Hvað er að gerast? Páll Hilmarsson á frétt dagsins á Múrnum.
ps. gleðileg jól
28. desember 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:23
0
athugasemdir
20. desember 2002
Leiðari Gunnars Smára í Fréttablaðinu í dag er einhver sá ömurlegasti texti sem ég hef lesið í dagblaði (og er hann nú ekki á háu stigi fyrir). Það er með ólíkindum hvað menn leggjast lágt fyrir popúlistaflokk eins og Samfylkinguna. Málflutningurinn hefur ekkert með blaðamennsku að gera og er einvörðungu hugsaður sem áróður.
1) Í fyrsta lagi heldur GSE því fram að ISG sé "geymd" í stóli borgarstjóra til að skaða ekki Samfó og VG í þingkosningum. Hér kemur ekki fram að ISG tók þá ákvörðun óþvinguð að bjóða sig fram í borgarstjórnarkosningum. Hún samþykkti óþvinguð að gegna starfi borgarstjóra og er svo sannarlega frjálst að bjóða sig fram í þingkosningum (þrátt fyrir að hafa gefið hátíðlegt loforð um að gera það ekki) svo lengi sem hún gegni ekki starfi borgarstjóra um leið. ISG geymir engin nokkurs staðar og seint myndi hún samþykkja það sjálf. Það sama á við þegar GSE segir að ISG sé haldið "nauðugri í borginni". Hvað á maðurinn við? Er hann geðveikur?
2) ISG er samkvæmt GSE, eðli málsins samkvæmt í Samfylkingunni af því að Kvennalistinn gekk inn í Samfylkinguna á sínum tíma. Reyndar er það rétt að Samfylkingin sjanghæjaði helling af fólki inn í flokkin við stofnun sem var í ýmsum pólitískum samtökum og flokkum, að því forspurðu (þar á meðal undirritaðan) en ekki veit ég til að ISG hafi nokkurn tíman verið skráð í þann flokk og ævinlega verið þverpólitískur leiðtogi þriggja flokka í R-listanum. Hvað Kvennalistann varðar, þá gengu flokkskonur hans í alla flokka. Kvennalistakona var til dæmis áberandi í Sjálfstæðum konum um skeið. Fjölmargar konur streymdu í VG, Framsóknarflokkinn og jafnvel Frjálslyndaflokkinn. Það er því fáránlegt að setja samasemmerki á milli Kvennalistans og Samfylkingarinnar, en einstaklega típískt af krötum að slá eign sinni á allt sem þeir girnast.
3) Hér verð ég að koma með tilvitnun: "Viðbrögð þeirra Alfreðs og Árna afhjúpar líka ákveðinn veikleika í sjálfsmynd Framsóknar og Vinstri grænna. Til þess að koma Ingibjörgu á þing þyrfti Samfylkingin að hala inn rúmlega 40 prósent atkvæða í norðanverðri Reykjavík". Allt tal um veika sjálfsmynd er svo bjánalegt að maður hálfskammast sín fyrir að svara því. Samt sem áður pínist maður til að benda á að hvort ISG fari inn á þing eða ekki skiptir ekki máli. Það eitt að hún taki sæti á lista og gangi formlega í Samfylkinguna er ástæðan fyrir því að samstarfssamningurinn er ónýtur. Þetta skilur GSE örugglega þrátt fyrir barnaskapinn.
Þarf blaðið ekki að koma úr skápnum sem flokksblað Samfó? Er þetta heiðarlegt gagnvart lesendum og starfsmönnum (sem geta nú ekki allir verið jafn blindir aðdáendur Samfylkingarinnar eins og ritstjórinn)?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:04
0
athugasemdir
19. desember 2002
Mikið óskaplega ertu orðinn dulglegur að blogga Tryggvi. Ég sem hélt að þú værir aumingjabloggari. En það er nú alls ekki raunin.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:29
0
athugasemdir
Hvað er þetta "Error 503". Þegar maður smellir á [more info] koma bara upplýsingar um Error 502, ekkert um 503. Hvers konar vinnubrögð eru þetta!?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:19
0
athugasemdir
Eru allir hættir að blogga? Eða eru menn of uppteknir við að pirrast yfir borgarstjórafíflinu. Ég legg til að þetta kratalið verði sent út á hafsauga.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:16
0
athugasemdir
Hugmyndaauðgin er ekki að gera út af við mig þessa dagana.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:45
0
athugasemdir
Bond var góður. Ókei, jökulbrotsbrettafallhífin var fáránleg og allar Tolkienbækurnar til samans eru trúlegri en hin brennandi flugvél, en stundum verður maður að nota blinda augað (eða þannig), það vill svo til að ég á stundum gott með það. Söguþráðurinn hélt að minnsta kosti nokkrum millilítrum af vatni, það tókst ekki í síðustu mynd.
