Mikið er ég ánægður með þessa hressu gaura upp á Kárahnjúkum. Ómar R. Valdimarsson upplýsingafulltrúi Inpregríló er hins vegar mjög óhress með hressu gaurana og vill að löggan haldi friðin á svæðinu og komi í veg fyrir lögbrot. Nú er bara spurning hvort að löggan nái að skjóta nokkrum löggum upp á hnjúkana, en ugglaust er hún upptekin við að fletta ofan af ítrekuðum og viðbjóðslegum afbrotum ipmertgiodgíló í garð starfsmanna sinna.
En vitanlega verður að hafa upp á gaurunum sem spreyjuðu á steininn og stálu heilum kveikjulykli úr ýtunni. Það eru allir jafnir fyrir lögum á Íslandi!
Hressu gaurar!
meiri eignaspjöll
meiri skærumótmæli
meira sprey!
Þetta er nú einu sinni stríð maður! Stríðið gegn landinu.
Hins vegar eru ekki allir jafnir í augum vorra vestrænu baráttubræðra í lífinu. Nú eipa allir yfir því að ungur drengur hafi verið skotinn 5 sinnum í höfuðið í lestinni hér um daginn. En hafa hingað til kært sig kollótta um arabana sem eru miskunarlaust myrtir á sömu forsendum í arabíu. Ef einhver keyrir of hratt í vitlausa átt, þá er hann bara skotinn í hausinn og örugglega oft og mörgum sinnum oftar er 5 sinnum. Meira að segja ítalska leynilöggan var drepin um daginn af nákvæmlega sömu ástæðum. En það var í villilandinu arabíu þar sem villifólkið býr og hann getur þá líklega sjálfum sér um kennt að hafa verið að þvælast þarna í villiforaðinu innan um villimennina!
Meira blóð
meira stríð
byltingu og uppreisn!
Löggan vill að atvinnubílstjórar hafi samráð við sig um hvernig hátta eigi mótmælum vegna fáránlegara laga um díselverð. En stundum viljum við borgararnir ekki vera stilltir. Stundum viljum við vera óþekkir og fá þannig athygli. Það virkaði í leikskólanum og svínvirkar þótt að maður sé kominn á miðjan aldur gæti ég best trúað.
Meiri mótmæli
meiri óþekkt
meiri óreiðu!
26. júlí 2005
sagði
Þór Steinarsson
klukkan
12:13
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli