Og meira fyrir mína auðmjúku og þögulu lesendur:
...um leið og táknmyndin verður fljótandi og þar með skilgreiningin á táknmiðinu opnast möguleikar á handahófkenndri útilokun sem gefur valdinu ósýnileika. Þetta er ekki síst það sem póststrúktúralistar gagnrýna: ósýnileika valdsins og benda með látlausri umfjöllun sinni um feluleik valdsins í hinu óskilgreinanlega (endalausum möguleikum hins fljótandi tákns) á fjarveru tvíhyggjunar (rétt/rangt) sem skilgreinir hið útilokandi út frá því sem er útilokað.
Athugasemdir?
26. apríl 2005
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:07
7
athugasemdir
25. apríl 2005
Skapar menningarlegt skiptagildi auglýsinga verðmæti vörunnar? Er hugmyndin um valdatengsl óumflýjanleg í þessu samhengi eða beinlínis nauðsynleg? Hver eru þá völd framleiðenda og jafnvel þeirra sem skapa auglýsingar?
Þessi færsla er í raun aðeins spurningin hér að ofan. Lesendum er ætlað að leggja út af textunum tveimur sem hér fygja í leit sinni að svarinu, nú eða nýjum spurningum. Öll viðbrögð eru vel þegin hér að neðan. Textarnir eru að öðru leyti komnir frá doktor Edward H. Huijbens kennara við Háskóla Íslands, svo það komi örugglega fram!
Þjónustustörf ráða og nýsköpun á þjónustumarkaði byggir ekki á notagildi vöru sem slíkrar heldur menningarlegu skiptagildi, þannig verður reynslan af vörunni stór partur af markaðsetningu hennar.
"Þegar Barthes sest niður og skrifar sínu stuttu goðsagnir er hann að reyna að skýra að í hversdagsleikanum felast tákn sem má lesa á ýmsa lund. Þannig hafa hversdaglegir hlutir tjáningagildi sem í dag er nýtt sérstaklega til aðgreiningar, eða í uppfærslur á hreinum og klárum leikþætti. Þeir sem nota og búa til rýmið togast á um tjáningargildi táknmynda í kappinu við að skilgreina rýmið. Ekkert býr utan við merkingarlegt samhengi, þannig er hægt að rýna í allt sem sést og skoða það með tilliti til þeirra fjölda merkinga sem úr því geta spunnist. Hinsvegar er sú merking sem hlotið hefur gildi sem almenn, sjálfsögð eða auðskilin oft sú sem hefur að geyma valdatengsl sem eru ráðandi á hverjum tíma.
Merking getur þannig verið bein vísun, þ.e. til einhvers sem er. Merking getur haft hlutverk, t.d. samtengingin ‘og’ eða merking getur verið óbein vísun, þ.e. til einhvers sem ekki er áþreifanlegt eða prófanlegt t.d. ‘guð’.
Merking er líka handahófskennd, það er ekkert sérstakt sem segir að ‘hundur’ vísi til hins geltandi dýrs með fjóra fætur. Þannig byggir merking á hefð og samþykki og eru notuð markvisst með ákveðinni fyrirætlan um boðskipti. Samþykkt merking hefur þó ákveðin skriðþunga sem ekki er auðvelt að breyta en hinsvegar ber að hafa í huga að innan hvers merkimiða leynast fjöldi annara slíkra. Þannig getur merkingin átt sjálfstæða tilvist sem aðeins hlýtur skilgreiningu sína af því samhengi sem það er í.
Samkvæmt þessari skilgreiningu á tákninu hlýtur það aðeins merkingu sína í sambandi við aðra merkingu, þ.e. er alltaf skilgreind á neikvæðan hátt:
Hundur er hundur af því hann er ekki köttur!
Hér verður hundurinn til óháð dýrinu sem slíku og matar flokkunarkerfi og skilgreiningar án þess að hið fjórfætta kvikindi komi nokkuð þar nærri. Hér að verki ákveðin rökhyggja og tvíhyggja.
Hinsvegar er þessi rökhyggja langt í frá að vera svo rökviss.
Póststrúktúralistarnir benda á að samhengi hinna tveggja þátta táknsins hafi alls ekki samsvörun sem einn á móti einum. Þ.e. eitt orð á ekki við einn hlut og sú skilgreining geti þar með ekki staðist að táknið hljóti skilgreiningu sína af því að vera ekki eitthvað annað, t.d. von.
