Hvort er það tímaeyðsla að læra fyrir eða fara í grískuprófið?
26. febrúar 2003
25. febrúar 2003
Tenglasafnið uppfært. Nýjir koma inn og aðrir detta út, eins og gengur. Ekkert persónulegt, bara eilíf endurnýjun his sama (eða þannig)...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:06
0
athugasemdir
Finnur Dellsén er bloggari. Bætist því fljótlega nýr snillingur í tenglasafnið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:24
0
athugasemdir
Viðtal við Stefán Mána í Lesbók Mogga vakti athygli mína um helgina. Ýmisleg er hægt að segja um skoðanir Stefáns Mána en ég ætla að láta mér nægja að benda á eftirfarandi klausu sem er efnilslega rétt þótt ekki sé vitnað beint í viðtalið.
Höfundar eru ekkert merkilegri en annað fólk, þeir eru til dæmis ekkert merkilegri en leikstjórar og hljómsveitarstjórar og hver nennir að lesa greinar eftir þá?. Þetta er ástæðan fyrir því að ég skrifa aldrei greinar í blöðin og kem aldrei fram í sjónvarpsþáttum.
Þegar hugað er að þessum orðum Stefáns Mána pólitíska umræðu eða aðra umræðu um þjóðfélagsmálefni vaknar frekar spurningin: hver á að tjá sig um þessi mál frekar en hver á ekki að gera það.
Þegar hugað er að því að pólitík og sú samfélagslega umræða sem er efst á baugi hverju sinni snerta alla og í öllu falli þorra þjóðarinnar væri eðlilegt að hver sem er hefði fulla ástæðu til að leggja orð í belg. Stríð í Írak kemur illþyrmlega við okkur, ef ekki vegna almenns siðferðis og mannréttinda þá í öllu falli efnahagslega. Virkjanamál og kvótakerfið koma öllum við á einn eða annan hátt vegna gríðarlegra áhrifa á efnahags og sálarlíf þjóðarinnar og því ættu þá ekki allir að vera þess verðugir að segja sína meiningu. Lýðræðið verður virkara eftir því sem lýðræðisleg þáttaka eflist og umræðan stækkar.
Þeir sem ekki ættu að taka þátt í umræðunni eru þeir sem geta það ekki. Hverjir það eru ætla ég ekki að dæma um en Stefán Máni er augljóslega þegar búinn að skipa sér í þann hóp.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:29
0
athugasemdir
Eftir margra mánaða (ára?) þvæling í óvissu og leiðindum er ég kominn á beinu brautina. Já góðir lesendur við mér blasir leiðin að samningu sómasamlegrar bókmenntarannsóknar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:45
0
athugasemdir
21. febrúar 2003
Gettu betur var ágætt í gær. Skemmtiatriðin sjálf voru hins vegar dauðinn sjálfur og kvaldist ég mjög við að hlusta á gól sönghópsins í seinna skemmtiatriðinu. Síðan eru þessi leikatriði mig lifandi að drepa. Krakkarnir kunna oftast ekkert að leika, standa bara upp á sviði og tala eins hátt og þau geta. Síðan eru atriðin algerlega úr samhengi við leikritið og áhorfandinn skilur ekki neitt í neinu. Reynið að gera eitthvað gáfulegra við tíman en þetta.
Keppnin sjálf var sæmileg, úrslitin réðust af venju í hraðaspurningunum og með ólíkindum að ekki sé búið að breyta fyrirkomulagi keppninar þar sem mönnum ætti oftast að vera ljóst hver vinnur eftir fyrsta hlutann. Svo finnst mér eins og spennan sé öll dottin úr keppninni. Það er kannski spyrli að kenna, enda er keppnin æfinlega búin áður en maður veit af og ekki man ég eftir að hafa heyrt úrslitin að keppni lokinni. Það verður að byggja upp spennu og framvindu í svona þætti það gerist nefnilega ekki af sjálfu sér, ó nei.
Spurningarnar sjálfar voru upp og ofan. Hraðaspurningar voru fínar og gáfu kost á góðum spretti MH. Vísbendingaspurningar voru hins vegar ekki mjög útpældar og önnur vísbending bætti ekki alltaf við upplýsingum frá fyrstu vísbendingu.
