31. júlí 2003

Tónlist.is hljómsveitir dagsins:

Tappi tíkarass
Mezzoforte
Silfurtónar

Hvað varð um silfurtóna, nokkur lög af plötunni þeirra verðskulda veglegan sess í íslenskri tónlistarsögu samt veit ég ekkert um þessa hljómsveit, nema að hún gaf út þessa einu plötu. Anyone?

Lauk við Batmanbókina The Chalice eftir Chuck Dixon. Sú gefur The Dark Knight vægast sagt mikið eftir og er varla þess virði að renna yfir hana. Sagan bjánaleg (veit enginn að þessi helvítis kaleikur hefur aldrei verið til) og teikningarnar þurrar og leiðinlegar (John Van Fleet). Daredevilbókin Wake Up er öllu skárri þó að lítið fari fyrir sjálfri ofurhetjunni. Teikningarnar eru samt magnaðar og meira að mínu skapi.

Varðandi kaleikin þá var hans leitað á miðöldum. Í einhverjum biblíutexta er talað um Sang Ral sem gæti þýtt blóð konungsins eða krists, sang er í öllu falli blóð (leiðréttið mig ef að þetta er rangt) vandamálið er að vitleysingarnir héldu að þarna stæði San Gral, eða hinn heilagi kaleikur. The rest is history.

Miðaldafræðingar mega gjarnan staðfesta eða hrekja þessa sögu. En eftir að hafa heyrt þetta fyrir mörgum árum hafa myndir eins og þriðja Indiana Johnes myndin farið óskaplega í taugarnar á mér. Ég tala nú ekki um þegar sjálfur Batman er kominn í spilið.



Nú er ég komin í bók sem heitir Harvest Breed eftir George nokkurn Pratt (skrifar og teiknar) og sú lofar heldur betur góðu. Hryllingurinn lekur af hverri blaðsíðu. Svo þarf ég að fara á stúfanna eftir meira efni.

Takk Tóti fyrir góðar ábendingar.

Og nú fer ég í ræktina.

30. júlí 2003

Tónlist.is

Hef tekið ástfóstri við tónlist.is og hleð nú niður eins og Ödipus sjálfur. Eftirtaldir snillingar hafa fengið að renna sér í gegnum símalínur mínar:

Eggert Þorleifsson (hellingur)
Jolli og Kóla (Bíldudals grænar baunir)
S.H. draumur (Öxnadalsheiði)
Risaeðlan (Slatti af fyrstu plötunni)
Singapoor Sling (smá sýnishorn af The Curse of...)
Megas (Öll megasarplatan)
Spilverk Þjóðanna (Summer almost gone)

og ósköpin öll af barnalögum fyrir blessaða drengina

Jamm þetta er brilljant stuð!

The Dark Knight Returns



Ætli eðlileg framvinda úr Drakúla sé ekki Batman. Í öllu falli hef ég nýlokið við að lesa B.A. ritgerð um Batman eftir Dr. Sigurð Ingólfsson og hellt mér eftir það í The Dark Knight Returns. Ég held að þetta sé með betri teiknimyndasögum sem ég hef lesið. Frank Miller er augljóslega snillingur. Mín bíða þrjár aðrar bækur um Batman sem ég get ekki beðið eftir að graðka í mig.

29. júlí 2003

Kommentin loksins komin inn. Þá get ég haldið áfram að verða fyrir vonbrigðum yfir því hve fáir hafa eitthvað til málanna að leggja. Nú veit ég að yfirþyrmandi hellingur af fólki les síðuna og skil því ekki af hverju það eru ekki 15-20 komment við hverja færslu?

Eníhjú! Stenslar eru nýjasta æðið. Ég hef áhugaspan sem nær varla að teygja sig yfir meira en tvo-þrjá daga, þannig að ég verð að vera duglegur að finna mér ný áhugamál. Palli er duglegur að finna sér ný þannig að ég hermi bara eftir honum þar sem ég hef fyrir löngu misst áhugann á að finna mér ný sjálfur.

Löggustensillinn er eftir mann að nafni Banksy. Maðurinn sá er lifandi goðsögn í stenslakúltúrnum. href="http://www.guardian.co.uk/arts/features/story/0,11710,999712,00.html">Viðtal við hann hérna. (í boði Palla).

