Mikið stóð stelpan (Katrín?) úr femínistafélaginu sig vel í Kastljósinu. Hún var með þetta allt á hreinu (og því miður er það ekki alltaf reyndin eins og þegar Bríeturnar mættu einu sinni til Egils Helgasonar). Frjálshyggjupúkinn var hins vegar eins og álfur út á hól og stundum velti maður fyrir sér hvað stjórnendurnir voru að hugsa að fá strákinn í þáttinn. Hann hafði ekkert að segja og allra neyðarlegast var þegar Sigmar þurfti að hjálpa stráknum á rétta braut í því sem hann var að segja. Ég veit ekki hvort var neyðarlegra, að annar stjórnandinn hafi komið með svona glimrandi nýfrjálshyggjuinnslag fyrir strákinn eða að strákurinn hafi ekki getað komið því sjálfur út úr sér.
30. apríl 2003
Af hverju kemur ekki hósti eða stuna frá íslenskum fréttamiðlum um þetta mál. Það er nú ekki lítið merkilegt ef að utanríkisráðherra Bandaríkjanna sínir iðrunarmerki vegna valdaránsins í Chile.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:19
0
athugasemdir
29. apríl 2003
Ákvað að kynna mér sjávarútvegsstefnu Frjálslynda flokksins til hlýtar á heimasíðu þeirra. Það sem þar gefur að líta er vægast sagt lapþunnt, byggt á gömlum frösum úr kvótaandstöðunni og hefdarhug þeirra sem hafa verið grátt leiknir af kvótakerfinu. Tillögurnar eru svo sem ýmsar í góðu lagi en það vantar allt sem heitir ábyrg stefna í því hvernig á að losna við núverandi kerfi. Það er bara talað um að það þurfi að hverfa frá núverandi ástandi, eins og hér sé um að ræða eitthvert dagsverk. Ef menn vilja sjá ábyrga og skynsamlega stefnu í endurskipulagningu sjávarútvegsins þá geta menn kynnt sér endurúthlutunarstefnu VG. Vessgú! og til að fyrirbyggja allann misskilning þá á okkar leið ekkert sameiginlegt með stefnu Samfó þar sem menn virðast vilja koma öllu á leigumarkað á 10 árum. Hverjir heldur Samfylkingarfólkið að kaupi veiðiheimildirnar? Krókabátarnir? Eða fer þetta kannski allt til Samherja, ÚA og annarra útgerðarisa?
Hér er kjarninn í frumvarpi Jóhanns Ársælsonar sem sjávarútvegsstefna Samfylkingarinnar er byggð á.
1. Útthlutun aflahlutdeilda án endurgjalds verður afnumin í jöfnum áföngum á tíu árum en útgerðum fiskiskipa þess í stað gefinn kostur á aflahlutdeildarsamningi til fimm ára í senn á markaði þar sem öllum útgerðum sambærilegra fiskiskipa er fenginn jafn réttur og nýliðun þar með auðvelduð. Greiðslum fyrir veiðiheimildir verður dreift á það ár sem þær eru nýttar á. Allar aflahlutdeildir verða komnar á markað eftir tíu ár samkvæmt þessari tillögu.
Frumvarpið er í heild sinni hér.
Um sjávarútvegsstefnu stjórnarflokkana þarf ég ekki að hafa mörg orð. En ég skora á alla að lesa þessa frétt til að átta sig hversu gríðarlega málefnalegur Davíð Oddson er í umræðu um þetta mál. Það er ekkert sem bendir til þess að hann hafi lesið stefnur flokkana samkvæmt því sem hann segir, einungis heyrt utan af sér bullið í Halldóri Ásgrímssyni. Athugið bara sjálf.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:30
0
athugasemdir
Ég man þegar Botnleðja (að minnsta kosti Heiðar) tók sæti á lista og þátt í kosningarbaráttu Framsóknarflokksins. Það ku hafa verið fyrir tilstuðlan Finns Ingólfssonar, enda fékk hljómsveitin styrk frá Iðnaðarráðuneytinu í kjölfarið. Nú er Botnleðja orðin hirðhljómsveit Samfylkingarinnar og ferðast með flokknum um landið. Hvað ætli það kosti, fyrir utan hugsjónirnar.
