30. júní 2004

Hlaupin eru byrjuð. Í fyrradag fór ég út í Nauthólsvík og til baka. Samkvæmt borgarvefsjá eru það 5,5 km. sem ég hljóp á tæpum klukkutíma, vitanlega með gönguhléum þ.e. á bakaleiðinni. Í dag fór ég rétt tæplega 3ja km. hring hérna í Vesturbænum. Hlaupið var svokallað þolhlaup, hlaupið á jöfnum hraða og tók 20 mínútur sem ég er nokkuð ánægður með. Palli Mega benti mér á síðu sem er ágætis lesning fyrir byrjendur í hlaupi. Líkaminn beinlínis argar af vellíðan og ég get ekki beðið eftir að komast út að hlaupa á morgun. Ætli ég taki ekki sama prógram og í dag.

28. júní 2004

Poppstjörnur gagnrýna poppstjörnur í Guardian.

And the movie is?

Þar sem sumir hafa ekki lagt rækt við spurningahornið sitt, gef ég kvikmyndanördum færi á að slökkva spurningaþorsta sinn. Úr hvaða kvikmynd er eftirfarandi ræða?

Why shouldn't I work for the N.S.A.? That's a tough one, but I'll give it a shot. Say I'm working at N.S.A. Somebody puts a code on my desk, something nobody else can break. So I take a shot at it and maybe I break it. And I'm real happy with myself, 'cause I did my job well. But maybe that code was the location of some rebel army in North Africa or the Middle East. Once they have that location, they bomb the village where the rebels were hiding and fifteen hundred people I never had a problem with get killed. Now the politicians are sayin', "Send in the marines to secure the area" 'cause they don't give a shit. It won't be their kid over there, gettin' shot. Just like it wasn't them when their number was called, 'cause they were pullin' a tour in the National Guard. It'll be some guy from Southie takin' shrapnel in the ass. And he comes home to find that the plant he used to work at got exported to the country he just got back from. And the guy who put the shrapnel in his ass got his old job, 'cause he'll work for fifteen cents a day and no bathroom breaks. Meanwhile my buddy from Southie realizes the only reason he was over there was so we could install a government that would sell us oil at a good price. And of course the oil companies used the skirmish to scare up oil prices so they could turn a quick buck. A cute little ancillary benefit for them but it ain't helping my buddy at two-fifty a gallon. And naturally they're takin' their sweet time bringin' the oil back, and maybe even took the liberty of hiring an alcoholic skipper who likes to drink martinis and play slalom with the icebergs, and it ain't too long 'til he hits one, spills the oil and kills all the sea life in the North Atlantic. So my buddy's out of work and he can't afford to drive, so he's got to walk to the job interviews, which sucks 'cause the shrapnel in his ass is givin' him chronic hemorrhoids. And meanwhile he's starvin' 'cause every time he tries to get a bite to eat the only blue plate special they're servin' is North Atlantic scrod with Quaker State. So what do I think? I'm holdin' out for somethin' better. Why not just shoot my buddy, take his job and give it to his sworn enemy, hike up gas prices, bomb a village, club a baby seal, hit the hash pipe and join the National Guard? I could be elected president.

Kvótið stendur svo sem gott og gilt án þess að nefna þurfi kvikmyndina, en...