A Life stensillinn er einstaklega right on og smekklegur auk þess að vera látlaus en jafnframt æpandi snilld. Höf óþekktur en stensilinn má finna einhversstaðar á NYC svæðinu.

A Perfect Life er líka snilld en ekki jafn flottur og A Life. Höf. OmegaMan. Ó je.

Fleiri stenslar hér.

BerkCaOmegaMan06

geisp!

Komment dagsins:

"Við borgum ríkisögreglustjóra fjórar milljónir króna í löggæslukostnað og það er lágmarkið að fá Johnsenin (svo) sem uppbót"

Páll Scheving Framkvæmdarstjóri og mannvitsbrekka í samtali við Fréttablaðið "um þá óvissu sem nagað hefur Vestmannaeyinga þar sem að óvíst hefur verið hvort að blablablíbíbíblbsals fá leyfi blíblíblalbalalalblblbibibiffffuduuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuu til að ööö... ah, nenni þessu ekki.

Hálfvitar.

Í dag fór ég í ræktina og svo í sund. Í dag hætti ég að reykja kl. 17:30 og byrjaði svo aftur kl. 22.00.

Allir þeir sem hafa hætt að reykja vita að best er að halda því út af fyrir sig, því að ef maður byrjar aftur þá afhjúpar maður þrælslundaða níkótínfíknina á mjög svo auðmýkjandi hátt. Maður sem vill ekki reykja gerir það samt og er því ekki sjálfrátt, er þræll viðbjóðslegrar framleiðsluvöru sem er framleidd af glæpamönnum og fasistum.

Ég hef velt því fyrir mér hvort að það sé ekki betra að takast á við vandann með því að opinbera að maður sé að reyna að hætta og viðurkenna að maður sé ekkert annað en fíkniefnasjúklingur sem er háður einhverju mest ávanabindandi eitri sem fyrir finnst.

Ég er fíkniefnasjúklingur og er ekki sjálfrátt.

Ég kem samt sem áður til með að losna undan níkótíninu, cold turkey or not!

ps. Palli frændi er víst með bloggsíðu líka og þetta er skemmtilegt (í boði Þórdísar).

28. júlí 2003

Páll frændi minn og hafði samband við mig um daginn og bað mig grenjandi um að tengja inn á síðuna sína. Ég skoðaði síðuna og ákvað að tengja ekki þar inn á.

Ástæður:

1) Síðan var glæný og maður tengir ekki inn á neitt sem að óvíst er hvort gangi eður ei.
2) Hér er ekki um að ræða blogg.
3) Ég var í púrítanísku skapi og ákvað að síðan (eða sagan) væri of subbuleg til að tengja inn á.

Komið hefur á daginn að síðan lifir góðu lífi, auk þess sem ég er þess heiðurs aðnjótandi að ein persóna sögunnar er skýrð í höfuðið á mér. Frekari tengsl okkar á milli eru óljós.

Í ljósi þessarar nýju vitneskju auk þeirra augljósu sanninda að upphaflegar ástæður eru algjört prump, tengi ég hér með inn á hina mögnuðu framhaldssögu um Bangsa og hans eiturlyfja- og blóði drifnu veröld.

Hvimleiðir fylgifiskar reykinga, fyrir utan vonda lykt, gular tennur og önnur óhreinindi eru meðal annars:

1) Þegar varirnar festast við filterinn og maður rífur holdið af þegar sígarettan er töffaralega fjarlægð úr munninum.
2) Þegar varirnar festast við filterinn og maður rennir puttunum óvar fram af sígarettunni þangað til þeir staðnæmast við glóðina með tilheyrandi sársauka.
3) Sjúkdómar sem enda í kvalarfullum dauðdaga.

Ég ætla að hætta að reykja. Ég veit ekki hvernig.

Mig langar til að geta fundið lykt og andað hraustlega að mér fersku fjallalofti án þess að fá lungnakul.

Ég ætla að hætta að reykja!