Enn betri voru fréttirnar sem ég fékk í morgun. Núna vil ég ekkert flytja úr landi og hlakka bara til að fara heim eftir jól, ég tala nú ekki um ef að góðu fréttirnar halda áfram að streyma inn. Ég verð þó að passa mig og muna að það var ekki fyrr en ég horfði ofan í hyldýpið að það byrjaði að rofa til. Kannski maður hafi annað augað á hyldýpinu enn um sinn, að minnsta kosti það blinda.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:23
0
athugasemdir
17. desember 2002
Það er ekki laust við það að mig langi til að flytja úr landi. Alla vega kemur það æ betur í ljós að það voru mikil mistök að flytja út á land. Ekki orð um það meir enda gæti ég misst stjórn á mér og það vil ég ekki gera.
PS. nennir einhver með á Bond í kvöld. Let me know. (Er að æfa mig í ensku áður en ég flyt úr landi...)
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:55
0
athugasemdir
16. desember 2002
Það var ekki laust við að mér fyndist ég vera partur af sögunni þegar ég var á leið til Hafnar fyrir helgi. Ég var nefnilega stoppaður í vopnaleitinni og tekin afsíðis af einhverjum valdsmannslegum öryggisverði. Hefði orðið skelkaður hefði hann ekki tilkynnt mér strax hver var ástæðan. Hann vildi nefnilega skoða naglaklippurnar mínar. Ekki taldi ég það vera mikið mál og dró mínar forlátu naglaklippur upp úr snyrtiveskinu í töskunni. Öryggisvörðurinn handlék naglaklipppurnar, tók út fjölina sem stundum liggur undir skaftinu og otaði naglaklippunum mínum út í loftið eins og hníf og sagði: nei, þetta er of langt. "Eigum við að taka þjölina af?" spurði ég í barnslegri einfeldni, og öryggisvörðurinn svaraði að bragði: "nei við tökum bara naglaklippurnar.
Ekki hvarflaði að mér að mótmæla þessari valdbeitingu en lét í stað vera að upplýsa um önnur lífshættuleg vopn í vopnabúri mínu eins og pennann sem ég hefði getað rekið mun dýpra í brjósthol fórnarlambs míns, trefillinn sem ég hefði getað vafið um háls einhverrar flugfreyjunnar eða 2.5 kílóa doðrantsins sem ég geymdi í bakpokanum og hefði vel geta lent í hausnum á tvemur eða þremur farþegum áður en ég yrði yfirbugaður af öðrum farþegum í fluginu. En það hefði líklega verið móðgun við höfundinn, Salman Rushdie, sem á betra skilið en vera notaður til að drepa eða örkumla saklausa íslenska farþega á leið til Kaupmannahafnar mildan fimmtudagsmorgun í desember.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:30
0
athugasemdir
14. desember 2002
Er innan um allra thjoda kvikindi i sudupottinum Kaupmannahofn. Veit ekki hvad eg er buinn ad heyra nallan oft sunginn og a hvad morgum tungumalum. U.t.b. 1000 manns eru ad motmæla a vegum SFU (Sosialiske Folkepartis Ungdom) i tengslum vid leidtogafundinn her i Kaupmannahofn og i heildina hafa liklega 15.000-20.000 manns farid ut a goturnar og latid heyra i ser.
