Fóbboltinn var stórgóður!
sjaldan hef ég leikið á betri velli, ef frá er talinn einn leikur með 8unda flokki Þórs í gamla daga (vinstri bakvörður. Síðan hef ég alltaf haft ákveðnar taugar til vinstri bakvarða...). Eini gallinn var sá að einungis átta mættu sem þýddi það að á þeim tímapunkti sem annar markvörðurinn slasaðist og þurfti að fara heim vorum við of fáir (sem virðist ætla að verða fastur liður). En samt sem áður var þetta hin besta skemmtun. Hinn stórgóði Þjóðverji Bendt bættist í hópinn og sýndi snilldartakta. Vonandi kemur hann næsta sunnudag.
Vonandi kemst ég líka því að allt í einu get ég ekki gengið vegna verkja í vinstra innanlæri. Örugglega eitthvað minniháttar.
Ég hvet alla til að mæta á sunnudaginn. Boltinn verður ekki betri!
30. júní 2002
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:47
0
athugasemdir
28. júní 2002
Af hverju
enda gamlir susarar alltaf á Rúv og grenja svo yfir því að vinna á ríkisstofnun. Svona er lífið, fullt af leyndardómum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:31
0
athugasemdir
Við spilum fótbolta
á sunnudaginn. Ég sting upp á því að Palli verði dómari, en í staðin fyrir að skakklappast um völlin sér til ómældrar lífshættu gæti hann setið í svona háum stól fyrir miðri endalínu eins og blakidómari. Hvernig væri það?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:17
0
athugasemdir
Fyrirsagnir dagsins:
Connery enn í fullu fjöri.
Knattspyrnukonur í Playboy.
Risastór friðardúfa á kornakri.
...og svo að sjálfsögðu komment dagsins:
„Heilsa Arafats átti mikinn þátt í því að Bush sagði í ræðu sinni að Palestínumenn þyrftu nýjan leiðtoga," sagði í blaðinu, sem er í eigu Silvio Berlusconi forsætisráðherra."
Jú jú, mikið rétt.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:09
0
athugasemdir
27. júní 2002
Je minn,
hvað er einmanalegra en að sitja (svo gott sem) einn innan um tugþúsundir bóka á sólbjörtum sumardegi. Ef einhver vill fá sér kaffi eða sígó má sá hinn sami hringja í mig í 846-1923, það er ekki verra ef sá hinn sami getur frætt mig um greinina "Frá Verki til Texta" e. Barthes.
Talandi um tímaritsgreinar, þá byrjaði ég á hinu merka riti Ritið um daginn. Útópía er einhverskonar tema ritsins og að sjálfsögðu á Árni Bergmann, sérfræðingur í staðleysubókmenntum, fyrstu greinina. Sú er skrambi góð og þegar talið berst að bók Paul Auster, In the Country of Last Things er ekki laust við að fari svolítið um mann.
Úlfhildur Dagsdóttir á svo grein nr. tvö og fjallar þar í löngu máli um sæborga og fóstur og fleira skemmtilegt. Ég keyrði mig í gegnum megnið af greininni en þegar ég átti fjórar síður eftir sá ég í hendi mér að það væri tímaeyðsla að halda þessu áfram. Sorrý Úlfhildur, var ekki að fíla þetta.
Að lokum las ég grein Sumarliða Ísleifssonar, "Fyrirmyndarsamfélagið Ísland". Hún var ágæt, en frekar þunn. Sniðugt samt að skilgreina ímynd Íslands í útlöndum sem útópíska.
Eftir stendur Árni eins og klettur upp úr hafi fræðanna og hefur þrengt að voninni en skerpt sýnina á tilveruna (eða þannig).