27. júlí 2003

Komment dagsins í boði Sigga:

Enginn var með vesen eða kjafthátt, enda ekki endilega ruglaðir alkohólistar á ferðinni heldur einfaldlega óheppnir einstaklingar sem urðu fyrir barðinu á misskildu og tímavilltu víkíngseðli hins stolta og drukkna Íslendings, sem staddur er í aðstæðum sem hann skilur ekki og bregst því reiður við. Svona eins og Nashyrningur myndi gera.

25. júlí 2003

Tók sniðugt bítlaplötupróf og mér til mikillar ánægju er ég:

abbey road
Abbey Road


Which Beatles Album Are You?
brought to you by Quizilla


Hvílík sæla, ef menn vissu bara hversu stórt hlutverk þessi plata skipar í æsku minni þá ættu þeir að skilja hvers vegna. En það er vitaskuld óþarfi.

Bráðum svíf ég inn í svefndrungann, vonandi verð ég of meðvitundarlaus til að horfa upp í svefnherbergisloftið í marga klukkutíma. Já góðir félagar ég kem nær örugglega til með að sofna fyrir miðnætti. Bara ég og Dracúla og svo, ekkert...

24. júlí 2003

Ofursvöl mynd af Ármanni (held meira að segja að ég hafi tekið hana).

Ég að reykja heróín...

let's do-si-do now

Ó jú!

Ég fór á flugvöllinn í dag og sá einkaþotu Alcoa. Gulfstreame skilst mér að hún heiti. Fokking risa stór. Ekki veitir af, fyrir þessi risarassgöt. (oh no I won't leave no stone unturned)

Eminem dagsins:

Let your hair down to the track, yeah kick on back. Boo! The boogie monster of rap, yeah the man's back with a plan to ambush this Bush administration, mush the Senate's face in, push this generation of kids to stand and fight for the right to say something you might not like, this white hot light that I'm under, no wonder I look so sunburnt, oh no I won't leave no stone unturned Oh no I won't leave, won't go nowhere, do-si-do, oh, yo, ho, hello there oh yeah don't think I won't go there, go to Beirut and do a show there... (SQUARE DANCE)

að öðru leyti hef ég ekkert að segja.

Pís át!

23. júlí 2003

Fyrirsögn dasins á local.is:

Hlýjast við Lagarfljót

þ.e. sú eina...

Fyrirsögn dagsins:

Cherie Blair söng Bítlalag fyrir kínverska námsmenn

Ef að lesendur eru að velta því fyrir sér hvort að fyrirsögnin sé grát- eða brosleg (nema hvort tveggja sé) þá geta þeir bara skoðað myndina sem fylgir.

Svei mér þá, þetta toppar línudans Valgerðar Sverrisdóttur í Bónus hér á Héraði fyrir síðustu kosningar...

20. júlí 2003

Ég hef lagt það í vana minn að útlista ferðalög á þessari síðu. Þessar ferðasögur hafa svo sem lítið gildi fyrir aðra en mig, þ.e. sem skjalfesting fyrir elliheimilið en...

-ég skar fremstu kjúku vinstri vísifingurs nánast af á fimmtudeginum
-Þórdís systir kom um kvöldið
-við fórum í Hermundarfell á föstudeginum
-á leiðinni stoppuðum við hjá Sauðaneshúsi á Langanesi sem unnið hefur verið við í fjöldamörg ár við að gera upp. Húsið er núna í hópi merkilegra minja um gamla tíð. Stefán tékk it.
-við Ásgrímur og Þórdís hoppuðum í dáfallegan hyl í Tungnaá undir fossi og svámum þar í dágóða stund. Ég afrekaði það að synda móti straumnum með annari hendi, þar sem hin var vafin inn í plast eftir bróderingar í puttanum. Missti svo gleraugun í hylinn og undirbjó mig undir þunglyndi, skæl og ömurð það sem eftir lifði ferðalagsins. En viti menn, selurinn Ásgrímur fann gleraugun á hylbotninum og bjargaði lífi mínu
-komum við á Kátum dögum á Þórshöfn þar sem strákarnir skemmtu sér konunglega
-ókum fram og aftur Hellisheiði eystri, sem er hrikalegasta en jafnframt ein fallegasta ökuleið landsins. Útsýnið yfir Héraðsflóa er líklega það fallegasta sem ég man eftir. Vopnafjörður er vitanlega líka dáyndisfagur sem og Gunnólfsvík (fyrir utan helvítis morðingjana á fjallstindinum).

