27. febrúar 2005

Miðnæturpistill

Það er kominn sunnudagur! Loksins, nú er bara að bíða eftir því að hann líði. Hægt en örugglega. Er ekki lífið dásamlegt? Og þegar ég stend loksins frammi fyrir kúlnahríðinni, sem verður mér hugsanlega að bana, rétti ég fram höndina eins og Neo í Matrixinu og vona að þær stoppi í lausu lofti og falli fyrir fótum mér. Annars mega þær hver og ein bora sér djúpt í hjartað.

Þrjár byssukúlur.

Ég hræðist ekki neina þeirra. Ég hræðist það eitt að hafa ekki tækifæri til að standa frammi fyrir þeim. Og það allra erfiðasta er að standa frammi fyrir gínandi byssuhlaupinu á hverjum einasta helvítis degi og vita ekki hvenær hleypt verður af.

En nóg um það.

Að lifa er að deyja. Þetta vita allir, kannski án þess að gera sér grein fyrir því.

26. febrúar 2005

Ég hef sjaldan verið svona uppveðraður yfir því að sunnudagur sé að renna upp. Bara ein nótt og svo er hann kominn. Þessi sunnudagur verður samt að öllum líkindum viðurstyggilega lengi að líða.

Svona er þetta búið að vera síðan á miðvikudaginn. Mismikil kvöl, en hefur mér tekist að höndla tilveruna betur eftir því sem á hefur liðið . Á morgun verður það allt saman farið til fjandans og upphafsreitur blasir við mér á ný.

23. febrúar 2005

Fyrir fjórum dögum birtist þessi frétt hjá RÚV:

Einar Kárason orðaður við bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Einar Kárason þykir líklegur til að fá bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í ár fyrir bók sína Storm, samkvæmt umfjöllun um verðlaunin á vefsíðu danska útvarpsins.

Þar er í stuttu máli fjallað um ritverk Einars og getið er annarra rithöfunda sem tilnefndir hafa verið. Tilkynnt verður í næstu viku hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.


Hér er komið dæmi um afskaplega vonda fréttamennsku. Í fyrsta lagi hljóta allir að hafa sæmilegar líkur á að vinna sem á annað borð eru tilnefndir. Þannig að fréttagildið er nánast ekki neitt þar sem Einar er einn af tilnefndum. Þó verður að viðurkennast að ef til vill eru einhverjir af tilnefndum líklegri en aðrir. Hvað veldur því er eftitt að segja og flókin fagurfræðilegur debat sem liggur þar að baki.

Og hvað hefur RÚV fyrir sér í því að Einar hafi verið líklegur, og líklegri en aðrir tilnefndir eins og gefið er til kynna? Jú, á vefsíðu danska útvarpsins og því haldið fram. Hvaða danska útvarp um er að ræða láist fréttaritara að geta, en gefum okkur að hér sé verið að tala um Danmarks Radio.

Hver er þá fréttin?

Jú, einhverjum á DR finnst ekki ólíklegt að Einar Kárason gæti fengið verðlaunin.

Það er ekki lítill fengur af þessum fregnum fyrir okkur Íslendinga.

Hvers vegna Einar ætti að fá þau kemur ekki fram, einhver röksemd eða jafnvel fullyrðing gæti komið sér vel. Enda væri það væntanlega innlegg í hinn flókna fagurfræðilega debat sem liggja verður til grundvallar verðlaunaafhendingunni. Kannski sérstaklega í ljósi þess að ég hef aldrei orðið var við það að Einar Kárason sé sérstaklega stórt fyrirbæri, svona fagurfræðilega séð.

Svona blaðamennska hefur verið skilmerkilega skilgreind af Jónasi Kristjánssyni og er kölluð "kranablaðamennska". Einhver sem hefur hag af því að frétt birtist kemur henni til skila til blaðamanns, sem áframsendir hana í próförk athugasemdalaust. Hér fer enginn blaðamennska fram en í ljósi þess að fyrirbærið hefur verið skilgreint og því getum við lesið fjölmiðla með þeim formerkjum að einhversstaðar leki krani, getum við gefið okkur að þeir sem hafa hag að því að koma þessari tíðindalitlu fregn í fjölmiðla eru Einar Kárason og/eða útgáfufyrirtæki hans Edda.

Einar Kárason átti aldrei séns í Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.

Hins vegar átti Sjón góðan séns með bók sína Skuggabaldur, eins og komið hefur á daginn. Enda fagurfræðilegur risi við hliðina á Einurum þessa lands. Meira að segja í rökstuðningi dómnefndar, sem eru yfirleitt tilþrifalitlar málamiðlanir er snertur af innslagi í hinn margumtalaða fagurfræðilega debat.

Í rökstuðningi verðlaunanefndar Norðurlandaráðs segir að í Skugga-Baldri þræði Sjón (Sigurjón Birgir Sigurðsson) einstigið milli ljóðs og prósa. Í skáldsögunni séu ofin saman minni úr íslenskum þjóðsögum, rómantísk frásögn og heillandi saga þar sem siðfræðilegar spurningar nútímans skjóti upp kollinum.

(til hliðsjónar má lesa rökstuðninginn fyrir því að EK fékk menningarverðlaun DV 2003: Stormur er kraftmikil samtímasaga og rétt eins og í fyrri verkum tekst Einari frábærlega vel að lýsa tíðaranda og hugmyndum, um leið og hann skemmtir lesendum með svipmiklum persónum og kostulegum uppákomum.