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:00
0
athugasemdir
26. júní 2002
Með fullri virðingu
fyrir Bloggi dauðans, þá segir þessi frétt Kistunar meira um hnignun þess fyrrum glæsta veftímarits en nokkurn tíman eitthvað um Blogg dauðans. Einu sinni var Kistan gott veftímarit, áður en ónefnd bókaforlög komu til sögunnar, ekki lengur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:11
0
athugasemdir
25. júní 2002
Fór í Bókhlöðuna
í dag, reyndar seint og illa en náði þó að lesa B.A. ritgerð um Bubba og grufla aðeins í Nietzsche. Bubbaritgerðina las ég að vísu bara fyrir forvitnissakir, hún er nefnilega skrifuð af valmenninu Ugga Ævarssyni, enda hin ágætasta. Uggi sat með mér í hinum sögulega kúrs Fagurfræði og bókmenntasaga sem kenndur var af Birnu Bjarnadóttur. Er það tilviljunin ein að Birna er leiðbeinandi okkar beggja við samningu B.A. ritgerðar? Eða er Birna bara mesti spútnik kennari innan bókmenntafræðinnar um þessar mundir? skyldi þó aldrei vera.
Soffía Bjarnadóttir sat kúrsinn líka. Hver skyldi líta eftir B.A. skrifum Soffíu?
Þegar ég kom heim beið mín eintak af hinu gagnmerka fræðiriti Ritið og kom mér nokkuð á óvart þar sem ég sótti um að gerast áskrifandi fyrir ári síðan en var hafnað þar sem ég átti ekki kreditkort. Þótti mér það súrt í broti en fékkst ekki meir við það. Enda kom það seinna í ljós að það þurfti mun meira en fræðilegann áhuga til að ég endurnýjaði kreditkortið.
Ég geri sem sagt ráð fyrir að hún Þórdís hafi látið það eftir sér eftir margra mánaða samviskubit að gera mig að áskrifanda þrátt fyrir að ég væri kortalaus maður. Í staðin límdi hún lítin post-it miða á kápuna og bað mig náðarsamlegast að koma við á þriðju hæð Nýja-Garðs og borga sér í beinhörðum péningum.
Sú verður ánægð þegar ég kem vappandi með glansandi kortanúmer.
En talandi um brot. Eitthvað var ég búinn að lofa framhaldsskrifum um fyrirbærið hér á síðunni. Það verður að bíða betri tíma, en hvernig líst mönnum á heitið:
Hvar endar þetta? Ágrip af sögu brotsins í bókmenntum vesturheims eftir 1800.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:17
0
athugasemdir
Er hægt
að rífa sig upp á hárinu? Ja, nú reynir á.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:32
0
athugasemdir
24. júní 2002
Í gær:
Var ég þunnur.
Horfði ég upp á Palla meiða sig í hnéskelinni.
Tæklaði ég Óla Njál á malbikinu.
Hélt ég matarboð fyrir tengdó.
Horfði ég á Riding in Cars With Boys.
Palli var sorglegur, tengdó voru hress, Óli Njáll var ekki hress, Riding in Cars With Boys var góð, en svolítið löng.
Í dag ætla ég að komast að því um hvað B.A. ritgerðin mín á að fjalla. Einhverjar fleiri uppástungur?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:50
0
athugasemdir
21. júní 2002
Einn maður
hefur bæst í boltann, þá erum við fjórir, ef ég kann að telja rétt. Hvar er svo meiningin að há viðureignina?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:24
0
athugasemdir
Ég er hættur
á höfninni. Í staðin hefst ég handa við B.A. ritgerð. Já lífið getur verið dámsamlegt.
Farvel stórlúður.
Farvel myglukassar.
Farvel lífshætta.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:31
0
athugasemdir
20. júní 2002
Gott hjá Stefáni
að standa með blóðspýjuna úr puttanum eftir að hafa skorið sig, en finna sér samt tíma til að hamra það á lyklaborðið...
Aukinn viðvera Stefáns í bloggheimum er samt sem áður fagnaðarefni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:03
0
athugasemdir
Ég er sko til
í útifótbolta, jafnvel á kostnað krikketsins ef því er að skipta. Enda eru aðstæður til krikketleiks lélegar og óneitanlega fær maður að hlaupa meira í fótboltanum. En hvað um það kannski getur maður verið í báðum íþróttunum, ekki veitir að því að komast í form.