Nú er svo sem ekkert glæpsamlegt að hljómsveitir eða aðrir geri það sem þarf til að afla sér tekna í hrjóstrugu efnahagsumhverfi íslenskra listamanna. En hitt er annað mál að þetta staðfestir enn og aftur vinnubrögð popúlistaflokkana: Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins sem gera í því að kaupa menn til fylgis við sig.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:24
0
athugasemdir
26. apríl 2003
Mæli með þessari ágætu mynd af Dixie Chicks. Algerir töffarar.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
21:23
0
athugasemdir
25. apríl 2003
Ef menn vilja lesa samskipti Tim Robbins við forseta bandaríska hafnarboltasambandsins þá er hægt að gera það hér.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
15:42
0
athugasemdir
24. apríl 2003
Þeir eru farnir að rukka inn á Mark Steel! Hvers konar svívirða er þetta? Veit Mark af þessu?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:37
0
athugasemdir
Íslenskir fjölmiðlar hafa verið duglegir að apa upp lygarnar í bandarískum áróðursfjölmiðlum. Í sífellu berast fréttir af fólki sem líður fyrir andstöðu sína við Bush og stríðsrekstur hans, til að mynda Dixie Chick, ýmsa Hollywood leikara og náttúrulega Michael Moore. En þetta er ALLT LYGI.
Ég nenni ekki að endurskrifa pistil Michaels á vefsíðu hans þannig að ég skelli þessum útdrætti hingað og sjálf getið þið lesið pistilinn hér.
I tell you all of this because I want to counteract a message that is told to us all the time -- that, if you take a chance to speak out politically, you will live to regret it. It will hurt you in some way, usually financially. You could lose your job. Others may not hire you. You will lose friends. And on and on and on.
Take the Dixie Chicks. I'm sure you've all heard by now that, because their lead singer mentioned how she was ashamed that Bush was from her home state of Texas, their record sales have "plummeted" and country stations are boycotting their music. The truth is that their sales are NOT down. This week, after all the attacks, their album is still at #1 on the Billboard country charts and, according to Entertainment Weekly, on the pop charts during all the brouhaha, they ROSE from #6 to #4. In the New York Times, Frank Rich reports that he tried to find a ticket to ANY of the Dixie Chicks' upcoming concerts but he couldn't because they were all sold out.
Íslenskir fjölmiðlar eru aumkunarverðir og ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að lesa erlendar fréttir annars staðar en á innlendum fjölmiðlum. Ég óska þess heitast að hægt væri að viðhalda öflugum innlendum fréttamiðlum en það virðist ekki vera raunin, auk þess sem við gerum þeim aðeins greiða með því að slökkva á þeim og segja upp áskriftinni, því þá hunskast þeir kannski á rétta braut. Lifi internetið! Lifi gagnrýnin hugsun! Niður með heimskuna og hræðsluáróðurinn!!!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
23:26
0
athugasemdir
Fjandans óheppni að fá ekki tækifæri til að taka Steingrím í gegn í strandblakinu á morgun í Nauthólsvík. Vona bara að félagarnir standi fyrir sínu og taki gömlu kempurnar í gegn. Verður ekki örugglega einhver með myndavél?
Svo er náttúrulega hægt að fara í blak hér t.d. í fjörunni í Brúnavík, ef einhver nennir að labba þangað...
