Þetta er náttúrulega klisja, en líklega betra en margt annað. Ákjósanlegast dauðadaginn væri náttúrulega sjálfsíkveikja, þ.e. þegar líkaminn fuðrar upp af sjálfum sér. Þannig séð væri betra að "burn out than fade away"! Svo er náttúrulega pæling hvort að það væri ekki spennandi að vera étinn lifandi að æstum múg, svipað og í Ilminum eftir Suskind. Þannig færu líkamsleifarnar ofan í klósett víðsvegar stórreykjavíkursvæðinu og sameinast í ýsumaga einhversstaðar í grynningunum.

Kurt COBAIN (1967-1994)
You are like Kurt Cobain, the famous singer and
songwriter from Nirvana.
Your motto is: Its better to burn out than to fade
away.
You are extremely sensitive person, but dont want
to show it in the outside world.
May you even didnt realize it in the beginning.
There has been a problem in your family and you
dont get over it. Its lying like a shadow
behind you and you cant see it, because you
dont want to turn around. This depression runs
after you but you are so long inside that you
think you wont come out. You never thought
about being popular but you get it because you
are very talented .You are a genie, and can
reach into the hearts of the people, but there
is still this depression. Then you get these
stomach problems and take drugs. They make your
feelings even more extrem. After some time this
satisfaction you felt for your music
disappears. Your erratic mood hasnt got the
passion anymore . Then youll kill yourself with
a gun, but youll still live in people minds and
will forever.
~Which famous suicide would you be?+8 different,long results and pics!!~
brought to you by Quizilla
28. mars 2004
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:07
0
athugasemdir
25. mars 2004
Bored, Bored, Bored Im the chairman of the Bored (Iggy pop)
Eftir að hafa séð myndina Total eclipse langaði mig mikið til að verða eins og Rimbaud. Kannski langar mig pínulítið til þess enn. Reyndar er hætt við því að það yrði hjákátlegt þar sem hann var búinn að skrifa öll sín ljóð þegar hann var 22 ára og ég er að læðast á fertugsaldurinn. Með góðum vilja get ég samt gefið mig út fyrir að vera nokkrum árum yngri en ég er og þannig gæti ég spilað rulluna sómasamlega.
Þarna má sjá þá Rimbaud og Verlaine lengst til vinstri að hommast eitthvað, reyndar gæti ég ekki lagt lag mitt við eldri herramenn og yrði því að grípa til annarra ráða. Svo er ekkert víst að Rimbaud hafi verið hommi, kannski bara svona experimental á öllum sviðum mannlífsins. Það grunar mig.
En fyrst og fremst verð ég að skrifa og vera duglegur að skrifa og það má ekki vera minna en masterpís. Svo þegar ég sendi Geirlaugi eða Sigfúsi ljóðin verða þeir að hrópa upp yfir sig "Hér er kominn fram snillingur! Hann hefur skrifað fegursta ljóð veraldar!" Og svo verð ég frægur og legst í sjálfshatur og dey fljótlega eftir 37 ára afmælið.
Hljómar þetta ekki vel?
Ekki?
Engin hætt, ég á eftir að verða háaldraður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:18
0
athugasemdir
23. mars 2004
Uhumm, já.
Flutningar tefjasts um nokkra daga þar sem húsvörðurinn ætlar að skipta um gólfdúk. Það eru hreint stórkostlegar fréttir því að gólfdúkarnir á Eggertsgötu eru vægast sagt viðbjóður. Allavega, þeir sem vilja hjálpa eru velkomnir, svo verður að sjálfsögðu bjór á eftir. Héðan í frá ætla ég að hætta að drekka um helgar og drekka bara á mánudögum í staðinn... eða eitthvað.
Nú er ég orðinn þreyttur á að lesa bara um bloggvini mína og vill endurtaka leikinn síðan 30. janúar sl. og halda partí. Því þarf að leysa nokkur verkefni.
-Einhver þarf að hýsa partíið.
-Einhver þarf að skipuleggja og bjóða og svona, exklúdera og svona, já já.