Spyrillinn er eitthvað út á þekju í þessu öllu og nennir þessu örugglega ekki. Alla vega fer lítið fyrir metnaði fyrir hönd keppninnar. Hann fylgist illa með, les spurningar rangt upp og kláraði meira að segja ekki eina vísbendinguna í gær. Svona á að ganga smurt fyrir sig annars verður dettur allur vindur úr seglum.
Ekki meira um Gettu betur, enda alveg nóg.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:38
0
athugasemdir
20. febrúar 2003
Þó að Ármann sé fyrirtaks rithöfundur er ekki þar með sagt að hann skrifi neitt sérstaklega vel...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:45
0
athugasemdir
19. febrúar 2003
17. febrúar 2003
Það er með ólíkindum hversu lítils Mogginn metur mannorð sitt og fréttagildi. Bæði Kolla Rún. og Jónas Kristjánsson hafa nýlega bent á þann reginmun sem er á fréttum af mótmælum víðsvegar um heim frá Mogganum annars vegar og heimspressunni hins vegar. Ég tek mér það bessaleyfi að birta brot úr frásögn þeirra:
Kolla:
Í morgun fór ég svo audvitad beint á mbl.is til ad sjá hvad teir segdu um mótmaelin. Tad eina sem ég fann var ad 400.000 hefdu mómaelt í N.Y. og 100.000 í Róm. Á sama tíma var Marita ad skoda das Bild og tar voru margar sídur med fréttum af mómaelunum um allan heim og tar stód ad staerstu mótmaelin hefdu verid í London tar sem 2 milljónir hefdu mótmaelt og naest staerstu í Róm tar sem 1.500.000 hefdu mótmaelt. Tad er smá munur á hundrad túsund og einni og hálfri milljón! Hvad er eiginlega málid?
Jónas:
Fróðlegt var að sjá óheiðarlega lágar tölur Moggans á vefnum um þátttöku fólks í mótmælagöngum víða um heim í gær. Þær voru um það bil einn tíundi af þeim tölum, sem gefnar voru upp í fréttum bandarískra dagblaða og sjónvarpsstöðva á borð við Washington Post og CNN. Mogginn hélt því til dæmis fram, að 100.000 manns hefðu mótmælt í Róm, þótt löggan þar í borg viðurkenni, að þeir hafi verið 750.000 og ýmsir ábyrgir fjölmiðlar, sem voru með menn á staðnum, telji þá hafa verið fleiri en milljón og sumir nefnt tvær milljónir. Fróðlegt væri að vita, hvort Mogginn skáldar erlendar fréttir sínar frá grunni eða hvort fréttastofa einhvers pólitísks sértrúarsafnaðar í útlöndum er að baki.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:50
0
athugasemdir
Þetta er náttúrulega ekki alveg rétt hjá mér því Jónas Kristjánsson hefur imprað á þessu. Hins vegar hef ég ekki séð neinar spekúlasjónir hjá fjölmiðlum þessa lands.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:35
0
athugasemdir
16. febrúar 2003
Það er magnað að fylgjast með framvindu heimsmálanna þessa daganna. En þó að það séu ekki beinlínis fréttir ættu það heldur ekki að vera fréttir að þær stofnanir sem eru kjölfesta alþjóðlegs samstarfs, svo sem Sameinuðu þjóðirnar og árásarbandalagið NATO gætu tekið miklum breytingum eftir því sem atburðirnir komast á æsilegra stig. Enginn hefur þó spáð endalokum NATO í núverandi mynd. Og hvað kemur í veg fyrir það að USA þjarmi að Sameinuðu þjóðunum sem aldrei fyrr og geri þær magnlausar og ófærar að sinna hlutverki sínu.
Hvers vegna dettur engum í hug (eða er ég bara svona illa lesinn) að heimsskipanin eins og við þekkjum hana sé að líða undir lok. Hvað gerist ef að vestrænt samstarf og sameiginleg hagsmunagæsla USA og ESB endar hér og nú. Af hverju er þessum spurningum ekki stillt upp? Hvernig fer það t.d. með ESB ef að Frakkar og Þjóðverjar ásamt einhverjum smærri þjóðum verða algerlega á öndverðum meiði við Breta og Spánverja ásamt gömlu austantjaldslöndunum þangað til málinu verður lokið, eftir 5 - 500 ár.
Þetta eru kannski ómarkvissar og ómerkilega hugleiðingar, en ég spái því að einhver af þessum stofnunum NATO, ESB og/eða UN taki stakkaskiptum í náinni framtíð, breytist að eðli /inntaki/formgerð eða eitthvað þaðan af dramantískara. Hvað gerir Ísland þá? Nú við fylgjum Bandaríkjunum fram af bjargbrúninni ef þess gerist þörf og ætli einhverjir syrgi þá ekki að Íslendingar hafi ALDREI getað staðið á eigin fótum í samfélagi þjóðanna á síðustu árum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:02
0
athugasemdir
Ég setti einu sinni leitarvél á síðuna, það tókst ekki. Núna hefur það tekist. Hún virkar þannig að hún vísar í mánuðinn sem leitarorðið er að finna, þegar þangað er komið er einfaldast að nota Ctrl+F til að þræða sig áfram. Ef einhver veit um betri leitarvél þá má sá hinn sami láta mig vita.
Flettið nú upp á ósómanum sem ég hef sagt um ykkur!
Setti líka inn hið geysisniðuga gestabókarlandakort.
Með því að nota kortið getið þið svarað fyrir ósóman sem ég hef sagt um ykkur!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:16
0
athugasemdir
15. febrúar 2003
Eitthvað var ég búinn að lofa að blogga um Júróvisjón og hér kemur kalt mat:
Eins og ég hef sagt er keppnin óvenju skemmtileg, hvort sem um er að kenna ótímabærri elli eða að ég sé fluttur út á land. Bestu lögin eru lagið hennar Heiðu sem stendur upp úr og lagið hans Kalla Olgeirs sem Rúnar Júl. syngur. Þetta eru klassalög sem hafa eitthvað júník við sig, heiðarleg lög, ef svo má að orði komast. Svo eru þarna fín dægurlög eins og Sögur sem gerir sig vel og stuðlagið hans Einars Engu þurfum að tapa. R&B lagið Sá þig er gott og lagið Þú og ég sem Jóhanna Vigdís syngur, hún er ,bæ the vei, lang besti flytjandinn ásamt Heiðu. Lagið sem Eivör syngur er líka fínt en helst til rólegt og á kannski einhvern annan stað og tíma en Júróvisjón.
Bíðið nú við, það voru að koma tölur... jamm.
Típískt Írafárslag vinnur, sem sagt, sem kemur varla á óvart. Samt skrítið að Heiða fái ekki fleiri atkvæði.
Þá læt ég Júróvisjónbloggi lokið, enda ekki meira að segja úr þessu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:28
0
athugasemdir
Vísir segir 2000 manns, Mogginn segir 1000 manns. Hvenær ætla menn að læra að telja?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:53
0
athugasemdir
Ætli það sé ekki best að taka það fram strax að sá sem bað um að fá viðtalið til yfirlesturs var ég. Það hefði í öllu falli mátt halda. Ég spurði Þórarinn að því hvort þeir sendu fólki textann til yfirlestrar en var ekkert endilega með það í hyggju að lesa textann yfir þannig séð, enda treysti ég Þórarni fyllilega fyrir þessu. Hann sagði mér að það tíðkaðist ekki á Fréttablaðinu og það er algerlega þeirra mál. Eftir að viðtalinu lauk fékk ég efasemdir um viðbrögð mín við einhverju smálegu og hringdi til að leiðrétta það, í kjölafarið las Þórarinn upp viðtalið fyrir mig algerlega óbeðinn. Þannig var nú það og ég er í sjálfu sér alveg tilbúin að taka undir þau sjónarmið að viðmælendur eigi ekkert að vera að grúska í textanum að viðtali loknu, enda er það á ábyrgð blaðamannsins.