Eru ekki einhverjir fleiri til í tuskið?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:45
0
athugasemdir
19. júní 2002
Fjórtán tíma akkorðsvakt
er sem sagt lokið (ekki tólf). Ég var settur niður í lest, þar er fjörtíu stiga frost. Núna hef ég tíma til að horfa á eina vídeóspólu, borða einn skrúfupoka með paprikubragði (já ég er fallinn) og drekka eins og einn líter af Fanta. Svo fer ég að sofa því á morgun er önnur eins törn.
Jibbí.
Ég er ennþá að leita mér að vinnu. Kann að tala í gsm, senda tölvupóst og lyfta tuttuguogfjögurra og tuttuguogeins kílóa kössum í fjörtíu stiga frosti!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:35
0
athugasemdir
Sú ömurlega staðreynd
að eitt glæsilegasta skip íslenska flotans sökk skammt frá Lofoten í nótt kom illa við okkur sem þekkjum til skipverja. Mágur minn, bróðir hans og faðir þeirra eru nú í fullkominni óvissu um framvinduna og hvort útgerðin standist þetta áfall.
Hér má sjá myndir af þessu hræðilega slysi.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:43
0
athugasemdir
Karfi
í tuttuguogeins kílóa kössum. Sex tíma svefn. Tólf tíma vinna. Rigning, fiskifýla, hungur, þorsti og aumir upphandleggsvöðvar (sem fara óðum stækkandi).
Baaaaaaaa...
Hefur einhver vinnu handa mér? Er góður að tala í gsm síma og senda tölvupóst.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:06
0
athugasemdir
Tilvitnun dagsins:
"UNCTAD [segir] að fjöldi þeirra sem lifi á innan við einum Bandaríkjadal á dag munu aukast um 30% í 49 fátækustu ríkjum heims fram til ársins 2015 og þá muni 420 milljónir manna verða í þeim hópi, að því er segir í frétt Reuters.
Í skýrslu UNCTAD segir að ástandið geti batnað til muna í þessum ríkjum, sem flest eru í Afríku, ef stjórnvöld í sérhverju ríki og alþjóðasamfélagið nái saman um einfalt markmið - hagvöxt."
Það er verk að vinna félagar góðir
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:49
0
athugasemdir
18. júní 2002
Núna fer Óli Njáll
kannski að læra nöfnin á S-Kóresku leikmönnunum, ég tala nú ekki um ef þeir verða heimsmeistarar?
Geta þeir það?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:18
0
athugasemdir
Ég tek orð mín aftur. Þetta var ekkert í líkingu við Bruckheimer. George Lukas kemur frekar upp í hugan.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:11
0
athugasemdir
Ætli Óli Njáll sé ekki taugaveiklaður í meira lagi eftir að S-Kórea komst í 8 liða úrslit?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
16:01
0
athugasemdir
Ég get ekki betur séð en að ég hafi tekið forustu í einkadeild Múrara.
Ég átti svo sem ekki von á öðru.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:45
0
athugasemdir
Suður Kórea átti þennan sigur fyllilega skilið. Frábært lið sem ber enga óþarfa virðingu fyrir Ítölum og hefur fullkomið sjálfstraust í að gera sitt besta. Hvernig er annað hægt með þennan heimavöll og þennan stuðning áhorfenda. Þetta líktist einna helst 4. júlí í Bruckenheimer mynd
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:12
0
athugasemdir
17. júní 2002
USA er komið áfram og það er náttúrulega hið besta mál og gott á alla þá sem eru haldnir óþoli gegn öllu sem kemur frá Bandaríkjunum. Ég gleðst að sjálfsögðu yfir gengi þeirra enda tek ég æfinlega málstað þess sem minna má sín.
Hitt er vitaskuld annað mál að boltinn sem þeir spila er hundleiðinlegur.
Þeir detta út í næsta leik gegn Þjóðverjum.