27. júní 2004

Ég er orðinn félagi í Sjósundfélagi Íslands. Enn er ég ekki farinn að synda vegalengdir sem skipta nokkru einasta máli og liggur svo sem ekkert á að gera það. Hins vegar finn ég hvernig mér gengur betur og betur að aðlagast sjónum. Ekki gengur mér þó vel að aðlagast sjóbragðinu, það er viðbjóðurinn eini. Í lok sumars ætla ég að vera orðinn til þess bær að taka þátt í sundferðum Sjósundfélagsins. Það gerist ekki öðruvísi en með hlaupum, reglulegu sundi í laugum jafnt og sjó og almennri líkamsuppbyggingu. Eins og og félögum mínum er líklega kunnugt um fer ekki mikið fyrir einangrun utan á mér, þannig að ég geri ráð fyrir að þurfa að vera í betra formi en hinn almenni sjósundgarpur enda er orkutapið fáránlegt í þessum kulda. En maður verður þeim mun hressari.


~~~~~~~~~~~~/0~~~~~~~~~~~~

22. júní 2004

Nú æsast leikar á EM. Eftir magnaðan fyrri hálfleik Dana á móti Svíum hef ég gerst bjartsýnn mjög fyrir hönd minna manna. Segjum svo að þau átta lið sem komast upp úr riðlunum séu.

A riðill
Portúgal
Grikkland

B riðill
Frakkland
England

C riðill
Danmörk
Svíþjóð

D riðill
Tékkland
Holland

Þá mætast í átta liða úrslit:
Portúgal & England
Grikkland & Frakkland
Danmörk & Holland
Svíþjóð & Tékkland

Gefum okkur að undanúrslit verði..
Portúgal & Danmörk
Frakkland & Tékkland

Úrslit
Danmörk - Tékkland?

Og vitanlega vinna Danir þann leik!!!

Ég fór í skemmtilega ferð upp að Þingvallavatni í dag. Þar rifum við Ásgrímur frændi okkur úr fötunum og stungum okkur í vatnið. Eftir (mjög) stutta stund var mér ekki til sundsins boðið lengur, enda er þetta með því kaldara sem hægt er að komast í (kannski fyrir utan jökulár). Ég hætti fljótlega að finna fyrir tánum og puttunum og fór að verða kalt á stöðum sem manni verður aldrei nokkurn tíman kalt á, say no more. Þetta var samt hressandi og vel þess virði. Næst er stefnan þó tekin í aðeins heitara vatn.

Ég hef aldrei synt í stöðuvatni áður, tvær ár hafa þó verið heiðraðar með sundtökum önnur er Tungnaá í Þistilfirði og hin er Eyvindará á Héraði. Báðar alveg fyrirtak, þó að stökkið af brúnni ofan í Eyvindaránna hafi verið engu líkt. Ætli Hvalfjarðarbotn sé ekki næstur á dagskrá. Eða hvað, einhverjar hugmyndir?

Hér með tilkynninst að ég hef fengið nýtt símanúmer þar sem óprúttnir aðilar stálu gamla símanum. Símanúmerið er 6920979. Setti náttúrulega inn skakkt númer fyrst eins og sauður. Viðkomandi eru beðnir afsökunar á því...

Þetta helvítis andleysi er að gera út af við mig. Kannski er það allur þessi fótbolti sem ég horfi á? Veit ekki. Verð að rífa mig upp á hárinu eins og baróninn... barróninn?? Verð að vera í formi þegar Þórdís kemur að hlaupa. Verð að vera duglegri að lesa og borða og vaka og sofa. Guð hins smáa er á náttborðinu. Arundhaty Roy er flinkur rithöfundur og ekkert smá sæt. Ólöf Eldjárn er flinkur þýðandi og ykkur, ástkæru lesendur, til yndisauka brýt ég kópíræt og birti upphafsorð bókarinnar:

Það er heitt og drungalegt í Ayemenem í maímánuði. Dagarnir eru langir og rakir. Áin skreppur saman og svartar krákur háma í sig skærlita mangóávexti í lífvana rykgrænum trjám. Rauðir bananar verða fullþroska. Brauðaldin springa. Gjálífar fiskiflugur suða tómlega í sykursætu loftinu. Síðan rotast þær á glærum gluggarúðum og deyja, skilningsvana fituklessur í sólskininu.
Næturnar eru heiðar en gegnsýrðar doða og þungbúnum vonum.

