30. júní 2003

Af hverju er ég ennþá vakandi?

Fékk ekkert af 25 gráðunum sem voru hér á Héraði í dag, var inni í Kuffélaginu allan tímann. Í gær var hins vegar gaman. Mannfræðingurinn og Doktorinn komu hér og grilluðu með mér T-bone steik sem var góð. Bearnese sósan var samt ekki nógu góð þar sem ekkert essens var til í húsinu. Bjórinn var líka góður og mér tókst meira að segja að finna þrjá ákavítisseymingja sem ég tók með mér úr einhverri fríhöfninni, þá var kátt í bæ. Nenni svo sem ekki að rekja kveldið í smáatriðum enda kemur ykkur ekkert við hvernig ég skandalera hér á Héraði. Ég get samt upplýst það að ekkert var um skylmingar, utan smá riskinga með gaffla áður en við svifum á barinn, samt ekkert hættulegt.

Ég get upplýst áhyggjufulla aðstandendur um það að ég hef verið óvenju lítið dapur eftir geimið og í raun mesta furða hvað maður er brattur. Hvað veldur? Veit ekki, þetta er bæði undarlegt og asnalegt.

Fann gamlan pakka af Ginseng sem Helga keypti fyrir löngu síðan. Ætla að étann, spurning hvort ég vakni eitthvað...

Er bara að vinna til 18,00 þessa viku sem er dásamlegt. Var til 19,30 alla síðustu viku sem er ömurlegt. Svo á ég frí um næstu helgi og þá er spurning hvort maður skelli sér ekki í rafting niður Eyvindaránna. Er einhver með?

Af hverju er ég ennþá vakandi?

27. júní 2003

Þá er fjölskyldan farin til Reykjavíkur í tæpan hálfan mánuð og ég sit hér á Egilsstöðum og kuffélast eins og motherf*****. En það er fínt að eipa í Kuffélaginu eins og hvar annarsstaðar og ekki er það verra að tveir skemmtilegustu mennirnir á staðnum nágrannar mínir og félagar eru líka grasekklar í bili. Ég hef ekki verið svona lengi einn heima hjá mér síðan ég var bólugrafinn unglingur með spangir, ég get svarið það.

Hljómsveitir dagsins: Radiohead og Led Zeppelin. Keypti nýlega tónleikadiskinn með LZ og einhvern Best of disk daginn eftir. Týndi Zeppelin plötunum mínum með ÖLLUM hinum um árið. Þ.á.m. nokkrum bítlaorginölum og fleira gúmmulaði.

Tónleikadiskurinn er svo góður að þegar ég hlusta á gítarsólóinn í Heartbraker loka ég ósjálfrátt augunum (eins og þegar maður hnerrar) síðan koma tár og svo fer ég að skæla. Minnir mig á gamla unnustu sem átti það til að fara að skæla upp úr þurru við ákveðnar aðstæður. En það er annað mál...

Ég get þetta ekki!

Ég skrifaði risa pistil og rak mig svo í einhvern takka sem lokaði glugganum. Nýji bloggerinn spurði mig þá hvort að ég vildi vista skrifin, sem ég játti glaður og ánægður en skeptískur þó. Sem vitaskuld var fyllsta ástæða til því að EKKERT VIRKAR!



FOKKÍNG DRASL!



EEEEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIP!!

24. júní 2003

Hér sé eip!

23. júní 2003

Lítil sæmd af því að vera þunglyndissjúklingur, varla einu sinni skítsæmilegt.

DRACULA, Þú daunilli blóðdrekkandi fjandi.

Um dagin flaug að mér að skrifa ritgerð um tilvistarspurningar í verkinu og kalla ritgerðina Að vera... að eilífu. En u.þ.b. fjórum sekúndum síðar fattaði ég hversu óhemju banal það yrði sérstaklega þar sem þessum spurningum hefur verið varpað fram tæplega trilljón sinnum og varla sé til útvatnaðra ritgerðarefni í gervallri Akademíunni. Nokkrum mínútum síðan áttaði ég mig á hversu vondur bókmenntafræðingur ég hlyti að vera.