Derrida talar um að táknin dragast alltaf til og þau renni alltaf eilítið til í merkingu sinni er þau fara manna í millum. Þannig verður sá munur sem milli táknmynda er ekki fastur og þar með nothæfur til skilgreininga, heldur laus í sér. Það eina sem þarf að gera er að hrista táknmyndina aðeins til, ýta aðeins við henni þá sést hvernig hún er í raun fjölföld í sjálfu sér.
Þannig verður það sem áður var útilokað með neikvæðri skilgreiningu, hluti af kerfinu og búið að opna fyrir pólitík útilokunar."
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:08
0
athugasemdir
20. apríl 2005
Ég get ekki lokið þessu svona, hefndarþorstinn er hluti af mér.
Líkt og gasella í hendi veiðimanns, líkt og fugl í svöru fangarans, frelsaðu þig!
Í stanslausri, innihaldslausri angurværð lífsins sem á að vera skjalfest samkvæmt því sem þegar hefur komið fram, fremjum við mishetjulegar dáðir. Sumt af misskilinni væntumþykju, annað af misskilinni skyldurækni. Til þeirra aðila sem hafa orðið fyrir barðinu á áðurnefndu biðla ég, að hugsunin hefji sig upp yfir uppruna og aðstæður.
Þú sem veist ekki hvað ég er að segja getur spurt:
Hvað vil ég biðja um?
Ég legg til:
Góði guð, gefðu að næst hitt ég betri mann.
Kannski þarf ég þessa þögn
kannski þarf ég þennan löðrung
kannski þarf ég þennan hvell
kannski þarf ég að upplifa þennan hjartslátt
kannski þarf ég þennan sannleika
kannski þarf ég að upplifa lygina
kannski þarf ég þetta öskur
kannski þarf ég þennan grátur
kannski þarf ég þessa niðurlægingu
kannski þarf ég þessa örvæntingu
kannski þarf ég þennan söng
kannski þarf ég þetta blóð
kannski þarf ég þennan þræl
kannski þarf ég þennan hlátur
kannski þarf ég þennan hníf
kannski þarf ég þessa þögn
kannski þarf ég þennan dauða.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:54
0
athugasemdir
19. apríl 2005
"Þó ég sé ekkert nema skrímsli, hef ég samt ekki líka rétt á að lifa?"Kóreska verðlaunakvikmyndin Oldboy hlýtur að vera með þeim bestu sem ég hef séð. Framvindan og frásögnin er ljóðræn, gegnsýrð áleitnum siðferðislegum og frumspekilegum spurningum og textaleg tengsl við önnur listaverk eru morandi um verkið, svo sem Greifan af Monte Cristo, vitanlega Gísla sögu Súrssonar, Don Kíkóta, Ódiseifskviðu og ekki síst grísku harmleikina og Shakespeare sjálfann. Fallbysskjaftur Kanónunnar gýn við okkur í texta verksins án þess þó að hún skyggi nokkuð á þetta heilsteypta og vel ígrundaða listaverk.
Þannig verða klukkutímarnir tveir að makalausri veislu á meðan margar ólíkar hugsanir herja á heilabúið. Leikurinn í myndinni er sér á báti, hér gefst gott tækifæri á að upplifa á einhvern merkilegan hátt fjarlægan menningarheim í gegnum tilfinningar og viðbrögð söguhetjunnar/skrímslisins/fórnarlambsins/föðurins-/elskuhugans/böðulsins Dae-su Oh, eða öllu heldur frábæran leik Min-sik Choi.
Í anda QT hefðarinnar er allt morandi í kúli. Dae-su Oh skipar sér á bekk með Dirty Harry, leigubílsstjóranum Travis Bickle, Tony Montana og Vincent Vega. Munurinn liggur einfaldlega í því að Dae-su Oh er mun flóknari, mannlegri og dularfyllri hetja en áðurnefndir. Guð minn góður hvað hann er flottur! Flottar stílíseringar og frábær myndataka lyfta svo karakterunum (og leikurunum) á himinhátt plan, svo ekki sé talað um frábærann texta sem leikararnir vinna með. Stuttur, ljóðrænn, hnitmiðaður og margbrotinn.
Hér er margt ósagt, líklega flest, enda verða menn að sjá fyrirbærið og upplifa það til að skilja hvað er á ferðinni.