-Einhver þarf að vera DJ, ekki ég samt, ónei.
Eru allir að ná þessu?
Gott, þá er bara spurning hver er frekastur og iðnastur.
Í lokin vil ég benda á að ég er að leita mér að vinnu, þannig ef einhver vill ráða sjálfumglatt sjéní þá má senda mér póst hingað. Ef einhver vill hinsvega ráða hressan og skemmtilegan strák með sól í hjarta og bros á vör er hægt að tala við Pallah.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:10
0
athugasemdir
Á síðkvöldum
þegar líkamsklukkan hefur löngu gefið til kynna að tími sé komin til að slaka á er vænlegast að hugsa og gera. Í mótstöðu við hefðbundna skynsemi, sem er versti óvinur sköpunnar, upplifir fórnarlamb sólstöðunnar aðstæður sem eru velheppnaðar til þess sem er til ætlast. Og maður getur aldrei vonast til neins minna en fullkomnunar.
Það þarf ekki að taka fram að fullkomnun er útópískt ástand og ávalt utan seilingar. Í því eru vonbrigði þess sem skrifar falin. Ekkert er mögulegt og það sem stendur eftir í lok vinnudags hlýtur því ávalt að vera óásættanlegt. Hvað gerir maður þá? Ekkert? Eða eitthvað? Textinn hlýtur að verða ómögulegur og óvinnandi. Og um leið og okkur verður það ljóst hljótum við að hætta að skrifa, hætta að tala og hætta að hlæja, því að eins og við vitum er hláturinn hættulegastur alls.
Haldiði því kjafti!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
03:13
0
athugasemdir
22. mars 2004
Flutningar á mánudaginn
Á mánudaginn flyt ég á Hjónagarða, nánar tiltekið Eggertsgötu 2. Þeir sem vilja koma í smá flutninga og bjór eru velkomnir og beðnir um að melda sig að fyrra bragði svo ég sleppi við að nöldra í þeim. Það er leiðinlegra.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:33
0
athugasemdir
19. mars 2004
Enn er bloggað í Húsdýragarðinum.
Sem er hið besta mál. Ég þreytist aldtrei á að kíkja á hann Guttorm enda ólíkindalegt ferlíki en samt svo svo mikil ró yfir honum blessuðum. Svoleiðis fer ekki alltaf saman. Hér er svolítið hvasst í augnablikinu sem dregur aðeins úr ánægjunni en á móti kemur að við erum einir í garðinum og það er vitanlega mikill plús. Við erum hér því svolítið eins Pallar sem voru einir í heiminum, sem gefur ferðinni skemmtilegann blæ. Bara við og dýrin. Við dýrin.
Skákin á Nasa heillar og í hádeginu á morgun er vitanlega samkoma fyrir utan Stjórnarráðið, eins og fram kemur hér að neðan. Þangað mæti ég með drengina og el upp í þeim andspyrnuna. Annað kvöld verð ég í afmæli Bekku frænku og ætli maður kíki ekki við í Iðnó þegar líða tekur á kvöld. Þeim fjölgar ungliðunum sem þarfnast huggunar úr okkar röðum. Svo reynir maður að heilsa upp á alla þá höfuðsnillinga sem eru í og allt um kring um UVG.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:08
0
athugasemdir
15. mars 2004
intermezzo
Write to the nth power, N-1, write with slogans: Form rhizomes and not roots, never plant! Don't sow, forage! Be neither a One nor a Many, but multiplicities! Form a line, never a point! Speed transforms the point into a line. Be fast, even while standing still! Line of chance, line of hips, line of flight. Don't arouse the General in yourself! Not an exact idea, but just as idea (Godard). Have short-term ideas. Make maps, not photographs or drawings. Be the Pink Panther, and let your loves be like the wasp and the orchid, the cat and the baboon. As they sing of old man river:
He don't plant tatos
Don't plant cotton
Them that plants them is soon
forgotten
But old man river he just keeps rollin
along.
A rhizome doesn't begin and doesn't end, but is always in the middle, between things, interbeing, intermezzo.
