31. ágúst 2003

Ef ég á að segja eitthvað hér á annað borð verða það tóm leiðindi. Sé til hvort að ég nenni þessu, nenni því alla vega ekki í augnablikinu.

Ef einhver vill æfa sig í áfallahjálp þá má hinn sami hringja í mig eða senda tölvupóst.

28. ágúst 2003

Vaknaði í morgun með lagið Crazy right now á heilanum með ofurtöffaragellunni Beyonce Knowles. Nokkrum mínútum síðar kveikti ég á MTV og viti menn stuttu seinna kom lagið. Síðan þá er ég búinn að hlaða laginu niður í tölvuna og hlusta á það 10 sinnum non stop. Hvað er málið?

Nú er ekki eins og þetta lag sé glænýtt og þess vegna skrítið að ég skuli allt í einu vera dansandi um alla íbúð með Jay-Z og Beyonce í eyrunum. Því opnast sá mögulegiki þegar grannt er skoðað að sælutilfinning sé að kikka inn vegna þess að ég sé búinn að skila ritgerðinni, eða þurfi ekki að hafa nagandi samviskubit á hverjum degi. Það er möguleiki. Undarlegt samt að það komi fram í svona skrítinni hegðun. Ég er nefnilega tilfinningaheftur maður í meira lagi og þar af leiðandi verð ég greinilega að plata sjálfan mig til að gleðjast, og þá yfir einhverju öðru en hinu raunverulega tilefni.

Kannski ekki skrítið þar sem ég gleðst aldrei þegar vel gengur, í útskrift eða einhverju slíku, ég syrgi heldur ekki átakanlega þegar t.d. einhver deyr. Hins vegar get ég nötrað af harmi þegar ég horfi á bíómynd!? Hvað er málið?

Svona er skrítið að uppgötva nýjar hliðar á sjálfum sér, og kannski leyfa sér að gleðjast örlítið þegar vel gengur, eða svona skítsæmilega allavega.

Gaman samt að lagið sem ég vel til að fá á heilan skuli heita Crazy right now...

26. ágúst 2003

Ég er örmagna eftir að hafa klárað ritgerðina í morgun. En þetta er mín síðasta bókmenntaritgerð, þannig að ég þarf ekki að þjást yfir svoleiðis fargani aftur í lífi mínu. Svei mér þá ég held ég hætti að lesa fyrir fullt og allt, bókmenntir eru, eftir á að hyggja, bara fyrir vitleysinga.

Í dag byrjaði ég svo í nýja náminu mínu, þ.e. einhverju undirbúningsnámskeiði þar sem ég fylgdist aldrei með í bókmenntafræðinni hvernig átti að skrifa ritgerðir, búa til heimildaskrá og leita í gegni. Svo fer ég á annað námskeið í næstu viku þar sem ég hef ekki reiknað stærðfræðidæmi í mörg ár. Tilhugsunin um þriðja stigs jöfnur lætur mig fá gæsahúð að sælu miðað við bókmenntafræðina, sem er, ef að engin náði því í fyrra skiptið, bara rugl og vitleysa.

Ég er að hugsa um að skrifa grein í Skírni sem á að heita "Hvað er á seyði í bókmenntafræðinni".

Eða kannski ég hefði bara átt að mæta aðeins og lesa heima??? Spurning.

Jæja, best að fara að lesa Polisy Analysis: Consepts and practice...

HA HA og fara á Foo Fighters í kvöld því ég fékk miða í dag!!! Rokk og ról.

25. ágúst 2003

Fokkíngs vírusar búnir að reyna að drepa mig úr pirringi í allt kvöld og þar að auki að eyðileggja líf mitt. Af hverju? (spyr ég eins og Stefán Pálsson) Jú, (og svara líka eins og hann) ég er nefnilega að klára blóðsuguritgerðina og kemst ekki í tölvuna vegna þess AÐ HÚN SLEKKUR ALLTAF Á SÉR ÞEGAR ÉG ER AÐ REYNA AÐ GERA EITTHVAÐ EINS OG TIL DÆMIS EYÐA FOKKINGS HELVÍTIS VÍRUSNUM! Múm róar mig samt. Ahh Múm.

Þessi vírus er svo skæður að hér er komin með kláða og útbrot eftir að hafa átt í handalögmálum við hann í allt kvöld. Einhvernvegin get ég samt ekki verið fúll út í vírusana, af því að þeir sem búa þá til eru svo mikið rebbel og ég er svo svag fyrir svoleiðis. Ég geri bara eins og Palli og Huginn og fæ mér Apple.

