31. mars 2003

Hieronymos er aftur orðinn geðveikur!

Við erum að renna inn í tíma siðleysis, mannvonsku og fasisma og rétt til að minna mig á það mætir mér aldrei nema rok þegar ég legg af stað til vinnu á morgnana. Dag eftir dag dynja ekkert á mér nema stríðsfréttir, dag eftir dag hugsa ég ekki um neitt nema þetta helvítis stríð. Og til að kóróna allt las ég að veðurstofan hafi staðfest orð T.S. Eliot að apríl sé grimmastur mánaða.

Ég hef hinsvegar komist að því að undangengnum rannsóknum að maðurinn er ekki alltaf einn og tilvistarkreppu og stríðsþunglyndi má skjóta á frest ef ekki bara stinga undir kodda því að vinir mínir Stilnoct og Zoloft ætla að vera með mér í baráttunni og saman getum við lesið Eyðilandið aftur og aftur á meðan BBC malar endalaust á skjánum: shantih shantih shantih...

30. mars 2003

...og nú er byrjað að hvessa aftur á hér á Egilsstöðum. Andskotinn, ég er alveg að gefast upp á þessu.

Fór enn eina ferðina til Akureyrar á föstudaginn og kom heim í gær í grenjandi blindbyl á Möðrudalsöræfum og í Jökuldal. Í svoleiðis aðstæðum er gott að vera á jeppa en samt er óhjákvæmileur galli að bíllinn er vel rúmlega tvö tonn svo að lítið þarf að bera út af til að bílinn fjúki af veginum á nítíu kílómetra hraða á klukkustund í hálku og leiðindafærð.

Jamm, alltaf gaman að blogga um bílinn sinn.

Ég keypti nýja Cardigans diskinn áður en ég hélt í hann á föstudaginn og hef hlustað á hann látlaust síðan. Skarphéðinn Guðmundsson á Mogganum gaf honum fína dóma og diskurinn stendur fyllilega undir því. Hins vegar er annað sem ekki er síður vert að geta og það eru textar Ninu Persson. Ekki hvarflaði að mér að frá þesari poppsveit gætu komið eins harðir, beinskeittir og vel gerðir textar þar sem staða kynjana er m.a. skoðuð út frá kaldri og nakinni tilvistarhyggju. Meðhöndlun Ninu á heimilsofbeldi fær svo víðari skírskotun núna á tímum stríðs þegar hún myndgerir konun sem land sem karlinn brýtur undir sig með tilheyrandi sprengjuregni og kúlnahríð. Það sem gefur textunum svo aukið vægi er hvernig þeir haldast í hendur efnislega og gera plötuna hálf tematíska fyrir vikið. Hlustandinn getur síðan opnað fyrir alls konar túlkandir með ýmiskonar venslum og textatengslum innan verksins. Eftir nána íhugun fær diskurinn fullt hús stiga og þar munar ekki síst um texta Ninu Persson.

Bætti inn nokkrum tenglum.

T.d. stríðsfréttum sem ættu að vera nokkurn vegin ómengaðar þótt að ég hafi ekki kannað það til fulls.

Kim Jong Il veldur ekki vonbrigðum enda ótrúlega hnyttin maður á ferð. Ég vissi ekki að líf einræðisherrana væri svona trivial.

Gunnþóri vini mínum sem ég hélt að væri í tveggja ára túr kringum hnöttinn en varð síðan ástfangin á íslandi og stytti ferðina um nítján mánuð. Bjáni. Gunnþór er samt einn af fáum snillingum í röðum hægri manna og náttúrulega ekkert nema gott um það að segja.

27. mars 2003

Nokkuð hefur borið á fréttum af samtökunum The Project for the New American Century . Þessi mál eru mikið rædd í bloggheimum og víðar á internetinu þótt lítið sé enn um fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af málinu. Nú síðast skrifar Ögmundur Jónasson um fyrirætlanir bandarískra ráðamanna í varnar og utanríkismálum sem miða að því að heimsbyggðin snúist í kringum hagsmuni Bandaríkjanna og verði að öðrum kosti barin til hlýðni. Ég hef áður minnst á grein Richards Pearl um Sameinuðu þjóðirnar, en get varla láti staðar numið við það. Þessi blaðagrein gerir nánari grein fyrir því sem Ögmundur og fleiri hafa gert að umtalsefni. Og hér er tengill á skýrsluna sem stríðsherrarnir gáfu út og fjallar um framtíðar"varnir" Bandaríkjanna eða öllu heldur vígvæðingu Bandaríkjanna og skotmörk, svo sem Líbíu, Íran og Norður Kóreu.