Hverjum halda vinstrigrænir vinir mínir með þá?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:53
0
athugasemdir
16. júní 2002
Páll Hilmarsson búin að uppfæra. Hver hefði trúað þessu!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:33
0
athugasemdir
Ég er strax byrjaður að lesa hið stórbrotna fræðiverk Í leit að Konungi og skemmti mér stórvel ásamt því að fræðast heilann helling um hugmyndir konungasagnaritara um konungsvald. Ég tók þá ákvörðun, eftir að hafa rennt yfir efnisyfirlitið, að brjóta upp verkið og lesa bókina ekki línulega. Þannig hóf ég lesturinn á kaflanum um Morkinskinnu (eins og gefur að skilja) og síðan kaflann um samband konungs og ríkis. Hingað til er þetta lestrarform hið ágætasta mál en mig grunar að einhverjir hlutar bókarinnar þurfi að lesast línulega.
Þessi hegðun orsakast líklega af aðdáun minni á hinu brotakennda. Þ.e. brotakenndum texta. Myndin Memento var til dæmis frábær fyrst og fremst vegna þess að búið var að brjóta upp framvinduna (reyndar reglulega, en það skiptir ekki höfuðmáli). Pulp Fiction var rómuð á sínum tíma fyrir einmitt hið sama, óreglulega framvindu, brotakendann söguþráð.
Fyrirbærið er kemur eðli málsins fyrir löngu áður en Hollywood tekur við sér. Módernistum þótti það mikið sport að hræra í þeim reglum sem sátt var um fyrir þeirra tíma, líkt og Guðbergur gerir í Tómas Jónsson metsölubók.
Eins og sjá má er ég að koma mér í ham fyrir ritgerðarskrif. Fljótlega fá lesendur að vita meira um hið brotakennda og verður þá ferðast lengra aftur en til módernismans, nefnilega til Jena um aldarmótin 1800.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:07
0
athugasemdir
Þetta er einkennilegt. Ég er kominn með tvo teljara og þeir eru algerlega ósammála um fjölda gesta í dag. Ég er ekki ánægður með þetta þar sem ég er vitaskuld nákvæmnismaður.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:30
0
athugasemdir
Tilvitnun dagsins:
"Skammt frá [lögreglu]bílnum stóðu tveir frakkaklæddir menn og fylgdust með af athygli. Og þegar við ásökuðum lögguna fyrir mannréttindabrot og tjáningarfrelsisskerðingu, þá hlógu þeir að okkur og virtust skemmta sér hið besta."
Lesið allt um málið í nýjustu grein Gríms Hákonarsonar á www.uvg.vg
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:48
0
athugasemdir
15. júní 2002
Varð mér út um nýja statistik þjónustu sem er hið besta mál, nema viagra auglýsingin sem poppar alltaf upp þegar maður skoðar tölfræðina. Jæja, fjandinn hafi það ég nenni að finna eitthvað annað, nóg annað hefur maður við tímann að gera þó tíð skrif á þessa síðu undanfarið bendi ekki til þess.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:57
0
athugasemdir
Festi loksins kaup á hinu gagnmerka fræðiriti Í leit að konungi, að sjálfsögðu áritaða af höfundi, sem ég bæ ðe vei hitti 4 sinnum í gær af helberri tilviljun. (Mér er greininlega ætlað að lesa um hugmyndir konungasagnaritara um konungsvald.) Kannski hefur þetta eitthvað að gera með það að ég hef lagt formlega í það verk að skrifa 10 eininga BA ritgerð í bókmenntafræði.
Ritgerðin ætti kannski að heita Í leit að Ármanni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:33
0
athugasemdir
Jæja, eru ekki allir búnir að endurnýja liðin sín í Draumadeildinni? Ég á ekki von á öðru þar sem fresturinn rennur út kl. 6:10 í fyrramálið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:28
0
athugasemdir
Teljarinn minn var hættur að virka og fékk ég það staðfest þegar ég fékk mér nýjann. Grunsemdir um að teljarinn væri bilaður vöknuðu þegar heimsóknir duttu niður í eina til tvær á dag og stundum enga. Eitthvað fannst mér það skrítið þó að maður sé nógu paranoid til að trúa því að áhugi fólk hafi horfið á einum degi eftir að hafa lesið einhverja bjánalega færslu. Þess vegna byrjaði ég á að velta fyrir mér hvaða færsla það hafi verið sem hrakti alla í einu frá því að koma aftur í heimsókn í staðin fyrir að ná bara strax í nýjan teljara. Svona er maður geggjaður. Eftir að hafa trassað þetta verk í marga daga, rétt eins og maður trassað að skoða hversu langt maður er farinn fram úr á heftinu, náði ég í nýjan teljara og fékk það staðfest að allt er í himnalagi og heimsóknir í miklum blóma... að sjálfsögðu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:20
0
athugasemdir
14. júní 2002
Það kemur í ljós að allir þeir sem rætt var við í fréttum Sjónvarps voru að mótmæla íslenskum stjórnvöldum ekki síður en mannréttindabrotum í Kína. Margir tiltóku jafnvel aðeins mannréttindabrot íslenskra stjórnvalda á erlendum ferðamönnum.
