Engin jólakort frá mér þessi Jól. Þess í stað sendi ég kærar kveðjur til fjölskyldu, vina og kunningja nær og fjær.
Hátíðirnar eru tiltölulega lágstemdar í ár.
Þess í stað boða ég stórviðburði í janúar.
Meira um það síðar.
24. desember 2003
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:01
0
athugasemdir
18. desember 2003
Próf og Klængur
Þegar ekki var svona langt liðið fram í desember var ég hæstánægður með að próftímabilið mitt hafði dregist langt yfir í janúar á næsta ári og því gæti ég sannarlega tekið mér tíma í að lesa og dundað mér við að leysa verkefni eftir "behag" fram í nýárið. Nú hefur komið í ljós (eins og marga hefði líklega grunað og ekki síst mig) að verkefnin hlaðast upp og lestur fyrir próf frestast sjálfsagt þangað til ég stend frammi fyrir því að hundskast í það morguninn eftir. Svo er nú það. Gervallt jólafríið virðist því ætla að fara í að liggja yfir bókum sem er ekki svo hræðilegt í sjálfu sér, nema hvað að ég ræð ekki tíma mínum eins og áður var, "sem betur fer" hugsa ég stundum, en "því miður" leyfir maður sér að hugsa þegar enginn heyrir til.
--------------------------
Klængur sniðugi virðist ætla að láta á sér kræla. Fjölskyldan hefur gengið í gegnum þó nokkur áföll út af þessum þætti og eru þau flest tilkomin vegna þess að einhverra hluta vegna hefur farist fyrir að kveikja á sjónvarpinu kl. 18.50 sem er illfyrirgefanlegt. Önnur áföll höfum við foreldrarnir gengið í gegnum þegar a) við komumst að því að Rúv hefði logið því að þættirnir yrðu finnanlegir á netinu. Og b) þegar við komumst að því að þættirnir eru ekki endursýndir kl. 16.50 heldur forsýndir. Það er náttúrulega undarleg ráðstöfun að forsýna þættina áður en þorri barna, sem hafa vit á því að kvarta þegar þau missa af þætti, kemur heim úr leikskóla. Raunar hef ég enga hugmynd um hvaða hagnýta gildi slíkt á að hafa eða hvaða átæður hafa ráðið gjörningnum. Hitt er ólíkt vitsamlegra að endursýna þátt gærdagsins til að foreldrum gefist færi á að taka þáttinn upp (enda vita allir að almennilegir foreldrar festa sig ekki í 9-5 vinnu ef að slíkar aðstæður gætu komið upp). Sem sagt svikin loforð og lítt gáfulegar forsýningar. Af hverju stígur Rúv ekki varlega til jarðar í kringum mestu tilfinningaverurnar í hópi áhorfenda, börnin, sem geta ekki undir nokkrum kringumstæðum hætt að skæla eftir að hafa misst af Klæng og félögum og sýna engan skilning á aumlegum afsökunum foreldranna?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:59
0
athugasemdir
16. desember 2003
Ef einhver hefur verið svo forsjáll að taka upp þættina af Klæng sniðuga og félögum þá má sá hinn sami gjarnan láta mig vita...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:03
0
athugasemdir
15. desember 2003
"Guðmundur Andri hefur í viðtölum til kynningar bókinni verið duglegur við að benda á að sósíalisminn hafi reynst ófæra og þeirri tilraun sé nú lokið. Hún hafi mistekist."
Ég vil hiklaust taka undir með skörpum gagnrýnanda Kistunnar, Guðmundur Andri Thorsson hefur með bók sinni búið til nýjan skilning, hann hefur hjálpað okkur að horfast í augu við hinn beiska sannleika að sósíalískum tilraunum á Íslandi og jafnvel gervöllum heiminum sé lokið. Þetta áður óþekkta innsæi, þessi ósérhlífni, þessi óvissuferð Guðmundar Andra niður í myrk hyldýpi íslenskrar þjóðarsálar verður seint ofmetin. Höfundurinn tekst á við mikilvægustu spurningu veraldarsögunnar: Er sósíalisminn ekki bara ófæra? Er sósíalískum tilraunum ekki loksins lokið?