Svo ber einnig að benda á þessa grein þar sem inniviðir Bush stjórnarinnar eru tíundaðir.

Allir koma þessir tenglar frá veftímaritinu Information Clearing House og eru lesendur hvattir til að venja komur sínar þangað. Þó eru greinarnar hér að ofan ekki allar skrifaðar af sömu blaðamönnunum heldur fengnar af ýmsum ólíkum fréttamiðlum.

Og svo sakar ekki að kíkja líka á Jónas.

Einar Bjarni bætist í frændgarðsbloggið, þótt við séum bara mægðir svona rétt tæplega. Einar er eini maðurinn sem ég veit um sem ber þess greinileg merki að vera kominn af víkingum.

26. mars 2003

Frændgarðurinn þeysir fram á bloggvöllinn, sem er náttúrulega hið besta mál, enda hefur mig alltaf langað til að fá díteils úr hanastélspartíunum. Stefán frændi minn er sem sagt hérna og Helga fallega konan hans er hérna.

„Fólk hefur áhyggjur af því að Vesturlönd hafi gerst sek um tvískinnung, með því að segja annars vegar að fara verði að ályktunum Sameinuðu þjóðanna varðandi Írak en vísa á hinn bóginn til óraunsæis varðandi framkvæmd ályktana um Ísrael og Palestínu," sagði [Straw].

Þegar ráðherrann var spurður að því hvort hann hefði gerst sekur um tvískinnung svaraði hann: „Upp að ákveðnu marki, já." Þá sagði hann bresku ríkisstjórnina ætla að taka á því máli.


Þetta er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi og furðulegt að Straw skuli loksins núna sýna lit eftir áralangar ábendingar um tvískinnung vesturlanda gagnvart ísrael annars vegar og Írak hins vegar. Maður kemst ekki hjá því að álíta manninn annað hvort í skrítnum áróðusleik eða hreint og beint fábjána.

25. mars 2003

Þegar Blair var spurður út í ógnvekjandi myndir af saklausum fórnalömbum stríðsins í Írak, sérstaklega börnum, svaraði hann að allt væri gert til að hlífa óbreyttum borgurum.

Nú er erfitt að átta sig á hvort að varpa klasasprengjum á íbúðarhverfi flokkist undir svoleiðis pælingar eða þá notkun sprengja með sneiddu úrani. Notkun svoleiðis sprengja hefur í för með sér gríðarlega aukningu á hvítbæði og svoleiðis sjúkdómar herja ekki sérstaklega á hermenn eða beina þáttakendur í stríði, þvert á móti verða börn sérstaklega fyrir þessum sjúkdómi.

Ef einhver hefur tekið mark á þvaðrinu í Tony Blair hingað til þá er honum óhætt að hætta því núna!

24. mars 2003

Þetta er sem sagt félagsskapurinn sem stefnir leynt en þó umfram allt ljóst að heimsyfirráðum Bandaríkjanna. Og þetta eru engin leynisamtök því þau eru virðist vera ráðgefandi nefnd fyrir Pentagon. Og hér er greinin sem Richard Pearl skrifaði í Spectator um Sameinuðu þjóðirnar.

BNA: HÓPUR HARÐLÍNUMANNA SEGIR AÐ DAGA SÞ SÉU TALDIR
“Sameinuðu þjóðirnar eru dauðar - Guði sé lof." Þetta er fyrirsögn á grein sem Richard Perle, formaður varnarmálanefndar Hvíta hússins, skrifar í nýjasta tölublað Spectator.
Perle segir að ógnarstjórn Saddams Hussein sé að líða undir lok og að Saddam taki Sameinuðu þjóðirnar með í fallinu. Menn muni reyndar blaðra áfram og sinna friðargæslu en tálsýnin um SÞ sem grundvöll nýrrar heimsskipunar sé dauð.
Perle stofnaði félagsskapinn “Áætlun um nýja öld Bandaríkjanna” fyrir 6 árum með Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra BNA, Paul Wolfowitz aðstoðarutanríkisráðherra og Jeb Bush, forsetabróður. Þessi hópur stefnir að fullkomnu og varanlegu forræði Bandaríkjanna; að Bandaríkin verði ósigrandi á öllum sviðum.
Takmark þeirra er að setja upp herstöðvar um allan heim og lokatakmarkið er "frelsun Kína" eins og þeir orða það. Írak hefur frá upphafi verið fyrsta skotmark hópsins.


