28. júlí 2005

Í gær benti félagi minn mér á ritstjórnargrein nýjasta tölublaðs Grapevine. Ég get ekki stillt mig um að koma henni á framfæri við þá sem hingað villast. Hér er smá úrdráttur:

Interviewing Reykjavík Independence Party Chairman Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, our journalist was told that the future of urban living in Reykjavík involved lots of land filling, single-family houses, and the acceptance of the fact that Icelanders weren’t cut out for public transit, because of bad weather—instead, when the city expands, we should look forward to a cross-town expressway.
As editor of the Grapevine, and as a journalist before that, I have tried not to take a firm political stance in my writing. But in more than a few cases, simply quoting the bizarre rhetoric of otherwise sane and goodly public servants makes these people come off badly. As the public servants we typically interview are in the government in power, the Independence/ Progressive Alliance, it begins to seem as though we have a bias against them. Therefore, we have decided not to run the city planning piece yet—we are going to do our best to interview all parties in the hope that they might all be equally… regressive.


Og hér er greinin í heild sinni.

27. júlí 2005

Mér eru ljóð hugleikin þessa dagana, meira en venjulega enda ljóðahátíð í nánd og allt í einu er ég farinn að umgangast mestu ljóðjöfra vesturlanda sem eru komnir hingað til að fjalla um ljóðlist.

Við eigum að sjálfsögðu okkar eigin ljóðjöfra, þó að flestir þeirra séu fallnir frá. Einn af þeim var Dagur Sigurðarson. Um hann fjallar Geirlaugur Magnússon í grein á vef forlagsins Eddu. Þar kemur m.a. fyrir þetta ljóð.

Ljóðið um ljóðið

Ég er kóngur í ríki mínu. Skrýtið
hve tilveran hljómar og ómar og bergmálar. Hlustið
á flautið úr skipunum sofna á lágnættiskoddann
og einfara bíla sem spinna og mala og urra
á götunum úti með ískri og kveini á stángli
keimlíkt breimakór katta og grátandi barna
fyrríkvöld. Þrestirnir þegja í bili, en regnið
dynar og sónar á þekjunni einsog í upphafi
lélegrar skáldsögu. Ég veit um mann sem fer
upp á konu núna úti í bæ. Þau heyra
söng sem von er. Er ekki skrýtið
hve tilveran raular. Nú korrar og murrar og saunglar
í hverjum armsvörtum kima blánæturstemman
og dregur sei-ei-ei-ei-eiminn. Ljóðið
þýtur í blóði mér, hvín mér í höfði. Brátt
styttir hann upp og stjörnur gægjast fram
úr hljóðu þykkni með saungleiftrum skærum og túnglið
tónar lángdreginn drunubassa til morguns
er sólin fer á loft með snarki og braki
og flugnasuði, kvaki og tísti fugla,
í brunalosta. Dagurinn byrjar sköll
með úrillar raddir og geltandi þrýstiloftsbora:
og víst er ég kóngur í ríki mínu. Allir
sem eyru hafa og heyra skulu fá passa.

26. júlí 2005

Þeir eru í stuði hjá Bechtel þeir eru nefnilega með einhvern hressan Bechtelgaur í stjórn alþjóðabankans.

Bechtel
The company that will build the Alcoa aluminium smelter , 'along with its partner, Icelandic engineering consortium HRV (Honnun, Rafhonnun, VST), with support from K-Home Engineering'. Bechtel is already known as a war profiteer, having been given a $680 million grant to 'reconstruct' Iraqi infrastricture, and was also involved in (unsuccessfully) privatising the water supply in Bolivia and building nuclear power stations.


Hér eru svo meiri fréttir af nýjum nágrönnum Reyðfirðinga:

Boomtime for Bechtel
After several weeks of media examination, the privately-owned Bechtel Group Inc. has emerged victorious in the somewhat questionable bidding process to reconstruct Iraq. Bechtel has received attention primarily for its close ties with the US government, with former Secretary of State George Schultz as a board member. It is a generous contributor to politicians, providing $1,297,465 to candidates between 1999 and 2002, with 59 percent going to Republicans.