Þessu voru aðstandendur samkomunnar hins vegar ekki að mótmæla, enda bundu þeir endi á mótmælin snarlega þegar fjöldinn fór frá kínverska sendiráðinu niður í stjórnarráðið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:28
0
athugasemdir
Ég held að menn láti hatur sitt á Þjóðverjum eyðileggja fyrir sér annars vel vaxnar spár. Þjóðverjarnir verða ekki slegnir út af Paragvæ. Einhverjar líkur eru á að Mexíkóar nái að slá þá út en mér finnst það ekki ýkja líklegt. Þýskaland-Spánn/Ítalía er náttúrulega ómögulegt að spá um ef að liðin verða í formi. Hins vegar hef ég á tilfinningunni að Ítalía hafi ekki hreðjar í Spánverjana. Þeir eiga eftir að eyða öllum kröftunum í að grenja í dómaranum, helvítis vesalingar.
Sem sagt, Þjóðverjarnir fara að mínum dómi í undanúrslit, ef ekki í úrslit. En þar endar partíið.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:21
0
athugasemdir
Hvern djöfulinn á þetta að þýða:
"Ég hata kóreumenn, það er ekki hægt að halda með liði þar sem allir líta eins út og heita allir óskiljanlegum nöfnum."
Hvernig geta menn sett svona fíflagang frá sér án þess að skammast sín.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:02
0
athugasemdir
13. júní 2002
Hvað er þetta? Er verið að dissa ritstörf formannsins!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:06
0
athugasemdir
Jæja, ég klikkaði á Tyrkjunum, enda lítið sem skildi á milli þeirra og Kosta Rica. Það verða því Tyrkland og Japan sem berjast í 16 liða úrslitum.
Allir góðir Tyrkir hljóta að fagna því, sérstaklega þegar maður er með Sukur í liðinu hjá sér.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
09:16
0
athugasemdir
12. júní 2002
Nú fara línurnar að skýrast. Þýskaland mætir Paragvæ, Danir Englendingum, Svíþjóð Senegal og Spánn Írlandi. Síðan spái ég Mexíkó-Portúgal, Brasilía-Rússland, Japan-Kosta Ríka og USA-Ítalía. Ef þetta gengur eftir eru Þjóðverjar að öllum líkindum komnir í undanúrslit, þurfa að sigra Mexíkó eða Portúgal. Erfiðara er þó að átta sig á því hverjum þeir mæta. Kaninn verður stöðvaður af Ítölum sem þá mæta Írum eða Spánverjum. Eftir góða frammistöðu geri ég ráð fyrir að Spánn fari áfram þó Írarnir séu til alls líklegir.
Þá eru Brassarnir nokkuð líklegir í undanúrslit. Til þess þurfa þeir að sigra Rússa og síðan Dani eða Englendinga (vonandi Dani). Danir eru nú samt á góðri siglingu og ef allt gengur þeim í vil væri frábært að sjá þá spila úrslitaleik við Þjóðverja og sigra þá. Ég vil síður sjá Spánverjana á móti Dönum þar sem viðureignir þeirra hafa sjaldnast verið Dönum í vil. Spánverjar eru innilega hataðir af Dönum þegar kemur að fótbolta.
Japanir ættu að hafa Kosta Ríka og ég tippsa á Svíana á móti Senegal. Ég gef svo Japönunum heimavöllinn og set þá í undanúrslit á móti Brössunum. Þá fer staðan að verða kunnugleg. Þýskaland-Brasilía.
