.
Mér er svo sem alveg sama hvort athugasemdin hafi átt rétt á sér eða ekki. Þegar menn fá hland fyrir hjartað yfir því að maður geri málfarsathugasemdir við Ármann er það bara fyndið, til þess var leikurinn líka gerður.
Sömuleiðis er mér hjartanlega sama þótt ég slysist til að gleyma einu n-i í einhverju lýsingarorði, það er ekki í fyrsta skipti og örugglega ekki það síðasta. En auðvita gæti maður dundað sér við það að glugga í orðabók menningarsjóðs, það er hárrétt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:31
0
athugasemdir
Jamm, ég fór á listasafnið. Missti reyndar af leiðsögninni en ég ræð ekki mínum tíma í vinnunni frekar en heima og því vanur að sætta mig við svoleiðis hluti. Sýningin er áhugaverð. Þarna eru stórbrotin verk, heimsfræg verk og leiðinleg verk eins og alltaf, en heildin er skemmtileg og yfirbragð sýningarinnar nokkuð ánægjulegt. Verk Vassilij Kandinskijs á sýningunni er stórmerkilegt og ánægjulegt að fá þó ekki sé nema örlítið sýnishorn af verkum þessa mikla meistara abstrakt expressjónisma. Önnur verk, svo sem Ívan grimmi og Kona með hund eru stórbrotin og merkileg. Engin sýningarskrá með heitum verkanna og listamanna er fáanleg þannig að ég get ekki farið í einstök verk enda skiptir það engu máli, það hefði hins vegar verið skemmtilegra. Hið stórmerkilega og heimsfræga verk Svartur ferningur sem ég gat ekki séð betur en að væri ferhyrningur, var þarna og gaman að berja það augum eftir að hafa lesið um margoft, enda byltingarkennt með afbrigðum.
Á milli hæða fékk ég mér svo rússneska rauðrófusúpu (sem ætti að heita rauðrófugrautur) með tilheyrandi meðlæti og pissa væntanlega rauðu í kvöld eins og frændi minn sem fór til Póllands, fékk rauðrófusúpu í hvert mál í marga daga og pissaði rauðu allan tímann.
Svona rétt til að brjóta upp stemninguna ákvað kaffistofustaffið að spila Grieg í hátölurunum sem einhver kallaðir súkkulaðihúðaðann sykurpoppara. Þá hefði ég nú frekar kosið Tchaikovsky.
Jæja ég var ánægður þegar ég labbaði út, enda hafði sólin brotist fram skýjunum og hið mikla hádegi nýafstaðið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:14
0
athugasemdir
Harpa Þórsdóttir listfræðingur, nýráðinn deildarstjóri sýningardeildar Listasafns íslands, verður með leiðsögn um rússnesku sýninguna frá Tretjakov-safninu í Moskvu í dag, þriðjudag 7. maí. Kl. 12:10-12:40. Að sjálfsögðu er því tilvalið að skella sér á Listasafnið í hádeginu og fá sér hádegisverð og fyrirlestur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:04
0
athugasemdir
Ármann heggur hægri og vinstri í nýrri færslu og skemmtir sér við að hæðast af slælegri íslenskukunnáttu vinstri grænna bloggara. Það er því kaldhæðni örlaganna að í einmitt þessari sömu færslu gerir Ármann sig sekan um grundvallarmistök í stafsetningu.
Aðdáendaklúbbur greinanna um Tyrkja er raunar ekki sá hjárænulegasti.
Eins og Ármann, íslenskufræðingur og verðandi doktor, ætti að vita stýrir -um þolfalli en ekki eignarfalli. Því ætti að standa Tyrki, nema auðvitað hann ætli orðinu að vera í eintölu. En tyrkjagreinar sj fjalla að sjálfsögðu um fleiri en einn Tyrkja og því dæmist þessi setning málvillt. En eins og íslenskufræðingurinn bendir á þá er eitt að skrifa á skjá og annað á blað og fyrirgefst því þessi yfirsjón.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:53
0
athugasemdir
6. maí 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:13
0
athugasemdir
![]() | You are Kermit! |
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:08
0
athugasemdir
Ég átti leið út í kosningaskrifstofu eina hér á höfuðborgarsvæðinu, hvar VG og Samfylking bjóða sameiginlega fram. Alþingismaður nokkur var með í för og ræddi landsmálin af miklu kappi við frambjóðendur úr ýmsum flokkum. Eitt af nokkurs konar kosningamálum þar á bæ er hugsanleg sameining við stærra sveitarfélag og voru menn sammála um að það væri hin mesta óráð. Þegar mestur hitinn var í mönnum rann upp úr alþingismanninum: " Já, þessi helvítis samfylking..." og leiðrétti sig snarlega, "sameining" og hélt svo áfram eins og ekkert hefði í skorist. Mér var litið yfir salinn og þótti nú fólkið, sérstaklega úr samfylkingunni taka þessu prúðmannlega og fyrirgefa mismælin, því svona er vitanlega ekki talað um pólitíska andstæðinga, allra síst af ábyrgum stjónmálamönnum, þó svo að sagan kunni að gefa eitthvað annað til kynna...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:56
0
athugasemdir
May 2, 2002... So impressed with Kristen Dunst's red locks in Spider-Man, during an interview on last evening's Late Night With David Letterman, Letterman told Kristen Dunst that she should consider changing her hair color to red. The actress said she might have to soon enough: she told Dave that production on Spider-Man 2 is scheduled to kick off next January.
