28. maí 2003

villa í sendingu
villan kemur til vegna þess að:

You are not allowed to post comments.

Ef þú skilur ensku, lagfærðu það sem er að og smelltu á senda.
Ef þú skilur ekki ensku.. tough.


Áhugavert! Og ég sem vildi bara gratúlera Tóta með nýju síðuna, sem er by the way ansi svöl.

Í tilefni þess að sá dagur líði varla að bissnessmenn lenda ekki í yfirheyrslu eða varðhaldi vil ég segja nokkur orð. Þegar ástandið verður svona er hætt við því að allir blaðamenn landsins breytist í rannsóknarblaðamenn og upplifa sig sem Reyni Traustason þegar Mr. Johnsen var tekin í gegn. Ef að fjölmiðlar ætla að fara í einhverjar nornaveiðar hefur það aðeins það upp á sig að mannorð eiga eftir að fara óverðskuldað í hundana og þeir sem eru í raun og veru glæpamenn, ekki fjárglæframenn eða hvítflibbaglæpamenn heldur hreinir og klárir krimmar, hverfa í reikmekki fjölmiðlafársins. Í guðanna bænum ekki grafa upp hvern einasta mann sem Kristján Ra talaði við síðastliðin tvö ár eða hver á reikningana sem hann hefur lagt peninga inn á í gegnum tíðina. Flytjið okkur fréttir, ekki slúður.

Og í guðanna bænum nennir einhver að hætta að tala um mannlega harmleiki. Svoleiðis ummæli eru náttúrulega mannlegur harmleikur út af fyrir sig en bissnessglæpamennirnir eru ekkert annað en glæpamenn. Unglingur sem fremur sjálfsmorð eftir áralanga neyslu og ofbeldi er mannlegur harmleikur. Mr. ungi SUSari sem á penthous íbúð, er með vindil í kjaftum og rænir þess á milli 200.000.000,00 kr. er það ekki.

Giv mí a fokking breik.

OK hvern þarf ég nú að taka af lífi til að síðan mín komi upp í heilu lagi. Palli má ég koma á Kaninkuna, plís!
----
Mikið þykir mér það svalt að Bruce Dickinson sé að fljúga fyrir Icelandic Express.

26. maí 2003

Þetta er ofursvöl mynd af mér. Sem er undarlegt því að ég er frekar laus við að vera ofursvalur. Alla vega er ég lítið svalur á kassanum í kaupfélaginu. Myndasafnið hans Palla er samt ofursvalt og loksins stendur konungur bloggsins undir nafni.

24. maí 2003

Ég er kominn aftur heim á Hérað. Það var gaman í Reykjavík. Ritgerð er að komast í skil en það sem er merkilegra er að ónefndur bloggari hugar að endurkomu í bloggheima. Fjölmargir hafa líka kvartað yfir færslufæð hér og er beðist afsökunar á því. Ég veit að þið verðið að fá ykkar daglega skammt. Reynt verður að verða við því.

Kauðfélagið verður þess heiðurs aðnjótandi að fá engan annan en sjálfan mig til starfa og óskum við því til hamingju með það, ég mun raða í hillur betur en áður hefur þekkst hér á Héraði. Ætli við Óli Njáll séum þá ekki nokkurs konar kollegar? Hvað segir þú kæri kollega?

20. maí 2003

Ég hef heyrt svona sögur af Kára Stefánssyni áður, þessi saga sem er greinilega komin frá ungum bílstjóra er alveg ótrúleg. Tók þetta héðan.

