30. september 2002

Síðasta færslan úr Eggertsgötunni. Það verður erfitt að vera ekki lengur með þessa dúndurtengingu.

29. september 2002

Holy greed

Erum við að taka þetta

í Rydernum. Það er aldeilis frábært og þó að Garcia hafi tapað fyrir David Toms. Ja hérna. Minn maður, Thomas Björn, hefur ekki átt nógu gott mót en vonandi nær hann að halda sínu á móti Stewart Cink þá er þetta allt í góðu.

Í kvöld var matarboð hjá Sigfúsi.

Þar voru mætt Huginn, Dagný og Högni, auk mín og Helgu að ónefndri Margréti húsfrú. Hér var um að ræða mikið og gott matarboð þar sem góður bjór og góðir hedfónar fóru saman að ónefndum plottum sem koma til með að gera út af við pólitíska plebba.

Tók einhver eftir því að tveggja prósentustiga fylgisaukning VG var allstaðar túlkuð sem óbreytt fylgi í Gallúpkönnuninni í dag

Ætli bloggvirkni endurspegli raunvirkni?

Ef svo er þá er Ármann óvenju virkur þunglyndissjúklingur.

28. september 2002

Jahá, þetta er ótrúlegt.

ASAT er ekki bara aðdáendaklúbbur Sögubrota af Tyrkjum heldur líka skammstöfun fyrir Asparate aminotransferasi, sem má þó ekki rugla saman við Alanine aminotransferasi sem er skammstafað ALAT.

Getraun dagsins er því: Hvað er Asparate aminotransferasi?

Enn er uppfærslan í hassi, urr!

Það verður ekki

af Stefáni tekið að honum er á góðri leið með að verða besti bloggari landsins. Greinilegt að hann stefnir ótrauður að því markmiði.

Greinin sem ég var að skrifa kom ekki í gær, en kannski í dag eða á morgun. Það er farið að verða erfitt að komast að með greinar á UVG.

27. september 2002

Uppfærslukerfið í hassi. Dæmigert.

...

Af hverju

er maður að skrifa greinar til klukkan tvö á næturnar? Veit ekki en afraksturinn verður vonandi komin upp á síðu UVG í fyrramálið.

Ég er hættur við að kaupa Freelanderinn en skelli mér vonandi á Defender í staðinn, enda er hann miklu flottari og kostar ekki nema þrjúþúsundkalli meira á mánuði þrátt fyrir að vera umtalsvert dýrari bíll. Já börnin mín góð, regla númer eitt í bílakaupum: Verðið skiptir ekki máli, bara hversu mikið er áhvílandi. Þannig er nú það!

Ég gaf næstum því blóð í fyrsta skipti í dag, já ég sagði næstum því. Ég skammast mín fyrir að hafa ekki gert það fyrr, en er stoltur fyrir að vera búin að því núna, næstum því.

Og nú fer ég að sofa.

26. september 2002

Nú er ég að fara að skoða Freelanderinn aftur kannski maður skelli sér á hann. Jamm

Mætti þá ekki kalla síðuna hans Stefáns Ecce Bloggo? Bara spyr.

25. september 2002

Hvað er í gangi

á menningardálki Múrsins? Getur einhver sagt mér það?

23. september 2002

Erfið helgi að baki

og eftir sit ég með hálsbólgu auk þess sem ég er búinn að drepa heilasellur sem ég mátti ekki við að missa. Eins og fram hefur komið annars staðar var landsfundur UVG geysilega vel heppnaður. Við erum að verða langflottasta félagið.

20. september 2002

Í tilefni þess

að Tryggvi Már átti afmæli um daginn set ég tengil á hann og bræður [1, 2, 3, 4] hans í netheimum.

19. september 2002

Hvað er að gerast.

Er ég að breytast í aumingjabloggara. Meira að segja mesti aumingjabloggarinn er búinn að uppfæra, en ekki ég (fyrr en núna). Skollinn. Kannski breytist þetta þegar ég flyt til Egilsstaða, það á margt eftir að breytast þá.

Hvernig stendur á því að Mogginn birti tvær greinar um sama hlutinn með nánast sömu fyirsög sama daginn. Það finnst mér hallærislegt. Önnur hefði getað beðið til morguns.

Í dag var ég næstum því búinn að kaupa mér 1996 Grand Cherokee, forstjórabíl frá helvíti með leðursætum og öllu klabbinu. Eigandinn klúðraði þessu þar sem hann er greinilega ekki með hlutina á hreinu. Það er kannski eins gott, vinir mínir í vinstri grænum hefðu kannski hætt að tala við mig. Hvað um það, bless leðuráklæði og 350 hestöfl (hulk). Kannski kaupi ég mér bara Land Rover í staðinn. Vinir mínir í VG fyrirgefa það frekar.