Þetta kemur ekki á óvart en það er samt betra að vera viss...
Fyrir þá sem ekki vita er þetta aðal Hollywood skúbbsíðan á netinu
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:57
0
athugasemdir
Þetta er athyglisvert:
Þeir sem mæta í verslanir Skífunnar frumsýningardaginn 17. maí klæddir sem einhver karakter úr Star Wars eiga möguleika á bíómiðum á nýjustu myndina.
Vááá, það er mikið í lagt, eru Norðurljós nokkuð að fara á hausinn???
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:44
0
athugasemdir
Öllum góðum mönnum ætti að vera ljóst að síða Praxítelesar verður víðlesnari með degi hverjum, enda formaðurinn nokkuð duglegur við að uppfæra vefinn (ólíkt öðrum formönnum). Ekki er lengra en dagur síðan nýtt met var sett í aðsókn á síðuna.
Já, formaður Praxítelesar kann að starfrækja aðdáendaklúbb.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:40
0
athugasemdir
Það er náttúrulega lítilsvirða og hneisa að ASAT séu steindauð samtök og algerlega óvirk. Þar er engum öðrum um að kenna en Óla Njál Ingólfssyni, formanni félagsins. Ég lýsi yfir vanþóknun minni á framtaksleysinu og krefst þess að hann verði settur af þegar í stað ef ekki verður bætt úr á tilsettum tíma, ef ekki af sjálfsdáðun þá með blóðugri byltingu. Við tyrkjaaðdáendur, oft kenndir við Ataturk, líðum ekki hálfkák og gefum frest fram til 16:35 til að bæta úr hlut, ella verður lýst yfir stríði.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:34
0
athugasemdir
Ég sé það í hendi mér að ákvörðunin að halda með Spiderman á barnsaldri var hárrétt þar sem Spiderman er langflottastur.
Eftir að hafa fengið þær upplýsingar að besta bíóið í borginni var reykræst í kvöld vegna poppvélar tók ég þá ákvörðun að fara í Regnbogan. Regnboginn hlýtur að vera lélegasta bíóið í borginni þar sem tjaldið er eins og salur fimm í Háskólabíó og loftræstikerfið er ónýtt. Hallandinn er ömurlegur og því átti Helga í mestu vandræðum með að sjá það sem fram fór. Spiderman var hinsvegar til háborinnar fyrirmyndar og því yfirgaf ég hinn sveitta og viðbjóðslega bíósal í sólskinsskapi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:37
0
athugasemdir
5. maí 2002
Það er sem sagt kviknað í Smárabíó. Það er einhver að reyna að koma í veg fyrir að ég sjái þessa mynd.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:40
0
athugasemdir
Ég skil. Ég þarf sem sagt að birta tvær færslur til að fá eina inn á síðuna. Hvers konar...
Hefur einhver lent í þessu eða er blogspot í einhverju klúðri?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:39
0
athugasemdir
Það er nú lélegt þegar maður setur færslu inn kl. 12:00 og hún er ekki enn kominn inn kl. 20:30.
Allavega, íbúðin er tandurhrein. Íbúar Lynghaga, Starhaga og Grímshaga eru komnir með R-lista áróður í hendurnar (Ögmundur bauð í kaffi). Ég eldaði steiktar núðlur með gulrótum og svínalund og ég er á leiðinni á Spiderman.
Er lífið ekki dásamlegt?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:30
0
athugasemdir
Þetta verður góður dagur. Ég ætla þrífa íbúðina, þvo þvottinn sem er búinn að safnast saman og þegar það er búið get ég borið R-lista áróðurinn út sem ég komst ekki í í gær. Ég ætla ekki að mæta á borgarafundinn kl. 16:00 þó að ég hafi fengið fallega sms boðun frá EiSkú.
Jæja þá er allt til reiðu, DMB kominn á gott skrið í græjunum og nú næ ég í skúringafötuna...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:18
0
athugasemdir
Smiðjufundurinn gekk vel í dag. Sem sannar en á ný að hlutirnir hafa tilhneygingu til að enda vel þrátt fyrir skakkaföll. Þetta smiðjuform fer æ betur í mig og ég er ákveðinn í því að reyna að halda þessu áfram næsta haust ef einhver treystir mér fyrir því og jafnvel í sumar. Eini munurinn er að ég fæ víst ekkert borgað. Skítt með það, enda er sælla að gefa en þiggja.
Ekkert varð af Spidermankvöldi í kvöld þar sem ég var klófestur að kjúklingarétti Dagnýjar, en það er allt í lagi og við hjónin stefnum ótrauð á að sjá myndina annað kvöld. Vill einhver koma með?
Jamm, Steinþór er kominn til landsins og allir sannr vinstrimenn hljóta að fagna því. Og að sjálfsögðu lét Steinþór það vera sitt fyrsta verk eftir langa útlegu að mæta á kvenfrelsissmiðju VG.
Lifið heil.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:10
0
athugasemdir
3. maí 2002
Ég geri ráð fyrir fagnaði í kvöld, hvar meðlimir ASAT stíga trylltann gleðidans. Þrettánda sögubrotið hefur nefnilega litið dagsins ljós.
Annars finnst mér slappt að ekki enn er búið að uppfæra heimasíðu ASAT með viðeigandi breytingum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:33
0
athugasemdir
Ef einhver vill heyra Halldór Blöndal tala hraðar en uppboðshaldari í suðurríkjunum þá getur hann skellt sér á pallana núna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:25
0
athugasemdir
Mér finnst Sigfús nú alveg eiga skilið að komast í tenglasafn Sverris. Nema hann vilji náttúrulega hampa Austfirðingum eitthvað sérstaklega þar sem algert jafnvægi myndi komast á norður og austur með tilkomu Sigfúsar. Og afhverju ætti Sverrir ekki að hampa Austfirðingum sérstaklega? Eru stelpubloggin ekki svo skemmtileg?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:06
0
athugasemdir
Spiderman er málið. Spiderman var uppáhalds ofurheltjan mín á ungdómsárunum og ég get ekki beðið eftir að sjá myndina. Fyrstu dómar eru jákvæðir og þegar BÖS er ánægður, er ég ánægður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:06
0
athugasemdir
Jæja, KA tapaði fyrir Val í fyrsta leik liðana um íslandsmeistaratitilinn. Ég hef þó engar áhyggjur, það er fráleitt að halda að úrslitin ráðist í fyrsta leik, það sýndu Haukastelpur um daginn. Ég hef mikla trú á mínum mönnum, heimavöllur KA er líklega sá sterkasti í deildinni, þeir voru ekki margir tapleikirnir sem ég fór á í KA-heimilinu hér á árum áður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:02
0
athugasemdir
2. maí 2002
Þetta er hins vergar ekki málið, enda er óþarfi að taka sín nerósuköst út á saklausum fjölskyldumönnum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:29
0
athugasemdir
Ég vissi ekki að Lisa "Left eye" Lopes væri látinn. Hún dó víst fyrir mánuði síðan í bílslysi og er það sannarlega harmafregn enda var hún dugleg stelpa sem lét ekki útgáfurisana vaða yfir sig, auk þess var hún vel liðtæk söngkona. Ekki ná gleyma því að Lisa á eitt flottasta rapp tónlistarsögunnar í laginu Waterfalls.
Þrátt fyrir þessar fréttir er ég nánast hamingjusamur í dag því það er svo dásamlegt veður. Og svo var það náttúrulega gærkvöldið, úff. Ég er búinn að vera með nerósur í alla nótt og fram til hádegis, en þetta er eitthvað að skána. Við getum líka kallað þetta animal passions. Ekki ætla ég að þræta fyrir það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:03
0
athugasemdir
Hefur einhver heyrt talað um morgunblaðslygi? Ég hélt að að það væri alltaf talað um moggalygi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:13
0
athugasemdir
1. maí 2002
Bara svo það sé á hreinu er Óli Njáll ekki bara öðlingur heldur líka forhertur róttæklingur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:49
0
athugasemdir
Loksins er eitthvað farið að heyrast í óánægðum sjálfstæðismönnum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:31
0
athugasemdir
Er ekki ennþá búinn að jafna mig á tapinu í gær og leitarvélin er ekkert farin að virka. Ef einhver getur aðstoðað mig við að koma henni í gagnið þá má hún (hann) senda mér tölvupóst. Ef einhver getur aðstoðað mig við að spóla tímanum til baka þá er það líka vel þegið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:58
0
athugasemdir
Fari það í heitasta helvíti. United er dottið út úr meistaradeildinni. Það á ekkert annað lið þennan titil skilið og legg ég því til að keppnin veri lögð niður. Andskotinn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:01
0
athugasemdir





