Já það eru
góðar fréttir að það sé hægt að pressa ösku ástvina sinna og búa til úr þeim eðalsteina.
30. ágúst 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:30
0
athugasemdir
29. ágúst 2002
Mikið partí
hjá gömlum MAingum á Dubliners, enda er Dóri Gítar að spila þar í kvöld sem búið hefur í Barselóna nánast síðan hann kláraði menntó. Ekki er mér boðið, enda kláraði ég Verkmenntaskólann.
Já ég er bitur...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:57
0
athugasemdir
28. ágúst 2002
Það er alltaf fjör í tölvuveri Háskólabókasafnsins.
Við hliðina á mér sat útlendingur sem grúskaði í bókum og sló einhverju inn í tölvu. Nema hvað þegar ég var í miðju kafi að hugsa upp einhverja ódauðlega snilldina, glymur í gsm síma útlendingsins og til að kóróna allt saman þá svarar hann hátt og skýrt, Sahlam aleikum! inn í tölvuverinu þannig að auk þess að missa þráðinn í snilldinni varð ég dauðhræddur við útlendinginn sem reyndist vera hryðjuverkamaður örugglega í þann mund að dæla lífhættulegu gasi inn á þriðju hæð Háskólabókasafnsins. Ég meina hvað getur grúskandi múslimi á íslandi verið annað en hryðjuverkamaður, að skiptast á tölvupósti við yfirmenn sína í Saudi Arabíu í ofanálagt.
Í um það bil eina og hálfa sekúndu þutu þessar hugsanir í gegnum hausinn á mér, þangað til ég fór að velta því fyrir mér hvað væri eiginlega að gerast.
Skamm Þór, skamm.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:40
0
athugasemdir
27. ágúst 2002
Komment dagsins gjöriði svo vel...
Ég hef enga skoðun á leikhúsi. Ég þekki þar ekkert til. Ég fer aldrei í leikhús.
Samuel Beckett
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:59
0
athugasemdir
Að sjálfsögðu
tekur Óli Njáll ummælin nærri sér, enda var leikurinn til þess gerður.
Ég hugsa að mín síða sé samt sem áður ein af skemmtilegri lesningum veraldarvefsins. Og hví ekki. Þetta lesa alla vega 30 til 40 manns á dag. Jamm, ég er óuppgötvaður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:31
0
athugasemdir
Jamm, tengsli.
Annars var mikið gaman hjá okkur í gær. Mark og Chris fóru á kostum. Ég vaknaði kl 11:00, en sofnaði ekki fyrr en Helga dró mig af baðgólfinu, jamm, skamm. Ekki orð um það meir!
Annars vil ég bara minnast á síðuna hans Óla Njáls, þvílík leiðindi! Hvað gerði maðurinn í sumarfríinu? Ég bara spyr?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:56
0
athugasemdir
26. ágúst 2002
Við hliðina á mér
eru tveir þjóðverjar að skoða saman einhvern texta í tölvuverinu. Öðru hverju rekur konan upp tryllingshlátur eða taugaþandar stunur. Karlinn segir lítið en kemur með stuttar athugasemdir inn á milli. Öðru hvoru missa þau tökin og demba sér í hörkusleik, rétt til að minna sig á hvort annað og fara í taugarnar á mér.
Hvernig á ég að geta tjáð mig um tilvistalegar pælingar í Sléttuúlifnum með svona rugl við hliðina á mér, hjálp!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:56
0
athugasemdir
Þá er maður
mættur á bókhlöðuna (betra seint en aldrei) eftir að hafa mótmælt í fámennum en góðmennum hópi, framkvæmdum við Kárahnúka. Hér kem ég til með að vinna eins og berserkur til klukkan 16:00 en þá hefst undirbúningur fyrir mikið matarboð hvar kanarnir og úrvalsmennirnir Mark og Chris verða meðal gesta. Munu þeir snæða sjófrysta ýsu í boði HFÞ sem hefur bloggað meira af forsjá en kappi síðustu daga (ha ha).
Þó svo að ég vinni eins og berserkur er nokkuð líklegt að ég taki mér kaffipásu um þrjú leytið og reyki svo eins og eina sígarettu um 15:03. Hvað segirðu um það Palli, ha?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:17
0
athugasemdir
Þó
er Kristbjörn ekki mest væld maður sem ég hef kynnst.