Ég ætla að segja sem minnst um komment Hertu Däbler-Gmelin um Bush og Hitler. Þetta segir manni hins vegar ýmislegt um hvernig sagan á eftir að dæma George W. Bush. Það verður ekki fallegt. Hitler dró alla vega enga dul á það að hann væri fasisti.

14. september 2002

Í gær

skilaði ég grein inn á Moggann. Það verður gaman að sjá hversu lengi maður þarf að bíða eftir að hún birtist. Í dag fór ég hins vegar með strákana á torfærukeppni á Hellu. Það gerði ég eftir að Palli H. stakk upp á því að við skelltum okkur. Ég veit ekki af hverju Palli vildi fara á Hellu. Strákunum fannst bílarnir ekkert sérstaklega merkilegir, ekki frekar en okkur Palla. Þannig að við stoppuðum ekki lengi. Ég hélt að Páll væri væri torfæruáhugamaður en þegar við vorum að renna inn á svæðið sagði hann frá því að hann hafi verið þrettán ára þegar hann sá svona keppni síðast. Við vorum ekki lengi á otrfærunni. Ferðin var samt fín. Til dæmis fórum við á hin magnaða veitingastað Kanslarann á Hellu. Þar borðuðum við ostborgara og heyrðum Eið Smára skora seinna markið. Þegar ungviðið sofnaði á leiðinni heim fengum við svo gott tækifæri til að leggja á ráðin um heimsyfirráð. Two kings.

Já þeir geta verið ágætir sunnudagsbíltúrarnir á suðurlandsundirlendinu.

13. september 2002

Síðan hans Óla Njáls

er dauð. Nú má hann ekki skrifa neitt lengur því að nemendur hans eru búnir að finna síðuna.

Só long Óli Njáll.

Huginn

þú ert hauglatasti bloggari sem sögur fara af. Það þýðir ekki að auglýsa endurkomu í bloggheima og falla síðan í dá!

Já Tryggvi Már.

Til að fá gesti þarftu að skrifa reglulega, helst nokkum sinnum á dag. Þú ert svo skemmtilegur að það verður ekki mikið mál.

Vera er komin út

Í blaðinu er meðal annars grein um Naomi Klein og bókina hennar No Logo, sem er stórmerkileg bók. Þar er einnig viðamikil umfjöllun um vændi og þrælasöluna sem fylgir því. Og svo er náttúrulega hellingur af alls konar efni um konur. Konur í atvinnulífinu, konur í íþróttum, konur á landsbyggðinni og hvað veit ég. Í þessu tölublaði átti líka að birtast texti sem ég skrifaði á þessa síðu um daginn. Hann kom ekki og það finnst mér ekki gaman. Ég vil skrifa í Veru.

Heyrið þið það.

12. september 2002

Loksins hef ég fengið myndir af könunum sem skemmtu sér hérna á Íslandi um daginn.



Úrvalsmennirnir Chris Gallon forritari t.v. og Mark Lister læknir t.h. og svo náttúrulega Gullfoss.

11. september 2002

Æ

hvað ég hlakka til að flytja héðan úr gettóinu Eggertsgötu.

9. september 2002

Jón Ormur

fór frekar illa með Steingrím Sigurgeirsson í Kastljósi áðan. Enda er Steingrímur greinilega blindaður af svipaðri bókstafstrú og múslimarnir sem hann var að pönkast á í þættinum.

Ég þjáist af bloggleti.

Ætli maður geti orðið bloggþunglyndur eða lent í bloggtilvistarkrísu. Ég veit ekki, alla vega er ekkert að mér í mannheimum. Kannski er bara nóg að gera.

Ég gæti pirrast yfir brandaranum hans Ármanns, sérstaklega þar sem hann getur ekki einu sinni sett tengil á mann. Ekki ætla ég hins vegar að gera það, heldur gera Ármanni til geðs og minna fólk á hið átakamikla og merkingarþrungna verk Mons og Jens. Enda ekki á hverjum degi sem hann lætur taka til sín á nýjum og spennandi vettvangi.

Í lokin kemur svo komment dagsins og það er í Boði JB og KG í Tenacious D.

Lots of times when me and KG are watchin'
All the fuckin' shit that goes down at City Hall,
We get the feeling we should fuck shit up,
Yeah we should fuckin' start a riot.
A Riot!


Ok, fjandinn hafið...eitt einn. Söngur til heiðurs Dio.

Dio has rocked for a long, long time,
Now it's time for him to pass the torch.
He has songs of wildebeests and angels,
He has soared on the wings of a demon.


It's time to pass the torch,
You're too old to rock, no more rockin' for you.
We're takin' you to a home,
But we will sing a song about you.


And we will make sure that you're very well taken care of.
You'll tell us secrets that you've learned. Raow!
Your sauce will mix with ours,
And we'll make a good goulash baby.
Dio, time to go!
You must give your cape and scepter to me.
And a smaller one for KG.
Go! Go! Dio! Dio!