Annars er thessi leidtogafundur ekki adalastæda veru minnar her. Heldur var fyrsti formlegi fundur SUN (Sosialistisk Ungdom i Norden) i thrju ar. Thad voru teknar mikilvægar akvardanir fyrir komandi tima og hellingur af hugmyndum komu fram. Thad eru bjartir timar framundan i althjodlegu starfi UVG.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:42
0
athugasemdir
5. desember 2002
Af mér er hins vegar að frétta að blakæfingin í fyrradag sem ég er enn að drepast eftir var hin besta skemmtun. Vitanlega klúðraði ég fyrsta tímanum með því að mæta í kvennatímann, en það var svo sem allt í lagi að spila með stelpunum þannig að þetta var kannski ekkert klúður þegar uppi var staðið. Í kvöld er hins vegar kallatími og þá kemur í ljós hvort maður er maður með mönnum, eða þannig.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:49
0
athugasemdir
Eitthvað er besti og frægasti bloggari Íslands að missa flugið. Það var svo sem heldur ekki við því að búast að það héldist að eilífu. Annars vissi ég svo sem alltaf að um leið og Stefán færi að trúa því í raun og veru að hann væri besti og frægasti bloggarinn á Íslandi (sem er óhjákvæmilegt) hættir hann að vera það. Svona getur lífið verið skemmtilega mótsagnarkennt...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:44
0
athugasemdir
4. desember 2002
Inuit Ataqatigiit bætti við sig tvemur þingsætum í gær og gleðjumst við vinstrimenn yfir því. Ég hitti nýjan formann flokksins Josef Motzfeldt í Finnlandi um daginn þar var mikið talað um að hann yrði næsti formaður landstjórnarinnar, svo verður hins vegar væntanlega ekki. Josef er hins vegar mikill töffari, miklu meiri töffari en Jonathan Motzfeld, fráfarandi formaður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:40
0
athugasemdir
Við mig hafði samband Þórarinn nokkur Leifsson (totil) vegna bókaumfjöllunar. Tóti er með massa bókaumfjöllun á sinni síðu www.totil.com og lætur sér fátt fyrir brjósti brenna. Ég hitti Tóta í afmæli Öglu vinkonu okkar, þá nennti hann nú ekki mikið að spjalla.
Ég er ekki sammála skoðun hans á HHP en hins vegar deili ég skoðun hans á Dís. Mikið vildi ég að ég væri nýbúinn að lesa Dís þá gæti ég rakkað hana niður í sitt verðskuldaða svað. Ég get kannski notað tækifærið og lesið Beturokk og rakkað hana niður í svaðið. Kristján B. nær einhvernvegin bara að gefa út drasl.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:26
0
athugasemdir
Get nú ekki látið hjá líðast að minnast á nýjasta diskinn. Erpur og Rottvælararnir eiga sviðið í mesta brilljans sem riðið hefur hefur yfir landan síðan Bubbi var reiður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:06
0
athugasemdir
Enn hefur bæst á náttborðið þar sem ég fór á bókasafnið í gær. Er annars að klára Vorhænuna og nýja bestsellerinn hans JPV: Artemis Fowl, Samsærið. Þessi er ágæt en fyrsta bókin var miklu betri. Ástæða þess að ég skellti mér í léttmetið er að Stefán Máni var að gera út af við mig með Hótel Kaliforníu, en eitthvað segir mér að bókin gæti tekið við sér þannig að ég set hana á salt. Beckett er ókláraður en þrátt fyrir það bætti ég Jörðin undir fótum hennar í staflann í einhverju stundarbrjálæði, enda um að ræða ansi veglegan hlunk. Auk þess bættist bættist bókin Beint af augum e. Raymond Carver sem reyndist síðan vera Short Cuts sem ég nenni ekki að eyða dýmætum tíma í. Þannig að Rushdie er næstur á dagskrá og síðan getur maður væntanlega farið að grynnka á jólabókaflóðinu.
Jamm
Ég viðurkenni að hafa farið nokkru offari í ummælum mínum um Mikael Torfason um daginn. Komið hefur í ljós að gífuryrðin eiga við lítið að styðjast og lesist því með hliðsjón af þessari leiðréttingu.
Öll ummæli sem ég hef um bækur verða ekki tekin aftur enda algjörlega laus við fordóma, nema annað sé tekið fram.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:43
0
athugasemdir
1. desember 2002
Skrapp á nokkra fundi inn á Akureyri í gær og skemmti mér ágætlega. Þarna var um að ræða fundi hjá SHA, UVG og skemmtikvöld VG á Akureyri. Við landsbyggðarmenn látum okkur nú ekki muna um að þeysa yfir í aðra landshluta, enda bara um smá skrepp að ræða. Svo er ég náttúrulega á svo forlátum fjallabíl að það hálfa væri nóg. Þegar heim var komið keyrði fjölskyldan svo niður í Skriðuklaustur til að vera viðstödd Grýlustund, en keyrðum á leiðinni fram á sokkin veg þannig að veg stikurnar rétt náðu upp úr. Fyrir fortölur HBR reið ég ekki á vaðið (náttúrulega á fjallabíl og hefði alveg getað tekið þetta á ferðinni eða bara siglt yfir á 33 tommunum. En frúin tók ákvörðun um að snú við og að sjálfsögðu var ekki amast við því. Við komum því seint á Grýlu en fengum okkur í staðin kakó og kræsilegar veitingar úr jólahlaðborði. Já, það er alltaf gott að koma á Skriðuklaustur.
Ps. Glettingur er áhugavert tímarit. Það væri gaman að geta kynnst því betur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:05
0
athugasemdir