20. júní 2004

Tillögur að þjóðablómi kynntar

Hér þarf enga kosningu, enda vita allir að blóm þjóðarinnar er og verður aldrei annað en búnt af Fíflum.

19. júní 2004

Farenheit 9/11 Tékk it.

tssssssssssssss... þessi helvítis viska er illviðráðanleg. eh!




ih!

16. júní 2004

þegar ég horfi grátklökkur
á þá staðreynd að vegurinn er
of beinn og vefurinn of gisinn
segja slaufugatnamót og kóngulóarvefir
mér kannski ekki svo mikið

15. júní 2004

Úr því að ég gerði top 10 lista yfir Nick Cage myndir, þá er kannski ekkert að því að bæta nokkrum listum við. En eftir því sem ég velti því betur fyrir mér hver gæti verið í sérstöku uppáhaldi kemst ég betur og betur að því að mér hefur gengið sæmilega vel að sópa styttunum af stallinum. Owen Wilson er reyndar einn sem ég á mjög erfitt með að hemja aðdáun mína á, en hann er svo mikið Hollywood að ég get ómögulega fengið af mér að raða myndunum hans í einhverja gæðaröð. Frammistaða hans er samt oftast frábær og stundum ógnvekjandi. Annar er Bill Murrey og hans myndum skal ég svo sannarlega raða í gæðaröð, þó mikið af þeim sé vitanlega drasl.

Eníhjú:

1.Groundhog Day
2.Lost in Translation
3.Rushmore
4.Stripes
5.Caddyshack
6.Royal Tenenbaums
7.Ghost Busters
8.Tootsie
9.Kingpin
10.Cradle Will Rock

Ójá!


Raising Arizona er að byrja á Bíórásinni. Get ekki beðið, samt er ég búinn að sjá hana 15 sinnum. Nick Cage (eins og við strákarnir köllum hann) er frábær en ég hef þó snúist gegn honum nokkrum sinnum. Con Air ætti að vera næg ástæða ein og sér. En hérna kemur top 10 listinn yfir Nicholas Cage myndir:

1. Raising Arizona
2. Leaving Las Vegas
3. Wild at Heart
4. Adaptation
5. Vampire's Kiss
6. Face Off
7. Red Rock West
8. Matchstick Men
9. The Rock
10. Fast Times at Ridgemont High

Smá hasar þarna inn á milli, en fínar myndir engu að síður. Síðasta er með upp á sportið.

Hér eru svo nokkrar sem ég skil ekki:

Con Air
City of Angels
Gone in Sixty Seconds
Captain Corelli's Mandolin

14. júní 2004

Áfram Danmörk! Ég er stoltur af ykkur strákar.

12. júní 2004

Allir góðir menn gleðjast yfir afhroði Tony Blair og Verkamannaflokksins í ensku borga- og sveitastjórnarkosningum. Auk þess hljóta allir góðir menn að gleðjast yfir því að hægt er að hlaða niður spútniklaginu "Alltaf hlýtt á Hlemmi" með hljómsveitinni Tony Blair!

Sigfús kemur í kvöld!

Matarboð hjá Stebba & Helgu í kvöld!

Námskeið í borgaralegri óhlýðni á morgun!

Kannski ég taki Stebba með?

Nee...

9. júní 2004

10 mín í sjónum í dag í samfelldu sundi. Helvíti var ég þrekaður eftir þetta. Ætla samt að labba upp að Gróttu á eftir, sem er svo sem ekkert til að stæra sig af, en það er mikilvægt að ganga hraustlega á hverjum degi þegar maður hefur tíma til þess. Bráðum byrja ég að hlaupa.

8. júní 2004

"En það gerðist einmitt á föstudaginn og var það ánægjulegt ;). Konur í þingflokki Forza Italia hafa haft það fyrir sið síðustu ár að bjóða í morgunverð í tilefni af stuttbuxnadögum Collegia Garibaldi og Pinoteca. Þetta er góður siður að mínu mati. Við Ernesto vorum mættir snemma á föstudagsmorgun í Ráðhúsinu. Mikill hátíðarleiki var svífandi yfir vötnum og spenningur í hópnum."

Steinar Bragi sendir bestu saknaðarkveðjur. Snökt, snökt :)!!

Ástæða er til að vekja athygli á þessum stutta en greinargóða pistli sem ber nafnið Farið hefur fé betra. Í raun þarf ekki að segja meira um Rónald Regan.