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
00:30
0
athugasemdir
22. apríl 2003
Kastljósþátturinn í kvöld var óvenju skemmtilegur. Ungir frambjóðendur flokkanna komu þar saman og tókust á um nokkur stefnumál. Ekki svo að skilja að nokkur annar en Kolbeinn Proppé hafi verið skemmtilegur, en hann náði að vera svo afslappaður en öruggur í senn að hann hélt þættinum uppi einn síns liðs. Kolbeinn var fyndinn og skemmtilegur (enda fyndinn og skemmtilegur) en lét sér það ekki nægja heldur skaut föstum skotum að andstæðingum sínum jafnt til hægri sem vinstri (á vinstri hönd þ.e.) þannig að undan sveið. Þannig þurftu bæði Sigurður Kári og Björgvin G. að láta sér nægja lúpulegt svipmót sem mótleik við skotum Kolbeins (4380 nætur-skotið á eftir að verða klassík í pólitískum debatt). Aðrir voru varla svipur hjá sjón, þannig voru Sigurður Kári og Björgvin G. stífir og sperringslegir og lögðu meira upp úr því að tala en segja eitthvað, það á þó sérstaklega við um Björgvin sem hélt orðinu freklega með því að endurtaka í sífellu það sem hann var að segja og Sigurður leið fyrir hversu vondann málstað hann hafði að verja, enda eru ungir sjálfstæðismenn einkar auðveldir viðureignar í málefnalegum rökræðum. Páll Magnússon var þurr og leiðinlegur og höfðar væntanlega ekki mikið til ungra kjósenda þar sem hann lítur út fyrir að vera fertugur frekar en eitthvað annað (sem telst víst rétt rúmlega ungur framsóknarmaður), auk þess hafði hann afspyrnuvondann málstað að verja líkt og Sigurður Kári (eðli málsins samkvæmt), til dæmis orkaði sú fullyrðing undarlega á mig að fólk myndi ekkert flytja út á land ef kvótin færi aftur heim í byggðarlögin þar sem jafnan kvóti = atvinna = betra efnahagslíf = meiri þjónusta = fleira fólk, hefði þótt eðlileg einhverntíman. Frambjóðandi Frjálslyndra (sem ég náði ekki nafninu á) stóð sig vel miðað við að hafa ekki kunnað stefnuna, en hún komst vandræðalaust frá sínu sem er í sjálfu sér afrek með ekki meiri málefnaþekkingu en þetta.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:14
0
athugasemdir
20. apríl 2003
Og náttúrulega Hjörleifur sjálfur á morgun. Það verður gaman.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:18
0
athugasemdir
Ef ég á að haldast inn á topp tíu verðið þið að smella hér!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:15
0
athugasemdir
15. apríl 2003
Hvaða tilgangi þjóna þessi fréttaskrif? Eru það raunverulegar fréttir að Rodney King hafi lent í bílsslysi og í ofanálagt örugglega verið draugfullur? Væru það fréttir ef að vændiskonan sem þjónustaði Hugh Grant um árið hefði verið handtekin fyrir hórerí í fyrradag? Er á einhvern hátt hægt að lesa út úr þessari frétt að barsmíðarnar á sínum tíma hafi á einhvern hátt verið réttlætanlegar eða að of mikið haf verið gert úr öllu saman? Í ljósi þess að allir þeir sem muna eftir atvikinu fengu á sínum tíma líka að vita að King væri óforbetranlegur alki og ökuníðingur, spyr ég enn og aftur, hvert er raunverulegt fréttagildi þessa atviks og hvaða tilgangi þjóna þær?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
19:40
0
athugasemdir
Afhverju ætli Ástþór fái ekki að verja sig sjálfur? Mér dettur nú aðallega í hug að maðurinn sé ósakhæfur, nema hann sé að reyna að plata menn til að halda það eins og mafíuforinginn sem gekk tautandi um götur Manhattan í náttslopp til að láta menn halda að hann væri geðveikur og það í mörg ár.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:21
0
athugasemdir
11. apríl 2003
Mæli með Kim Jon Il færslu dagsins. Og reyndar öllum samtölum þeirra félaga, þvílík snilld!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
11:00
0
athugasemdir
9. apríl 2003
Assgoti góð grein hjá henni Kötu í dag þar sem hún fjallar um merkilega krísu Sellumanna. Það er erfitt að vera meðlimur í flokki sem vill ekkert með mann eða manns stjórnmálaskoðanir hafa, ég held að það eigi aldrei nokkur eftir að hlusta á þá Sellumenn þarna í Samfó, enda eru þeir örugglega hættulega vinstrisinnaðir miðað við popúlistaliðið sem ræður ríkjum, stórmoffinn og kompaní. Því fyrr sem menn læra höfuðreglu stjórnmálanna þeim mun fyrr líður þeim betur. En reglan er auðvitað sú að KRATANIR SVÍKJA ALLTAF! og ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á að KRATANIR SVÍKJA ALLTAF!