Eða hvað?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:44
0
athugasemdir
Ja, hugmynd er alltaf hugmynd.
Þessi er nógu væld til að tengja yfir á hana.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:43
0
athugasemdir
25. ágúst 2002
Svo er rétt
að geta þess að Huginn er vaknaður úr bloggdvala.
Það er Sigfús hins vegar ekki þó svo að hann hafi rumskað nokkrum sinnum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:23
0
athugasemdir
Þó svo að
föstudagskvöldið hafi verið rólegt þýðir það ekki að laugardagskvöldið hafi verið rólegt líka. Ó nei, Sigfús Ólafsson hélt heilmikla innflutningsveslu og bauð milljón manns. Þangað fór ég með tvo bandaríkjamenn, þá Chris og Mark og voru þeir í góðu stuði. Mikið gaman og mikið djamm. Líkt og undanfarið eyddi ég ekki krónu á barnum og er það náttúrulega hið besta mál á þessum snauðu tímum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:22
0
athugasemdir
24. ágúst 2002
Nú skal haldið
á bókhlöðuna og lesið mér til heilsubótar. Svo skal haldið á Grand hótel og kannaður salur nokkur kenndur við ráðstefnur, jamm jamm. Þar verður minnsta kosti einn ráðherra. Á ráðstefnunni þ.e.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:14
0
athugasemdir
Jæja,
Ásgeir er víst ekki eini penni pressunnar, rétt skal vera rétt. En breytir svo sem ekki neinu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:11
0
athugasemdir
23. ágúst 2002
Minn ástkæri Ásgeir Friðgeirsson
hefur ákveðið að halda áfram sem ritstjóri(og eini penni) Pressunnar. Þessi skemmtilegu skilaboð komu af því tilefni.
Lesendur Pressunnar eru einu marktæku dómararnir um það hvort þessi ákvörðun mín hafi áhrif á efnisval og efnismeðferð Pressunnar þar sem ég mun áfram sinna ritstjórn vefjarins.
Jamm, núna geta menn ákveðið hvort þeir telja Pressuna sinna hlutverki sínu sem alvöru fjölmiðill (burt séð frá því hvort hún hafi einhverntíman gert það), ekki síst í ljósi fréttarinnar sem birtist í dag, stuttu eftir að Ásgeir ákvað að sitja áfram. En þar segir einmitt frá því hversu rosalega margir sækjast aftir sæti á listum samfó. Og hver er þar ofarlega á blaði annar en Ásgeir Friðgeirsson, ritstjóri.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:11
0
athugasemdir
22. ágúst 2002
Tra la la
Nú er gaman! Ásgeir Friðgeirsson ætlar í prófkjör.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:19
0
athugasemdir
Ég held að Tryggvi Már
ætti að lesa soldin Nietschze og pistilinn hans Eiríks. Sléttuúlfur myndi jafnvel hjálpa. Lífið er leiðinlegt og fúlt, ekki skemmtilegt og "ég hlakka til að fást við það" (urr).
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:47
0
athugasemdir
Það er leiðinlegt á bókhlöðunni. Steppenwolf er leiðinleg bók. Úti er leiðinlegt veður. Ég er leiðinlegur.
Mér leiðist.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:43
0
athugasemdir
Það er mjög óvenjulegt að fá ekki að vita nafn helstu söguhetjunnar í skáldsögu. Hversvegna tókstu þá ákvörðun að hafa sögumanninn nafnlausan? Eru einhver bókmenntaleg fordæmi fyrir þessu?
Þessi makalausa spurning er í viðtali sem Random House tók við Rupert Thomson, höfund bókarinnar Opinberunarbókin (sem ég er að hugsa um að lesa bráðlega).
Þeir í Random House vita bersýnilega ekki mikið um bókmenntir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:38
0
athugasemdir
Þó að einhverjir
eigi kannski erfitt með að trúa því þá er búið að auglýsa aðalfund reykjavíkurfélags VG
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:33
0
athugasemdir
Hér er að finna
einhverja allra skemmtilegustu lesningu sem finna má á íslenskum netsíðum þessa dagana. Eiríkur Guðmundsson er eina von mín um opinbera bókmenntaumræðu á þessu andlausa skeri.
Þetta er okkar maður Birna.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:31
0
athugasemdir
Minority Report
er svo sem ekki gallalaus, til dæmis skil ég ekki enn hvað lottókúlurnar voru að gera þarna. Eða af hverju maðurinn þurfti að afskræma sig til að komast inn í musterið. En það var fullt af snilld. Kondöktorískar hreifingar fyrir framan tölvuskjáinn við undirleik Beetovens (eða eitthvað?) er náttúrulega hrein snilld. Svo er eitthvað í þessari mynd sem mér fannst ég ekki hafa séð áður. Eitthvað óhreint og eitthvað vonleysi sem hefði átt skilið önhappí endi, þar sem hetjan getur ekki sigrast á kerfinu, sem eflir hrollvekjandi tilhugsun áhorfandans í garð þess sem gagnrýnt er (hvaða andskotans mynd endar svona).
En í staðin er happí endir á þessu (eyðilagði ég eitthvað?) sem er svo sem allt í lagi þar sem myndin er kominn í þrusu Taggart hasar og þá kemur bara svona hefðbundinn "aha! ég fann morðingjann" endir. Það er líka allt í lagi. Enda er Taggart Ókei.
Myndin er líka Ókey. Hún er flott og töff. Fullt af sniðugum hugmyndum, en Spílberg dettur að sjálfsögðu í langdregin vemmilegheit sem er að verða treidmark og fyrir vikið dettur myndin niður.
Tja... 6.9 af 10
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:25
0
athugasemdir
Jú,
Tryggvi er farinn að blogga á ný og það er vel. Þar ætti nú að vera bókmenntablogg en ekki hef ég orðið var við það. Tryggvi, hvar er neistinn?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:25
0
athugasemdir
21. ágúst 2002
20. ágúst 2002
Og í tilefni
fyrri ummæla minna um Brecht læt ég þessa tilvitnun dagsins flakka.
Haustið 1947 var Brecht kallaður fyrir Óamerísku nefndina svokölluðu, ásamt átján mönnum öðrum sem unnið höfðu fyrir kvikmyndaiðnaðinn í Hollywood. Brecht var eini útlendingurinn í hópnum. Honum var mjög í mun að verða ekki kyrrsettur í landinu og ákvað því að svara öllum spurningum, öfugt við Bandaríkjamennina sem kusu að nýta sér stjórnarskrárbundinn rétt sinn til að neita að svara sumum spurningum, svosem hvort þeir væru flokksbundnir kommúnistar. Þessu réttarhaldi yfir Brecht hefur verið lýst svo, að það hafi verið því líkast sem apar væru að yfirheyra dýrafræðing. Brecht var fenginn túlkur sem talaði ensku jafnvel enn verr en hann sjálfur. Aðspurður sagðist Brecht aldrei hafa verið í kommúnistaflokki, sem var sannleikanum samkvæmt. Hann var búinn að æfa með vini sínum yfirheyrsluna einsog hann gat sér til að hún yrði, og sumar spurningarnar komu því einsog beint úr leikriti eftir hann sjálfan. Þannig las saksóknarinn upp feiknarlega vonda þýðingu á pólitísku kvæði eftir Brecht og spurði hann síðan: "Did you write that, Mr. Brecht?" – "No. I wrote a German poem, but that is very different from this." – Brecht var sleppt og fékk meiraðsegja hrós fyrir góða hegðun og samstarfsvilja. Hann dró þá ályktun af öllu saman að fasismi ætti langt í land í Bandaríkjunum. "Þeir voru miklu skárri en nasistarnir. Nasistar hefðu aldrei leyft mér að reykja." – Hann beið þó ekki boðanna heldur flaug strax daginn eftir til Evrópu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:33
0
athugasemdir
Af hverju
er tíu ára strákur látinn afgreiða mig í mötuneyti bókhlöðunnar. Fyrir utan þá staðreynd að það er vinnulöggjöf í landinu, þá þurfti ég að minna hann að gefa mér til baka og láta mig fá kökuna sem ég pantaði. Auk þess þurfti ég að segja honum hvað ég ætti að fá mikið til baka og tína peningana upp úr gólfinu eftir að blessað barnið missti þá alla niður.