Þetta er áhugavert, kemur ekki mikið á óvart en er engu að síður mjög áhugavert. Áform USA um að ráðast inn í Kína hafa verið rædd en ekki mikið opinberlega enda er hugmyndin svo brjálæðisleg að menn eru hræddir um að verða stimplaðir fávitar ef þeir láta hafa þetta eftir sér. Engu að síður virðist planið hafa verið að ráðast á Írak svo Norður Kóreu og síðast Kína. En það endar ekki án þess að nokkrar kjarnorkusprengjur falli. Menn geta prufað að setja þetta í samhengi við þróun geimvarnaráætlunarinnar og þróun svokallaðra vígvallarkjarnorkuvopna, sem hafa lítinn sprengjuradíus.

Það verður spennandi að vita hvort að íbúar vestrænna lýðræðisríkja eins og Bandaríkjanna, Bretlands og jafnvel Íslendingar láta stjórnvöld sín komast upp með að leggja grunn að þeirri ógeðfelldu heimsmynd sem blasir við ef hugsanir Rumsfeld, Bush og Wolfowitz og Richard Perle og félaga þeirra fá að verða að veruleika.

Eins er fyrirsögnin áhugaverð. Það vefst ekkert fyrir RUV að það eru harðlínumenn við stjórnvölin í USA.

21. mars 2003

Það er aldeilis dugnaður og framtakssemi í þessari húsmóður. Nú legg ég til að hún setji á laggirnar alþjóðleg samtök sem berjast gegn barnaklámi í útvarpi, leikhúsi, kvikmyndum og öðrum listformum og miðlum. Hún getur t.d. byrjað á Lukas Moodysson sem leikstýrði barnakláminu Lylja 4 ever. Svo er náttúrulega furðuverkið Larry Clark sem leikstýrði barnakláminu Kids, hann ætti líka að fara í fangelsi þar sem lyklinum væri hent, er það ekki. Svo má ekki gleyma American Beauty og glæpamanninum Sam Mendes. Atriði í þeirri mynd eru vægast sagt á gráa svæðinu, örugglega betra að vera með vaðið fyrir neðan sig og láta hann líka rotna í fangelsi.

Annars ætti ég ekki að vera þenja mig um þetta mál þar sem ég heyrði ekki útvarpsleikritið hans Jóns Gnarr, en það gerði húsmóðirin reyndar ekki heldur, svo...

Það kemur æ betur í ljós hverslags ógn heimsbyggðinni stafaði af Íraska hernum.

20. mars 2003

Eiga þessar opnuauglýsingar frá kvenframbjóðendum í Sjálfstæðisflokknum að telja okkur trú um að hlutur kvenna í flokknum sé eitthvað merkilegur? Það er hæpið að nokkur falli fyrir því nema kannski konurnar á auglýsingunni.

Kjarnorkustríð?



Hvers vegna er verið að gera sérstaklega grein fyrir þessum vopnum. Er allt í einu sjálfsagt að nota kjarnorkuvopn í stríði? Erum við hugsanlega að upplifa kjarnorkustríð? Ef svo er þá er Bush búinn að slíta sig algerlega frá alþjóðasamfélaginu og einangra Bandaríkin frá umheiminum, nema kannski Íslandi, maður veit aldrei.

Aukablaðið hittir oft naglann á höfuðið. Tékkitt

Þá veit maður hverjir vinna Júróvisjón... Officially: Tatu to Eurovision for Russia

Michael Moor, velþekktur bandarískur vinstrimaður, birti nýlega eftirfarandi bréf á heimasíðunni sinni.

