20. nóvember 2004

Páll Hilmarsson vísar á þessa síðu: http://cryptome.org/. Til að varpa ljósi á ástandið í Írak og sérstaklega Fallujah er hún nytsamleg.

Hér má t.d. sjá myndir af átökunum og afleiðingum þeirra: http://cryptome.org/fallujah-kill.htm

10. nóvember 2004

Í dag gerði ég allt sem ég ætlaði að gera í gær en gerði ekki. Geðheilsunni hefur verið bjargað í bili. Nú þarf ég bara að taka skurk í heimilisverkum og þá er ég í góðum málum.

Steinar Bragi lét ljós sitt skína í Víðsjá í dag. Draumar hans eru þrungnir Júngískri spennu, sem ég skil vel.

Steinunn Valdís verður borgarstjóri. Það skil ég ekki.

Og enn er ég veikur, háls og eyru komast þó til háls, nef og eyrnalæknis á morgun þannig að ég ætti að fá bót meina minna. Vonandi verða kirtlarnir rifnir úr mér, það er eitthvað spennandi við tilhugsunina. Breytist röddin, víkkar öndunarvegurinn? Þessum spurningum er öllum ósvarað. Ég bíð spenntur og kvíðinn í senn, enda eru skurðaðgerðir það sem ég óttast mest í lífinu. Rofið hold.

9. nóvember 2004

Náði í Nokkur lög með DREP og svo Bonnie Prince Billy. Drep er ofurkúl. Þetta er það eina sem ég hef gert af viti í dag.

Svo horfði ég á uppvaskið
og óhreina þvottinn
las Fréttablaðið
keypti kók
verkjaði í hálskirtlana
og aðeins í eyrun
las bloggsíður
horfði á popptíví í 8&1/2 mínútu
las 1 stk Andrésar Andar syrpu
borðaði tvær samlokur
og horfði á klukkuna renna sitt skeið.

5. nóvember 2004

Ég

ever had a song written about you? Neibbs

what song makes you cry? Dead Already, Any Other Name... ég er svo mikill sökker.

what song makes you happy? svona áttaþúsund stk.

height - 174
hair color – raut
eye color - dauðagrá
piercings - neibbs
tattoos - neibbs
what are you wearing? –hvítur bolur, gallabuxur, hlaupaskór, gleraugu og massaflotta stormúrið mitt.
what song are you listening to? – Tony Blair
taste is in your mouth? - bittersweet
whats the weather like? – myglað
how are you? – sæmilega svalur, með nettan magasviða.
get motion sickness? – já
have a bad habit? – jámms
get along with your parents? – já
like to drive? – nei
boyfriend – nei
girlfriend – nei
children? – tvö stk.
had a hard time getting over somone? – já
been hurt? – já
your greatest regret? – að standa í því að sjá eftir hlutunum.
your cd player has in it right now? – Zeppelin
if you were a crayon what color would you be? - dauðagrár
what makes you happy? – tónlist, sumt fólk, bjór
whats the next cd you're gonna get? - Tony Blair

seven things in your room? - Spidermanrúmföt, brotinn lampi, fótbolti, risaeðla, skítug föt, klifurskór og bækur.

seven things to do before you die... - skrifa, kyssa, gráta, hlæja, drekka, horfa, hlusta

top seven things you say the most... - ha!, nei, RagnarSteinn, ÞorsteinnElvar, ekkinúna!, góðanótt, ástinmín/elskanmín/hjartaðmitt.

do you...

smoke? - já
do drugs? - varla
pray? - nei
have a job? – já
attend church? – nei

have you ever...
been in love? - já
had a medical emergency? - já
had surgery? - já
swam in the dark? - já
been to a bonfire? - já
got drunk? - já
ran away from home? - nei
played strip poker? - já
gotten beat up? - já
beaten someone up?- já
been onstage? - já
pulled an all nighter? - já
been on radio or tv? - já
been in a mosh pit? - já

do you have any gay or lesbian friends? - já

describe your...

first kiss – þeir voru svo margir
wallet - nei
coffee - í vinnunni
shoes – hlaupa...
cologne – neibbs

in the last 24 hours you have...

cried - nei
bought anything - nei
gotten sick - nei
sang - já
been kissed - nei
felt stupid - nei
talked to an ex - já
talked to someone you have a crush on - nei
missed someone - nei
hugged someone – nei

3. nóvember 2004

Ég er þreyttur, enda hékk ég yfir kosningasjónvarpi til að verða 04.00. Ekkert hafði gerst utan þess að Pennsylvania féll Kerry-megin. Ekkert sem skipti máli þannig séð. Á þessum svefnrænda tíma jók ég þó mína fátæklegu innsýn í bandaríska pólitík lítillega, og rifjaði upp kynni mín af Dan Rather frá því fyrir fjórum árum, sem er bráðskemmtilegur, fyndinn og afslappaður í veraldarmiðjunni þessa fáu klukkutíma.

Fyrst var ég svartsýnn, svo pínulítið bjartsýnn, svo svartsýnn aftur, svo örlaði á bjartsýni eftir það. Þegar ég fór að sofa hafði ég sterklega á tilfinningunni að ekkert myndi breytast. Það var svo vitanlega rétt.

Í ljósi síðustu tveggja kosninga held ég að Demókratar verði að herða sig í litlu fylkjunum. Þangað sótti Bush fylgi sitt að langmestu leyti á meðan Demókratar horfa í kjörmannamagn kalíforníu og New York og annarra stórra ríkja. En líklega er auðveldara að vinna yfir til sín Ohio eða Pensilvaníu en þrjú eða fjögur afdalafylki. En hvað í ósköpunum veit ég?

Ég geri mikið, en samt ekki neitt. Samt leiðist mér ekki, líklega af því að ég geri mikið, en samt ekki neitt.