Þó að þessar þjóðir hafi aldrei mæst í úrslitaleik á HM hafa þær leikið oftar til úrslita en nokkur önnur þjóð á HM. Frá 1950 hefur úrslitaleikurinn verið háður af öðru hvoru þessara liða, ef frá er talinn leikur Argentínu og Hollands 1978. Þetta verður því sannkallaður stórleikur, sannkallaðra stórliða.
Önnur lið ættu að geta komist alla leið. Annað eins hefur nú sést. Svíar og Danir gætu gert ýmislegt og tími til kominn að norðurlandaþjóð komist í úrslit. Svíðþjóð spilaði við Brasilíu 1958 en síðan hefur ekkert gerst.
Skemmtilegasti hluti HM fer í hönd.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
14:58
0
athugasemdir
Glæsileg frammistaða Paragvæ. Chilavert náði ekki að skora þó að hann hafi verið nálægt því. Þeir komast samt áfram þar sem Suður-Afríka tapaði fyrir Spáni. Maður leiksins er Nelson Chuevas sem skoraði tvö mörk og sýndi frábær tilþrif þó að leiklýsandinn hafi nánast eyðilagt það með bjánalegu oflofi. Chilavert stóð sig svo með miklum ágætum þó að hann hafi gert ein klaufaleg mistök og blés á hallærislegar æskudýrkunarraddir sem sögðu hann gamlan og þreyttan.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:27
0
athugasemdir
Jæja þá er minn maður að hefja leik. Jose Luis Chilavert markvörður Paragvæ. Ekki það að ég haldi sérstaklega upp á hann eða hans lið. Chilavert er hins vegar auka- og vítaspyrnusérfræðingur liðsins og því umtalsvert meiri líkur á að hann skori heldur en einhverjir aðrir markverðir. Ef það gerist fæ ég 20 stig í draumadeildinni og færist upp í efstu sæti deildarinnar.
Koma svo Chilavert!!!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:33
0
athugasemdir
Ekki vissi ég að sjálfur Lambkáli hefði verið viðstaddur krikketæfingu kvöldsins. En Óli Njáll stóð sig mjög vel sem wicketkeeper. Mun betur en í síðasta skipti. Reyndar náðu andstæðingarnir nokkrum hlaupum í kjölfar mistaka wicketkeepersins, en við unnum og það er að sjálfsögðu fyrir öllu. Krikket er að sjálfsögðu hin göfugasta íþrótt og mesta skemmtun. Ekki skemmir fyrir að maður er þátttakandi í sannarlega fjölmenningarlegum viðburði. Mig rekur ekki minni til þess að hafa verið í hópi með jafn fjölþjóðlegum mannskap og í kvöld. En um það má lesa á síðu hins mikla Uruguayhatara Turkilmas Ataturk.
Þeir sem hafa áhuga geta mætt á æfingu á svokölluðum Rafmagnsstól við Minjasafn Orkuveitunnar nk. þriðjudag kl. 20:00
Lengi lifi KKKR!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
02:37
0
athugasemdir
11. júní 2002
Hei! það er einn svartur hjá þjóðverjum. Á bekknum að sjálfsögðu. Er það fyrsti litaði leikmaður landsliðsins í Þýskalandi?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:29
0
athugasemdir
Þýs-Kam er að byrja. Alger snilld að horfa á Sýn óruglaða. Ég fæ fiðring í magann.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:25
0
athugasemdir
Ætlaði að horfa á Dan-Fra í dag en komst svo ekki hjá því að sjá úrslitin á mbl. Ég gleðst með Dönunum en kæri mig kollóttann um Frakkana, þeir voru hvort sem er búnir að klúðra þessu.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:09
0
athugasemdir
Eftir að hafa horft á þrjá leiki meira og minna ruglaða hringi ég í þjónustuver Norðurljósa og panta áskrift. Það er nóg eftir. Vona bara að Helga verði jafn ánægð með það og ég.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:06
0
athugasemdir
Ég verð nú að segja að hrakfarir Uruguay eru mér ekki að skapi. Eftir að hafa verið 3-0 yfir í hálfleik eru Senegalar heppnir að halda jöfnu í leikslok. Vörnin er vissulega ekki upp á marga fiska þó að Montero sé náttúrulega burðarás. En einn varnarmaður telst seint nóg í HM. Sóknin er hins vegar frábær og menn eins og Silva og Morales svo ekki sé talað um snillinginn Recoba myndu sóma sér vel í hvaða landsliði sem er. Síðan er ótalinn nýjasti leikmaður United, Diego Forlan, sem skoraði eitt af glæsilegri mörkum keppninnar í dag. Ferguson klikkar sjaldan í leikmannakaupum og allra síst þegar háar fjáræhæðir eru í spilinu.