Ekki gleymdi hann samt að tilkynna mér að það væri ein ábót á kaffið.
Og nú held ég áfram að lesa Ævi Galileos eftir Brecht. Það er skemmtilegt leikrit, mun skemmtilegra en Marat/Sade eftir Weiss.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:32
0
athugasemdir
19. ágúst 2002
Ein og gefur
að skilja verður ekki bloggað næstu tvo sólahringana.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:13
0
athugasemdir
Hvernig les maður
sex bækur á tvemur sólahringum? Ég er um það bil að komast að því...
Vonandi án þess að tapa geðheilsunni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:12
0
athugasemdir
18. ágúst 2002
16. ágúst 2002
Farinn til Akureyrar.
Veit ekki hvort hægt sé að blogga þar, það kemur í ljós...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:28
0
athugasemdir
15. ágúst 2002
The Master of Blogg
er búinn að setja sérstakan tengil hingað af heimasíðunni sinni. Mikill heiður. Versalir bloggsins.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:15
0
athugasemdir
Og hér er svo topp tíu listinn minn yfir John Cusack myndir:
1. Grosse Pointe Blank
2. High Fidelity
3. Thin Red Line
4. The Grifters
5. Bullets Over Broadway
6. Say anything...
7. Cradle Will Rock
8. Better Off Dead
9. One Crazy Summer
10. Midnight in the Garden of Good and Evil
Ath. hér er tekið tillit til hlutverka hr. Cusacks en ekki myndanna sem slíkra. Being John Malovich var ekki gjaldgeng þar sem ég hef andstyggð á John Malkovich.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:43
0
athugasemdir
Ármann eipar
á blogginu í dag. Það inniheldur m.a. tvö minningarbrot og tvo topp tíu lista (sem eru greinilega komnir í tísku. Áður voru topp fimm listar í tísku en það var hjá dr. Gunna og eflaust stolið úr hinni stórgóðu mynd High Fidelity).
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:26
0
athugasemdir
Af hverju
sé ég ekki lengur klukkan hvað færslrnar fóru inn! Aldrei getur maður lært að fikta ekki í helvítis kóðanum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:31
0
athugasemdir
14. ágúst 2002
Ásgeir nokkur Ingólfsson
hefur átt nokkra góða spretti og nokkra lélega Nietzschebrandara á síðunni sinni. Ásgeir er bókmenntafræðinemi og Akureyringur og því fór ég að velta vöngum yfir því hver þessi maður væri. (Það eru nefnilega ekki margir bókmenntafræðinemar frá Akureyri, eins og gefur að skilja).
Eftir þónokkrar vangaveltur kviknaði ljós. Ásgeir vinnu í bóksölu stúdenta og Ásgeir vann einu sinni ritgerðarsamkeppni um Vefarann mikla þegar verkið var sett upp í þolanlegri uppfærslu L.A.
Ritgerðin var miklu betri.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:53
0
athugasemdir
Ég get ekki
látið hjá líðast að minnast á að uvg.vg er að hressast eftir sumardoða. Ykkar elskulegur á nefnilega grein dagsins.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:38
0
athugasemdir
13. ágúst 2002
Er Dolph Lundgren
fullkomnasti maður í heimi? Lesið allt um það í undarlegri grein Stefáns Pálssonar á múrnum...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:26
0
athugasemdir
Er þetta
frjálshyggjuframboð ekki kofningur úr Sjálfstæðisflokknum. Af hverju eru hlutirnir ekki kallaðir sínum réttu nöfnum?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:40
0
athugasemdir
12. ágúst 2002
Sprengikrafturinn
í UVG er slíkur að það hálfa væri nóg. Nú geta sumir byrjað að vinna og sumir hætt að kvarta.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:45
0
athugasemdir
11. ágúst 2002
Eftirfarandi aðilar eru útnefndir til aulaverðlauna helgarinnar
Heimir Már Pétursson - hvað get ég sagt? Ekki man ég eftir að einhver hafi klúðrað einhverju jafn lúðalega og Heimir Már klúðraði glæsilegri karnivalstemningu skrúðgöngunnar. Hverjir ráða þennan mann í vinnu?