úr bókinni Rhizome e. Deleuze & Guattari
Er þetta manifesto okkar tíma? Okkar Fútúrismi? Rísómismi? Það er orðið nokkuð síðan ég las þetta í íslenskri þýðingu en einhvernvegin kveikti ég ekki á þessu eftir að hafa rambað á þetta textabrot, óbeint eftir að hafa lesið grein Hauks Más á Nyhilvefnum um orð og gerðir, eða "Að súpa mjólk með Sölmundarsonum" eins og hún heitir. Í beinu framhaldi af þessari ágætu grein setti ég svo rísómin þeirra Deleuze og Guattari í annað og meira samhengi en ég gerði síðast þegar ég las þennan sama texta. Kannski var það þýðingin? Kannski hið mikla ljóðamagn sem ég hef innbyrgt undanfarið? Kannski þessi fáu sem ég hef skrifað undanfarið? Kannski þetta óskrifaða sem ég hef gengið með í maganum síðustu þrjá daga og er að éta mig að innan um lík sem liggur á eldhúsgólfinu hjá sér hlustar á tryllt samfarahljóð nágrannakonu sinnar berast í gegnum veggina og verða smám saman að innantómum öskrum, vélrænum nið?
Kannski ég komið þessu frá mér.
Kannski ég láti það rísóma?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:27
0
athugasemdir
11. mars 2004
Ég er airborn! Jíha
Jack missti af mér í gær, bömmer. Mundi allt í einu að það var heimsendaveður og nennti því ekki að labba heim eftir bíó alla leið úr Kringlunni, syrgi það svo sem ekkert. Horfði í staðinn á Arsenal og Celta Vigo. Arsenal er með viðbjóðslega gott lið, minnir mig á United fyrir nokkrum árum nema hvað við höfum aldrei átt viðlíka sóknarmenn og Arsenal fyrr en nú, en þá er restin af liðinu ómöguleg. Vonandi vinnur Arsenal Meistaradeildina,
Ég held með þeim þótt að mannandskotarnir hafi ráðist á Nistelrooij um daginn.
Vonir mínar um a? Nýsköpunarsjóður komi auga á hin augljósu sannindi að verkefni mitt sé ekki bara brilljant heldur bráðnauðsynlegt þjóðarbúinu eru orðnar að engu. Ég get einungis látið koma mér ánægjulega á óvart úr þessu. Veit einhver um skemmtilega og vel launaða sumarvinnu handa mér? Hélt ekki. Djö...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:37
0
athugasemdir
10. mars 2004
Búinn að sækja um í Nýsköpunarsjóð námsmanna. Að sjálfsögðu er umsóknin skotheld og ef ég fæ ekki þessa þrjá mánuði þarf að skipta úthlutunarnefndinni út. Hvað um það núna ætla ég upp í Kringlu að horfa á Jack Black, vonandi finn ég út úr helvítis strætókerfinu.
Að sjálfsögðu fer ég einn í bíó, enda tóm vitleysa að fara með öðrum til þess eins að sitja þegjandi við hliðina á honum í tvo tíma og fara svo beint heim. Það er miklu betra að finna fyrir einverunni og njóta myndarinnar (eða leiðast) á egin forsendum í friði fyrir því hvað næsta manni finnst.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:40
0
athugasemdir
9. mars 2004
Á einhver þráðlaust netkort pour moi. Ódýrt eða, tja... gefins.
Þegar ég er stressaður belgist maginn á mér út þegar ég anda frá mér og dregst saman þegar ég anda að mér. Þetta gerist á sama tíma og fjölmörg óþægindi gera vart við sig, sem fyrst og fremst lýsa sér í því að magasýrurnar fara allar af stað og alls konar óþægindi aðallega í kviðar og brjóstholi, en einnig í höfði og háls, ekki síst öndunarfærum og vélinda.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:03
0
athugasemdir
4. mars 2004
Síðustu tvær færslur hafa verið fjarlægðar þar sem vinna við þær hefur hafist að nýju og er þær því ekki til lengur í því formi sem áður var.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:44
0
athugasemdir