ég varð fyrir þeirri skemmtilegu reynslu áðan að vera hótað barsmíðum af Kára Stefánssyni.
Þannig er mál með vexti að ég var að skutla félaga mínum heim í vesturbæ og við voru að keyra frekar þrönga og leiðinlega götu síðan sjáum við Saab 95 bakka alveg í veg fyrir okkur sem olli því að ég þurfti að hemla frekar snögglega og þar að leiðandi tel ég mig hafa fullan rétt á að flauta á einstaklingin þannig ég flauta einu stuttu pípi. Nei nei stöðvar maðurinn ekki bílinn á miðri götu og lokar allri umferð, gengur út og fer að spjalla við mig. "get ég gert eitthvað fyrir þig" segir hann já segi ég þú getur athugað framvegis hvort að það sé einhver bíll á götunni áður en þú tekur þá ákvörðun að bakka út á hana, þá segir hann að hann eigi heima hérna og göturnar séu þröngar og hann eigi fullan rétt á að bakka út úr stæðinu sínu. Eftir smá rökræður um sama efni segir hann að ef ég flauti aftur á hann þá muni hann draga mig út úr bílnum og lemja mig og labbar síðan í burtu.

Er það ekki asnalegt að háttsettir menn innan samfélagsins hóti 19 ára piltum barsmíðum eins og þeir sjálfir séu um tvítugsaldurinn. 'Eg bar virðingu fyrir þessum manni þangað til í dag, maður á ekki að hóta að lemja þann sem flautar á mann sérstaklega ekki ef maður er í einhverri valdastöðu í landinu!

En um leið og ég sé hann aftur á götunni þá mun ég flauta alveg sama hvað

Gaman að setja inn mílulanga færslu sem hverfur svo í ómælismyrkur sæberspeisins. Hún var í öllu falli um Júróvisjón, fjölmiðla og stríðið í Kongó, go figure.

16. maí 2003

Er það bara ég eða er Múrinn að verða sjálfhverfari en áður þekktist? Kannski á þetta bara við um menningardálkin, veit ekki.

Tyrkjagreinin var kærkomin þó að hér sé vikið út frá hinni yfirgripsmiklu sögu Tyrkjaveldis yfir í einhverja helv... einsögu. Auk þess kvarta ég yfir litlum eða lélegum (líklega það fyrrnefnda) prófarkarlestri, hvað er annars fangabúðalist? Og var maðurinn virkilega ljóðskald? Ég ætla nú ekki að stæra mig af hnökralausum textum en það er eins og mig minni að kvartað hafi verið oftar en einu sinni úr herbúðum múrverja yfir innsláttarvillum á uvg.vg og hverju búast menn við þá?

15. maí 2003

Eftirtektarsamir hafa tekið eftir því að ég hef efnt heit mitt og bætt , ja... nokkrum fjölskyldumeðlimum inn í tenglalistann. Rétt er að gera örlitla grein fyrir nýgræðingunum í blogginu.

Bergþóra
Begga Lee eins og hún kallar sig er móðursysturdóttir mín. Hún var svo elskuleg að bjóða mér afnot af herbergi einu sem hún hafði yfir að ráða á Freyjugötu fyrsta árið mitt í bókmenntafræðinni, það var gaman svona eins og gengur. Við vorum saman í náminu fyrstu önnina og vorum einstaklega samstíga í mætingu og náttúrulega skrópinu líka.

Ragnheiður
Ragnheiður á ekki minni þátt í dvöl minni á Freyjugötunni og var dáyndisþægilegur sambýlingur. Ragnheiður er leikkona með meiru og hefur blandað geði við fleira frægt fólk en allir mínir vinir samanlagt og þá er nú mikið sagt. Ragnheiður á bestu eftirhermu af miðaldra húsmóður úr vesturbænum sem ég hef heyrt. Ragnheiður er nýgift manninum sínum, listmálaranum Hafsteini Michael. Hann málar dverga og mannætur og er mikill snillingur.

Friðgeir
Friðgeir er tölvusjéní og tónlistamaður. Friðgeir á heiðurinn af tónlistinni sem var leikin á meðan fæðing eldri sonar okkar stóð yfir. Fæðingin gekk mjög vel og tónlistin fór vel ofan í viðstadda og ekki síst móðurina tilvonandi. Gallinn er að þegar diskurinn er settur á fóninn rifjast upp fæðingarverkirnir. Friðgeir býr í Barþelóna og unir þar vel sínum hag með Súsönnu ofurskutlu og maurunum sínum. Friðgeir er mauratemjari. Friðgeir er líka einstaklega skemmtilegur maður og áttum við saman einhverja allra bestu verlsunarmannahelgi sem ég man, takið eftir man, eftir. Burtséð frá öllu grænmeti.