Skeytastíllinn dugir til að rifja upp. Mér er alveg sama um ykkur.

ps. fór á barinn í gær og drakk bara kaffi, sódavatn og pilsner, merkileg upplifun.

16. júlí 2003

Furðulegt að maður sé ekki búinn að átta sig á því fyrir löngu síðan að sumarið og sólin, sem maður bíður eftir megnið af árinu, er ekkert nema höfuðverkur, andarteppa og ofbirta í augum. Konan mín er bókstaflega að kafna á skrifstofunni sinni, enda minnsta kosti 35 gráðu hiti þar inni. Og maður ráfar í gegnum daginn nær meðvitundarlaus af hita. Best að forða sér í skjól á svölunum á Kaffi Nielsen og fá sér einn svalandi sumardrykk.

Eminem texti dagsins:

And every single person is a Slim Shady lurkin'
He could be workin at Burger King spitten on your onion rings
Or in the parking lot circling
screaming I don't give a fuck
With his windows down and system up
So will the real Shady, please stand up
and put one of those fingures on each hand up
and to be proud to be outta your mind and outta control
and one more time, loud as you can, how does it go?


Maður verður næstum því ungur og reiður á ný, þvílík sæla.

Ég er Slim Shady, fávitar!

15. júlí 2003

Tvær fréttir á mbl.is í dag.

1. Helmingur kvenna er leita á kvennadeild hefur einhvern tímann orðið fyrir ofbeldi

2. Formaður LA segir af sér

1. Þessar tölur væri áhugavert að sjá í samhengi við yfirlýsingar frambjóðenda VG í kosningabaráttunni. Þessar staðreyndir væri áhugavert að ræða við yfirmenn félags og heilbrigðismála í landinu svo ekki sé talað um andstæðinga kynjajafnréttis.

2. Í ljósi dómsuppkvaðningar þarf formaður L.A. ekki að segja af sér. Enda eru engin fordæmi fyrir því að menn hafi sagt af sér eftir að hafa brotið jafnréttislög. Hins vegar er algerlega óviðunandi að framkvæmdastýra Jafnréttisstofu sé manneskjan sem braut jafnréttislögin og hún sýnir hvorki sér, Jafnréttisstofu né flokknum þar sem hún gegnir ábyrgðarstöðu sóma með því að sitja þar sem fastast.

Getur einhver upplýst mig um hvað þetta snýst um og af hverju ég er þarna ofarlega á lista???

14. júlí 2003

Ekki mundi ég vilja fá dóm eins og Haukur Már fékk í Mogganum í dag.

12. júlí 2003

Eins og ég sagði þá er ég í sumarfríi og færslur því óreglulegar.

Ég er nýkominn heim eftir ferð til Gunnarsstaða og Reykjavíkur. Það var stórskemmtilegt en ekkert sem kemur ykkur við.

Gingsengið virkaði eftir á að hyggja og aldrei tek ég þann óþverra aftur.

Uppgötvaði tvennt í ferðinni: DVD og Eminem. Hafði svo sem áttað mig á Eminem en aldrei gefið mér tíma til að hlusta almennilega. Keypti því þrjá diska í skífunni (fyrir 3000 kall) og ég get ekki hætt að hlusta.


Drug sickness got me doin some bugged twitches

I'm withdrawn from crack so bad my blood itches

I don't rap to get the women - fuck bitches

Give me a fat slut that cooks and does dishes

Never ran with a click - I'm a posse

Kamikaze, strappin a motherfuckin bomb across me

From the second I was born, my momma lost me

I'm a cross between Manson, Esham and Ozzy

I don't know why the fuck I'm here in the first place

My worst day on this earth was my first birthday

Retarded? What did that nurse say? Brain damage?

Fuck, I was born during the earthquake

1. júlí 2003

Þá er allt búið á milli mín og Kuffélagsins, ekki sakna ég þess. Í staðinn held ég til Gunnarstaða í heyskap og svo með Sigfúsi mínum kæra til Reykjavíkur á föstudaginn að ná í fjölskylduna.

Raftingið er úr sögunni því miður.

Ekki virkar þetta Ginseng baun í bala, ætla samt ekki að gefast upp alveg strax.