Ég spyr! Hvar væri íslenska þjóðin, íslensk hugsun og íslensk tunga ef Guðmundar Andra, holdgerfings Íslenskrar snilldar, hinnar íslensku bókmenntahefðar, nyti ekki við? Guðmundi Andra verður seint fullþakkað það mikilvæga framlag að taka á þessu óbærilega og óþægilega máli. Og leyfi ég mér að fullyrða að brotið hefur verið blað í skáldsagnagerð nútímans.
Rétt er að taka það fram í lok þessarar fátæklegu umfjöllunar sem er langt í frá þess verð að gera stórkostlegri bók Guðmundar Andra Thorssonar skil, að bókin Náðarkraftur er vel stíluð!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:02
0
athugasemdir
11. desember 2003
Hver hefði trúað þessu, hefði kannski átt að fara í lyfjafræðina. Annars langaði mig alltaf að verða leikari, en lét að sjálfsögðu ekki eftir mér enda bara ávísun á atvinnuleysi. Samt er ég sannfærður um að hefði orðið góður leikari. Jafnvel afburðarleikari, en kemst víst aldrei að því úr þessu. Ein af sorglegu staðreyndum lífsins er að eftir tvítugt byrja möguleikarnir í lífinu, einn af öðrum, að hverfa, tækifærin til að rækta hæfileikana fara forgörðum þangað til að um þrítugt að maðurinn er dæmdur til að halda sig við það sem maður hefur þegar lært. Ég hefði getað orðið svo margt en horfði þess í stað á árin líða framhjá eins og fljót í leysingum. Á mínum æskuárum var ég sannfærður um að ég hefði getað orðið úrvals söngvari, hljóðfæraleikari, íþróttamaður, skáld, heimspekingur og hugsuður, meira að segja arkítekt. Já og gott ef ekki ráðherra. En eftir því sem árunum vindur fram og ellimerki taka að láta á sér kræla horfir maður á tækifærin fljóta fram hjá án þess svo mikið að gefa mér eina einustu augngotu, eins og ég sé ósýnilegur. Og þegar aldurinn færist yfir hægt og örugglega finnur maður hvernig hann nær tökum á líkamanum, með tilheyrandi hrörnun og svefnleysi, svo maður tali nú ekki um getuleysi og þvagteppur.
Ó, hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað.
Ég get samt huggað mig við að ég er Sanguie, hvað sem það nú þýðir.

You are Sanguine. Warm, outgoing, and friendly,
you are the life of the party. Your carefree
nature can make you unpredictable and restless,
however, and you tend to be disorganized,
easily distracted, and even undependable.
Passionate and hot-tempered, you have a lust
for life in all its forms. Your creativity
makes you a good starter but a poor finisher.
Sanguines should look at careers in sales,
acting, public speaking, and the medical
profession.
Which of the Humours are you?
brought to you by Quizilla
Já það þýðir sem sagt: bjartsýnn; rjóður; hraustlegur; léttlyndur.
Je, right
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:27
0
athugasemdir
8. desember 2003
"hver hefur ekki staðið sig að því að toga í stýrið þegar maður þarf skyndilega að bremsa, eða ýta á það til að hraða á skrjóðnum?"
Ja, ekki ég, en þetta ætti í öllu falli að skýra litskrúðugan ökuferil Kristbjarnar...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:27
0
athugasemdir
Maður ætti kannski ekki að vera að blogga í miðju heimaprófi. Ég stelst nú til þess samt. Frómt frá sagt gengur mér bærilega búinn með 55% ca. og á eftir eina 25% spurningu og case stúdíuna. Hún verður lítið mál og ég held ég sé búinn að finna efnið í spurninguna sem ég á eftir, annars gæti það tekið smá tíma. Vandamálið við þessi helv. heimapróf er að finna efnið sem maður ætlar að nota. Vonandi verð ég búinn fyrir miðnætti þannig að ég geti byrjað að fara yfir textann, svo endar maður á því að breyta og bæta út í rauðann dauðann.