Dear Governor Bush:

So today is what you call "the moment of truth," the day that "France and the rest of world have to show their cards on the table." I'm glad to hear that this day has finally arrived. Because, I gotta tell ya, having survived 440 days of your lying and conniving, I wasn't sure if I could take much more. So I'm glad to hear that today is Truth Day, 'cause I got a few truths I would like to share with you:

1. There is virtually NO ONE in America (talk radio nutters and Fox News aside) who is gung-ho to go to war. Trust me on this one. Walk out of the White House and on to any street in America and try to find five people who are PASSIONATE about wanting to kill Iraqis. YOU WON'T FIND THEM! Why? 'Cause NO Iraqis have ever come here and killed any of us! No Iraqi has even threatened to do that. You see, this is how we average Americans think: If a certain so-and-so is not perceived as a threat to our lives, then, believe it or not, we don't want to kill him! Funny how that works!

2. The majority of Americans -- the ones who never elected you -- are not fooled by your weapons of mass distraction. We know what the real issues are that affect our daily lives -- and none of them begin with I or end in Q. Here's what threatens us: two and a half million jobs lost since you took office, the stock market having become a cruel joke, no one knowing if their retirement funds are going to be there, gas now costs almost two dollars -- the list goes on and on. Bombing Iraq will not make any of this go away. Only you need to go away for things to improve.

3. As Bill Maher said last week, how bad do you have to suck to lose a popularity contest with Saddam Hussein? The whole world is against you, Mr. Bush. Count your fellow Americans among them.

4. The Pope has said this war is wrong, that it is a SIN. The Pope! But even worse, the Dixie Chicks have now come out against you! How bad does it have to get before you realize that you are an army of one on this war? Of course, this is a war you personally won't have to fight. Just like when you went AWOL while the poor were shipped to Vietnam in your place.

5. Of the 535 members of Congress, only ONE (Sen. Johnson of South Dakota) has an enlisted son or daughter in the armed forces! If you really want to stand up for America, please send your twin daughters over to Kuwait right now and let them don their chemical warfare suits. And let's see every member of Congress with a child of military age also sacrifice their kids for this war effort. What's that you say? You don't THINK so? Well, hey, guess what -- we don't think so either!

6. Finally, we love France. Yes, they have pulled some royal screw-ups. Yes, some of them can be pretty damn annoying. But have you forgotten we wouldn't even have this country known as America if it weren't for the French? That it was their help in the Revolutionary War that won it for us? That our greatest thinkers and founding fathers -- Thomas Jefferson, Ben Franklin, etc. -- spent many years in Paris where they refined the concepts that lead to our Declaration of Independence and our Constitution? That it was France who gave us our Statue of Liberty, a Frenchman who built the Chevrolet, and a pair of French brothers who invented the movies? And now they are doing what only a good friend can do -- tell you the truth about yourself, straight, no b.s. Quit pissing on the French and thank them for getting it right for once. You know, you really should have traveled more (like once) before you took over. Your ignorance of the world has not only made you look stupid, it has painted you into a corner you can't get out of.

Well, cheer up -- there IS good news. If you do go through with this war, more than likely it will be over soon because I'm guessing there aren't a lot of Iraqis willing to lay down their lives to protect Saddam Hussein. After you "win" the war, you will enjoy a huge bump in the popularity polls as everyone loves a winner -- and who doesn't like to see a good ass-whoopin' every now and then (especially when it 's some third world ass!). So try your best to ride this victory all the way to next year's election. Of course, that's still a long ways away, so we'll all get to have a good hardy-har-har while we watch the economy sink even further down the toilet!

But, hey, who knows -- maybe you'll find Osama a few days before the election! See, start thinking like THAT! Keep hope alive! Kill Iraqis -- they got our oil!!