22 - uh, best að græða rækilega á hommahelginni. Auglýsa 500 kall inn en hækka það svo skyndilega upp í þúsund kall þegar þeir átta sig á í hvað stefnir. Ósvífni.
Ólafur Ragnar Grímsson - þessi heimsókn í rússnenska morðskipið er það svívirðilegasta og viðbjóðslegasta sem þessi maður hefur tekið þátt í, og er þó úr nógu að velja.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:25
0
athugasemdir
8. ágúst 2002
Ekki talaði ég við Mark Steel í síma í dag þó svo að ég hafi gert heiðarlega tilraun til þess.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:27
0
athugasemdir
Fundurinn
frestast af margvíslegum orsökum fram á mánudag og verður þá haldinn á sama tíma og sama stað. Það ætti svo sem ekkert að gera til þar sem hann hefur einungis verið auglýstur á þessari aumu síðu sem engin *barm* les hvort sem er *skæl*.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:27
0
athugasemdir
Það er fátt
skemmtilegra en að fara með bílinn í skoðun kl. 8:30 og fá sér svo te og ristað brauð heima á eftir. Allt stefnir í að ég verði kominn á bókhlöðuna fyrir tíu og haldi áfram að skrifa í einum rykk eins og um var rætt. Í kvöld er svo fundur hjá UVG á Kaffi Viktor (efri hæð) kl. 21:00.
Allir sem bera hag VG fyrir brjósti ættu að láta sjá sig þar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:56
0
athugasemdir
7. ágúst 2002
Bókhlaðan í dag
og næstu daga. Nú verð ég að fara koma mér í gang eftir helgi heiladauðans og skrifa þessa ritgerð í einum rykk. Huggun harmi gegn er að nú hefur mér bæst liðsauki í bölvinu, enda sjálfur Sigfús mættur á svæðið eftir að hafa lyft upp heilum landsfjórðungi með annarri hendi. Ekki er svo verra að fá Huginn hingað upp á hlöðu, hann þarf að klára ritgerð, væntanlega um raunheimspekileg málefni enda er Huginn algerlega á móti öllu því sem samræmist ekki raunum vísinda. Því andmælum vér skáldin einum rómi. Samt er erfitt að andmæla Huginn, eitt það erfiðasta sem ég geri. Ekki af því að mig langar í raun að vera honum sammála, heldur vegna þess að hann er sannfærður um að ég geti ekki haft nokkuð til míns máls, sem ég hef vissulega. Og hið allra raunarlegasta er að það er vegna þess að raunin er að raunverulegur áhugi Hugins á því sem stendur utan raun vísindanna er raunarlega lítill.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:46
0
athugasemdir
5. ágúst 2002
Jamm, jamm
það var heimadjamm á laugardeginum. Svo fór ég út í gærkvöldi. Þar var ljómandi fínt þó svo að það hefði verið stutt. Það er alltaf gaman að spjalla aðeins við einhverfu spurningatvíburana. Í heildina hefur þetta því verið ágætis helgi. Venjulega dett ég í mikið þunglyndi og kvíðaköst eftir að hafa tekið hressileg skrens en núna er allt svoleiðis í algeru lágmarki, enda drakk ég ekki nema fimm til sex bjóra á kvöldi. Því get ég , eins og gvuð forðum, litið yfir helgina og séð að hún var harla góð.
Amen
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:27
0
athugasemdir
3. ágúst 2002
Gott verslódjamm
í gær, endaði reyndar í hálfgerðum leiðindum. Í kvöld verður því bara heimapartí hjá okkur og allir að sjálfsögðu verlkomnir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:22
0
athugasemdir
2. ágúst 2002
Hef lítið bloggað upp á síðkastið. Margt hefur komið til, bremsuklossar, málningavinna og fleira. Páll Hilmarsson er maður vikunnar og hlýtur hann að launum notaða bremsuklossa sem hann getur leitað að í bílskúrnum hans Nonna.
Versló framundan, adios!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:19
0
athugasemdir