Chao bella
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:05
0
athugasemdir
7. desember 2003
Ég hef verið sakaður um að vera skemmtilega tilgerðarlegur. Nú spyr ég lesendur: Er þetta hrós eða last. Ég tek þessu vitaskuld eins og mér þóknast en lesendur eru hvattir til að taka afstöðu til þess hvort:
1) menn séu loksins að fatta.
2) ég sé misskilinn listamaður.
3) ég sé bara misskilinn.
4) allt sé komið í hring og enginn viti nokkuð hvað er um að vera nú sem fyrr....
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:03
0
athugasemdir
Dagný Jónsdóttir hefur svarað:
Sæll.
Þakka þér þá athygli sem þú sýnir heimasíðu minni. Læt fylgja hér með nokkur orð sem ég setti niður til að svara pósti þínum:
Ég vil taka fram hér að gefnu tilefni vegna orða minna um að ég tilheyri stjórnarliðinu á Alþingi Íslendinga að það er ástæða fyrir því að maður tilheyrir flokki. Ástæða þess að ég fylgi Framsóknarflokknum og er fulltrúi hans á þingi er sú
að ég fylgi stefnu hans samkvæmt minni sannfæringu. Því hlýtur það að vera nokkuð eðlilegt að ég fylgi honum í atkvæðagreiðslum á þinginu þar sem verið er að framfylgja stefnu hans. Það er alveg klárt að ef flokkurinn færi fram með mál sem ekki fylgdi stefnu hans og það færi gegn sannfæringu minni þá fengi viðkomandi mál ekki atkvæði mitt. Reyndar tel ég hæpnar líkur á slíku. Við getum tekið sem dæmi mál sem hefur komið fram um að selja Ríkisútvarpið. Ég að sjálfsögðu studdi það mál ekki þar sem það stríðir gegn sannfæringu minni og er á móti stefnu flokksins. Enda
styður það enginn þingmaður Framsóknarflokksins.
Ég ætla að birta hér niðurlag skrifa minna á heimasíðunni um daginn, því ég held að menn hafi gott af því að lesa þau til enda: Það er morgunljóst að afar þægilegt er að velja út vinsælu málin, leggja til aukin útgjöld til þeirra en segja ekki hvar eigi að skera niður á móti. Ég mun auðvitað berjast áfram fyrir málefnum skólanna eins og ég hef alltaf gert. Við verðum þó að setjast niður og ákveða hvert við ætlum að stefna í menntamálum. Aukinn fjöldi nemenda t.d. heimtar aukin útgjöld og nú eru skólarnir fleiri þ.a. ríkisframlög dreifast á fleiri hendur. Framsóknarflokkurinn samþykkti á miðstjórnarfundi í
síðasta mánuði að fara í slíka stefnumótunarvinnu varðandi menntamál. Ég bind miklar vonir við þá vinnu og sit einmitt í undirbúningshópi varðandi hana.
Góðar kveðjur,
Dagný Jónsdóttir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:00
0
athugasemdir
6. desember 2003
Nú eipa ég sem aldrei fyrr, enda að lesa fyrir próf.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:58
0
athugasemdir
Guðni Ágústsson um mótmæli Öryrkjabandalagsins vegna nýlegra samningsrofa:
Allt eru svik og heiðarlegir menn eru bornir þungum sökum. Þjóðin veit að Jón Kristjánsson segir satt. Hann er maður orðsins. Ég segi við forsvarsmenn Öryrkjabandalagsins: Guð fyrirgefi ykkur. Þið vitið ekki hvað þið eruð að gjöra.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:55
0
athugasemdir
Þetta er Himmi bróðir (Palla)...
Þetta er Friðgeir frændi (líka bróðir Palla)...
Þeir eru voða sætir en þetta er samt svoldið krípí eh?
(Fyrir þá sem ekki þekkja til þá eru mennirnir alls óskyldir.)
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:40
0
athugasemdir
Hef sent eftirfarandi tölvupóst til Dagnýjar Jónsdóttur og hvet alla til að gera slíkt hið sama.
Sæl Dagný Jónsdóttir.