Bekka frænka
Bekka móðursystir mín er stoðin og styttan í fjölskyldunni (ásamt hinum stoðunum og styttunum), einstaklega stabíl og jarðbundin manneskja. Það ætti því að koma á óvart að hún er móðir systkynana þriggja hér að ofan sem eru lang frá því að vera eðlileg á nokkurn hátt. Bekka tekur lífinu með stóískri ró og lætur ekki á sig fá þótt að hún fái yfir sig ósvífna ræðu frá taugaveikluðum frænda á kjördag.

Jóhanna (Giovanna)
Jóhanna er móðurbróðurdótturmóðir mín og kenndi mér fingrafit þegar ég var (tja...) tíu ára. Jóhanna er líka söngkona mikil og ekki síst fræg fyrir að vera ein af Hrekkjusvínunum sígildu þótt að hennar sé hvergi getið á umslagi þeirra annars ágætu plötu. Jóhanna er að sjálfsögðu móðir Hildigunnar sem ég tengdi á hér um daginn algerlega óumbeðinn.

Fyrir þá sem eru áhugasamir um stöðu kvenna í þingflokki Sjálfstæðisflokksins eftir kosningar er gaman að skoða hlutfall sjálfstæðiskvenna á þingi eftir kjördæmum:

Norðvestur 0%
Norðaustur 0%
Suður 33%
Suðvestur 40%
Rvík Norður 0%
Rvík Suður 20%

Eins og sjá má er útkoman glæsileg allstaðar nema í Suðvesturkjördæmi en þeir hafa þó sér til málsbóta að konurnar skipuðu tvö síðustu sætin af þeim sem á annað borð fóru inn (hérna gleymi ég náttúrulega Bjarna Ben, enda uppbótarþingmaður). En helmingur kjördæmanna slapp sem betur fer algerlega við að hafa konur á listum sínum.

Hér gerist ekki neitt!

14. maí 2003

Þarf að setja inn tengla á 10-20 ný fjölskyldublogg. Má nú samt ekki vera að því þar sem ég er í fyrsta lagi að undirbúa byltingu og í öðru lagi að leggja lokahönd á B.A. ritgerð nokkra sem hefur verið í smíðum í of langan tíma. Í þriðja lagi þyrfti ég svo að finna mér vinnu, einhverjar uppástungur?

Ætli ég setji svo ekki Palla inn aftur hann er búinn að vera svo duglegur, hans blogg mun nefnast templarablogg.

Svo bendi ég áhugasömum á pirraðan Jakob Bjarnar á síðunni hans Tóta.

11. maí 2003

Gott ef að útreiðin sem Jóhann Hlíðar og Haukur Hólm fengu í umræðum stjórnmálaforingjanna áðan varð nánast til þess að ég komst í gott skap. Steingrímur rassskellti þá svo rækilega fyrir hálvitaganginn, að láta tvo flokksformenn blaðra endalaust um hvenær ríkisstjórnin yrði mynduð, fyrir eða eftir hádegi? Guðjón Arnar fékk líklega bara eina 20 sekúndna ræðu og þáttarstjórnendurnir urðu eins og barðir hundar þegar Steingrímur gafst upp og hótaði því nánast að ganga út. Líklega öllum sem horfðu á þáttinn var ljóst hvers konar fagmennska er á ferðinni á þessum bæ, Jóhanni Hlíðari og Hauki Hólm til ævarandi háðungar.

Það var gaman í Reykjavík. Hitti Tóta. Alla ungkommaandskotana. Landið fór að vísu til helvítis. Framsóknarflokkurinn er spútnikflokkurinn í dag, en hei, ég sagði aldrei að menn hefðu eitthvað í hausnum. Fokk þú og þitt krú, ég geri byltingu!!!!!