Núna er klukkan að verða fjögur (mörg atriðanna í Two Weeks Notice voru einmitt tekin upp kl. 04:00) og ég er rétt að byrja að klára. Arg!

Two Weeks Notice er einmitt myndin sem ég var að horfa á um daginn. Hin bærilegasta mynd, enda er Hugh Grant með eindæmum klár og sniðugur maður (ætti ég að segja myndarlegur?, naaa)

Ronaldo hinn nýji er hins vegar myndarlegur (þá á ég að sjálfsögðu við í fótboltafagurfræðilegum skilningi). Hann er bókstaflega eins og grískur guð á vellinum þar sem hann slengir litlu hvítu lokkunum til og frá og leggur upp mörk og fiskar víti.

Steinar Bragi fokkaði upp bloggpælingunni í sunnudagsfréttablaðinu. Hann bloggar sem sagt ekki, nema þetta bloggskrípi í fréttablaðinu teljist með og þá hefur hann bloggað, en bara einu sinni og það í dagblaði. En svona grínlaust þá náði ég ekki þessari pælingu í fréttablaðinu, nema náttúrulega að hann bloggi, sem hann gerir ekki, nema eitt blogg í blaði sé blogg, sem ég veit satt að segja ekki, þ.e.a.s. ef ég veit eitthvað á annað borð. Og hver er það núna sem líkist geðsjúklingi í sloppi, útúrreyktur af ópíumi að lesa Kant í fokkíngs Alpafjöllum og örugglega með alpahúfu í þokkabót.

Ja hérna!

Múúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúúm

Ég þoldi ekki Múm. Núna elska ég Múm, eftir að ég byrjaði að hlusta.

19. ágúst 2003

Eftir að hafa lifað og andað blóðsugum í marga daga og vikur er ég ekki frá því að vera orðinn svolítið skrítinn. Það liggur við að ég stökkvi hér fram af þriðju hæð um miðja nótt og skelli mér á eins og eina bráð sem ég get nartað í, slurp!

Ég hef aldrei verið aðdáandi hryllings eða blóðbaða, en eftir lestur undanfarinna vikna er ég heillaður af sögum um perversískar og viðbjóðslegar pyntingar og morðæði. Og nú má enginn skilja mig þannig að ég ætli mér í raun að gerast fjöldamorðingi eða ímyndunarveikt vampíruvonnabí, heldur er ekki hægt að komast hjá því að verða forvitinn um hversu langt fólk getur gengið í viðbjóði eftir þennan lestur. Ég hvet þá sem ekki hafa, til að lesa sér til um Vlad Dracula, Elizabeth Bathory og Gilles de Ray svo einhverjir séu nefndir.

Og til að veita einhverja innsýn inn í efnið skelli ég inn smá fróðleik úr uppkastinu:

Ekki síst ýtti sögufrægt fólk eins og Gilles de Rais, Elisabeth Bathory og að sjálfsögðu Vlad Dracula undir sögur af ómennskum ófreskjum með hrollvekjandi og mjög svo blóðugum morðum og limlestingum á körlum, konum og ekki síst börnum. Vlad Dracula stóð fyrir svo hroðalegum morðum á hermönnum Tyrkja að hersveitirnar sem á eftir komu sneru við þegar þær sáu þúsundir og jafnvel tugir þúsunda stjaksettra rotnandi líka svo langt sem augað eygði við árbakka Dónár.
Stjaksetning er líklega einhver kvalarfullasti og ógeðslegasti dauðdagi sem hægt er að hugsa sér. Dracula hafði þann háttinn á að binda hvorn fótlegginn á fórnarlambinu við hest og reka síðan olíuborinn staur upp í afturendan á fórnarlambinu sem síðan rakst út úr munninum eða bringunni eftir því hvernig til tókst. Oft liðu klukkutímar og jafnvel dagar þangað til hinn ógæfusami hermaður dó og hékk því kannski með staurendann upp úr gininu lengi vel áður en yfir lauk. Stjaksetning virðist samkvæmt lýsingum ekki vera fljótafgreidd og því er varla hægt að ímynda sér hvernig ástandið og andrúmsloftið hefur verið þegar annirnar voru mestar í stjaksetningunum. En samt er hægt að ímynda sér að skrítnar hugsanir hafi flogið í gegnum hugi þeirra sem þurftu að horfa upp á aðfarirnar kannski viku eftir viku eða jafnvel mánuðum saman og sögurnar sem upp úr þessu spruttu eftir því. Örvæntigafullar tilraunir fólks til að skilja og hafa stjórn á umhverfi sínu og aðstæðum í slíku blóðbaði og mannvonsku hljóta að geta af sér framandi frásagnir.

Þannig er nú það.