Hvernig ætli sé að vinna hjá Bechtel: vera nýbúinn að reisa kjarnorkuver, í millitíðinni reynt að drepa bólivíska bændur úr þorsta og vera á leiðinni að moka upp stríðsgróðanum í villiarabíu og svo bara beint til Reyðarfjarðar. "Ah, Mr. Geirsson, wery pleased to finally meet you. I´ve wanted to contat you earlier but just been so damn busy!"

Jamm

Mikið er ég ánægður með þessa hressu gaura upp á Kárahnjúkum. Ómar R. Valdimarsson upplýsingafulltrúi Inpregríló er hins vegar mjög óhress með hressu gaurana og vill að löggan haldi friðin á svæðinu og komi í veg fyrir lögbrot. Nú er bara spurning hvort að löggan nái að skjóta nokkrum löggum upp á hnjúkana, en ugglaust er hún upptekin við að fletta ofan af ítrekuðum og viðbjóðslegum afbrotum ipmertgiodgíló í garð starfsmanna sinna.

En vitanlega verður að hafa upp á gaurunum sem spreyjuðu á steininn og stálu heilum kveikjulykli úr ýtunni. Það eru allir jafnir fyrir lögum á Íslandi!

Hressu gaurar!
meiri eignaspjöll
meiri skærumótmæli
meira sprey!

Þetta er nú einu sinni stríð maður! Stríðið gegn landinu.

Hins vegar eru ekki allir jafnir í augum vorra vestrænu baráttubræðra í lífinu. Nú eipa allir yfir því að ungur drengur hafi verið skotinn 5 sinnum í höfuðið í lestinni hér um daginn. En hafa hingað til kært sig kollótta um arabana sem eru miskunarlaust myrtir á sömu forsendum í arabíu. Ef einhver keyrir of hratt í vitlausa átt, þá er hann bara skotinn í hausinn og örugglega oft og mörgum sinnum oftar er 5 sinnum. Meira að segja ítalska leynilöggan var drepin um daginn af nákvæmlega sömu ástæðum. En það var í villilandinu arabíu þar sem villifólkið býr og hann getur þá líklega sjálfum sér um kennt að hafa verið að þvælast þarna í villiforaðinu innan um villimennina!

Meira blóð
meira stríð
byltingu og uppreisn!

Löggan vill að atvinnubílstjórar hafi samráð við sig um hvernig hátta eigi mótmælum vegna fáránlegara laga um díselverð. En stundum viljum við borgararnir ekki vera stilltir. Stundum viljum við vera óþekkir og fá þannig athygli. Það virkaði í leikskólanum og svínvirkar þótt að maður sé kominn á miðjan aldur gæti ég best trúað.

Meiri mótmæli
meiri óþekkt
meiri óreiðu!

25. júlí 2005

Christian Bök verður hér á ljóðahátíð um helgina. Here´s to you man!

21. júlí 2005



Meira

15. júlí 2005

Man einhver eftir sögunni um litlu mýsnar og undirbúning þeirra fyrir veturinn. Önnur þeirra safnaði spreki og hnetum, hin dólaði sér um og naut veðurblíðunnar og áhyggjuleysis sumarsins.

Eins og nærri má geta naut duglega músin forðans þegar líða tók á vetur en lata músin vafraði kalin og svöng upp að hlýjum hýbílum duglegu músarinnar.

DM: Hæ
LM: hæ

Lm: Mér er kalt og ég er svangur, má ég koma inn fyrir?
DM: Ekkert mál, komdu inn.

Góða helgi.

Þ

2. júlí 2005

Er í Barcelona, þeir sem vilja fylgjast með ættu að fara hingað...

http://spaces.msn.com/members/thorworks/