Hún vekur athygli mína, sú frétt í Fréttablaðinu, að fólk hafi umvörpum fallið í ómegin á Austurvelli á 17. júní hátíðarhöldunum. Blaðið gengur út frá því að hitinn og mannfjöldinn hafi orsakað þessi viðbrögð hátíðargesta, en það verður að telja ólíklegt að tæplega 20 stiga hiti slökkvi á meðvitund landans.
Það sem Fréttblaðið áttar sig ekki á, en kemur samt óbeint fram í frásögninni, er að yfirliðin hafi orsakast af annars konar áreiti. Þannig segir í fréttinni að skáti hafi hnigið út af "stuttu eftir að forsætisráðherra hafi hafið ræðu sína og svo þegar nokkuð var liðið á ræðuna hneig eldir maður niður. Alls féllu fimm manns í öngvit."
Hér liggur beinast við að ætla að vesældarlegur 20 stiga hiti geti varla gerst svo aðgangsharður við meðvitund fólks að undan þurfi að láta. Mun líklegra er að svo mjög hafi dregið af fólki undir ræðu Halldórs Ásgrímssonar að fólk hafi hvert af öðru fallið í yfirlið.
18. júní 2005
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:26
0
athugasemdir
15. júní 2005
Opinberun hins hreina líkama
Heiðruðu lesendur, þeir sem fást við fegurð skulu gera það af heilindum. Sá sem fæst við að rækta jörðina vinnur ekki að því að fá viðunandi sprettu, sá sem yrkir líkaman gerir það ekki til að öðlast hálfgildis heilbrigði og sá sem elur upp börn vinnur ekki að því að skila af sér sæmilega hæfum einstaklingi.
Sá sem brýnir tungumálið gerir það ekki til að komast hálfa leið í leit sinni.
Við höfnum hálfgildings nálgun og leggjumst gegn því að sá sem kallar sig skáld en gerir það aðeins til hálfs fái að kalla sig skáld. Við tökum réttindi textans fram yfir skáldsins rétt eins og réttindi barnsins fram yfir foreldrisins.
Til þess að öðlast vald yfir textanum þarf skáldið að öðlast vald yfir sjálfum sér, til þess að öðlast vald á sjálfum sér þarf skáldið á öllum sínum hugsunum að halda og kröftum.
Blásum í herlúðra, höldum í átt að hinu hreina tæra og fagra og slátrum öllu því sem verður á vegi okkar.
Vígbúumst!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:41
0
athugasemdir