Fattið nýttist reyndar sem ágætis djókur í partíinu seinna um kvöldið og því ekki alveg tilgangslaust með öllu.

Eftir stendur spurningin hvernig tekist sé á við blessuðu vapýruna. *mikil mæða*

22. júní 2003

Aldrei hef ég séð jafn auma framistöðu og hjá löggunni í Kastljósinu áðan þegar hann var að réttlæta handtöku á Stebba og fél. á Austurvelli 17. júní sl. Ég vonast til að ALLIR mæti næsta 17. júní og mótmæli eins og þeir best geta (friðsamlega) þegar Davíð hraunar yfir allt og alla.

Af hverju get ég ekki sent skilaboð á þessar helvítis MT síður? Ha Palli?

An error occurred:

Rebuild failed: Renaming tempfile 'C:\ddrive\websites\kaninkanet\pallih\index.asp.new' failed: Renaming 'C:\ddrive\websites\kaninkanet\pallih\index.asp.new' to 'C:\ddrive\websites\kaninkanet\pallih\index.asp' failed: Permission denied


Þetta fæ ég bara þegar ég ætla að skella einhverju heiladauðu rugli inn hjá þér!

Aðgangsbannið hjá Tóta var í það minnsta á íslensku.

Ónefndur fjölskyldumeðlimur kvaðst hafa harnað til muna í femínískri afstöðu sinni eftir að hafa hellt sér í femínískan litteratúr eftir nokkurt hlé. Ég sá minn kost vænstan að leggjast í þrif, enda snýst kvennfrelsisbaráttan ekki síst um heimilisþrifin eins og einhverjir vita.

19. júní 2003

Hvað get ég bloggað um annað en það sem ég setti fram í hillur í dag? Jú ég prentaði nokkkra verðmiða og svo lærði ég líka á strikamerkjaprentarann í dag. Svo er ekki verra að læra aðeins á Navisjón í leiðinni, aðallega hvað þetta er asnalegt forrit, mætti í öllu falli vera einfaldara í notkun. Hverjum dettur til dæmis í hug að hafa "bóka" sem valmöguleika og síðan valmöguleikann "staðfesta" við hliðina á? Bjánalegt! Svona vitleysa getur skapað ýmiskonar vandræði, fleiri en mann gæti grunað í fyrstu.

Annað skemmtilegt var að Samkaupskeðjan, sem við Kuffélagfólk tilheyrum, sendi okkur tæp tvöþúsund gleraugnapör. Vita mennirnir ekki að sendingin dugar nánast á hvern einasta Egilsstaðabúa? Þvílíkt lið.

Landsteinar og Samkaup eru því vitaskuld fyrirtæki dagsins.

Þetta virðist vera komið í lag. Eftirvæntingarfullir aðdáendur geta farið að láta sig dreyma.

Jæja

Skil þetta ekki, blogger virðist ekki ætla að gefa mér breik...

16. júní 2003

Helvíti, þoli ekki þegar helvítis bloggerinn étur upp spekina í mér, djöfull!

15. júní 2003

Allt í hassi, blogger er drasl!

Þeir sem til þekkja vita að það koma skeið þar sem lítið er bloggað. Núna er komið glimrandi sumar hér á Héraði og því verður kannski minna bloggað en venjulega. Þið þurfið því ekki að örvænta lesendur góðir, ég er bara í sumarfríi.

10. júní 2003

Helgin var lengri og erfiðari en ég átti von á. Hún er samt búin að vera helvíti skemmtileg en það tekur nú bara svo mikið á að vera svona rosalega glaður alltaf. Ég komst að þeirri niðurstöðu í gær að skemmtileg fyllerí eru kannski stæsti kosturinn við gleðipillurnar. Ok kannski ekki stærsti en tvímælalaust mikill.

Lifi fjörið og Kaffi Nielsen sem er án nokkurs vafa flottasta kaffihús landsins, og þótt víðar væri leitað.

Já það er stuð á Egilsstöðum!

8. júní 2003

Blessað sumarið.

