24. nóvember 2005

Nýhil kynnir: Norrænar bókmenntir!



Ágætu landsmenn, hæstvirtur forsætisráðherra.

Það er nú svo. Nýhil kynnir: Fyrstu fjórar bækur ritraðarinnar Norrænar bókmenntir eru komnar úr prentsmiðjunni.

Hvernig lýsirðu gleði gamals þrjóts á nýjum tímum? Með bók Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar: Gamall þrjótur, nýir tímar. Hver er viðkvæmasti og myndarlegasti lundinn á vappi um Reykjavík? Næstumþvílundinn í bók Hauks Más Helgasonar: Rispa jeppa. Hver ræktar fjöll úr bókstöfum, bókstafi úr rafhlöðum nema Eiríkur Örn Norðdahl í bók sinni Blandarabrandarar? Og hver tuskar þau börnin til sem bora í nefið á bókasöfnum? Það skyldi þó ekki vera Óttar Martin Norðfjörð í bókinni Gleði og glötun?

Jújú. Einmitt þannig er því farið. Bækurnar eru allar væntanlegar í betri bókabúðir á næstu dögum. Starfsmenn bókaverslana eru hvattir til að gera bækurnar áberandi, stórverslanir eru hvattar til að láta af afsláttarkjörum sínum á innlendum bókum, þú ert hvött og hvattur til að kaupa tvö eintök af hverri bók, eitt handa sjálfum og sjálfri þér, og annað handa kærum vini. Þar sem Landsbankinn verslar er þér óhætt.

Alls verða bækurnar níu áður en yfir lýkur, og er ritröðin öll seld í áskrift á aðeins 6.750 krónur. Áskriftir má panta gegnum netfangið nyhil@nyhil.org. Er til vænlegri jólagjöf?

----

Eiríkur Örn Norðdahl (1978) er ljóðskáld, rithöfundur og þýðandi. Eftir hann liggja ljóðabækurnar Heilagt stríð – runnið undan rifjum drykkjumanna, Heimsendapestir og Nihil Obstat, og skáldsagan Hugsjónadruslan. Eiríkur ritstýrði þriðju Afbók Nýhils, Af Ljóðum og hefur auk þess þýtt tvær bækur eftir Michael Moore, Jonathan Lethem og úrval úr ljóðum Allens Ginsberg.

Haukur Már Helgason (1978) er heimspekingur og kvikmyndagerðamaður. Eftir hann liggja ljóðabækur, stuttmyndir og leikrit auk fjölda greina og þýðinga. Haukur ritstýrði bókinni Af stríði, sem var fyrsta bókin í flokki Afbóka Nýhils. Fyrri ljóðabækur hans eru Eini strákurinn í heiminum sem kunni að telja og 2004. Óttar Martin Norðfjörð (1980) er ljóðskáld og heimspekinemi. Eftir hann liggja ljóðabækurnar Grillveður í október og Sirkus, auk þess sem skáldsagan Barnagælur kom út hjá Eddu fyrir skemmstu.

Örvar Þóreyjarson Smárason (1977) er tónlistarmaður, ljóðskáld og rithöfundur. Hann hefur starfað til margra ára með hljómsveitinni múm, og gefið út eina skáldsögu, úfin, strokin hjá Nýhil. Hann hefur auk þess birt ljóð í tímaritum.