Loksins fær öryggissveitin eitthvað að gera eftir þrotlausara æfingar við að berja niður mótmæli undanfarin ár en heldur lítið aksjón. Svo ekki sé nú talað um léttinn við að táragasið komist loksins í notkun, enda örugglega farið að nálgast síðasta söludag...
23. apríl 2008
Til hamingju Eiki. Þessi verðlaun eru sannarlega verðskulduð því þýðingin er frábær.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:19
0
athugasemdir
18. apríl 2008
Mogginn - FOX
Einhverra hluta vegna læt ég það koma mér á óvart að mogginn api vitleysuna um kappræður forsetaframbjóðendur demókrata upp úr FOX NEWS!
Hvergi í bloggheimum hef ég séð tekið undir þessar skoðanir Morgunblaðsins og FOX, og líklega tilheyra þessir tveir handfylli fjölmiðla sem hafa þær skýringar á takteinunum að Hillary hafi tekið Obama í bakaríið í yfirheyrslu ABC sjónvarpsstöðvarinnar.
Ef menn hafa þann skilning að Hillary hafi haft betur þá er það vegna gildismats sem snýst um að gæði stjórnmálamanna ráðist að því hvaða ímynd þeim tekst að koma sér upp. Einshverskonar 19. aldar hugmynd um hina flekklausu dyggð. Ekki hvort að menn hafi eitthvað að segja eða eitthvað agenda.
Auðvitað er æskilegt að forseti hafi hreina sakaskrá og (sæmilega hreina) samvisku, en krafan um að mega ekki hafa búið í sama hverfi og gamall umdeildur hippi eða hafa fánanæluna ekki nógu mikið í jakkaboðungnum er fáránleg og ótrúlegt að mogginn sjái ekki í gegnum þetta og taki ábyrga og málefnalega afstöðu.
Að Hillary stökkvi svo á bráðina gerir hana að allt öðru en aðlaðandi stjórnmálamanni - að Obama geri það ekki, sýnir sjálfsöryggi, sjálfstraust og heilbrigða siðferðiskennd sem sópar öllum aðdróttunum um annað af öxlunum á honum og út af borðinu.
Hitt er svo spurning, hvort að Mogginn hafi séð kappræðurnar. Undið sér bara á netið og fyrsta fréttinn sem hann rakst á hafi verið skýring FOX og fengið bara að fara ómenguð inn á blað allra landsmanna. Eða hvar eru umsagnir hinna stóru fjölmiðlanna?
Hér kemur annars fram allt það sem þarf að segja um þessar kappræður.
Og hér er Obama; snjall, glöggskyggn og traustvekjandi að vanda...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:04
0
athugasemdir