16. desember 2005

now doesn't that make you feel better?
the pigs have won tonight
now they can all sleep soundly
and everything is all right


Það þarf ekki að koma neinum á óvart þó að status nyhilismus slökkvi á tjáningarþörfinni, eða tjáningargáfunni... ekki er það skapandi ástand í öllu falli.

Ennþá er ég ekki farinn að skilja hvað ég er að rúnkast á þessu bloggi. Bloggið er dautt, fyrir mér alla vega. Tilgerðin og væmin sjálfsskoðunin fyllir mig ógeði.

Reyndar fyllir allt það sem ég skrifa mig óþoli, verð að gera eitthvað í þessu...

Ég er reyndar að hugsa um að taka afgerandi afstöðu gegn ljóðinu og reyndar öllu skrifuðu máli. Orð verða sífellt merkingarlausari: "Ég segi alltaf færri og færri orð". Tilhneyging síðnútímans til að klámgera allt sem hann snertir (og þá meina ég ekki dónaorð ef framúrhófi siðprúði lesendur skyldu slysast hingað inn) hefur hrifsað alla fagurfræði úr tungumálinu. Orðræða stjórnmálamanna, fjölmiðlamanna, bísnessmanna, opinberra starfsmanna, háskólamanna og já, skálda er úrsérgengin, ofnotuð, innihaldslaus, ófrumleg, niðurdrepandi...

En, já. Ég er hættur öllum tilraunum til að tjá mig í rituðu máli.