Sumir eru annarar skoðunar eins og gerist og gengur og hernaðarsinninn og kommúnistahatarinn Björn Bjarnason er það eðlilega enda aðhyllist hann sömu ofbeldisafstöðu og Regan gerði og Repúblikanaforsetarnir sem á eftir honum hafa komið gera einnig. Ég á alltaf erfitt með að skilja hversvegna friðelskandi og sómakærir íslendingar kjósa þennan mann sem fulltrúa sinn á Alþingi.

En hér kemur kveðja Björns til Regans, í stað þess að gera athugasemdir læt ég mér nægja að feitletra áhugaverða hluta ræðunnar:

Ronald Reagan verður talinn meðal merkustu forseta Bandaríkjanna. Hann þorði að taka umdeildar ákvarðanir og standa við þær, hvað sem tautaði og raulaði. Hann sætti gagnrýni ekki síst frá hinum talandi stéttum, fjölmiðlungum, háskólafólki og kaffihúsaspekingum, án þess að láta það hið minnsta á sig fá. Hann var sakaður um að stofna heimsfriðnum í hættu, vegna þess að hann vildi ekki una hernaðarlegum yfirburðum Sovétmanna. Hann yfirgaf fundinn í Höfða, án þess að láta undan og hélt fast við áform sín um stjörnustríðsáætlunina. Hann hafði skýr markmið, skýrði þau á einfaldan hátt og hélt ótrauður að þeim. Honum var einstaklega lagið að ná til áheyrenda sinna og hafði næma tilfinningu fyrir æðaslögum bandarísku þjóðarinnar. Hann var glaður og reifur og gat snúið málum sér í vil á leiftrandi hátt. Hans verður minnst fyrir að halda þannig á málum gagnvart Sovétríkjunum, að þau báru ekki sitt barr eftir friðsamleg átök við hann og lögðu síðan upp laupana.

Ég tel forréttindi að hafa sinnt störfum sem fréttaskýrandi og fréttastjórnandi erlendra málefna á Morgunblaðinu í forsetatíð Reagans og hafa haft tækifæri til að fylgjast með störfum hans og stefnu frá degi til dags auk þess að taka þátt í að verja stefnu hans og Atlantshafsbandalagsins gagnvart úrtölumönnum, sósíalistum og kommúnistum hér á landi á níunda áratug tuttugustu aldarinnar.

Þegar ég les í blöðum núna eða heyri í útvarpi, að Reagan hafi verið vanmetinn forseti Bandaríkjanna, hlýtur það að koma frá þeim, sem töldu í forsetatíð hans, að einörð stefna hans og málafylgja stefndi heimsfriðnum í hættu og vildu frekar efna til friðkaupa við Kremlverja og kommúnista en veita þeim andspyrnu og töldu orð Reagans um Sovétríkin sem heimsveldi hins illa ögrun við heimsfrið.


Jæja, er þetta ekki ágætt?

Fór í sjóinn

áðan. Merkilegt hvað þetta er hressandi. Ég tók mér góðan tíma í að fara ofan í. Þegar sjórinn var kominn upp að mitti fór ég að bölva Ásgrími upphátt fyrir að hafa dregið mig með. Þegar sjórinn var kominn upp að bringu fékk ég krampa í þindina og öndunin varð spastísk og þegar ekkert var eftir nema hausinn stífnaði ég upp og beið eftir að heyra í sírenunum. En viti menn, þegar ég tók fyrstu sundtökin, því að það var annaðhvort það eða saltur sjórinn í vitin (og svo ekkert meir), leið mér strax betur og innan skamms fór mér að hitna. Og þegar ég var kominn á fljúgandi ferð leið mér eins og fuglsunga þegar hann tekur fyrstu vængtökin, get ég ímyndað mér.

Ég var líklega í þrjár mínútur í sjónum áður en ég fór upp úr (því þetta er nú einu sinni kaldara en helvíti). Baðfélaginn var, þegar þá var komið við sögu, kominn hálfa leiðina út í Kópavog þannig að ég sá mér þann kostinn vænstan að skella mér út í aftur, enda kominn í gott stuð. Í heildina hef ég líklega verið í 7-8 mínútur ofan í, eftir mánuð verð ég í hálftíma og í ágúst syndi ég til Viðeyjar. Ójá!