Þetta fattaði ég þegar ég kom að því að skrifa nokkrar fréttir fyrir Íslensku umboðssöluna og þurfti að ræða við menn í ráðuneytum og opinberum fyrirtækjum m.m. Mitt stærsta afrek á þeim vettvangi var frétt um mafíurán á íslenskum saltfiskgámum á Ítalíu sem breiddist síðan út um íslenska fjölmiðlaflóru eins og hún lagði sig (nokkurn vegin). Það var nú gaman.
Kannski var Þórarinn svo ekkert að tala um mig, og þá verður bara að hafa það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:22
0
athugasemdir
Týpískt að eina daginn sem ég þarf að skoða fréttablaðið á netinu opnast helv... skjalið ekki.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:21
0
athugasemdir
13. febrúar 2003
Jæja góðir lesendur nú er ég einu skrefi nær heimsyfirráðum og einu skrefi fjær dauða.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:24
0
athugasemdir
Hvað gengur á? Það eru nánast allir í fjölskyldunni byrjaðir að blogga og restin víst á leiðinni!
Þetta þýðir að ég verð að endurskipuleggja tenglana, enda margir komnir á síðasta séns þar. Geri það fljótlega en þangað til geta menn kíkt hérna: Þórdís, Silja, Hildigunnur.
Í tilefni þess að Júróvisjón tröllríður öllu verður næsta færsla um keppnina góðu, eða öllu heldur vegna þess að ég er að hlusta í fyrsta skipti af áhuga. Fyrir því eru hugsanlega þrjár ástæður (í anda strúktúralíska póstmódernistans Stefáns Pálssonar):
1) Ég er að linast með aldrinum og er orðinn ellileðjupoppari.
2) Fjölskyldulífið hefur róað mig og reiði unga mannsins eyðileggur ekki lengur fyrir mér júróvisjón.
3) Keppnin er orðin áhugaverðari og lögin betri, gömlu keppninar voru jafn mikið krapp og mér fannst alltaf.
Mér til sáluhjálpar vil ég hallast að síðasta kostinum (verð að varðveita reiðina, verð að kíp it ríl!). Þó væri líklega diplómatískara að leita skýringa í öllum ofangreindum möguleikum. Sú málamiðlun rennir reyndar stoðum undir fyrstu tvo möguleikana og því fellst ég á sitt lítið af hverju. *dæs*
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:40
0
athugasemdir
12. febrúar 2003
Heimilistölvan liggur niðri, er að gefa upp öndina eða eitthvað. Ég geri því ekki ráð fyrir að þið, lesendur góðir, verðið aktívir þáttandur í spennandi framvindu lífs míns fyrr en blessunin kemur heim frá lækninum (tölvan, sko).
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:37
0
athugasemdir
9. febrúar 2003
Frúin komin aftur í hús og því notuðum við tækifærið og skelltum okkur í bíltúr niður á firði. Glaðasólskin og blíða hefur leikið við austfirðinga í dag og því voru allir úti á skíðum eða í vélsleðaferðum. Skíðasvæðið í Oddskarði er alger paradís, enda iðaði allt af lífi út um allar brekkur og við tókum þá ákvörðun að skíða upp fjölskylduna við fyrsta tækifæri og fara saman í Oddskarð eða Fjarðarheiði, enginn hörgull á skíðasvæðum á Austfjörðum.