Ef þið vitið ekki hvernig þetta hljómar getið þið hring í mig og beðið mig um að syngja lagið fyrir ykkur.

7. september 2002

Skemmtikvöldið heppnaðist

svo sannarlega vel í gærkvöldi. Fjöldi manns var kominn saman á Hallveigarstöðum þar sem mikið var gert fólki til skemmtunar. SJS stjórnaði bingói og töfradúettinn Töfrandi sýndi geigvænleg töfrabrögð og ýmislegt fleira var gert fólki til skemmtunar. Okkar ágæti flokksbróðir Ásgrímur Angantýsson spilaði svo undir "fjöldasöng" þar til yfir lauk. Já það var stuð!

6. september 2002

Skemmtikvöld UVG

er í kvöld og undirbúningur á fullu. Ófarir annara verða að sjálfsögðu meginuppistaða skemmtiatriðanna. Þess má geta að sumir vita ekki hvað bíður þeirra. En enginn ætti samt sem áður að láta það aftra sér í því að mæta. Þetta verður brjálað fjör!

Hallveigarstaðir kl. 20:00 í kvöld.

4. september 2002

Það er gott

að launamunur kynjana sé komin í umræðuna. Enda lagast munurinn ekki fyrr en eftir 120 ár ef þróunin verður með sama hraða og nú. Það finnst sumum í lagi.

Talandi um suma. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir virðist ekki hafa haft mikinn metnað til að laga launamun kynjana á sínum vinnustað. Ekki er það mjög merkilegt af yfirlýstum femínista.

Colin Powell

var aldeilis tekinn í gegn í Jóhannesarborg. Hann er örugglega ekki vanur svona móttökum. Það er líklega eins gott að Bush fór ekki, þá hefði allt farið á annan endan og lítið komið út úr ráðstefnunni.

Er þetta ekki makalaus frétt?

Féll í eigin gröf
Sikileyskur maður fylgdist svo grannt með byggingu grafhýsis síns að ákafinn varð honum að bana. Giovanni Greco, 63 ára, var mjög umhugað um að grafhýsi hans yrði nákvæmlega eins og hann hafði hugsað sér. Því leit hann reglulega við hjá verkamönnunum sem byggðu það. Síðasta heimsóknin varð honum hins vegar að bana. Hann klifraði upp í stiga til að fá betri yfirsýn, féll ofan í eigin gröf og fórst.

3. september 2002

Í guðanna bænum!

Segið mér að einhver sé að taka upp þættina um Mann fjölsk. Ef svo er vinsamlegast látið mig vita

Það er af sem áður var.

Í eina tíð var bókhlaðan aldrei full nema þegar líða tók á önnina, ritgerðir tóku að hlaðast upp og próf að nálgast. Núna er bókhlaðan pakkfull frá fyrsta degi og hending ef maður nær borði eða tölvu. Í dag var ég heppin, en það þýðir ekki að ég sé það oft og tíðum!

Þetta gæti lesist sem fortíðarþrá, en er það ekki. Ég þoli ekki fortíðarþrá, hún er fyrir aumingja. Það allra versta er að syrgja eitthvað sem aldrei varð. Það gera sumir.

2. september 2002

Horfði á myndina The Last Castle.

Ég nenni ekki að fjalla um myndina að öðru leyti en því að hún er ágæt fær 6.6 í einkunn, en jafnframt tvo aula. Síðari aulinn er nokkuð heiftarlegri en sá fyrri enda kemur bandaríski fáninn þar við sögu (annars hef ég ekkert persónulega út á bandaríska fánan að setja, nema kannski það að á hann vantar stjörnur). Sá fyrri snýst að sjálfsögðu um það að allir byrja að syngja einhverja ættjarðarslepju í einum kór, án viðvörunar.

Einnig ber að var við því að á hulstrinu eru þrjár þyrlur sveimandi yfir hetjunum. En í myndini kemur aðeins ein við sögu.

Ég finn ekki

hleðslutækið mitt og er því símalaus. Þetta er undarleg og nokkuð ógnvekjandi reynsla, en ég ætti að komast áfallalaust í gegnum daginn með hjálp tíkalla og nikótíns.

Björn Lomborg!

Dagar þínir eru taldir.

1. september 2002

Það væri nú gaman

ef þú bloggaðir meira Tryggvi. Eða verða menn andlega geldir af því að kenna krökkunum í Hagaskóla, svona eins og að borða sacher í Vín á gamals aldri eftir efnilega byrjun? Hér gæti ég svo búið til getraun í framhaldi af þessu.

Hver endaði í Vín borðandi Sacher kökur á gamalsaldri eftir efnilega (og kannski rétt rúmlega það) byrjun?

Og engar helvítis kæjakmyndir...