10. maí 2003

X-U Réttlæti!

8. maí 2003

Þá fer maður enn eina ferðina til borgarinnar. Jamm, ekki hef ég bloggað mikið þar í þessum ferðum mínum.

7. maí 2003

Spiegel greininni hefur verið snarað yfir á íslensku, eða öllu heldur kjarnarnum í greininni. Það má lesa hér.

Fékk ábendingu um þessa stórmerkilegu grein. Og þótt ég sé ekki talandi á þýsku þá skil ég þetta...

Seit ihrer Loslösung vom dänischen Reich 1918 haben die Isländer, anders als die engsten Nachbarn Norwegen, Dänemark oder Großbritannien, zwar keinen König mehr. Aber gebe es Anstalten, eine Monarchie neu zu begründen, "David" wäre der geborene Anwärter.

það væri samt ágætt ef einhver nennti að þýða þetta, ha? Sverrir?

Þá fer að styttast í stóra daginn. Ég vil bara árétta nokkur mikilvæg atriði áður en síðustu dagarnir fara í hönd.

1) Það er mikilvægt að þeir sem ætla að kjósa til vinstri kjósi eftir sannfæringu, ekki taktík. Kosningar snúast um málefni en ekki tilbúið kapphlaup einhverra tveggja forsætisráðherraefna.

2) Samfylkingin hefur aldrei lýst því eindregið yfir að þau vilji mynda vintristjórn. Össur hefur einu sinni minnst á það en dró það skyndilega til baka. Þau hafa hins vegar sagst vilja mynda miðjustjórn og það vilja vinstrimenn ekki, er það?

3) Þeir sem eru ákveðnir í að kjósa vintristjórn og þar með Vinstri Græna verða að ræða við sitt fólk, ömmu og afa, systkyni og vini, vinnufélaga og kunningja og beina að þeim mikilvægum rökum sem fær það til að hugsa. Til dæmis:

a) VG er eini flokkurinn sem hefur haldið uppi stjórnarandstöðu svo heitið getur. Samfó hefur oftast guggnað og jafnvel stutt ríkisstjórnina í mikilvægum grundvallarmálum. Ætla til dæmis umhverfisverndarsinnar að kjósa flokk sem vill sökkva landinu Norðan Vatnajökuls og síðan stofna þjóðgarð. Það væri eins og Bandaríkjamenn boruðu eins og þeir vildu í Alaska eftir olíu og stofnuðu síðan þjóðgarð???

b) VG er eini flokkurinn sem er eindregið á móti einkavæðingu í heilbrigðis og menntakerfinu. Veit fólk til dæmis að Ingibjörg Sólrún er ekkert á móti því að grundvöllur einkarekinna skóla sé styrktur, sbr. álit sem hún skrifaði til menntamálanefndar í fyrra í nafni Reykjavíkurborgar.

c) VG vill að kvótanum sé endurúthlutað til byggðana í stórauknum mæli og styrkja þar með tekjugrundvöll sveitarfélagana og atvinnulíf. Samfó vill að markaðskerfið ráði allri úthlutun kvótans og hann getir þess vegna lent í höndum fáeinna fyrirtækja. Er það jafnaðar og vinstristefna?

d) Barnafólk ætti sérstaklega að huga að því að VG ætlar að fella niður leikskólagjöld og gera leikskólakerfið rétt eins og grunnskólakerfið nánast gjaldfrítt. Þetta mundi þýða 25,000 króna auknar tekjur fyrir mig strax og 50,000 kr. eftir þrjú ár. Það þarf ansi mikla skattalækkun til að komast nálægt því. Hvað með ykkkur hvað borgið þið á mánuði?

e) Í heildina litið er VG með öfluga og vel ígrundaða stefnuskrá sem allir ættu að kynna sér, hún gæti komið notarlega á óvart. Svo getið þið farið hingað ef þið viljið frekari rökstuðning.