Ætli það sé ekki snertingin við náttúruna sem er svona mögnuð, þetta er eins og að fara í blautann sleik við móður jörð. Hún er sexí, helvítið á henni!

5. júní 2004

Fasistinn er dauður.

Og meira...

Fyrir þá sem ekki vita er þetta Þórdís nágranni minn en ekki Þórdís systir mín, þó að hún eigi auðvitan líka skilið eitt stk.

Til Þórdísar

Koma eins og hafa
aldrei gert annað
og fá kaffi og krakkarnir
banka á hurðirnar
stundum ókristilega

og koma og borða
og drekka kaffi
og leika og horfa

á hvors annars börn
með fullorðnum foreldraaugum
kannski bernskum
þó að innan þinna
hvíli fornar hugsanir
sem auðvelt er að
hræðast og dáðst að
í senn

og hlusta á Ninu og Miles
og tala um og við krakka
og passa að ekkert hellist niður
og fá í magan þegar þau fara heljarstökk á milli sófa
og fatta ekki

fyrr en ég er farinn að hlæja
þegar þú segir hvað það
sé frábært að vera komin
með mömmóleikfélaga
að þú varst að tala um börnin
en ekki okkur.

4. júní 2004

Fyrir ljóðþyrsta

Páskadagur

Morgunn drifhvítur í
andliti og blóðroðinn
dyrakarmurinn varð
vitni að atlögu
tveggja útlaga að
nýju geðheilbrigði
undu úr sameiginlegri
sálarheill fordæmdra

og um kvöldið átu þau
hrátt lambið
sitt í hvoru lagi
eins og sakleysið
hefði aldrei vitað
almennilega af sér

falið vandlega undir
skæðum fölvanum
blóðlausum morgninum
andvana í besta falli
rök tuskan safnar
ryki á ný

2. júní 2004

Sundlaug Vesturbæjar

Ég fór í sund með strákana í dag og fékk lykil að einum klefa. Ég hélt að þetta væri misskilningur og bað um skáp fyrir þá. "Nei, þú borgar bara fyrir einn og færð bara einn lykil"! Gall í konunni bak við glerið. Eftir að ég kom niður í klefana sem telja ekki færri en 250, birtust fljótlega þrír karlar. Í galtómri hvelfingunni þurftum við svo vitanlega að troða okkur í fjóra klefa sem voru allir hlið við hlið, karlarnir þrír og ég með tvo stráka. Óþarfi er að taka fram að karlanir í lauginni hafa ekki verið fleiri en 30.

Laugin var köld og pottarnir troðfullir eins og niðursuðudósir og vel mengaðir af bakteríum og sýklagróðri. Ég skil ekki hvað fólk sér við þessari sundlaug. Hún sökkar!

Pizza Hut

Eftir sundið fórum við ásamt frænda og dætrum hans á gamla Sprengisand, núverandi Pizza Hut. Þar var tíu manna biðröð eftir sætum. Þegar ég svo fór með Ragnar Stein á klósettið uppi taldi ég 25 laus sæti á ca. átta borðum. Þegar ég spurði eina af stelpunum sem þöndu sig fram og aftur um salinn hvernig stæði á þessu svaraði hún því til að sumir væru enn þá að panta, svo var hún rokin með roða í kinnum og svitablautt enni og ég stóð eftir með stór spurningamerki í heilabúinu. Á mörgum af þessum borðum var ekki búið að hreinsa til eftir síðustu gesti. Það skal tekið fram að við þurftum ekki að bíða í nema 25 mín eftir matnum eftir að við vorum sest sem er ok á álagstíma og að hann smakkaðist prýðilega. það er samt ljóst að ef að eigendur og rekstraraðilar ætla að hætta að spara krónurnar og tapa þúsundköllunum þurfa þeir ekki að gera annað en að ráða sæmilega rútineraðana veitingamann og hann gæti bætt við 15-25 borðum á kvöldi eins og þessu í veltuna. Það er nefnilega bara rugl að keyra þetta bara á stelpum sem að eru ekki komnar úr menntaskóla.

Það munaði litlu að við létum okkur hverfa þegar röðin blasti við.