Yours,

Michael Moore

19. mars 2003

Hvernig hljómar kremlarrómur?
Í miðjum Írakshörmungunum gerast mikil tíðindi. Samfylkingin hefur myndað sér skoðun á sínu fyrsta málefni, nefnilega samræmdum prófum í framhaldsskólum. Ekki get ég agnúast mikið út í skoðunina, enda engin ástæða til. Heldur er fyllsta ástæða til að samgleðjast með Samfó og Ungum jafnaðarmönnum (eða á það að vera ungt fólk í samfylkingunni? Eða ungir frambjóðendur í samfylkingunni? Ég á erfitt með að átta mig á þessum flóknu skipuritum Samfó). Þau eru líka svo sæl og ánægð með framförina að það dugir ekkert minna en að auglýsa skoðunina í Samfylk.. afsakið Fréttablaðinu. Ekki skil ég samt af hverju þau þurfa að vera svona fúl á myndinni. Það er eins og Björgvin (hnarrreistur í forgrunni myndarinnar ( af hverju er hann þar? af hverju ekki formaður uj eða einhver sæt stelpa?) hafi hrópað valdmannslegum kremlarrómi að þau ættu að þurrka væmið glottið af andlitinu á sér (ég svona ímynda mér það þar sem Björgvin skammaði mig einu sinni á Næsta bar fyrir að hafa rofið samstöðuna (hvaða samstöðu er erfitt að átta sig á) og eftir það sé ég hann alltaf fyrir mér vera skammandi fólk í kring um sig) vegna þess að unga jafnaðarmenn eigi að taka alvarlega, þau eru jú komin með skoðun!

18. mars 2003

Ég hef ekki orðið vitni af jafn neyðarlegri framkomu stjórnmálamanns og hér um ræðir. Eftirfarandi er úr nýrri frétt Guardian.

The fevered state of the Labour party was illustrated this morning when John Prescott, the deputy prime minister, and Robin Cook, the newly resigned backbencher, took to the airwaves to push to pro- and anti-war cases.

Although both agreed tonight's vote was not a "vote of confidence" in Mr Blair's premiership, it was the only thing they did agree on, with the deputy prime minister forced into an embarrassing admission - or pretence - that he had never heard of his own health minister, Lord Hunt, who had just announced his resignation.

He said: "I don't know who Lord Hunt is, he is obviously a minister of government ... I'm sorry for my ignorance."

The BBC's John Humphrys then pointed out Lord Hunt had been a government minister for the past four years.

17. mars 2003

Í gærkvöldi setti ég inn færslu um veðráttuna hér uppá Héraði en hún fór til andsk... og ekkert við því að gera. Veðrið í dag ætlar að verða betra en í gær þannig að hástemmdar lýsingar hefðu fljótlega gert sig ómarktækar.

Hér blása í öllu falli heitir vindar.

16. mars 2003

Eitthvað er rss-ið að eipa, þar sem ég á ekkert í þessum þremur færslum sem kenndar eru við mig í dag. Skil þetta ekki.

14. mars 2003

Ég sem hélt að íslenskuskor væri fjársvelt og þyrfti því að vanda til verka þegar kæmi að vali á námskeiðum. En það er greininlega tómt rugl þar sem þau geta haldið svona vitleysinganámskeið.
Því má bæta við að ef einhver ætti að kenna bloggfræði *guðminngóður* þá ætti það að vera Þorbjörn Broddason og félagar í fjölmiðlafræðinni, svo á félagsfræðideild líka miklu meiri peninga en heimspekideild.

13. mars 2003

Merkilegt hvernig menn muna mismunandi hluti. Sumir geta þulið upp endalausar talnarunur aðrir símanúmer í hundruðavís og enn aðrir muna nöfn allra sem þeir hafa hitt frá 1998. Ég get engan vegin munað nöfn. Ég þekki fólk í sjón sem ég hef séð einu sinni, þó það hafi verið fyrir fimmtán árum en ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvað manneskjan heitir sem ég hitti í gær. Þetta getur verið ákaflega vandræðalegt, sérstaklega ef maður er kynntur fyrir nokkrum í einu, á fundi eða í partíi, þá fer allt til fjandans.

Ég hef samt áttað mig á einni aðferð gegnum árin sem virkar. Hún gengur út á það að tengja nafnið við eitthvað annað. Ég man t.d. hvað nýjasti gæinn í Sex and the city heitir. Af hverju, jú hann heitir Berger (Börger) og ef ég hugsa um hamborgara og sé andlitið þá poppar nafnið upp, einfalt.

Kannski maður fari að leggja sig eftir því hvað leikskólakennarar strákanna heita...

Það á ekki af Samfylkingunni að ganga, nú síðast klúðruðu ungir kratar möguleikanum á að kjósa yfir sig frambærilegan formann. Komdu bara til okkar Pétur minn, þú átt hvort sem er enga samleið með þessu liði.

12. mars 2003

Ég hef sett fram mikilvægar hávísindalegar spurningar sem ég hvet lesendur til að skoða og svara samviskusamlega.

Við erum öll eins og Ármann, enda skapaði hann okkur í sinni mynd.