Þetta verð ég að fara aðeins nánar út í... Stormur er kraftmikil saga en Skuggabaldur er heillandi. Skuggabaldur fæst við siðfræðilegar spurningar nútímans. Einar tekst hins vegar frábærlegar vel að lýsa tíðarandanum. Sjón vefur saman minni úr íslenskum þjóðsögum, rómantískri frásögn og heillandi sögu. Einar skemmtir lesendum með svipmiklum persónum og kostulegum uppákomum.)

Frábært! Ég gleðst innilega fyrir hönd verðlaunahafans, bókaforlagsins Bjarts og íslenskrar bókmenntaumræðu.

Talsmenn afturhaldsins, hinnar munnlegu frásagnarlistar, hafa í bili lotið í lægra haldið.

Enn einu sinni kemur upphefðin að utan.

22. febrúar 2005

Hljómsveit dagsins er Keane!

I salute you!

Snillingar!

mér líður vel

farið og komið

en umfram allt komið

komið!

hér er ég og get ekki annað.

HÉR!

loksins er ég hér

þar sem ég vildi komast og vera

I salute you...

hér!

Þetta er ekki ljóð, þetta er bloggfærsla!

og þegið þið svo!

í guðanna bænum

í eitt skipti fyrir öll!

gefum Keane orðið...

You'll follow me back
With the sun in your eyes
And on your own
Bedshaped
And legs of stone
You'll knock on my door
And up we'll go
In white light
I don't think so
But what do I know?
What do I know?
I know!

21. febrúar 2005


Ef einn stjórnmálamaður í viðbót skælir undan fjölmiðlum, panta ég leigumorðingja á staðinn. Ég er orðinn alvarlega þunglyndur vegna heimsku ráðamanna þessa lands.

13. febrúar 2005

Áhugavert? II

Ég varð mér út um slatta að baðkúlum (sem er geri ekki ráð fyrir að karlmenn almennt viti hvað er). Gallinn er bara að einu upplýsingarnar á kúlunum eru: Cool Jazz, Drowning at Sea, The Blues og Lucky Lava. Nú bara spurning: Á ég að taka Lucky Lava í kvöld. Eða er Cool Jazz málið?

Áhugavert?

Main Entry: arm·band
Pronunciation: 'ärm-"band
Function: noun
: a band usually worn around the upper part of a sleeve for identification or in mourning

11. febrúar 2005

Ice Storm er með betri myndum sem ég hef séð. Myndin gerist á svipuðum tíma og Nixon gengur í gegnum mikla erfiðleika í kjölfar Watergate. Efnistökin því tengd eru aukaatriði í sögunni, en frábær engu að síður. Aðalsmerki myndarinnar er þó ljóðrænan í frásögninni. Fagurfræðilegir möguleikar Kvikmyndaformsins eru magnaðir. Því miður er maður sjaldan minntur á það.

að segja

en ekki sýna

sýna en ekki

segja

toga og teygja

bíða og þegja


Mér leiðist, ég hef ekki eina einustu ástæðu til þess. Eiginilega þvert á móti.

Tómið er samt fullt af tómi. Mér leiðist blogg. Mér leiðist þessi helvítis endalausi kjafta- og bloggvaðall. Sýna en ekki segja! Ekki geta heldur gera. Eitthvað svona getulaust samt. Þetta er eilíft fjandans vandamál.

Mér leiðist pistlahöfundar í dagblöðum sem eru fyndnir. Það er ekki hægt að koma frá sér orði virðist vera án þess að vera ofboðslega fyndinn. Sérstaklega aftan á fréttablaðinu. Svo eru sumir sem eru svo húmorslausir og innantómir að það teygir handan skilnings míns. Sumir eru einfaldlega vitlausir.

Eina sem ég hef umburðarlyndi fyrir er einlægni. Jón Gnarr, here´s to you!

Kannski þegi ég of lítið þessa dagana. Segi of mikið og klára orðin, merkinguna, tilganginn? Er ég að setja vitlausar áherslur? Er ég að gefast upp á því að bíða. Orka eyðist aldrei. En andleg orka eyðir sjálfri sér, komist hún ekki sína leið.

Boðorð dagsins: Vera góður við mig. Vera góður við aðra. Hafa góða samvisku. Vera duglegur. Vinna fyrst, leika svo. Horfa. Hætta að tala nema nauðsyn beri til. Elska.

10. febrúar 2005

Fljúgum hærra!! en kannski langar mig bara til að fara dýpra, eða undir og yfir og inn í.

Playsilsti dagsins:

Suede - The Drowners
Megas - Um skáldið Jónas
Frank Zappa - Son of Orange County
D12 - These Drugs
Elvis Costello - She
Gary Jules - Mad World

5. febrúar 2005

Playlisti dagsins:

Damien Rice - Blowmans Daughter
Air - Talisman
Crash Test Dummies - (Mmm Mmm Mmm Mmm)
DMB - Crazy
The Beta Band - Dry the Rain
Jon Brion - Here We Go
Keane - This is the Last time
The Beta Band - Assessments
Morrissey - Let Me Kiss You
Des´ree - Kissing You
Stereophonics - Handbags and Gladrags
Joy Division - Love Will Teare Us Apart
Madonna - Take a Bow
Groove Armada - Madder
Green Day - American Idiot
The Who - A Quick One While He´s Away
Maroon 5 - The Sweetest Goodbye
-----------------
Ég er kominn á bak við barborðið á ný. Mér líður eins og ég sé kominn heim. Í kvöld verð ég hins vegar hinum megin við það. Og nú fer ég í bað.