21. maí 2007
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:33
0
athugasemdir
3. maí 2007
Ég heiti Sveinn Hjörtur. Mig langar til að spyrja Steingrím J. Nú sagði Ögmundur Jónasson
að, hann hafði, gaf það í skyn að Guð ætti að forða bönkunum frá því að þið[VG]
komist til valda. Hvað felst í þessum orðum og hvað ætlið þið að gera gagnvart
bönkunum?”
Steingrímur svarar; “Viltu endurtaka það sem spurt er?
Ég svara Steingrími; “Viltu að ég spyrji þig aftur? Ögmundur Jónasson hann sagði að Guð ætti að forða þjóðinni og bönkunum frá því að þið komist til valda.Hvað ætlið þið að gera gagnvart bönkunum, skattamálum og annað. Hvaða orð eru að baki þessarar hótunar?
Steingrímur svarar; Já,jumm...ég sé að þú ert merktur Framsóknarflokknum það kemur mér ekki á óvart. En, Ögmundur Jónasson hefur að sjálfsögðu aldrei sagt þetta. Það var fjallað um það á hans heimasíðu að bankarnir yrðu að kunna sér hóf og mættu ekki ögra samfélaginu....[ svo segir hann meira, en ég fer ekki með það hér].Tekið af annars hreint stórkostlegri heimasíðu Sveins Hjartar...
Þetta frábæra atriði skattaþáttar Kastljóssins vakti mikla ánægju á mínu heimili og er í annars frekar leiðinlegri kosningabaráttu, lítill ljósgeisli. Auðvitað fjarlægði hinn vesældarlegi framsóknarmaður það skemmtilegasta úr frásögninni en það kemur svo sem ekki að sök og vel skiljanleg að hann vilji ekki halda á lofti því sem verður örugglega minnst sem alls annars en hápunkts á stjórnmálaferli hans.
En að öllu gamni slepptu var þessi spurning ákaflega barnaleg og bjánaleg og ég skil þetta einhvern vegin þannig að það fari fyrir brjóstið á fólki (lesist spunakerlingum og viðhlægendum þeirra) að Steingrímur hafi farið óvarlega að honum eins og að óvita eða litlu barni. En svo er ekki. Maðurinn er fullorðinn og greinilega sæmilega sjálfbjarga þannig að hann hlýtur að taka afleiðingum gjörða sinna sem voru þær að SJS vottaði honum samúð sína og sendi honum auðvitað tóninn fyrir sauðaskapinn og rangfærslurnar, fyrr má nú vera... En viðbrögðin "Steingrímur var vondur við mig" gefa svo sem ekki í skyn að þar sé á ferð ýkja þroskaður maður.
En þetta er ljómandi skemmtilegt allt saman og ekki síður gaman að sjá "The usual suspects" blása þetta annars ljómandi atriði upp í eitthvað stórmerkilegt samhengi. Þegar fátt er um aðföng eru afgangarnir notaðar. Það á víst (og ekki síst) við um Framsókn eins og aðra.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:10
4
athugasemdir
1. maí 2007
Opið bréf til Guðmundar Magnússonar, Björns Inga Hrafnssonar og allra þeirra sem málið varðar!
Kæri viðtakandi
Þolinmæði mín er mikil, en hefur sín takmörk eins og eðlilegt er. Mér finnst málið sem hér er til umræðu ekkert flókið. Þetta á að steinliggja fyrir hverjum sem vill gefa skynseminni gaum. En nú skal ég ítreka hið auglósa...Hver er munurinn á netlögreglu og umferðarlögreglu? Jú umferðarlögreglan fæst við þau lögbrot sem eina sér stað í umferðinni og netlögregla fæst við þau lögbrot sem eiga sér stað á netinu. Nú þegar rannsakar lögreglan glæpi sem framdir eru á netinu, hins vegar eru það aðilar innan margra deilda. Hugmyndir um að stofna þessa deild er hagsýn og stjórnunarlega hárrétt, það efast enginn um sem hefur lágmarksþekkingu á löggæslu og/eða stjórnunarfræðum. Ég minni á að lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins hefur lýst yfir ánægju sinni með tillögu Steingríms.
Nú ætla ég hvorki að væna þá sem hafa haldið uppi áróðrinum um fáfræði eða skort á fagmennsku, en maður spyr sig: Hvað gengur mönnum til með að gera eins lítið úr skynsemi sinni, faglegum vinnubrögðum og almennri þekkingu eins og raun ber vitni. Má allt víkja til þess eins að koma ímynduðu höggi og viðhalda ranghugmyndum?
[dæsa og blása eins og hvalur og draga úr von og trúnni á mannskepnuna...]
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:48
0
athugasemdir
Handsprengja í morgunsárið
Þetta á eftir að hljóma eins og klisjukenndur auglýsingatexti, en þetta er skemmtilegasta og vandaðasta ljóðabók sem ég hef lesið í langan tíma.
Ég fann bara eitt atriði sem ég hefði gert athugasemd við, hún er þessi:
Ljóðið "Þjónn það er hakakross á nasistafánanum mínum" e. Jón Magnússon, hæstaréttarlögmann og frambjóðanda ætti að sjálfsögðu að heita: "Þjónn það er hakakross á fánanum mínum".
Laga þetta næst Jón. :)
Til hamingju aðstandendur, ykkur er sannur sómu af verkinu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:49
2
athugasemdir