Ég sendi þér 48. grein stjórnarskránnar þér til áminningar í tilefni af eftirfarandi orðum þínum:
Það sem mér þótti skrítið var að stjórnarandstöðuþingmaðurinn sem hana ritaði virðist ekki gera sér grein fyrir að á þingi eru tvö lið og eins og staðan er núna er ég í stjórnarliðinu. Í þessu felst enginn hroki, bara staðreynd og maður fylgir sínu liði.
48. gr. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.
Ég legg áherslu á að þarna stendur SANNFÆRINGU SÍNA, ekki síns liðs.
Kveðja, Þór Steinarsson
ps. Ég áskil mér fullan rétt til að birta svar þitt, ef eitthvað verður, á heimasíðu minni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:17
0
athugasemdir
Þegar Samfylkingin er ekki að brjóta blað í íslenskri stjórnmálasögu eða valda tímamótum að öðru tagi þá setur hún málin í nýtt sviðsljós. Ég veit hreinlega ekki hvað yrði um íslenskt mál ef að Samfylkingarinnar og hógværðar hennar nyti ekki við, svo ég tali nú ekki um magnþrungið vald forkólfa hennar á tungumálinu.
Svo ég staldri aðeins við hetjurnar mínar í Samfylkingunni þá er gaman að sjá hvernig Ingibjörg Sólrún nýtur sín eftir að hafa komist í langþráð frí frá amstri stjórnmálanna. Nú síðast situr hún í dómnefnd íslensku bókmenntaverðlaunanna þrátt fyrir að hafa ekki komið svo mikið sem nálægt faginu öðruvísi en leikmaður. Fjölæfninni eru engin takmörk sett og ég sting upp á að Sólrún verði næsti fulltrúi okkar í Júróvisjón enda fátt sem henni er ekki til lista lagt. Svo var ég að frétta af því að Íslendingar séu að sækjast eftir því að taka þátt í geimáætlun Evrópu og legg ég einni til að Sólrún verði einn af fulltrúum okkar þar. Hún ætti að vera landi og þjóð til sóma og gott ef hún er ekki fullfær um að skella sér í eins og eina geimferð...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:13
0
athugasemdir
Er ég í hættulegum leik?
opnandi fyrir leið að hjartanu
svo hver sem er geti kramið það
í krepptum hnefa?
ef svo er þarf ég ekki að gæta mín
því engin veit leiðina að hjarta mínu
ekki einu sinni ég.
Er ég búinn að snúa á konseptið
tískubóluna sem hellist yfir mannfjöldan
stendur eins og everest yfir hinum ögruðu
snýr mönnum í hringiðu ímyndaðs hrings
meinta miðju sem er kannski ekki og í öllu falli
eins og hvert annað sólkerfi í alheimi mannlífsins
þarf að fylgja reglum?
eru þær til staðar?
eru þær "almennt" eða " þögult" samþykki þátttakenda?
hví stöndum við ekki öll utan við það og búum til eitthvað
úr því að tækifærið býðst á annað borð?
handan góðs og ills
handan okkar og ykkar
og úr því að ég spyr á annað borð:
hvað les fólk?
hverju trúir fólk?
hverju vill það trúa?
af hverju í ósköpunum stend ég í þessu
endalausa rúnki?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:57
0
athugasemdir
5. desember 2003
blogg er sjálfhverfa
óþolandi rúnk
búinn að fá nóg af þessu
þótt fyrr hefði verið
af hverju þarf að auglýsa
hvaða fjandands bíómynd einhver fór á
eða hvaða bók hann var að lesa
eða hver var í heimsókn
eða að einhver hafi farið með bílinn í smurningu
ræpa
þess í stað á að
lesa meira
rækta sjálfan sig
finna tilgang í meinlætalifnaði
og ölva sig þess á milli
á víni
skáldskap
eða dyggðum
allt eftir geðþótta
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:19
0
athugasemdir
4. desember 2003
ég hef snúið aftur
hef ekkert að segja svo sem
nema þetta
þráðlaus tækni er góð
og
austurlandið er ægifagurt
sérstaklega þaðan sem ég sit
og
mér finnst kaffi gott.
myrkur
og snjór
og nagladekk
og bilaðir prentarar
svíng sjúbb darí darí
nei ég er ekki geðveikur
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:42
0
athugasemdir