18. ágúst 2003

Jamm, ekki mikið um bloggeringar hér þessa dagana, enda geri ég lítið annað en að vinna og pirra mig á því þar á milli hversu illa gengur að skrifa vampíruritgerð. Já ég er að vinna á veitingastað einum ofarlega í bankastræti og varð þess heiðurs aðnjótandi að vinna á menningarnótt. Því er skemmst frá því að segja að gamla metið var slegið og aldrei hafa því jafn margir diskra verið bornir fram úr eldhúsinu og þetta kvöld.

Nú er ég sem sagt um það bil að koma ritgerðarhelvítinu frá mér og fer svo á fimmtudaginn til Akureyrar og næ í strákana mína. Það verður gaman, enda er ömurlegt að vera svona lengi langt frá þeim. Maður verður svo hrifnæmur og væmin eitthvað. Horfði nefnilega á bíómynd um daginn þar sem karl missir forræðið yfir syni sínum og fær aldrei að hitta hann aftur. Ég var eyðilagður og gat varla horft á myndina fyrir ekkasogi og táraflóði, eða þannig.

***

Fór með jeppann á sölu í dag, ef einhver vill eignast Land Rover Discovery á rosa góðum lánum og risastórum dekkjum. Þá fer hver að verða síðastur.

***

Hitti nokkra spútnikbloggara í gær. Til að mynda Tóta og Auju, sem voru ansi hress að spæna í sig óáfengum kokteilum, eða það sögðu þau mér að minnsta kosti. Tóti sagði lífsreynslusögur frá hinum ýmsu stöðum og tímum, magnað hvað sumri hafa ná að upplifa á tiltölulega stuttum tíma.

***

Ég hef komist að því hvað felst í því að vera íslandsvinur, að minnsta kosti hjá Mogganum. Ef þú ert íslandsvinur færðu fréttir af þér í innlenda fréttadálkinum á mbl.is, sama hvort að fréttin þyki fréttnæm hér eða annars staðar.

14. ágúst 2003

Scarlat greinilega.

13. ágúst 2003

Og hvort er það scarlat eða scarlet, kannski bæði?

En hvað veit ég?

12. ágúst 2003

Jamms, ég er kominn til Reykjavíkur og mun að öllu óbreyttu dvelja hér í vetur. Með skólanum mun ég leggja stund á ýmis ólík störf og þess á milli liggja með nef mitt ofan í bókum. Áhugamál og tómstundir eru tómt mál að tala um þar sem ég kem til með að lifa algeru munkalífi. Áfengi og tóbek mun ég varla snerta nema í helberri neyð og varla verð ég við kvenmann kenndur þar sem konan er austur á Héraði. Frístundir mínar munu því vera heilsusamlegar og ókeypis. Þar er um að ræða sjóböð og ferskvatnsböð þegar því verður við komið. Kaffidrykkju og almennan nördaskap. Bókasafnið verður óspart notað þar sem ég ætla að gleypa í mig helstu teiknimyndablöð síðustu ára. Svo hef ég það fyrir víst að það sé gaman að hlaupa og því mun ég kannski spretta úr spori einstaka sinnum. Og ef ég verð ekki fyrir austan eða með fjölskylduna hér í borg mun ég sitja pólitíska fundi og fara á listsýningar (þessar sem ekkertr kostar inn á).

Góðar stundir.

6. ágúst 2003

Farinn til Reykjavíkur. Bless í bili.

Ps. hoppaði ofan í Eyvindará í gær fram af gömlu brúnni. Það var gaman. Hægt er að hoppa á þremur stöðum með góðu móti. Hæst er líklega um rúmir fjórir metrar og hylurinn er líklega 3-4 metra djúpur. Þegar heitt er í lofti get ég bara hugsað um hylinn og hvernig ég barst með straumnum í ánni að lendingarstaðnum. Ahhh þá líður mér vel. Sem sagt nýtt áhugamál, hver vill vera með?

Hér eru myndir af ánni. Enginn þó af mínum góða stað. 1, 2

5. ágúst 2003

Fyrirsögn dagsins:

Brottför flughersins myndi raska jafnvægi Íslands

Ég sé fyrir mér hvernig landið sporðreisist.

Úr því að fólk er farið að skella fram ljóðagetraunum. Er ekki annað vert en að fylgja í kjölfarið.

Ég segi sem minnst um þetta til að eyðileggja ekki viðtökurnar. Ljóðið er í öllu falli íslenskt.

Leikslok

Leingi höfðum við leikið að orðum
látið þau svífa í bláu ljósi
uns þau sprúngu einsog sápukúlur


Við lékum okkur að orðum
uns geislarnir hurfu
og um hendur okkar flæddi
blóð myrkursins
þykkt heitt og svart

4. ágúst 2003

United vann Barcelona 3:1

Greinilega ekkert lát á sigurgöngu MUFC. Þetta verður góður vetur.

