Egill Helgason: Ertu að segja það að þjóðaratkvæðagreiðslan hafi verið vantraust á ríkisstjórnina?
Bjarni Ben: Ekkert nema og í engu...
Egill Helgason: Var þetta vantraust á ríkissjórnina?
Bjarni Ben: Klárlega í þessu máli og full... uuu full...
Egill Helgason: Og hver eiga þá að vera viðbrögðin við því?
Bjarni Ben: Veistu það, í jafn stóru hagsmunamáli og Icesave málið er þá myndi mönnum ekki detta það í hug í neinu öðru vestrænu lýðræðisríki en að líta á þetta sem mikla vantraustyfirlýsingu á ríkisstjórnina, það er alveg skýrt!
Egill Helgason:Ertu þá að krefjast þess að ríkisstjórnin segi af sér?
Bjarni Ben: Ég vil fá að heyra frá þessu fólki hvaða aðra ályktun þau draga af kosningunni í gær en þá að hér hafi einhverjir óvæntir atburðir gerst í janúar og febrúar sem skýri þetta allt og [hafi ekki] talað fyrir já-inu.
Egill Helgason: En segðu mér þá...
Bjarni Ben: Hvernig var það hérna 1944 þegar voru yfir 90% manna sem að tóku þátt og sögðu já?
Egill Helgason: Ríkisstjórnin á sem sagt að draga þá ályktun af þessu...
Bjarni Ben: Var það þá að það vantaði fólk til að tala fyrir nei-inu?
Egill Helgason: En sem sagt - hún á að segja af sér? Ríkisstjórnin?
Bjarni Ben: Ég er ekki að segja að ríkisstjórnin eigi að segja af sér. Ég er að óska eftir því að menn horfist í augu við staðreyndir.
Egill Helgason: En hvernig...
Bjarni Ben: Og reyni ekki að velta af sér ábyrgð!
Egill Helgason: Hvernig á hún að taka á...
Bjarni Ben: Heyrðu! Þetta fólk mér hér á hægri hönd það hefur ekki axlað ábyrgð á sínum gjörðum. Það hefur ekki axlað ábyrgð, stigið fram og sagt: það voru gerð mistök hér. Við hefðum betur tekið stjórnarandstöðuna með okkur í þennan leiðangur, vegna þess að þegar það var gert hérna eftir áramótin, hvað kom í ljós?
Egill Helgason: En er nóg að þau biðjist afsökunnar eða eiga þau...
Bjarni Ben: Hvað kom í ljós? Mér finnst þessi ríkisstjórn algerlega rúin öllu trausti og hún hefur verið verklaus, hún er með stöðugleikasáttmála sem er í algeru uppnámi, hér er kyrrstaða, hér eru heimilin óánægð
19. júlí 2012
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:11
0
athugasemdir
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)