Miklar væntingar voru gerðar til liðsins fyrir keppnina og litlu munaði að það kæmist áfram. Framtíð liðsins er samt sem áður björt og spennandi að fylgjast með gengi þess.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:53
0
athugasemdir
10. júní 2002
Hvaða voðalegi pirringur eru hlaupinn í vini mína í Vinstri grænum. Eru menn ekki að komast yfir kosningaúrslitin? Eða er HM spennan að fara með mannskapinn?
Kannski er þetta bara svona almennur grænkommapirringur.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:22
0
athugasemdir
9. júní 2002
Japanir unnu Rússa 1-0 með glæsilegu marki. Allt vitlaust í Japan og líka í Rússlandi þar sem menn efndu til götuóeirða.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:52
0
athugasemdir
Ætli Japanir vinni Rússa? Maður veit ekki, enda fótboltalandslagið greinilega að taka allnokkrum breytingum.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:44
0
athugasemdir
7. júní 2002
Í gær skelltum við okkur á Ara í Ögri og drukkum þar bjór á súperprís, aðeins 300 kall flaskan. Þangað fórum við eftir að hafa hitt Þórdísi systir mína og Eina Bjarna sem kom af sjónum í gær. Heimkoman var svolítið skrautleg. Eftir að hafa landað tæplega 900 tonnum af sjófrystri síld (geri aðrir betur) í Noregi flaug útgerðin mannskapnum heim í rörinu frá Bodö til Egilstaða. Ferðin sú tók fjóra tíma og voru þeir sem höfðu mest látið til sín taka í drykkjunni um daginn og jafnvel með bjór í vélinni, orðnir frekar illa haldnir þegar líða tók á túrinn því að, jú rétt til getið, það er ekkert klósett í rörinu. Það var mikið migið á Egilstöðum í blíðunni í gærmorguninn.
Alla vega, Þórdís heimti sinn mann af sjónum og úr hlandrörinu og Magga hansSigfúsar hafði komið frá Ítalíu fyrr um daginn og þau komu á Ara þegar líða tók á kvöldið. Sigfús er á góðri leið að gera Þistilfjörð og Langanes að eftirsóttasta ferðamannastað veraldar og kemur til með að skila góðu búi þegar hann hætti í lok ágúst.
Enn bættist í mannskapinn eftir því sem kvöldið leið þegar nokkrir skerjagarðsbúar skakkalöppuðust inn rauðir og brúnir eftir að hafa labbað á Hvannadalshnjúk. Það var víst mikið ævintýri. Þeirra á meðal var eðalbloggarinn Valdi sem var að klára hagfræðina í gær (gratúlera).
Jæja, hef ekki tíma í þetta England-Argentína er að byrja.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:58
0
athugasemdir
Teljarinn minn er kominn í klessu. Getur einhver hjálpað mér?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:13
0
athugasemdir
Komment dagsins:
Þetta er svo skemmtilega viðeigandi finnst mér, að það séu Harry Potter og Ósama bin Laden sem deila með sér síðasta ári, í máli og myndum, og nú er Osama orðinn eins óáþreyfanlegur og Voldemort, horfinn sjónum, blastaður burt af endurvarpi eigin galdraárása, kannski dáinn, kannski ekki, en við vitum að hann svífst einskis til að koma aftur og ráðast á ný gegn vestrænni menningu, sem tákngera má í bandarískri afþreyingarmenningarafurð, kvikmyndinni.