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:50
0
athugasemdir
Þar sem ég er á góðri leið með að ballansera hausinn á mér má vel gera ráð fyrir því að ég láti lítið frá mér fara á næstunni eða jafnvel taka þrefalt heljarstökk á blogginu. Í öllu falli er tilvistarangistin komin undir kodda og því ekkert mótíverandi í þessari dauðans fasísku veröld. Og þegar ekkert mótíverandi tilvistarheilkenni rekur mann áfram með rýting í bakinu verður lítið um skapandi vinnu. Já ég sagði það! Og þótt ég geri lítið af því að opinbera það á þessari síðu skrifa ég ofan í skúffu ofarlega í hægra heilahvelinu. Það verður því að teljast ásættanleg fórn að drepa sköpunargleðina fyrir tempraðra geðslag, en það er svo sem allt eins líklegt að allt fari á annan veg, hvað veit ég.
Það er hins vegar verra ef að hin framúrskarandi ritgerð sem ég er með í smíðum líður fyrir geðprýðina. Það má ekki gerast enda þarf ég ekki bara að skrifa tugi blaðsíðna á rúmri viku heldur þarf ég að skrifa eitthvað af viti líka, eins og hitt sé ekki nóg.
Það sem gerist í framhaldinu er óvíst mál, þó geri ég fastlega ráð fyrir að ég muni hvorki lesa staf í bók hvað þá skrifa mikið meira en nafnið mitt á vísanótur, kannski smá blogg inn á milli.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
01:37
0
athugasemdir
8. apríl 2003
Þótt ég hafi lofað því að ræða ekki um konuna mína á blogginu þá get ég ekki stillt mig um að gleðjast opinberlega yfir því að hún sé að koma heim á morgun.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:49
0
athugasemdir
Ég veit ekki hvort ég á að hlægja eða gráta (líklega hvorugt þó)...

Switzerland -
A neutral power for as long as most can remember,
it has avoided war for several centuries.
However, it is still considered highly advanced
and a global power.
Positives:
Judicial.
Neutrality.
World-Renouned.
Powerful without Force.
Makes Excellent Watches, Etc.
Negatives:
Target of Ridicule.
Constant Struggle to Avoid Conflict.
Target of Criminal Bank Accounts.
Which Country of the World are You?
brought to you by Quizilla
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
18:50
0
athugasemdir
2. apríl 2003

Atli Gíslason.
Þú ert lögmaður og ert ávallt reiðubúinn að reka mál lítilmagnans gegn ofureflinu. Fyrrum varstu liðtækur í Keflavíkurgöngum en nú eru það umhverfismálin sem þú reynir að reka fyrir dómstólum.
Taktu "Hvaða frambjóðandi Vinstri - grænna ert þú" prófið
Ég er svo sem ekkert móðgaður, en þetta er bara af því að ég valdi helv. Landróverinn.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
22:34
0
athugasemdir
Heili Barthes
Einhvernvegin finnst mér eins og höfundar bókanna sem er að koma út undir flokknum Svarta línan (án þess að hafa lesið bækurnar) séu allir að reyna að skrifa Mítólógíur Barthes upp á nýtt. Þröstur skrifar um Millet-úlpur, heila Einsteins, Dallas-þættina, flugstöðvar og tískublöð. Hermann Stefánsson skrifar um Keikó, sjómannadaginn, dauða Díönu prinsessu, auglýsingar fyrir smjörlíki, dömubindi og hársápu. Það er einna helst að Bragi skeri sig að einhverju leyti úr, en ég spyr nú samt; hvað er í gangi?
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
13:41
0
athugasemdir
Enn og aftur er maður einn í búinu, verð næstu viku og rúmlega það. Það er svo sem ágætt, enda get ég þá pantað mér gráðostapizzur og jafnvel horft á heimskulegar hæskúlmyndir. Annars ætla ég að minnka sjónvarpsáhorf og einskorða það við 24 á sunnudaginn og í mesta lagi fréttir og vera skynsemin uppmáluð, ekkert helvítis hangs frameftir kvöldi, borða á réttum tímum og fara snemma að sofa og engar helvítis hæskúlmyndir.
Sá galli er á gjöf Njarðar að ég gæti þurft að fara til Reykjavíkur um helgina og þá er hætt við því að sólahringurinn raskist ofurlítið en það er nú allt í lagi, það er ekki á hverjum degi sem ég fer til Reykjavíkur þessa dagana.
---
Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir baksíðu DV í gær. Iðnaðarráðherra (vonandi fráfarandi) hefur undanfarið verið á hraðri leið að breytast úr brandara í mannlegan harmleik.
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
10:33
0
athugasemdir