Oftast um þetta leyti þegar múgurinn er búinn að vera fullur og vitlaus í þrjá til fjóra daga gerast verstu atburðir helgarinnar. Ég hins vegar sit hér heima edrú og hraustur og um það bil að fara að horfa á Cuisine américaine í tólfta skipti. Alltaf þegar gestir koma og vilja horfa á eitthvað í sjónvarpinu skellum við myndinni í og horfum, alltaf jafn sæl. Ég meina matargerð, Jason Lee, Eddy Mitchell og Frakkland, hvað getur klikkað?

Á morgun þegar ég vakna eldsnemma og eiturhress grúfi ég mig yfir hörmungarfréttirnar og harma hjarðareðli og fyrirsjáanleika fyllerísliðsins.

Kannski ég spari mér morgunverkið og harmi þetta lið núna í fimm mín. áður en ég horfi á myndina. Þá get ég kannski notað tíman á morgun í eitthvað nytsamlegra.

Ég er ekki fróður um útihátíðir og man ekki eftir að hafa farið á eina slíka. Samt sem áður skil ég ekki hvers vegna fólk sem vill drekka og dópa fer á Galtarlæk. Af hverju ekki að fara eitthvað annað þar sem menn eru freðnir upp til hópa eða sitja bara stónd inn í stofu heima hjá sér.

3. ágúst 2003

Símasnúrumálinu hans Davíðs Oddsonar sem hann reifaði á síðum DV um daginn hefur verið tekið til umfjöllunar á síðum Múrsins undanfarna daga. Ef einhver hefur ekki lesið greinarnar þá er best að lesa þessa fyrst og í kjölfarið þessa hér.

Hef ákveðið að bæta Önnu í tenglalistann þar sem hún er orðinn fastur liður á bloggferðalögum mínum þessa dagana. Að sjálfsögðu fer hún í Skjallbandalagið enda mikill bloggsnillingur á ferð.

2. ágúst 2003

Kíkti á Neistaflugið í dag. Lóa ókurteisa var nokkuð góð, Lína langsokkur var ekki eins góð. Gunni og Felix voru ágætir, þeir kunna þetta. Glaðasólskin og fullt af fólki. Á morgun skelli ég mér á Álfaborgarséns það verður forvitnilegt. Sérstaklega að sjá 1000 manns á Borgarfirði. Á leiðinni fer ég að sjálfsögu í sólarorkuknúna kóksjálfsalan hans Kidda á Vídeóflugunni, sá er nefnilega staðsettur miðja vegu milli Egilsstaða og Borgarfjarðar, sjálfsalinn þ.e. og er ofursvalur.

Sjálfsalinn stendur ekki undir berum himni eins og einhverjir gætu ímyndað sér heldur er hann inn í smekklegum kofa með verönd fyrir utan. Af hverju er þetta ekki út um allt við þjóðveginn. Skil það ekki. Kannski maður ætti að fara út í bissness með Kidda? Spurning.

1. ágúst 2003

FJÖÖÖÖÖÖÖÖGUR - EITT

Djöfull eigum við eftir að rústa öllum þessum deildum og bikurum í vetur. Juventus hvað? Beckham hver?

geisp!

KA maður í þórsgalla

Ég verð að óska Stefáni til hamingju með sigurinn á Grindavík. Hlýtur að hafa komið honum skemmtilega á óvart. Auk þess vil ég óska sjálfum mér til hamingju með að KA hafi unnið Þrótt. Þeir eru ekki svo stórir núna.

Ekki það að ég fylgist mikið með deildinni hér heima, en ef ég á að halda með einhverju liði ber mér siðferðisleg skylda til að halda með KA, Þórsarar eru ekki minn tebolli, þó að ég hafi verið píndur til að ganga í Þórsaragalla í æsku af því að rautt fór mér betur en gult. Mömmur skilja sannarlega ekkert í fótbolta.

Eftir á að hyggja er andúð mín á fótbolta (fyrir utan MUFC að sjálfsögðu) skiljanleg í ljósi þess að ég gekk nauðugur í búning andstæðinganna. Kannski uppnefnið mitt hér á árum áður hafi eitthvað með það að gera líka. Ég var nefnilega stundum kallaður KA. Ekki sárnaði mér það svo sem. Gretturnar sem ég sýndi þegar einhver tók sig til og var sniðugur komu einungis til vegna þess hversu pínlega vondur þessi brandari var, enda hélt ég með KA.