Góðar stundir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:39
0
athugasemdir
14. apríl 2005
Jung Test Results
Extroverted (E) 58.33% Introverted (I) 41.67%
Intuitive (N) 58.33% Sensing (S) 41.67%
Feeling (F) 56.41% Thinking (T) 43.59%
Perceiving (P) 59.09% Judging (J) 40.91%
| ENFP - "Journalist". Uncanny sense of the motivations of others. Life is an exciting drama. 8.1% of total population. |
Free Jung Personality Test (similar to Myers-Briggs)
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:35
0
athugasemdir
12. apríl 2005
Og annað í krafti hefðarinnar og sjálfsögðu vanans, ort til Vals eins og áður. Hér gæti um minniháttar bragvillu verið að ræða en eins og í veröldinni hlýtur tilgangurinn ætíð að helga meðalið:
Valur Brynjar brýtur odd
bærilega heill á sinni
af oflætinu brýnir brodd
inn á sálarkytru minni
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:33
0
athugasemdir
11. apríl 2005
Á leiðinni í afmælisveislu til Vals Antonssonar páraði ég drápu niður blað:
Í mannhafi og mergð þú flýtur
mælandi slitróttum orðum
skersbrúnin báruna brýtur
ber eins og keisarinn forðum
En sjávarins síkviki kraftur
syngur í sál vor og sinni
því aldan kemur jú aftur
og aftur í eilífðinni
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:25
1 athugasemdir
9. apríl 2005
You Got A Killer CD There, Man...
Aðdáun mín á hinum rauðhærða og fagurlimaða Josh Homme, forsprakka Queens of the Stone Age og fyrrum gítarleikara Screaming Trees er að jafnaði mikil en ótakmörkuð þessa dagana. Platan Lullabies to Paralyze er með því besta sem ég hef lengi heyrt.
Nú er ég vitanlega enginn tónlistargagnrýnandi, frekar en megnið af þeim sem gefa sig út fyrir slíkt. Hinsvegar er yfirbragð gripsins svo heilsteypt, magnþrungið, einlægt, dapurt og drungalegt að ómögulegt er að hrífast ekki af einhverju miklu meira en frábærum lagasmíðum, útsetningum og flutningi. Flestum ber saman um að hápunktur plötunnar sé hið langa og margslungna rauðhettulag Someone´s in the Wolf; "So glad you could stay, Forever". Frábært listaverk sem vekur hugrenningar og tilfinningar sem berast langt út fyrir hljóðstöð heilans. Þær ætla ég ekki að tíunda hér, á það enda sjálfur fyrir mig. Fjölmörg ósögð orð og ósýnilegar myndir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:56
2
athugasemdir
5. apríl 2005
Bankakaffi
Undanfarin ár hef ég þolað ómældar þjáningar vegna trassaskaps í skilum skattaframtals. Nú hef ég losað mig við þessar þrautir, ég skilaði á réttum tíma. Stórkostleg tilfinning! En framtakssemin ríður ekki við einteyming, því síðustu dagar hafa verið sérstaklega afkastamiklir. Ég á skilið að fá mér þrefaldan bankakaffi. Lærði það nefnilega, þegar ég vann á Kaffi List, af vinkonu minni að þegar maður sinnir sálarlega erfiðum samskiptum við opinberar stofnanir, nú eða banka, á maður að verðlauna sig með drykk sem samanstendur af einföldum expresso og einföldum Baileys,borið fram í 6 cl. skotglasi. Ójá, svo er vitanlega hægt að verðlauna sig á annan hátt en það er annað mál... Spurning hvort maður búi til Skattframtalsdrykk?
Ok,
6 cl. Campari
3 cl. Appelsínusafi
2-3 Limesneiðar
Hrist saman í miklum klaka.
Sprite/seven up ofan á (1-2 cl.)
Ef drykkurinn er hrærður eyðileggst skuggaeffektinn sem kemur með sprætinu.
Sem sagt Skattframtalssólarupprisa vessgú!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:27
0
athugasemdir
4. apríl 2005
Eftir slagsmál við vírusa og trjójuhesta og hvað þetta heitir. Hef ég komið stöðunni niður í þetta:
Óknyttin:
WORM_CHOD.B
WORM_MYTOB.T
TROJ_ASH.D
WORM_MYTOB.V
WORM_MYDOOM.AI
TROJ_ANICMOO.C
WORM_MYDOOM.AE
WORM_KRYNOS.B
WORM_MYTOB.S
WORM_KELVIR.G
Hér er allt enn þá morandi óvelkomnum og óæskilegum gestum. Á næstu dögum læt ég senda eftir Eliot Ness og þá verður stríð!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:13
1 athugasemdir