Já, það er sumar Siggi...

7. júní 2003

Jamm, það er stuð! Samt ekkert heyrt í Óðni.

6. júní 2003

Ég spái því að ég verði fullur á laugardagskvöldið, hmmm Óðinn hvað segirðu um það?

Ég spái því að það verði skemmtilegra í vinnunni á morgun en í dag, en það var samt skemmtilegt í dag.

Ég spá því að kexið í kexhillunum inn á lager sem ég lagaði til í í dag muni allt fara til andskotans á nokkrum dögum. En það gerir kannski ekkert til því eins og verslunarstjórinn minn sagði við mig: "Þór, það sem þú lærir á þessu er að nú veistu hvað er til næst þegar þú pantar!" og eins og Logi Geimgengill í læri hjá Jóda sagði ég ekkert, en allir sem sáu mig vissu að ég hafði lært eitthvað sem ég myndi aldrei gleyma.

Ég spái því að ég verði illa haldinn af alkóhólistaeftirvæntingu þann 20. júní, síðan bindfullur, síðan timbraður morguninn eftir og fljótlega uppúr því trylltur úr áfengishamingju fram á nótt. Ég geri þá lítilvægu kröfu að hitta gervallt skjallbandalagið, nema náttúrulega þá sem eru hættir að drekka, þeir fara á einhver helvítis powertripp í svoleiðis partíum.

Ég spái því að ég muni lesa bókina Drakúla bráðlega og skrifa eins og eina masterpísritgerð upp úr henni fyrir miðjann ágúst. Bara spurning hvernig maður taki á svona efni sem búið er að fjalla um á einn eða annan hátt u.þ.b. 100.000 sinnum!

Ég spái því að Þórunn Hrefna bloggi yfir sig á næstu vikum og síðan ekkert eftir það.

5. júní 2003

Blogg fyrir Tótu pönk! Af hverju heitir allt skenmtilega fólkið Tót-eitthvað?

Bara spurning.

Allt vitlaust að gera í Kuffélaginu Lu kexið fer sem aldrei fyrr og ég raðaði mýkingarefni í fyrsta sinn. Alltaf eitthvað nýtt.

2. júní 2003

And now for some namedropping...

Loksins kominn aftur, staðsettur í hús ólíkt Don Tóta, af virðingu við hann mun ég neimdroppa sem satan sjálfur. Var í Reykholti á málþingi um Fagurfræði (já ég skrifa hana með stórum staf) meðal margs góðs fólks. Rjóminn af rithöfundarstétt landsins var þarna saman kominn, Steinar Bragi, Guðrún Eva Mínervudóttir, Auður Jónsdóttir og Kristín Ómarsdóttir og náttúrulega sjálft skáldið. Fræðin státuðu líka af merkum fulltrúum. Hinar fagurfræðilegu ofurskutlur Soffía Bjarnadóttir og Þorgerður (Þorvaldsdóttir?). Úr þeim flokki voru að sjálfsögðu líka mentore Birna Bjarnadóttir, súperstjarnan (alla vega í Háskóla Íslands) og ofurtöffarinn Simon Critchley , múrverjinn spaki Ármann Jakobsson og Geir Svanson nýlógúrú og ofurþýðandinn og dauðaspesíalistinn (svo sem ekki eini) Gauti Kristmannsson. Auk þess var Kristján Árnason á svæðinu og átti náttúrulega sín gullnu móment. Myndlistafólkið var líka á staðnum. Þarna voru Drífa Ármannsdóttir og skötuhjúin Gunnhildur Hauksdóttir og stjórnarformaðurinn Ásmundur Ásmundsson og hinn guðdómlegi gallatöffari Steingrímur Eyfjörð.

Eins og nærri má geta var helgin stórskemmtileg og ekki tók verra við þegar í bæinn var komið því að þá beið engin önnur en Þórunn Hrefna bloggpía sem ég tengi hér með formlega á.

Ef menn vilja kynna sér nánar það sem gerðist á Reykholti má lesa um það hjá Auði, treysti mér ekki til að bæta neinu við það hér og nú.