Neskauptstaður er einstaklega huggulegur bær og ber af í samanburði við Reyðarfjör og Eskifjörð. Öll eru þessi pláss þó sérstök og skemmtileg þangað til að Reyðarfjörður (og Eskifjörður örugglega líka) hverfa inn í hinstu myrkur mengunar og stóriðju innan skamms, bjakk!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:29
0
athugasemdir
8. febrúar 2003
Það er hér með gert opinbert að Þórdís er fjölskyldumeðlimurinn sem skeiðar inn á bloggvöllinn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:49
0
athugasemdir
Gaman væri að fá útskýringu á hugtakinu "tilbúin náttúrulögmál", það hef ég aldrei heyrt áður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:36
0
athugasemdir
7. febrúar 2003
Kristbjörn er með lítilsháttar úttekt á umferðaróhöppum á fyrstu árum sínum sem bílstjóri. Kristbjörn var vægast sagt alræmdur bílstjóri og það var eiginlega fastur liður að frétta af einhverjum ævintýrum hans á Skódanum eða Sjérokkíinum. Ekki man ég til þess að hafa lent í hremmingum með Kristbirni utan eitt skipti, sem var nú eiginlega alveg nóg. Við vorum fimm í jeppanum á leiðinni heim úr Vaglaskógi og einhversstaðar á miðjum veginum missir Kristbjörn stjórn á bílnum sem hringsnýst eitthvað út í buskan. Ég man eftir því að búa mig undir það að bíllinn velti eða lenti út í skurð, ég man líka eftir skelfingarsvipnum á meðfarþegum mínum. En einhverra hluta vegna stoppaði bíllinn á miðjum veginum okkur til mikils léttis. Mér var þó svo um og ó að ég þurfti að komast út úr bílnum til að staðfesta að ég væri á lífi og slaka aðeins á. Þannig ruddist ég út bölvandi og ragnandi nema að ég var varla búinn að stíga niður á jörðina með annan fótin en Kristbjörn skellir í gír og þeysir af stað, enda alvanur svona smáræði og ekkert að láta það slá sig af laginu. Ég hins vegar lenti í lífshættu tvisvar á innan við fimm mínútum.
En núna er Kristbjörn vanur að stýra alls konar farartækjum og lætur ekkert svona koma upp á.
Svo er nú það.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:45
0
athugasemdir
Það er skemmtilega lýsandi fyrir munin á þingmönnunum Ögmundi Jónassyni og Lúðvíki Bergvinssyni hvernig ummæli þeir eru víttir fyrir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:58
0
athugasemdir
Mækel Jackson er greinilega aðalmálið. Í mínum huga er þetta frekar einfalt, maðurinn er eyðilagður í æsku og áður en hann nær kynþroska hefur hann alla peninga sem hann þarf (200.000$ á viku þegar hann er tólf ára) til að pumpa upp allar þráhyggjur og geðveiki sem magnast upp með tímanum í staðin fyrir að takast á við vandamálið. En ég held að hann sé ekkert eins bilaður og þátturinn sýndi. Hann er fyrst og fremst vitlaus, algerlega úr sambandi við raunveruleikann og gerir sér ekki grein fyrir samhengi orsaka og afleiðinga vegna þess að hann hefur aldrei þurft að díla við þær. Besta dæmið um þetta meðvitundarleysi er að hann tekur blaðamann inn á gafl hjá sér í átta mánuði, á meðan garga aðdáendur hvert sem hann fer, Fuck the press, Mækel is the best og Mækel fattar ekki neitt.
Wonderland er náttúrulega ekkert nema risastór Pótemkintjöld og öll hans hegðun gengur út á það að skýla sér fyrir umheiminum. Andlitið á honum er gríma og hann kallar barnið sitt blanket, vegna þess að það er fallegasta orð sem hann veit um. Liggur þetta ekki nokkuð ljóst fyrir?
Ótrúlegt fyrirbæri og ég verð að segja að þessi þáttur var stórgóður, menn verða bara alltaf að stunda mjög stríðan lestur á svona efni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:20
0
athugasemdir
6. febrúar 2003
Einstaka sinnum sýna kratarnir sitt rétta andlit, þótt ekki sé auðvelt að greina það í gegnum falsið og lýðskrumið. Á ungkratavefnum er nefnilega nýbúið að skrifa þessa dásamlegu fullyrðinu:
Það að íslensk stjórnvöld skuli ausa milljörðum til þess að halda einhverjum smáplássum gangandi úti á landi er vitleysa. Þegar útlensk fyrirtæki eru tilbúin til þess að fjárfesta í þessum plássum er það hið besta mál [svo]
Það er ánægjulegt að ungkratarnir geti svona inn á milli létt á sínu pólitíska hjarta og sagt það sem þeim raunverulega finnst. Þ.e. að landsbyggðin megi grotna í friði.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:46
0
athugasemdir
Bendi á enn einn bloggara sem lofar góðu. Sannkallað spekingsblogg og hressandi mjög. Varð samt frekar hissa þegar ég fletti kauða upp og sá að hann er ekki skriðinn yfir tvítugt. Hlýtur að vera okkar maður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:05
0
athugasemdir
Fór á soldinn bömmer yfir því að hafa kennt ágætan bloggara við vitlausar stjórnmálaskoðanir. Það er ekki sniðugt. Biðst hér með afsökunar á því. Það versta er að ég hef gert þetta áður, reyndar var ég blindfullur á kaffibarnum, en þá jós ég einhverjum svona svívirðingum yfir ágætan mann sem hefur ekkert sér til saka unnið nema að hafa vitlausar stjórnmálaskoðanir.
