Í upphafi er framtíðin fáránlegur draumur. Svo kvað Guðbergur, hann á líka nýju yfirskriftina, ekki ætla ég að gera minnstu tilraun til að eigna mér hana.
Þau tíðindi eru helst að ég hef ekki tekið svefnlyf í marga daga. Það er svo sem ekkert hlaupið að því að hætta allt í einu, enda hef ég mátt horfa upp undir loftið á meðan hausinn á mér fer í yfirkeyrslu. Fortíð, nútíð og vitanlega hinn fáránlegi draumur snúast í milljón hringi inn í mér og keyra upp tilfinningar, gleði og sorg, skömm og reiði. Það var því í gær að tryllingslegt hugarflæði upphófst í kjölfar þess að ég las Flateyjar-Frey Guðbergs. Í bræði minni hentist ég úr rúminu og skrifaði vinnuplagg, drög að söguþræði og kringumstæðum. Undir lokin fannst mér hugmyndin svo frábær að ég var næstum búinn að ákveða að segja upp vinnunni og leigja mér sumarbústað upp í sveit til að skrifa söguna. Og til að kjarkurinn hlypist ekki á braut daginn eftir, skrifaði ég stórum stöfum neðst á blaðið: ÞETTA ER GÓÐ HUGMYND!
Ég hef ekki enn þorað að lesa punktana, en ég hef grun um að hugmyndin sé enn einhvers virði.
26. október 2004
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:39
0
athugasemdir
20. október 2004
Nokkur orð um hægrimenn
Horfði á Sunnudagsþáttinn í gær. Þar eru á boðstólum meðal annara tveir af helstu spekingum sjálfstæðismanna í yngri kanktinum. Annars vegar Illugi Gunnarsson, sem hefur verið lokaður inn í stjórnarráði undanfarin ár og því lítið úttalað sig um veröldina. Hins vegar Ólafur Teitur Guðnason sem ég til langs tíma hélt að væri klár og snjall. Seinna komst ég að því að Ólafur Teitur er ekkert sérlega klár. Hins vegar er hann örugglega vel upp alinn og svo hefur hann svo traustann og góðan talanda. Sennilega hefur hvoru tveggja vakið eitthvað falskt traust í denn.
Ólafur Teitur hefur nú á örskömmum tíma tekist að svifta sig því áliti sem þó enn sat eftir hjá mér í hans garð. Fyrst í Kastljósinu þar sem rætt var um Farenheit 9/11 og svo núna í umræddum þætti, þar sem hann fjallaði um skattamál. Lagt var upp með: meðalopinber starfsmaður hefur um 10,000 kr. í laun á dag. Einn daginn fer þessi maður og kaupir sígarettur, bensín og bjór (auk einnar matarkörfu og annars smáræðis) og eyðir öllum 10,000 kallinum. Af honum fara 5,000 í skatta. Og í beinu framhaldi spurði hann í forundran: Eru þetta ekki of miklir skattar?
En eins og allir vita eru bensín, sígarettur og áfengi einhverjar gjaldpíndustu vörur sem finnast á markaðinum. Þannig að dæmið er vægast sagt brenglað. Ekki þurfti þessi sami maður að fara á sjúkrahúsið, kaupa sér lyf eða ná í barnið sitt í skóla. Án þess að sjá ástæðu til að fara nánar í þetta þá þótti mér þetta ekki ábyrg umræða.
Og svona rétt til að setja puntinn yfir i-ið þá varð ÓTG að halda uppi sérstökum vörnum fyrir G.W. Bush og skjóta svolítið á Sameinuðu þjóðirnar í anda forseta Bandaríkjanna áður en yfir lauk.
Illugi hafði ekkert í SJS að gera í sínum hluta þáttarins. Ég ætla ekki að gera nokkrum manni það að dæma hann eftir slíka viðureign. Geri það kannski síðar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:38
0
athugasemdir
8. október 2004
Föstudagur og tími til að líta yfir vikuna og sjá hvort að hún sé ekki harla góð! Og viti menn ég get vel unað við mitt. Hlutir sem hafa setið á hakanum hafa verið leystir af hendi. Auk þess tók ég til í geymslunni minni sem er ótrúlega fullnægjandi lífsreynsla og í dag tók ég mig til og skúraði og þreif baðherbergið! Fyrir utan þetta hef ég verið í góðum ballans og liðið sæmilega vel. Í raun sætir það tíðindum að svoleiðis sé viðvarandi í meira en viku, en það er nú málið. Bestu fréttirnar voru nú samt þær að ég hef öruggt húsnæði fram að áramótum sem er mikið gleðiefni.
Og nú þarf ég að rjúka...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:46
0
athugasemdir
2. október 2004
Ég er aftur kominn með eyrnabólgu, halló! Hvers á ég að gjalda. Ég er að breytast í eyrnabólgubarn á gamals aldri. Einhverra hluta vegna gerist þetta í tvö síðustu skipti sem strákarnir fara til mömmu sinnar. Sem er svo sem ágætt þar sem maður getur haft eyrnabólgu í friði. Annars held ég að hlustin hafi þanist svo mikið út síðast að nú er þetta eiginlega pís of keik, eða þannig.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:44
3
athugasemdir
1. október 2004
Það kemst fátt að í ljóðum Gyrðis Elíassonar
nema hann sjálfur
og nokkrir prímusar
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:50
2
athugasemdir