ChooChooChooChooBeepBeep
Fyrir þá sem sjá sig knúna til að gefa mér afmælisgjöf, sem ég skil svo sem ekki af því að ég hef aldrei tuðrast til að muna eftir slíku sjálfur af því að ég hef verið svo langt leiddur af ómeðhöndluðum alkóhólisma, beindi ég á alla diska hljómsveitarinnar
af því að hún er best í heimi. Nú ef einhver vill vera grand á því þá langar mig í úr, en það má helst ekki kosta minna en 15 þús. Og svo fann ég fáránlega flott jakkaföt í ónefndri tískuvöruverslun sem kosta 25 þú með vesti. Þau eru vangefin og rosalega mikið ég.
En af því að ég á svo elskulega og fallega og skemmtilega vini og á engan vegin skilið að fá neina afmælisgjöf (nema frá pabba af því að hann verður bara að gera svo vel) þá bið ég ekki um neitt sérstakt nema bara fallegt lítið bros og faðm og mérþykirsvovæntum þig af því að mér þykir svo vænt um ykkur!
p.s. Fyrir þá sem eru að spá í úrið eða jakkafötin þá fást þau í firðinum og úrið í NonnaGull.
En mín gjöf til ykkar er