Ég er Ármann Jakobsson!
Þú hefur miklar hugsjónir varðandi stjórnmál og ert mjög vinstrisinnaður en samt hefurðu áhuga á eins jarðbundnum hlutum og hvað einhverjir bændur voru að gera fyrir 1000 árum. Þú ert vægur við nemendurnar og talar ekki niður til þeirra en getur verið kvikindislegur þegar kemur að prófum. Ágætur maður.


Taktu "Hvaða kennari 4.B ert þú?" prófið





Fyrir fróðleiksfúsa er síða Jónasar Kristjánssonar búin að vera alger gullnáma undanfarið. Jónas les heimspressuna á morgnana og pikkar út það markverðasta fyrir mann. Þvílík þægindi.

11. mars 2003

RSS-ið komið í lag. Þúsund þakkir til Óla Gneista! Þeir sem ekki eru komnir með rss-veitu geta sótt um slíkt hér, mæli með því.

Ekki gengur vel að setja eigin rss-veitur inn. Vonandi finn ég út úr þessu fljótlega því RSS er hreinasta snilld eins og spekingarnir segja.

Júmm, það kæmi ekki á óvart ef kaninn myndi ráðast inn í Írak vegna fjarstýrðra flugvéla...

Finnst engum skrítið að landbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson komist upp með að svara ekki fyrir ástandið sem er á kjötmarkaðinum. Nú er stefna ríkisstjórnarinnar náttúrulega að láta þetta afskiptalaust og rjúka þar með á rassgatið, en maðurinn er nú einu sinni ráðherra landbúnaðar og hlýtur því að þurfa að segja eitthvað um stöðu mála. Eða getur hann bara tjáð sig um hross og kál á milli þess sem hann klippir á einhverja borða og setur prónahúfur á hausinn. Er Guðni bara skrautráðherra eða er eitthvað annað í kjaftinum á honum en sápukúlur og froða?

Fékk póst frá RSS molum í morgun og set í framhaldinu glugga á síðuna.

Jamm

Bendi áhugafólki um lausn Íraksdeilunnar á þessa grein. Þeir hinir sömu ættu líka að skella sér á kappræður Ungra Vinstri grænna og Heimdallar sem verða í kvöld á efri hæð Vídalín. Þar á væntanlega eftir að undirstrikast hverjir eru raunverulegir andstæðingar í Íslenskri pólitík, og þá á ég vitanlega við hugmyndafræðilega en ekki persónulega.

Mér er bent á að kappræðurnar séu á efri hæð Kaffi Reykjavík en ekki Vídalín... Það var ekki svo langt frá!

7. mars 2003

Can´t stop með hinni íðilfögru hljómsveit Red Hot Chilli Peppers er tvímælalaust mesta töffaralagið í heiminum í dag. Ætti meira að segja vel heima á BlodSugarSexMagic, mestuandskotanshelvítis snilld sem komið hefur fram í rokkinu (eða svona um það bil).

6. mars 2003





Þú ert Steingrímur J. Sigfússon:

Þú ert sannkallaður
vinstri-víkingur þó að þú tapir þér stundum í mótmælunum. Hjá þér skipta
hugsjónir mestu máli.

Taktu "Hvaða stjórnmálaleiðtogi ert þú?" prófið





*dæs* Það var kannski fullmikið að lofa bloggeríi í dag þar sem ég hef verið á ferðinni síðan klukkan tíu í morgun og rétt kominn heim. Ég get þó sagt frá því að jeppinn kom sér aldeilis vel á Öxi þar sem litlu mátti muna að við þyrftum að snúa við á miðri heiði. Við brutumst í gegnum skaflana (og ekki alltaf viss um hvort það væri vegurinn sem lægi þarna einhversstaðar undir okkur eða grösug brekka, gróin grund eða eitthvað annað). Það er fullvíst að Öxi hefur lokast rétt á hælana á okkur, alla vega hefði ég ekki boðið í að vera þarna hálftíma síðar.

4. mars 2003

Hins vegar kaupir maður óhemjumagn af bókum í Reykjavíkursollinum. Því geri ég betur grein fyrir síðar, ég fer nefnilega heim á morgun og þá get ég bloggað á ný.

2. mars 2003

Ekki bloggar maður mikið í Reykjavíkursollinum.