Túdú listi: hætta að kalla pólitíska andstæðinga fasista.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:06
0
athugasemdir
4. febrúar 2003
Nú er kominn tími til að uppfæra snillingana:
Sigurjón Kjartansson var stórlega ofmetinn snillingur og fer út af listanum vegna gríðarlegrar bloggleti.
Ómar fyllir líka hóp blogglatra en helst inni vegna meistaralegra tilþrifa inn á milli. Þú getur þetta Ómar!
Ármann fer út vegna ótímabærs dauðdaga. Reyndar dreymdi mig um daginn að Ármann hefði dáið. Við það fylltist ég óskaplegri depurð og hóf að semja eftirmæli um hvað hann hefði verið duglegur og hvað hann hefði kennt okkur margt. Í svefnrofunum var ég ekki enn viss hvað væri rétt í málinu en létti stórum þegar ég fattaði að þetta var allt saman draumur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:45
0
athugasemdir
Stundum dettur maður í það að lesa ný blogg og vafra langt inn í hyldjúpa bloggheima. Það getur verið hin besta skemmtun, en guð minn góður hvað tíminn flýgur. Eftirfarandi blogg hef ég rambað fram á fyrr og nú:
Fréttir.com
Ansi hress náungi með puttana á púlsinum, óhemju iðinn eins og gengur og gerist en svoleiðis hættir til að missa dampinn. En er þetta nokkuð Steingrímur Ólafsson fréttamaður? Þá er þetta náttúrulega bara rútína.
Sickdanson
Alltaf verið soldið svag fyrir Ívari Páli, þó hann sé neoliberalisti...
Elvis2
Ríðubloggarinn er mikill Snigglingur.
Sindridirindri
Bara rétt að minna á SK.
Æji, nennesseggi allt bölvaðir aumingjar og leiðindafólk upp til hópa. Til hvers er maður að þessu?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:27
0
athugasemdir
3. febrúar 2003
Soddan! þvílík hamingja. Í tilefni þess að kerfið er komið í lag er rétt að benda lesendum á að ónefndur fjölskyldumeðlimur er að koma sér í gang með bloggsíðu. Og talandi um fjölskyldumeðlimi, Hulda Katrín Fellsmýlingur lætur móðinn mása á www.huldkatt.blogspot.com en hún er einmitt frænka frúarinnar.
Um mitt fólk verður ekki upplýst að sinni enda rétt að gefa fólki tíma til að fóta sig, áhugasamir geta þó dundað sér við að giska á hver er þar á ferð.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:06
0
athugasemdir
Núna er ég fúll. Bloggerinn er búinn að vera í verkfalli í marga daga og ekkert birtist sem ég set inn. Þetta er óþolandi. Ég verð bara að halda áfram og vonast til að þetta lagist sem fyrst
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:00
0
athugasemdir
2. febrúar 2003
1. febrúar 2003
Enn á ný sitjum ég og strákarnir einir og yfirgefnir í kotinu og frúin farin á átta daga námskeið í Reykjavík. Þótt að einveran sé svolítið þrúandi fylgja henni samt ótvíræðir kostir. Þannig get ég ráðið því einn hvað ég borða og hvað ég horfi á í sjónvarpinu. Ég hef sem sagt mína eigin hentisemi sem er ágætt (að því gefnu að strákarnir leggi blessun sína yfir það með þægð og tillitssemi).
Annað kvöldið sem grasekkill ætla ég að úða í mig mozzarella með salti og basilíku, skinku, tómötum, ólífuolíu og brauði, namm! Svo ætla ég að horfa á nýju gamanmyndina með Tim Allen, horfa aftur á hina stórgóðu mynd L.A Confidential og drekka bjór, namm!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:41
0
athugasemdir