Úlfhildur Dagsdóttir að dæma Harry Potter á Kistunni.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:11
0
athugasemdir
6. júní 2002
Það er nú gott að Stefáni Pálssyni sé hrósað fyrir að geta skorið grænmeti.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:27
0
athugasemdir
Hrafnkell er enn í fangelsi. Þetta er farið að dragast nokkuð á langinn og ekki róast maður eftir því sem á líður.
Krikketið í gær gekk vel og olli mér engum vonbrigðum. Það er þó alveg ljóst að KKKR veðrur að finna sér betri grasflöt ef eitthvað á að gerast á þessum æfingum því að helvítis boltinn fór æfinlega í einhverja dæld eða þúfu þegar hann var á góðri leið í vikketið. Einstaka sinnum fór hann þó alla leið og þar af þrisvar hjá Óla Njál og það þótti mér ekki leiðinlegt. Nú verður maður bara að komast í leik sem fyrst með hlaupum og öllu því sem tilheyrir.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:02
0
athugasemdir
5. júní 2002
Leiðinlegt að Stefán skuli ekki mæta á krikketæfingu í kvöld. Ég var farinn að hlakka til að sjá hann í íþróttafötum. En krikket verður skemmtilegt undir styrkri leiðsögn Óla Njáls.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:40
0
athugasemdir
Þetta er fyrirsögn dagsins:
Sýndi Fram afturendan
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
17:15
0
athugasemdir
4. júní 2002
Ég hef boðað komu mína á krikketæfingu á morgun. Ég hef einu sinni áður spilað krikket, eða hálfgildingskrikket, þegar ég var í Danmörku en það gaf nú litla mynd af sportinu. KKKR er vitanlega vel burðugt íþróttafélag og virkilega spennandi að grípa í kylfu og gera nokkur lbw og vikket og svoleiðis skemmtilegt. Kannski maður verði bara krikketfíkill enda er mun flottara að skella sér í krikket en í bolta.
Adios
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
20:04
0
athugasemdir
3. júní 2002
Hmm, annað hvort er teljarinn bilaður, eða daglegar heimsóknir eru orðnar að heimsókn. Það finnst mér ótrúlegt. Samt veit maður aldrei, enda er ég ekki ýkja merkilegur maður....
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:57
0
athugasemdir
Bloggar maður minna á sumrin? Örugglega, sérstaklega þar sem óbreyttir hafnarverkamenn gera lítið af því að skella sér á netið í vinnunni. Annars fór ég í bústað um helgina með Huginn og Dagnýju. Bústaðurinn er í uppsveitum Árnessýslu. Þangað hef ég ekki komið áður og var mjög heillaður af veðurblíðunni og gróðrinum. Árnesingar kunna svo sannarlega að rækta garðinn sinn.
Meðal þess sem við tókum okkur fyrir hendur var heitapottsseta og aksónarí, þar sem Huginn sýndi áður óþekkta leikhæfileika í hlutverki Leppalúða, enda vann hann spilið með góðri hjálp Helgu. Við Dagný sátum hins vegar eftir, varla hálfnuð. Eins og mér sé ekki sama. Á heimleiðinni var brunað í Slakka sem er húsdýragarður hugsaður fyrir ungviðið, þ.e dýr og menn. Eftir það fórum við í sund á Selfossi þar sem börnin undu sér við rennur og kúta.
Í morgun biðu mín svo 17.000 kassar af karfa um borð í skipinu Ými. Við félagarnir hjá uppskipunargengi Eimskipa settum nýtt met og drógum 10.000 kassa upp á 9 tímum. Geri aðrir betur.
Vikunni verður svo varið í uppskipun og auglýsingasölu á Draumadeildin.is sem grænkommar eru duglegir við að taka þátt í. Það ætti ekki að vera erfitt. Hver vill ekki auglýsa á HM-netleik. Heildsalar og framleiðendur léttbjóra ættu að vera áhugasamir. Enda er neysla léttbjóra mikil þegar fótbolti er annars vegar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:51
0
athugasemdir