22. maí 2006

Það er allt að gerast á Myspace!

www.myspace.com/steinarsson

15. maí 2006

Þá er komið að því

Viðburður ársins. Fífldirfska Nýhils hefur náð nýjum hæðum, laugardaginn næstkomandi kl. 16 ýtir kompaní allífsins úr vör einhverri vitlausustu hugmynd íslenskrar viðskiptasögu: Ljóðabókabúð Nýhils verður ljóðsentrúm næsta árþúsunds, þar mun öld hins íslenska ljóðs ná sínu hæsta flugi, hálfkalkað af súrefnisleysi sleikir eldtungur sólarinnar og bros tunglsins. Ljóðvöllurinn er vígvöllur og liðhlaupar verða skotnir! Finni einhver meinbugi við þessum ráðahag Nýhils verður sá hinn sami skjátufleginn og kjöldreginn, héðan af verður ekki hopað, ekki hikað.

Ljóðabókabúðin opnar eins og áður segir kl. 16 laugardaginn 20. maí 2006. Nýhil vill bjóða öllum sínum elskulegu vinum að mæta og þiggja veitingar og fagna fullnaðarsigrinum með okkur. Þá verða stórfengleg ræðuhöld, Nýhilískir ljóðaupplestrar, harmonikkumúsík auk þess sem hljómsveitin Retro Stefson stígur á senuna. Samkoman stendur í tvo tíma, frá 16-18.

Að skorast ekki undan og axla ábyrgð

Ég hef ekki verið spenntur fyrir þessu bloggi undanfarið en núna á ég voðalega bágt með mig. Það er að sjálfsögðu hinum tilgerðarlega montpatta, Eyþóri Arnalds, að kenna.

Eyþór hefur komið og farið undanfarin ár. Hann var spútnikk gaur í .com æðinu sem fór til andsk... hann ætlaði sér stóra hluti í borginni en það fór sömu leið. Hann corpóreraðist hjá íslandssíma en skúnkaðist þaðan svo að menn gætu bjargað fyrirtækinu. Hann var óþægilega nálægt landsímamálinu og rétt eins og kötturinn sem hefur níu líf poppaði hann upp enn eina ferðina fyrir þessar kosningar, núna í sveitarfélaginu Árborg, þar sem fólkinu finnst meiriháttar að fá þennan svakagaur í sveitina og ætlar sko aldeilis að kjósa hann.

Núna hefur hann klúðrað því eins harkalega og hugsast getur (án þess að fara beina leið á Litla hraun).

En bíðum nú við, eftir ströng fundarhöld allan liðlangan daginn með plotturum og pælurum, hefur Eyþór (eða öllu heldur mennirnir sem hafa ákvörðunarvald í flokknum) nú ákveðið að ekkert sé glatað og halda skuli fengnum hlut (eða eins og hann myndi segja ´ekki skorast undan´). Í yfirlýsingu Eyþórs, sem menn hafa vandlega fabrikkerað í sinni eitruðu spunavél (og þó svo undarlega léleg), segir að hann ætli að draga sig í hlé í kosningabaráttunni og svo ætlar hann að taka sér frí sem bæjarfulltrúi á meðan á málinu stendur!!! Hér hefur ekkert breyst, staða hans í framboðinu og að því loknu er algerlega óbreytt.

Og Eyþór Arnalds, sem axlar hér ábyrg af áður óþekktri vesæld, verður orðinn bæjarstjóri áður en nokkur getur sagt orðið ´siðblinda´.

Pirringur minn stafar kannski ekki af vitleysunni sem gubbasat út úr plottfundunum í Valhöll, frekar af því að ég er viss um að hann komist upp með þetta.

Reyndar komum við áhugamenn um PR, ímyndarhringl og álitsstýringu til með að fylgjast með stórbrotinni uppálöppun fram að kosningum. Og hún er nú þegar byrjuð. Spunalæknarnir biðu eftir að yfirlýsingin kæmi á vef Vísis og byrjuðu strax að spinna:

14. Maí 2006 kl. 23:22
oliver
Frábær!
Mér finnst gott hjá honum að draga sig í hlé, en missirinn er mikill fyrir pólitíkina.

14. Maí 2006 kl. 23:52
saevaroa@visir.is
Allir geta gert mistök
Auðvitað er svona lagað aldrei nógu gott en maðurinn tekur á málinu af festu og öryggi og skorast ekkert undan. Mér finnst hann eiga heiður skilið fyrir að bregðast svona við. Það er enginn laus við það að gera mistök. Maðurinn mun fá refsingu eins og lög segja til um en mér finnst það óháð mál pólitískri framtíð hans. Sérstaklega þar sem hann ætlar ekki að taka þátt í pólitík fyrr en þessu málið er lokið.




Aumkunarvert!

Andsk...

mér líður ekkert betur.