6. maí 2003

Oft þegar börn (og stundum fullorðnir) ræða málin og annar aðilinn hafnar málflutningi hins með einu ákveðnu og kröftugu nei, kveður við hið algenga svar: jú. Síðan er þetta endurtekið eftir þörfum nei - jú - nei- jú- nei- jú o.s.frv. Hvort sem það stafar af því að nei-ið eitt og sér dugir skammt eða þá að endurtekningarmáttur orðanna sé svona mikill hjá blessuðum börnunum veit ég ekki en þetta er í öllu falli kunnugleg atburðarrás í samræðum yngstu kynslóðarinnar.

Það kom mér því á óvart að fjögur ára sonur minn sagði áðan í föðurlegum tón: "það finnst mér" þegar kunnuglegt nei gall í yngri bróður hans, og hafði þar með áttað sig á að skoðanir geta verið persónubundnar eða afstæðar eftir því sem við á og það skiptir ekki alltaf máli hvað öðrum finnst, svo lengi sem maður er trúr sannfæringu sinni. Mikið væri gaman ef fólk gæti almennt tekið umburðarlyndi og skoðanafestu sonar míns sér til fyrirmyndar.

Jamm, var að horfa á X-men í annað skipti í fyrradag (til að hita upp fyrir framhaldið), algerlega brill. Niðurstaðan úr prófinu ber hins vegar annað hvort vott um frábært próf eða algerlega ofmetinn einstakling, hvort skyldi það nú vera?




professor x
You are Professor X!

You are a very effective teacher, and you are very
committed to those who learn from you. You put
your all into everything you do, to some extent
because you fear failure more than anything
else. You are always seeking self-improvement,
even in areas where there is nothing you can do
to improve.


Which X-Men character are you most like?
brought to you by Quizilla

Já, blessaður sé heilagur Isidore frá Sevilla!

5. maí 2003

Við femínistafélagið segi ég þetta. Til hamingju með árangurinn. Til hamingju að vera búnar að gera allt vitlaust. Það þýðir bara að þið eruð að gera eitthvað rétt. En ég held að það sé bara búið að kroppa í yfirborðið, enda eru þessir gaurar í Frjálshyggjufélaginu, Deiglunni, batman.is (hér má lesa um Batman og Friðbjörn Orra Ketilsson) og öðrum vefmiðlum sem hafa grenjað undan femínistunum bara smáguttar. Það bíða aðrir stærri og sterkari varðhundar feðraveldisins handan við hornið og ef ekki verður tekist á við þá með uppbrettar ermar þá er alveg hægt að gleyma þessu strax.

1. maí 2003

Er vinstrisinnaður smáborgari kominn með brjósk í stað beina? Lesið allt um það hér...

Í dag er 1. maí. Jamm. Ég ætti kannski að fara í kröfugöngu og krefjast þess að stjórnmálaskoðanir komi ekki í veg fyrir starfsframa? En ætli ég sé ekki búinn að missa af öllum kröfugöngunum (sem voru ekki farnar á Egilsstöðum ef ég skil rétt).

Í kvöld er Che fyrirlestur hjá Steinþóri, það verður gaman. Vonandi mætir slatti.

Í dag er ég 10.686 daga gamall. Einu sinni ætlaði ég að halda upp á daginn sem ég yrði 10.000 daga gamall. Það er víst of seint núna. Held kannski upp á daginn sem ég verð 20.000 daga gamall. Ætli ég muni eftir því?? Ætli ég nái sextugsaldri?

Í öllu falli er hægt að finna þessa mikilvægu tölu hér.

Verst að ég hefði getað haldið upp á 250.000 klukkutíma afmæli fyrir nokkrum mánuðum síðan. Fúlt að missa af því. En þá átti ég líka 15.000.000 sekúndna afmæli. Það kalla ég stórafmæli. Hvað ætli ég hafi verið að gera þá? Kannski að flytja til Egilsstaða?